Dagur - 30.12.1985, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 30. desember 1985
Þórsarar stóðu sig mjög vel í knattspyrnunni. Hér sést SigurðuT^^P Pálsson skora eitt marka liðsins, í leik gegn
Fram sem Þór vann 2:0.
Knattspyrna
Það náðist ágætur árangur í
knattspyrnu hér norðanlands og
ber þá fyrst að nefna góðan ár-
angur 1. deildar liðs Þórs sem
lenti í þriðja sæti á íslandsmót-
inu. Þó sá árangur sé góður hefði
hann getað með smá heppni orð-
ið ennþá betri. Því þó liðið hafi
lent í þriðja sæti gaf það ekkert,
hvorki UFEA sæti né annað. Þá
var liðið aðeins hársbreidd frá
því að komast í úrslit í bikar-
keppni KSÍ. Engu að síður er
þessi árangur Þórs sá besti sem
Íiðið hefur náð til þessa.
KA tókst ekki að endurheimta
sæti sitt í 1. deild þó ekki hafi
munað miklu eða einu stigi. En
lið KA lenti í þriðja sæti í 2.
deild. KA náði líka þeim árangri
eins og Þór að komast í fjögurra
liða úrslit í bikarkeppni KSÍ. Er
það í fyrsta skipti sem liðin ná
svo langt í bikarkeppninni.
Siglfirðingar höfnuðu í fjórða
sæti í 2. deild en fengu þó tíu stig-
um minna en KA. Völsungar
höfnuðu í sjötta sæti í 2. deild og
virðist vera erfitt fyrir þá að kom-
ast ofar á töflunni. Leiftur frá
Ólafsfirði stoppaði stutt við í 2.
deild og féll í 3. deild.
Lið Magna frá Grenivík kom
á óvart með góðum árangri í 3.
deildinni en liðið var aðeins hárs-
breidd frá sæti í 2. deild. Það var
lið Einherja frá Vopnafirði sem
vann það sæti í 2. deild sem í
boði var. Tindastóll var einnig í
baráttu um það sæti, þrátt fyrir
að hafa misst marga menn frá
fyrra ári.
í 4. deild komust lið Reynis
frá Árskógströnd og Vaskur í
úrslitakeppnina. Liði Reynis
tókst að vinna sér sæti í 3. deild
að ári en Vaskarar náðu ekki að
sýna nógu góða leiki til þess að
komast upp.
Að lokum má geta góðrar
frammistöðu 3. flokks KA sem
lék til úrslita á íslandsmótinu í
Eyjum í sumar og hafnaði í öðru
sæti. Einnig sigur KA á Pollamóti
Eimskips og KSÍ sem er óopin-
bert íslandsmót í 6. flokki. Er
það í fyrsta skipti sem lið frá Ak-
ureyri verður íslandsmeistari í
knattspyrnu.
Kvennalið KA og Þórs léku
bæði í 1. deild í sumar. Þórsstelp-
urnar höfnuðu í 5. sæti en KÁ-
stelpurnar féllu í 2. deild og höfn-
uðu í næstneðsta sæti.
Vaxtarrækt
Þau Sigurður Gestson og Aldís
Arnardóttir sigruðu í sínum
þyngdarflokkum á íslandsmeist-
aramótinu og urðu þau einnig ís-
landsmeistarar karla og kvenna.
Einar Guðmann varð í öðru sæti
í undir 75 kg flokki og Guðrún
Reynisdóttir varð einnig í öðru
sæti í léttari kvennaflokknum.
Sund
Mikil gróska virðist vera hjá
sundfélaginu Óðni á þessu ári og
krakkarnir hafa sett 102 ný Akur-
eyrarmet á árinu. Þeir krakkar
sem hafa verið hvað duglegastir
við metabætingar eru: Bræðurnir
Ármann H., Svavar Þór og Ingi-
mar Guðmundssynir. Elsa Guð-
mundsdóttir og Birna Björns-
dóttir. Birna gerði betur en að
setja Ak.met því nú um daginn
bætti hún íslandsmetið í 50 m
skriðsundi. Þá hafa þeir bræður
einnig gert atlögur að íslands-
metum og aðeins orðið spurning
hvenær þeir ná að bæta þau.
Júdó
Akureyringar eiga geysilega
sterka júdomenn í yngri
flokkum. Má þar nefna fyrstan
Gauta Sigmundsson sem í sumar
hlaut tækniverðlaun Júdosam-
bands íslands. Gauti keppir í
drengjaflokki og hefur hann ver-
ið sérlega sigursæll á þeim mót-
um sem hann hefur tekið þátt í.
Sem dæmi um góða frammistöðu
hinna ungu júdomanna frá Akur-
eyri má nefna að þeir hirtu 6 af 8
gullverðlaunum á Drengjameist-
aramóti íslands sem fram fór í
janúar síðastliðnum. Þeir sem
fengu gull voru: Gauti Sigmunds-
son, Júlíus Arnarson, Jón Ó.
Árnason, Baldur Stefánsson og
Karl Jónsson. Þá fengust ein gull-
verðlaun fyrir flokkakeppni. Það
er því greinilegt að þjálfari
drengjanna, Jón Öðinn Óðinsson
hefur unnið mikið og gott starf.
