Dagur - 08.01.1986, Page 9
8. janúar 1986 - DAGUR - 9
JþróttiL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Eikin sigraói
með glæsibrag
- á trimmmóti í blaki
A laugardag fór fram heilmik-
ið trimmmót í blaki. Mótið var
haldið í Kópavogi og keppt
bæði í karla- og kvennaflokki.
AUs voru liðin 16 að tölu, 9 í
karlaflokki og 7 í kvenna-
flokki.
í karlaflokki mættu til leiks,
Próttur a og b, Skautar, Óðinn,
Afturelding, Keflavík, Akranes,
HK og Höfrungur. I kvenna-
flokki voru 4 lið frá HK, Eikin,
Víkingur og Akranes. Keppt var
í tveimur riðlum í báðum flokk-
um og þau tvö lið í hvorum flokki
er efst urðu kepptu til úrslita.
í öðrum riðlinum í karlaflokki
voru Skautar, Próttur b, Kefla-
vík, HK og Afturelding. En í
hinum riðlinum léku Þróttur a,
Óðinn, Akranes og Höfrungar.
í öðrum riðlinum í kvenna-
flokki voru: Tvö lið frá HK,
Akranes og Eikin en í hinum tvö
lið frá HK og Víkingur. Eikin
sigraði í sínum riðli og lék til úr-
slita við Víking sem sigraði í hin-
um riðlinum. Er skemmst frá því
að segja að Eikin sigraði örugg-
lega og stóð uppi sem sigurvegari
mótsins. Góður árangur hjá þeim
stúlkum en þær töpuðu aðeins
einni hrinu á mótinu, gegn HK í
riðlakeppninni.
Skautar byrjuðu á því að vinna
Þrótt b og Keflvíkinga en töpuðu
svo, fyrst fyrir Aftureldingu og
síðan HK. í hinum riðlinum
unnu Óðinsmenn Höfrunga og
Akranes en töpuðu fyrir Þrótti a.
Þannig að eftir riðlakeppnina
voru Skautar í þriðja sæti í sínum
riðli og Óðinsmenn í öðru sæti í
sínum. Skautar kepptu um 5.-6.
sætið við Akranes og sigruðu í
þeirri viðureign. Óðinsmenn
kepptu aftur um 3.-4. sætið á
mótinu en töpuðu fyrir Aftureld-
ingu og lentu í fjórða sæti. Til
úrslita léku Þróttur a og HK og
sigraði HK 2-1.
Á þessu móti var einungis leik-
ið upp á tvær unnar hrinur og
þeir sem kepptu á mótinu 'máttu
ekki vera á fullri ferð í deilda-
keppninni. Þarna mætti fólk á
öllum aldri til leiks en mest bar
nú á gömlu landsliðsmönnunum.
íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
Þór og KS
í riðli með
meisturunum
íslandsmótið í innanhúsknatt-
spyrnu hefst um aðra helgi. Þá
verður leikið í 2. og 3. deild.
Aftur á móti verður 1. deildin,
4. deildin og kvennadeildin
ekki spiluð fyrr en helgina
21.-23. febrúar.
Dregið hefur verið í riðla í öll-
um deildum og lítur riðlaskipt-
ingin þannig út: 1. deild, A riðill,
Fram, Grótta, ÍBK og ÍA. B
riðill, Haukar, Valur, FH og KA.
C riðill, UBK, KR, Þróttur R. og
Gústaf
til KS
Knattspyrnufélag Siglufjarðar
hefur ráðið Gústaf Björnsson
sem þjálfara meistaraflokks fé-
lagsins fyrir komandi keppnis-
tímabil. Einnig er líklegt að
hann Ieiki með liðinu en Gúst-
af er mjög snjall leikmaður.
Síðastliðin tvö ár hefur Gúst-
af verið þjálfari hjá ÍR og vann
liðið sér sæti í 3. deild undir hans
stjórn í haust. Þá hefur Gústaf
einnig þjálfað og leikið með
Tindastóli frá Sauðárkróki og
skoraði þá mikið af mörkum fyrir
félagið. Siglfirðingar binda mikl-
ar vonir við störf hans en ekki er
reiknað með að hann komi norð-
ur fyrr en í vor vegna vinnu
sinnar. Munu þá að öllum líkind-
um heimamenn stjórna vetraræf-
ingunum á meðan.
Selfoss. D riðill UMFS, KS, Þór
AK. og Fylkir.
í 2. deild lítur riðlaskiptingin
þannig út: A riðill Austri, HV,
Léttir og Víkingur R. B riðill,
Bolungarvík, Leiftur, HSÞ-b og
Neisti. C riðill Reynir S.,
UMFG, Víðir og ÍR. D riðill,
Ármann, ÍBÍ, Þróttur Nes. og
ÍK.
í 3. deild lítur skiptingin þann-
ig út: A riðill, Hafnir, Víkingur
O. UMFN og Árvakur. B riðill
Víkverji, Árroðinn, Stjarnan og
Valur Reyðarf. C riðill Stokks-
eyri, Reynir Árskógsströnd,
Leiknir F. og ÍBV. D riðill Aftur-
elding, Vorboðinn, Leiknir Rvk.
og Einherji.
