Dagur - 08.01.1986, Síða 10
10 - DAGUR - 8. janúar 1986
Vantar starfsstúlku í Pylsu-
vagninn á Ráðhústorgi frá
kl. 11-16. Þarf að byrja 10. janúar.
Upplýsingar í síma 24810 eftir
kl. 8 á kvöldin.
Pésa pylsur.
Vantar þig vinnu?
Saumastofan Þel auglýsir eftir
konu við viðgerðir og sauma á
skinnafatnaði og fl. Þarf að vera
verklagin, vandvirk og útsjónar-
söm. Vinnutími eftir samkomulagi,
3-6 klst. á dag. Uppl. á Sauma-
stofunni Hafnarstræti 29.
Ekki í sfma.
Get tekið að mér börn í pössun
V4 daginn. Get byrjað strax. Uppl.
í síma 26367 eftir hádegi.
Félagsvist verður haldin að Mel-
um í Hörgárdal föstudagskvöldið
10. janúar kl. 21.
Kvenfélagið.
Til sölu Mazda 626 árg. 1984.
Ekin 23 þúsund km. Uppl. í síma
24990.
Hestar til sölu.
Til sölu 8 vetra brúnn hestur
með allan gang. Einnig 7 vetra
rauðvindóttur klárhestur með
tölti. Uppl. í síma 25997 í hádeg-
inu og eftir kl. 19.00.
Hestamenn - Hestamenn.
Tökum að okkur tannröspun og
járningar á hestum í vetur. Útveg-
um skeifur. Vanir menn.
Einar Jónasson, sími 25068.
Einar Örn Grant, sími 22029.
íbúð til leigu.
Fjögurra herbergja íbúð á fyrstu
hæð í fjölbýlishúsi við Keilusíðu til
leigu til 1. júlí. Laus strax. Uppl. í
síma 21721 á skrifstofutíma og í
síma 22735 milli kl. 17-20.
Herbergi óskast.
Óska eftir að taka herbergi á leigu.
Uppl. í síma 25426 á daginn.
Tveggja herbergja íbúð óskast
til íeigu. Upplýsingar í síma
25968 eftir kl. 19.
Saumanámskeið hefjast fimmtu-
daginn 9. janúar. Uppl. í síma
26919 eftir kl. 19.00.
Skákmenn Eyjafirði.
Skákþing Eyjafjarðar hefst sunnu-
daginn 12. janúar ’86 að Þela-
merkurskóla kl. 13.30. Teflt veröur í
tveimur flokkum fullorðinna og
unglinga. Teflt verður um helgar.
Stjórnin.
Til sölu Polaris Centurion árg.
’80, ek. 2.000 mílur.
Polaris Cobra 440 árg. '79, ek.
500 mílur.
Topp sleðar.
Bflasalan hf. Skála
v/Kaldbaksgötu
símar 26301 og 26302.
Jólakort og póstkort óskast.
Þeir sem ekki halda jólakortum
sinum og póstkortum til haga en
myndu vilja láta þau af hendi við
safnara, eru beðnir að hafa sam-
band við Alla á fyiánárbakka.
Sími (96) 41957.
Árshátíðir - Þorrablót.
Salurinn til leigu fyrir árshátíðir og
þorrablót.
Café Torgið,
sími 24199.
Hreingerningar, teppahreinsun,
gluggaþvottur.
Tökum að okkur hreingerningar á
íbúðum, stigagöngum og stofnun-
um, einnig teppahreinsun með
nýrri djúphreinsivél sem hreinsar
með góðum árangri. Vanir og
vandvirkir menn. Aron í síma
25650 og Tómas í síma 21012.
Hreingerningar-Teppahreinsun.
Tökum að okkur teppahreinsun,
hreingerningar og húsgagna-
hreinsun með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
Ökukennsla.
Vilt þú læra á bíl eða bifhjól?
Lærið á hagkvæman og öruggan
hátt á nýja GM Opel Ascona 1600.
Útvega öll prófgögn og vottorð.
Egill H. Bragason, ökukennari,
símar 23347 ★ 22813
hringdu og
kynntu þér
auglý5ÍngaKjörin
(96)24222
Útbieulilusta dagblaðið jyrir norðati
-bækuc.
I.O.O.F. 2 = 1671108V4 = Atk.
Lionsklúbburinn
Huginn.
