Dagur - 30.12.1985, Qupperneq 16
Akureyri, mánudagur 30. desember 1985
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla
Síminn er
24222
Ovænt í Kolbeinseyjarmálinu:
Utgeröarfélag N.-Þingeyinga
átti hæsta tilboðið!
- Bauð 6-7 milljónum króna meira en ÚA - íshaf á Húsavík með 3. hæsta tilboðið
Útgerðarfélag Norður-Þingey-
inga átti hæsta tilboðið í togar-
ann Kolbeinsey ÞH-10 en 6 til-
boð sem bárust í skipið voru
opnuð hjá Fiskveiðasjóði 19.
desember. Mikil leynd hefur
hvílt yfir tilboðunum, bæði
hverjir þau gerðu og öðru sem
þau varðar.
Helstu eigendur Útgerðarfé-
lags Norður-Þingeyinga eru
Kaupfélag Langnesinga, Hrað-
frystihús Þórshafnar, Þórshafn-
arhreppur og Raufarhafnar-
hreppur. Tilboð félagsins sem
nam 180 milljónum króna var 6-7
milljónum króna hærra en næsta
tilboð sem kom frá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa hf. en þriðja
hæsta tilboðið var frá íshafi hf. á
Húsavík, 160 milljónir. Um hina
þrjá tilboðsgjafana er ekki annað
vitað en að eitt tilboðið kom frá
Grundarfirði. Þá mun það vera
öruggt að Skagstrendingar buðu
ekki í skipið.
Þær raddir hafa verið á lofti
að Útgerðarfélag Norður-Þingey-
Húsavík:
Frítt ílyftur
Tvær af fjórum skíðalyftum á
Húsavík eru komnar í gang.
Lyftan við Skálamel var opnuð
á annan í jólum og lyftan í
Stöllum á laugardag.
Ekki var lokið við að semja
verðskrá fyrir afnot af lyftunum
og var það nokkurs konar jóla-
gjöf til bæjarbúa að bjóða þeim
afnot af lyftunum endurgjalds-
laust. Eftir hádegi á sunnudag
voru um 100 manns á skíðum í
Skálamel og biðröð myndaðist
við lyftuna ,þó að hún flytji um
1300 manns á klukkutíma. IM
Garðarsbraut 2:
Skemmt
af gufu
Stórskemmdir urðu á húsinu
að Garðarsbraut 2 á Húsavík í
gær. Bilun varð í heitavatns-
lögn á efri hæð hússins sem er
tveggja hæða íbúðarhús í eigu
Kaupfélags Þingeyinga. Engir
bjuggu í húsinu.
Vegfarandi varð var við gufu-
mökk frá húsinu og er að var
komið var það orðið gegnsósa af
heitu vatni og fullt af sjóðheitri
gufu. Hús þetta er timburhús og
með eldri húsum á Húsavík,
byggt skömmu eftir aldamót. Það
var sýslumannsbústaður og síðar
bústaður kaupfélagsstjóra. Síðan
í haust hefur það staðið autt enda
ekki talið íbúðarhæft, en til stóð
að gera það upp og voru fram-
kvæmdir hafnar utanhúss. Ekki
var búið að ákveða hvað gert
skyldi við húsið en margt var
búið að nefna t.d. að þar yrði
veitingastaður. IM
Unnendur skíðaíþrótta gátu gripið til skíða sinna um helgina og brugðið sér með þau í fjallið. Og margir urðu til
þess, þrátt fyrir að heldur væri kalt í veðri. Þessi mynd var tekin um hádegisbilið á laugardag. Mynd: KGA
Hlíðarfjall opnað:
Færíð er gott
- en snjórinn mætti vera meiri
„Þaö er búin að vera ágæt að-
sókn þessa fyrstu daga, sér-
staklega í dag,“ sagöi Ivar Sig-
mundsson í Hlíðarfjalli í gær
þegar hann var spurður um
það hversu margir væru farnir
að koma uppeftir á skíði.