í 4. deild eru 5 lið í hverjum
riðli og lítur skiptingin þannig út:
A riðill Súlan, Þórsmörk, Geisli,
Vaskur og Skotfélag Rvk. B
riðill, Grundarfjörður, Tinda-
stóll, Trausti, Hrafnkell Freys-
goði og Hveragerði. C riðill,
Augnablik Reynir Hnífsd.,
Völsungur, Eyfellingur og Sindri.
D riðili, HSS, Baldur, Huginn,
Höttur og Efling.
í kvennaflokknum lítur riðla-
skiptingin þannig út: A riðill,
UBK, Stokkseyri, Fram og
UMFS. B riðill, Afturelding,
Valur, KS og Þór AK. C riðill
Víkingur Rvk., Stjarnan, ÍA og
UMFG. D riðill, ÍBÍ, KA, KR
og Haukar.
Eins og áður sagði verðúr spil-
að í 2. og 3. deild um aðra helgi,
í 2. deild sunnudaginn 19. janúar
og í 3. deild laugardaginn 18. jan-
úar.
Lið Eikarinnar hefur verið mjög sigursælt í blaki á árinu. Nú síðast í Kópavogi um helgina. Myndin var tekin eftir
sigur liðsins á íslandsmóti öldunga ■ vor. Mynd: Norðurmynd.
KA - Þróttur í kvöld í Höllinni:
en Valsmenn mæta Stjörnunni.
Fram og KR eiga innbyrðisleik í
kvöld. Bæði liðin eru í fallhættu
og berjast fyrir tilverurétti sínum
af miklum krafti. Tapi KR fyrir
Fram eða ef það verður jafntefli,
falla KR-ingar í 2. deild. Stjarn-
an á enn fræðilegan möguleika á
sigri í deildinni. Liðið er með 18
stig og ef það vinnur FH í kvöld
og jafnt verður í leik Vals og
Víkings getur allt gerst.
KA fær Þrótt í heimsókn ættu
þeir að verða auðveld bráð fyrir
KA-liðið sem hefur leikið ágæt-
lega á köflum. Þróttarar hafa
ekki náð stigi ennþá og eru ekki
líklegir til þess að gera það úr
þessu.
Blaðið hafði samband við Erl-
ing Kristjánsson stórskyttu úr
KA og spurði hann um leikinn í
kvöld og við FH á laugardaginn.
„Leikurinn við Þrótt leggst
ágætlega í mig. Við erum sloppnir
við falldrauginn og ef hugarfarið
hjá okkur strákunum er í lagi eig-
um við að vinna Þróttarana ör-
ugglega. Mér fannst leikurinn
gegn Fram frekar slakur þrátt
fyrir sigur og þá sérstaklega í
vörninni. Sóknin var svo sem
ágæt enda held ég að þessi 26
mörk sem við skoruðum sé það
mesta í vetur hjá okkur."
- Er ekki hætta á að fólk nenni
ekki að mæta vegna þess hversu
illa Þrótti hefur gengið í mótinu?
„Nei það held ég alls ekki. Það
er mjög góð vinningsvon hjá okk-
ur þannig að ég á von á að fólk
fjölmenni í Höllina.“
- Hvað um leikinn við FH í
Hafnarfirði á laugardaginn?
„Við ætlum okkur að vinna
þann leik líka og tryggja okkur
þar með fjórða sætið í deildinni.
Ofar komust við ekki úr þessu.“
- Ertu búinn að vera ánægður
með tímabilið það sem af er?
„Tímabilið er búið að vera
mjög gott. Ég hef að vísu ekkert
getað æft að ráði með liðinu
vegna skólans. En þetta hefur
gengið vonum framar og ég er
ánægður," sagði Erlingur að
lokum.
Nú fer senn aö líða að lokum
1. deildar keppninnar í hand-
bolta. Aðeins eru tvær um-
ferðir eftir og fer sú næstsíð-
asta fram í kvöld. KA fær
Þrótt í heimsókn norður,
Stjarnan mætir FH í Hafnar-
fírði og í LaugardalshöII verða
tveir leikir. Fyrst leika Valur
og Víkingur og strax á eftir
Fram og KR.
Aðalleikur næstsíðustu um-
ferðar er viðureign Vals og Vík-
ings í Laugardalshöll. Það lið
sem sigrar er komið með aðra
höndina á íslandsmeistarabikarinn
í ár. Valur og Víkingur eru jöfn
að stigum með 20 stig hvort félag.
Ef um jafntefli verður að ræða
verður að telja möguleika Vík-
ings á sigri meiri, þar sem þeir
leika gegn KR í síðustu umferð
Erlingur Kristjánsson hefur leikið mjög vel með KA í vetur Mynd: - KGA.
„Eigum að vinna
leikinn örugglega
- segir Erlingur Kristjánsson