Félagar munið fundinn
á morgun, fimmtudag-
inn 9. janúar kl. 12.05.
Kiwanisklúbburinn
Kaldbakur. Fundur
fimmtudaginn 9. janúar
kl. 19.30. Hrólfsfélagar
koma í heimsókn.
Fyrirlesari:
Bernharð Haraldsson, skólameist-
ari.
Stjórnin.
Spiluð verður félagsvist
að Bjargi fimmtudaginn
9. desember kl. 20.30.
Mætum vel.
Allir velkomnir.
Spilanefnd Sjálfsbjargar.
Vinningsnúmer í Byggingarhapp-
drætti Tónlistarskóla Ragnars
Jónssonar:
1. Ford Excort Laser: 10399.
2. -11. Ferð með Flugleiðum að
eigin vali kr. 15.000: 644, 8811,
22016, 17577, 13115, 16778,
17167, 10876, 22019, 26631.
12.-31. Ferð með Flugleiðum að
eigin vali innanlands kr. 4.000:
23904, 10318, 2999, 18158, 27582,
12127, 28933, 8001, 28140, 16388,
14479, 3455, 8895, 24993, 9976,
14505, 3263, 5206, 25196, 12500.
32.-64. Vöruúttekt fyrir kr. 5.000:
2452, 14503, 24730, 6946, 24830,
21616, 5243, 29739, 17318, 21559,
17873, 21549, 24994, 22095,
12108, 9192, 3601, 26500, 10956,
13896, 12929, 18381, 2832, 28083,
5215, 11781, 13273, 29867, 24209,
8014, 1725, 27290, 9641.
ORÐ DagSINS
SÍRII
Minningarsjóður Rannveigar og
Jóns Sigurðssonar til styrktar
æskulýðsstarfi Hjálpræðishersins.
Minningarspjöldin fást hjá Her-
mínu Jónsdóttur, Strandgötu 25b
og Hjálpræðishernum, Hvanna-
völlum 10.
- •> ■ ■ ■ ■
Leikféíag
AÁureyrar
JóCaœvintýri
Söngleikur byggður á sögu eftir
Charles Dickens.
Sunnudaginn 12. janúar kl. 16.00.
Miðasalan opin í Samkomu-
húsinu alla daga nema
mánudaga frá kl. 14-18.
Sími 96-24073.
Bráð banarað
Ný bók eftir höfund
bókanna um Rambó
Út er komin ný bók eftir hinn kunna
spennusagnahöfund, David Morrell
en hann skrifaði bókina „/greipum
dauðans (First Blood)“ sem sam-
nefnd kvikmynd var gerð eftir. Sögu-
hetjan, Rambó, varð síðan tilefni
annarrar bókar og kvikmyndar,
Rambó.
Þessi bók Morrell sem nú kemur
út nefnist á íslensku, Bráð banaráð
og er efni hennar kynnt þannig á
bókarkápu: „Allt byrjaði þetta í
heimsstyrjöldinni síðari og endaði
þrjátíu og sjö árum síðar á skelfi-
legan hátt. Pétur Houston kemur til
Frakklands til að efna gamalt heit
um að heimsækja leiði föður síns
sem dáið hafði í stríðinu. En yfir-
völd tjá honum að leiðið finnist ekki
og franskur vinur föður hans sem
lofað hafði að annast gröfina hafði
horfið á dularfullan hátt árið 1944.
Eini maðurinn sem veit leyndarmál
hans er gamall og lasburða prestur
sem er þögull eins og gröfin. Leit
Péturs snýst upp í martröð er eigin-
kona hans ferst í dularfullu bílslysi.
Pétur sver þess dýran eið að hefna
konu sinnar og láta einskis ófrestað
til að komast til botns í málinu.
Leikurinn berst um borgir Frakk-
lands og upp í Alpana en Pétri
Houston er ljóst að voldugir and-
stæðingar eru á slóð hans. Hann
berst gegn ofbeldi, lygum, spillingu
og svikum sem rekja má þrjátíu og
sjö ár aftur í tímann . . .
Bókina þýddi Andrés Kristjáns-
son. Bókaútgáfan Iðunn gefur út.
Oddi hf. prentaði.
Gengisskráning
7. janúar.
