Dagur - 20.01.1986, Blaðsíða 5
20. janúar 1986 - DAGUR - 5
_Jesendahorniðl
Háleistar og lopa
peysur það sem
gildir á Akureyri
- Ekki fýsilegt að flytja til Akureyrar vegna þess hversu dýrt er að
hita upp húsin, segir bréfritari
Ágæti Dagur!
Eftir 10 ára fjarveru úr bænum
við nám og störf innanlands og
utan, þurfum við hjónin nú að
fara að ákveða hvar á landinu
helst kæmi til greina að setjast
að. Við feðgarnir skruppum
hingað í síðbúna jólaheimsókn til
afa og ömmu, m.a. til að rifja
upp hversu gott það væri hér á
Akureyri. En viti menn, hér hef-
ur fólk ekki efni á að kynda húsin
sín lengur! Nú eru það bara há-
leistar og lopapeysur sem gilda.
Mér koma í hug árin í Eng-
landi þegar ég hugsaði með stolti
heim til íslands, aldrei þyrfti
maður að klæða af sér kulda
innandyra þar. Því er sárt að
þurfa að viðurkenna annað núna.
Á ég að trúa því sem ég heyrði
að í frostakafla um daginn hafi
eldra fólk hér í bæ orðið að yfir-
gefa íbúðir sínar vegna kulda?
Tvíeggjaður spamaður
- Óverulegur aukakostnaður við hækkun á
hemilsstillingu, segir hitaveitustjóri
Það gæti svo sem staðist, hér þarf
fólk víst að borga kr. 58/m’ meðan
við borgum kr. 17/m’ í Reykjavík,
kunningi minn hér sagði mér að
hjá honum hefði hitastigið á
heita vatninu aldrei farið yfir 68
stig í vetur.
Pað er því greinilegt að við
verðum að íhuga það vel hvort
borgi sig að setjast hér að, sem
þó var mjög ofarlega í huga
okkar. Með u
Hrafn Sigurðsson.
Höfundur er deildarhjúkrunarfræðingur
á skurðdeild Borgarspítalans.
Mælarnir sjá til þess að notandinn greiði ekki fyrir annað en það heita vatn,
sem hann notar.
Efnisatriði þessa bréfs voru borin
undir Wilhelm V. Steindórsson,
hitaveitustjóra. Hann sagði það
vissulega áhyggjuefni, ef fólk
hefðist ekki við í húsum sínum
vegna kulda. Þar væri hins vegar
ekki við hitaveituna að sakast,
því nægilegt vatn væri til staðar.
Ástæðuna mætti hins vegar rekja
til þess, að húseigendur tækju inn
minna vatnsmagn heldur en þeir
þurfa þegar kaldast er. Þetta væri
arfleifð frá því að vatnið var selt
samkvæmt hemli. Þá gátu húseig-
endurnir sparað sér verulegar
fjárhæðir á ári, með því að láta
stilla hemlana undir hámarks-
vatnsþörfinni, en leggja það þess
í stað á sig, að skjálfa úr kulda
köldustu daga ársins. Þetta væri
hins vegar liðin tíð.
Wilhelm benti á, að eftir að
mælasölufyrirkomulagið var tek-
ið upp, þá greiði neytendur að-
eins fyrir það vatn sem þeir nota,
auk fastagjalds fyrir hvern lítra
samkvæmt hemli. Það væri 250
kr. á mánuði, eða 3.000 kr. á ári.
Wilhelm sagði þess mýmörg
dæmi, að ekki vantaði nema um
hálfan lítra til viðbótar á hemli,
til að nægilegt vatn væri til
staðar, þegar kaldast er. Þessi
hálfi lítri þyrfti lítinn annan
kostnað að hafa í för með sér en
leigugjaldið, þar sem hann væri
ekki nýttur nema í kuldaköstum.
Kostnaðaraukinn væri því óveru-
legur, en hins vegar væru krón-
urnar fljótar að fjúka, ef laus-
tengdir rafmagnsofnar væru not-
aðir til að halda hita í húsunum í
frosthörkum. En Wilhelm undir-
strikaði það, að þetta væri háð
því að stýrikerfi á ofnakerfum
húsanna væri í góðu lagi.
Þjónustan á hótel
KEA ekki nógu góð
- Svar til KEA-unnanda, sem skrifaði
í blaðið í síðustu viku
Svar til Kea-unnanda
Kea-unnandi skrifaði lesendabréf
15. janúar sl. og hældi nýja saln-
um á Hótel KEA í hástert. Lang-
ar mig að setja nokkrar línur á
blað um þetta líka þar sem ég var
einnig á staðnum.
Jú, þetta er fyrirmvndarstaður
fyrir utan smá vankanta sem
venjulegur leikmaður sér ekki og
leggur sig sennilega ekki eftir. En
sumt mætti betur fara og veit ég
að fleiri hafa séð, en ætla ég ekki
að tína það til hér.