Hótelið og lyfturnar voru opn-
Umferðin á Akureyri:
Ellefu árekstrar
Alls urðu 11 árekstrar á Akur-
eyri frá föstudagsmorgni til
hádegis í gær, þar af voru 8
árekstrar á föstudaginn. Engin
meiðsli urðu á fólki.
Tveir menn voru teknir grun-
aðir um ölvun við akstur.
Á laugardagskvöldið var mað-
ur fluttur á sjúkrahús til rann-
sóknar eftir að hafa fallið í stiga í
Sjallanum og rotast. Ekki er vit-
að til að meiðsli hans hafi verið
alvarleg. -yk.
uð fyrir skíðamönnum á þriðja í
jólum og hafa verið opin klukk-
an 11 til 15:00 þessa daga sem
liðnir eru síðan. Lokað verður á
gamlársdag og nýársdag en síðan
verður aftur opið á sama tíma og
áður greinir frá fimmtudegi til
sunnudags ef veður helst kristi-
legt, eins og ívar orðaði það.
Snjórinn er góður það sem af
honum er, sagði ívar, en víða er
hann þunnur. En hvernig leggst
veturinn í ívar og hans lið í fjall-
inu? „Ef það verður almennileg-
ur snjór þá leggst hann vel í
okkur, annars ekki. Byrjunin er
óvenjugóð," sagði Ivar með
bjartsýnistón í röddinni. -yk.
inga muni ekki geta staðið við til-
boð sitt, og tilboðið mun hafa
komið á óvart öðrum en Húsvík-
ingum sem um það vissu fyrir-
fram.
„Það kemur í ljós,“ sagði
Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri
á Raufarhöfn sem á sæti í stjórn
Útgerðarfélags N.-Þingeyinga, er
við spurðum hann álits á þeim
röddum að þeir myndu ekki geta
staðið við þetta tilboð sitt. „Fé-
lagið stendur vel og það eru
sæmilega sterkir aðilar á bak við
það,“ bætti Gunnar við.
Við spurðum Gunnar hvort
ætlunin væri að breyta Stakfelli,
togara Útgerðarfélags N.-Þingey-
inga í frystiskip ef félagið myndi
eignast Kolbeinsey. „Það kostar
ekki nema 6-7 milljónir króna að
gera Stakfell að alfrystiskipi,"
sagði Gunnar. „Það er ekkert
fyrirtæki í landinu sem getur
breytt sinni útgerð þannig, eng-
inn sem hefur þessa aðstöðu
nema við og ef hægt væri að láta
Kolbeinsey veiða í ís eins og hún
er hæfust til, þá gætu þessi tvö
skip sem ein eining skilað um 10
milljónum króna á ári umfram
reksturskostnað.“
Viðræður Fiskveiðasjóðs og
Útgerðarfélags N.-Þingeyinga
munu hefjast fljótlega eftir ára-
mótin. Þess má svo að lokum
geta að í tilboði ÚA í Kolbeinsey
var sá fyrirvari að ef það yrði til
þess að Húsvíkingar misstu skip-
ið yrði fallið frá því. gk-.
Árni Tryggvason leikari
mciddist á sýningu Leikfélags
Akureyrar á Jólaævintýrinu
síðastliðinn laugardag.
Að sögn Signýjar Pálsdóttur
leikhússtjóra gerðist óhappið
þegar andi liðinna jóla var að
svífa af stað með Scrooge upp í
rúmið hans. Hann tognaði í baki
með þeim afleiðingum að hann
gat ekki stigið í annan fótinn og
varð að aflýsa sýningu í leikhléi.
Læknir var kvaddur á staðinn og
úrskurðaði hann að Árni yrði að
liggja í rúminu að minnsta kosti í
einn dag en hugsanlegt er að
hægt verði að sýna í kvöld. Sýn-
ingu sem átti að vera í gærkvöld
var hins vegar aflýst. -yk.