Eining Kaup Sala
Dollar 42,000 42,120
Pund 60,417 60,590
Kan.dollar 29,858 29,943
Dönsk kr. 4,7151 4,7286
Norsk kr. 5,5840 5,5999
Sænsk kr. 5,5530 5,5689
Finnskt mark 7,7908 7,8130
Franskur franki 5,6172 5,6333
Belg. franki 0,8424 0,8448
Sviss. franki 20,2928 20,3508
Holl. gyllini 15,2772 15,3208
V.-þýskt mark 17,2096 17,2588
ítölsk líra 0,02523 0,02530
Austurr. sch. 2,4472 2,4542
Port. escudo 0,2684 0,2691
Spánskur peseti 0,2750 0,2758
Japanskt yen 0,20862 0,20922
írskt pund 52,445 52,595
SDR (sérstök
dráttarréttindi) 46,0671 46,1982
Símsvari vegna gengisskráningar:
91-22190.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eig-
inmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ÞÓRHALLS JÓNASSONAR,
Hafnarstræti 33, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri og á Kristneshæli.
Lilja Guðlaugsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Svikavefur á
sjúkrahúsi
eftir Konsalik
Svikavefur á sjúkrahúsi nefnist
fjórða bók þýska spennusagnahöf-
undarins Heinz G. Konsalik sem Ið-
unn gefur út.
„Lík ungrar stúlku er flutt af
skurðstofu sjúkrahússins um miðja
nótt. Enginn veit hver fylgdi henni á
sjúkrahúsið né hverjir ættingjar
hennar eru. Þessa nótt hefst harm-
leikur sem hefur örlagaríkar af-
leiðingar á sjúkrahúsinu. Erika
Werner er ungur læknir sem stendur
í ástarsambandi við Bornholm yfir-
lækni, aðalskurðlækni sjúkrahúss-
ins. Henni er ekki ljóst að hann not-
ar hana á miskunnarlausan hátt til
að hylma yfir glæp. Frami hans og
starf gengur fyrir öllu og Bornholm
er til alls vís er böndin berast að
honum. Hann á öfluga andstæðinga
sem staðráðnir eru í að knésetja
hann.“
Heinz G. Konsalik er viðlesinn
afþreyingahöfundur og koma bækur
hans út á fjölda tungumála. Bæk-
urnar sem áður hafa komið út eftir
hann á íslensku nefnast: „Hjarta-
læknir mafíunnar", „Eyðimerkur-
læknirinn" og „Hákarlar um borð“.
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi.
Oddi hf. prentaði. Auglýsingastofan
Octavo hannaði kápu.
Jóakim
-vönduð og umhugs-
unarverð barnabók
Iðunn hefur sent frá sér barnabók-
ina Jóakim eftir norska rithöfundinn
Tormod Haugen. Þetta er afar vel
skrifuð og næm lýsing á lífi ungs
drengs. Áður hefur verið þýdd önn-
ur bók á íslensku eftir sama höfund,
Náttfuglarnir, sem fjallar um sömu
söguhetju. Þessar bækur hafa verið
þýddar á fjölda tungumála og fengið
mikla viðurkenningu og lof gagnrýn-
enda. Þær hafa m.a. hlotið verðlaun
norskra bókmenntagagnrýnenda og
þýsku barnabókaverðlaunin.
Um efni bókarinnar segir m.a.:
Jóakim er að verða níu ára gamall.
Hann á heima í sambýlishúsi ásamt
mömmu sinni og pabba. Mamma
vinnur í kjólabúð og pabbi er kenn-
ari. En pabbi fer ekki í skólann því
að hann er hræddur. Jóakim er líka
hræddur. Um leið og hann vaknar
um morguninn veit hann að eitthvað
skelfilegt hefur komið fyrir. Jóakim
verður að fóta sig í ótryggum heimi,
þar sem krakkarnir geta verið and-
styggilegir og fullorðna fólkið pukr-
ast með leyndarmál sem börnin eiga
ekki að geta skilið. Hann vill hafa
bæði pabba og mömmu hjá sér en
það gengur ekki alltaf vel. Oft bíður
Jóakim ósigra, en hann gefst ekki
upp. Og stundum sýnir hann styrk
sem hann vissi ekki að hann ætti til.
Eins og þegar hann stoppar Róbert í
miðju innbroti. . .
Bókin er gefin út með styrk úr
þýðingarsjóði Norðurlandaráðs.
Njörður P. Njarðvík þýddi. Auglýs-
ingastofan Octavo hannaði kápu.
Oddi hf. prentaði.