Dagur - 08.01.1986, Side 11
8. janúar 1986 - DAGUR - 11
Texti og myndir:
Gestur Kristinsson,
blaðamaður
Dags á Blönduósi
starfsmönnum hefði fækkað úr 35
í sumar í 22 nú um áramótin,
vegna samdráttar í starfseminni.
„En ég er ekkert svartsýnn,“
sagði Hilmar, „þetta lagast með
vorinu, þetta verða svona 3-4
mánuðir.“
Óskar Húnfjörð hjá Brauð-
gerðinni Krútt, sagði að hjá þeim
hefði fækkað um 7 manns upp á
síðkastið, sumpart vegna hag-
ræðingar, en aðallega vegna sam-
dráttar. Hann sagði mjög dökkt
framundan hjá bökurum vegna
fyrirhugaðs vörugjalds á kökur
og hætta á stórauknum innflutn-
ingi, þar sem erlendar kökur eru
þegar með vörugjaldi og hækka
því ekki. Þá kvað Óskar fólks-
fæðina gera allan atvinnurekstur
erfiðari, auk þess sem Blönduós
og nágrenni væri láglaunasvæði
og fólk ætti hreint ekki peninga
til eyðslu á við það sem gerðist
víða annars staðar. „Mér finnst
sárgrætilegt að heyra menn tala
um að setja allt að 60 milljónir í
höfn á Blönduósi. Miklu nær væri
að setja þessa upphæð í uppbygg-
ingu á iðnaði sem gæfi ábyggilega
miklu fleiri atvinnutækifæri, ég
vil fá hér stóriðju," sagði Óskar.
„En ég vil samt rækjuvinnslunni
vel, en sé bara ekki að það sé
hægt að bæta sífellt við þann
flota, sem er að eltast við allt of
fáa fiska.“ Þá sagði Óskar að það
væri íhugunarefni hvort sá mikli
fjöldi sem starfar hjá ríki eða bæ,
hafi ekki sljóvgandi áhrif á fram-
farir í atvinnulífinu.
Ragnar Ingi Tómasson, for-
maður atvinnumálanefndar á
Blönduósi sagði að nýlokið væri
könnun hjá fyrirtækjum á
staðnum, öðrum en opinberum
fyrirtækjum og útkoman virtist
sú að litlar eða engar breytingar
yrðu hjá þeim í nánustu framtíð.
„Ástandið er heldur lakara núna,
en undanfarin ár,“ sagði Ragnar
„en þó er hér um að ræða árvisst
atvinnuleysi á þessum tíma. Ég
er mjög dapur með hvað litlu fé
er veitt hingað af fjárlögum til
framkvæmda t.d. við héraðshæl-
ið, íþróttahúsið og höfnina, ef
haldið væri áfram með þessar
Hvað er að gerast á Blöndu-
ósi? Er byggðin í hættu? Hefur
Blönduós gleymst í byggða-
stefnunni? Þessar og álíka
spurningar vakna þegar maður
fer að skoða atvinnumál eða
uppbyggingu staðarins. Að
minnsta kosti eitt fyrirtæki,
sem veitt hefur 10-12 manns
atvinnu, er til sölu og heyrst
hefur um annað, þar sem
starfa 4-5 menn. Þá hafa önnur
fyrirtæki dregið saman starf-
semi sína og þar af leiðandi
þurft að fækka fólki. Um ára-
mót voru 15 manns á atvinnu-
leysisskrá og er talið öruggt að
þeim fjölgi mikið nú í janúar.
Heyrst hefur að á milli 5 og 10
fullbúin einbýlishús séu til sölu
auk húsa í byggingu og smærri
íbúða og verður það að teljast
talsvert hátt hlutfall á svo litlum
stað sem Blönduósi.
En hvað með uppbyggingu
staðarins og ný tækifæri, er engin
glæta?
Varla getur það talist, en þó
ber að geta þess að Kaupfélag
Húnvetninga virðist vera eini að-
ilinn sem reynir að klóra í
bakkann, en K.H. keypti fyrir
nokkru súpugerðina Vilko, og
mun færa starfsemina norður á
næstunni. Má búast við að þar
skapist atvinna fyrir 4-5 mann-
eskjur. Dagur hafði samband við
nokkra aðila á Blönduósi um
ástandið, og fara svör þeirra hér
á eftir.
Einar Evertsen eigandi tré-
smiðjunnar Eik sagði öll líkindi
á að trésmiðjan Eik hætti starf-
semi á næstunni, alla vega hefur
komið til tals að selja húsnæði
fyrirtækisins og var öllum starfs-
mönnum sagt upp nú fyrir ára-
mót alls 10 manns. Þá sagði Einar
að hann héldi að sér höndum sem
stæði og tæki engar ákvarðanir
um framhald, fyrr en ljóst væri
hvort húsnæði seldist eða ekki.
Aðspurður hvað gerðist ef hús-
næði seldist ekki, sagði Einar að
til greina kæmi að reyna aftur, en
það væri ekki á að lítast, því
verkefni væru nánast engin sjáan-
leg framundan. Einar reiknaði
með að flestir fyrrverandi starfs-
menn fyrirtækisins færu fljótlega
á atvinnuleysisbætur.
Hilmar Kristjánsson hjá
Trésmiðjunni Stíganda sagði að
„Við þyrftum að fá stóriðju á svæðið,“ segir Óskar
Húnfjörð.
framkvæmdir þyrfti enginn að
vera atvinnulaus á Blönduósi,"
sagði Ragnar.
Að lokum sagði Ragnar Ingi:
„Ég sé ekki hvað þessir skarfar
eru að hugsa, sem eiga að vera
þingmenn okkar. Þeir eru með
hugann við eitthvað allt annað og
vonandi man fólk það í næstu
kosningum“ - G.Kr.
Ragnar Ingi Tómasson, formaður Atvinnumálanefndar
Blönduóss.
Akureyringar
Eyfirðingar
Skemmtið ykkur með þingeyskum harmonikuleikur-
um í Lóni við Hrísalund laugardaginn 11. janúar.
Dansað verður frá kl. 22.00 til 03.00 e.m.
Verið velkomin.
Harmonikufélag Þingeyinga.
Laus
störf
Vegna aukinna umsvifa viljum við ráða í
eftirfarandi störf:
Sníðingu á leðri.
Samsetningu á skóm.
Saumakonur á dag- og kvöldvakt.
Símavörslu og gerð tollskýrslna.
Ef þú hefur til að bera
áhuga,
mætir vel og stundvíslega,
dugnað,
og síðast en ekki síst
gott skap.
Þá ert þú starfsmaður sem við þurfum á að
halda og þú ættir að hafa samband við okkur
strax í síma 21900, Úlfar.
SKÓGERÐIN
AKUREYRI