_____________Blak______________
Akureyringar urðu mjög sigur-
sælir á íslandsmóti öldinga í blaki
sem fram fór á Akureyri í apríl
síðastliðnum. Óðinn sigraði í
karlaflokki og Eikin í kvenna-
.flokki í 1. deild.
Bæði karla og kvennalið KA
spila í 1. deild í dag og verður að
segjast eins og er að árangur
þeirra er lítill til þessa. Karlaliðið
hefur aðeins unnið einn leik en
kvennaliðið engan.
Golf
Golfklúbbur Akureyrar átti 50
ára afmæli á árinu og af því tilefni
var gefin út af klúbbnum vegleg
afmælisbók. íslandsmótið í golfi
fór fram á velli félagsins að Jaðri
og þótti takast mjög vel. í meist-
araflokki karla og kvenna sigr-
uðu þau Sigurður Pétursson og
Ragnhildur Sigurðardóttir GR.
í 2. flokki kvenna sigraði Sigríð-
ur B. Ólafsdóttir frá Húsavík og í
3ja fjokki karla Bessi Gunnars-
son frá Akureyri.
Kristján Hjálmarsson frá
Húsavík varð Norðurlandsmeist-
ari í sumar. Kristján hafði tals-
verða yfirburði í karlaflokki og er
óumdeilanlega besti kylfingur á
Norðurlandi þetta árið. í kvenna-
Siguröur Gestsson, ókrýndur konungur vaxtarræktarmanna á Akureyri.
Landsmót í golfi var haldið á Akureyri. Hér sést Jón G. Sólnes sem var ann-
ar heiðursgesta mótsins slá upphafshögg mótsins.
flokki varð Inga Magnúsdóttir
frá Akureyri, Norðurlandsmeist-
ari eftir harða baráttu við Sigríði
B. Ólafsdóttur frá Húsavík. í
unglingaflokki sigraði Magnús
Karlsson frá Akureyri.
Þá urðu þeir Kristján Hjálm-
arsson GH og Magnús Karlsson
GA báðir í öðru sæti í sínum
flokki á Unglingameistaramóti
íslands í sumar.
Akureyrarmeistarar í meist-
araflokki karla og kvenna urðu
þau Björn Axelsson og Inga
Magnúsdóttir.
Húsavíkurmeistarar í meist-
araflokki karla og kvenna urðu
þau Kristján Hjálmarsson og Sig-
ríður B. Ólafsdóttir.
Inga Magnúsdóttir GA náði
sér í enn ein verðlaunin er hún
sigraði í meistaraflokki kvenna á
Jaðarsmótinu í sumar og í karla-
flokki sigraði Magnús Jónsson
GS.
_______Badminton__________
Á Norðurlandsmótinu í bad-
minton sem fram fór í vor sigraði
Haraldur Marteinsson TBS tvö-
falt. Hann sigraði Kristinn Jóns-
son TBA í úrslitum í einliðaleik
og þeir Haraldur og Kristinn
unnu svo þá Hauk Jóhannsson o|
Girish Hirlekar í tvíliðaleik. í
einliðaleik kvenna sigraði Sigrún
Jóhannsdóttir TBS Guðbjörgu
Guðleifsdóttur TBS í úrslitaleik.
Þær stöllur kepptu síðan saman í
tvíliðaleik en töpuðu í úrslitum
fyrir þeim Jakobínu Reynisdótt-
ur og Guðrúnu Erlendsdóttur
TBA. í tvenndarleik sigruðu
Guðbjörg Guðleifsdóttir og Odd-
ur Hauksson, þau unnu Sigrúnu
Jóhannsdóttur og Sigurð Stein-
grímsson í úrslitum.
Á Akureyrarmótinu sem einn-
ig fór fram í vor urðu helstu úrslit
þessi: í A-flokki karla sigraði
Kristinn Jónsson, í kvennaflokki
sigraði Guðrún Erlendsdóttir. í
tvíliðaleik karla sigruðu Sveinn
B. Sveinsson og Fjölnir Freyr
Guðmundsson, í kvennaflokki
sigruðu þær Guðrún Erlendsdótt-
ir og Jakobína Reynisdóttir. f
tvenndarleiknum sigruðu þau
Girish Hirlekar og Ragnheiður
Haraldsdóttir.
Þá fór Unglingameistaramót
Norðurlands fram á Siglufirði í
vor og urðu Akureyringar og
Siglfirðingar mjög sigursælir á
mótinu.
Frjálsar íþróttir
Frjálsar íþróttir voru í lægð á
árinu eins og undanfarin ár. Hæst
ber þó glæsilegur árangur Aðal-
steins Bernharðssonar á Meist-
aramóti íslands í sumar. Þar
vann Aðalsteinn þrenn gullverð-
laun.
Þá þykist undirritaður vera bú-
inn að drepa á það helsta sem
norðlenskir íþróttamenn unnu
sér til frægðar á árinu. Það skal
þá tekið fram að ekki er útilokað
að einhverjir hafi orðið útundan
þar sem þetta er það viðamikið.
-KK
Birna Björnsdóttir sunddrottning hefur staðið sig mjög vel á árinu og sett
fjölda meta.