Það sem ég hjó mest eftir í
þessu bréfi var hól á þjónustuna.
Það má vera unnandi góður að þú
-högnL
Hraust sál í heilbrigðum, - eða þannig
Ég held að það hafi verið fyrir
þremur árum að likams- og
heilsuraektaráhugi fór að gera
vart við sig hjá undirrituðum.
Líklega átti þetta rætur að rekja
til skyndilegrar fyrirferðar-aukn-
ingar kringum nafla, ásamt fjór-
földun á undirhökum. Þessu
fylgdi svo ískyggileg aftur-
þyngdaraukning. I stuttu máli:
Ég var að hlaupa i spik.
Hért þurftl að spyrna við fót-
um og lá beinast við að gripa til
íþrótta. Þar sem þetta var að
vetrarlagi komu skíði fyrst í
hugann. Athugun ieiddi í Ijós að
brun- og svig-skíði rennna svo
hratt niður brekkur, að hver sá
er á þeim stendur, er í bráðri
Kfshættu. Gönguskíði fara mun
hægar, eins og nafnið bendir til,
enda urðu þau fyrir valínu.
En það er ekki eins og maður
só að kaupa sér pylsu, að fjár-
festa í göngusklðaútbúnaði.
Maður labbar ekki inn í sport-
vörubúð og biður um göngu-
skíði með öllu. Nei. Úthaidið
kostar skildinginn. Þess vegna
var kaupunum skipt niður á fjár-
iög þriggja ára.
Loksins var allt komið:
Gönguskíði, mikið boginn í
annan endann (að framan),
bindingar (á bæði skíðin) stafir
(2 stk), skór, íþróttagalli, skíða-
hanskar, uppháir sokkar, föður- ■
land og prjóna-húfa. Allt var
þetta hannað og framleitt fyrir
afreksmenn og ólympíu-meist-
ara I greininni. Skyldi maður
nú ætla að svona útbúinn væri
hver sem er fær (fiestan snjó.
En snjór er þeirrar náttúru
gæddur að biotna í hláku en
frjósa í frosti. Þetta hafði einmitt
gerst daginn, sem vígja átti
búnaðinn: Hláka fram eftir degi
en frysti með kvöldinu og komið
glæra svell. En þrátt fyrir óhag-
stæð skilyrði, var hvergi hopað
en haldið í Kjarnaskóg.
Allt gekk vel í fyrstu en brátt •
var á brattann að sækja.
Reyndist þetta vera talsvert f
fangið góða stund. En þar sem
hér var um hring að ræöa, hlaut
göngubrautin fyrr eða síðar að
halla í hina áttina. Auðvitað
reyndist þetta rétt ályktað, - því
miður.
Fyrr en varði var óiymplu-út-
haldið komið á kol-ólöglega,
bullandi ferð. Þetta gat ekki
endað nema eins og það gerði.
Að sjálfsögðu er ekki verið að
álasa áhorfendum, þótt þeim
gengi erfiðlega að halda niðri I
sér hlátrinum. Ég hins vegar, er
búinn að velja mér aðra
íþróttagrein, sem ég ætla að
leggja stund á, þegar ég losna
úr gifsinu. Ég er búinn að sækja
um inngöngu I tafl-félagið.
Högni
hafir verið svo heppinn að hafa
fengið þjón sem kunni til verka.
en ég sá aðra hluti þarna, sem ég
var ekki hrifinn af og þar sem ég
hef sjálfur unnið þessi störf tel ég
mig geta dæmt unt hvenær þjónar
gera augljósar vitleysur í starfi og
hjá því varð ekki komist þetta
kvöld. Þótt þeir hafi kannski ver-
ið liprir þá er það bara ekki nóg.
Einnig voru of fáir þjónar að
vinna þetta kvöld alla vega þegar
líða tók á kvöldið og ætti það
ekki að konta fyrir neins staðar
allra síst á opnunarkvöldi
hússins.
KEA-unnandi góður! þú ættir
að skrifa varlega þó að þú hafir
kannski fengið sérstaklega góða
þjónustu þetta kvöld þá er
skynsantlegra að líta á heildina.
Allra síst skaltu krítisera þjón-
ustu á öðrum veitingastöðum
bæjarins. þó að hnökrar séu þar
einnig, að svo komnu máli en
kynna þér frekar örlítið betur
þeirra störf áður.
Síðan óska ég þér áframhald-
andi góðrar skemmtunar á Hótel
KEA sem er ágætisstaður að öðr-
unt ólöstuðum.
SPENNUM
BELTIN
sjálfra
okkar
vegna!
Dömusíðbuxur tvær gerðir
Stærðir 29-35. Verð aðeins kr. 770.-
Mjög gott snið.
Herravinnuskyrtur
Stærðir 38-46.
Verð kr. 410.-
Herragallabuxur
Stærðir 30-40. Verð kr. 730.-
Flauelsbuxur væntanlegar
á mjög hagstæðu verði
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 simi 22Z75 i