Dagur - 05.02.1986, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 5. febrúar 1986
Eldridansaklúbburmn
Dansleikur verður í Húsi aldraðra, sími 23595, laugardaginn
8. febrúar.
Húsið opnað kl. 21. Miðasala við innganginn.
Allir velkomnir. Stjórnin.
Tjónabíll til sölu
Lancer árgerð 1980, skemmdur eftir veltu. Til sýnis á verk-
stæði Höldurs sf., Fjölnisgötu 1b, 5., 6. og 7. febrúar.
Tilboðum í bifreiðina sé skilað til Sjóvá-umboðsins, Ráð-
hústorgi 5, Akureyri.
Uppl. gefnar í síma 22244.
ÚTSALA
Seljum ýmsar vörur okkar á niðursettu
verði, næstu þrjá daga,
fimmtudag, föstudag oglaugardag
Dæmi um verð: Áður Nú
Don Cano barnaúlpur ... 3.300 2.190
Craft barnaúlpur 2.950 1.650
Northland dúnúlpur ... 3.995-4.375 2.990
Craft úlpur fullorðinna .. 5.450 3.550
Adidas bómullargallar ... 1.650 990
Adidas bómullargallar ... 2.700 1.390
Kuldaskór 1.390 950
Patrick glansgallar 2.950 1.900
Jazz-skór 690 400
Hummel-æfingaskór 690 400
fimleikafatnaður, - sundfatnaður og margt margt fleira.
Aðeins fímmtudag- föstudag og laugardag
Sporthúydhf
HAFNARSTRÆTI 94
SÍMI 24350
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 5. febrúar 1986 kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og
Gunnar Ragnars til viðtals í fundarstofu bæjar-
ráðs í Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarstjóri.
Umboosmenn Dags
Sauðárkrókur: Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828.
Siglufjörður: Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Blönduós: Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581.
Ólafsfjörður: Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Hrísey: Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728.
Dalvík: Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Grenivík: Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Húsavík: Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Mývatnssveit: Þuríður Snæbjömsdóttir, sími 44173.
Kópasker: Anna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Raufarhöfn: Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
Kópavogur: Guðbjörg Bjarnadóttir, Vallhólma 12, sími 641562.
Léleg laun kennara koma einnig til með að bitna á nemendunum, segja kennarar.
Tilneyddir til að
grípa til aðgerða
- ef ekki fæst fram leiðrétting á okkar launakjörum, segja kennarar
Eins og frarn hefur komiö í
fréttum, þá ríkir mikil óánægja
meðal kennara í HIK og KI,
léleg launakjör, kennaraskort-
ur og stöðugt vaxandi hlutfall
réttindalauss fólks við kennslu.
Öll þessi atriði, ekki síst þau
síðastnefndu, bitna illilega á
skólahaldi í hinum dreifðu
byggðum landsins, að því er
segir í fréttatilkynningu frá
Kennarasambandi íslands. í
tilkynningunni segir ennfrem-
ur, að kennurum þyki ekki
lengur verða unað við léleg
kjör og muni þeir því sjá sig til-
neydda til að grípa til aðgerða
ef leiðrétting fæst ekki nú
þegar,
A nýafstöðnum fundi
Kennarasambands íslands, sem
haldinn var að Flúðum, voru
eftirfarandi tillögur samþykktar:
I. Fundur fulltrúaráðs KÍ hald-
inn að Flúðum 10.-12. janúar
1986 mótmælir harðlega að ekki
hefur verið staðið við gefin fyrir-
heit fyrrverandi fjármálaráðherra
um jöfnun launa kennara á
grunnskólastigi.
Launamunur er nú um 5% eft-
ir því hvort grunnskólakennari er
félagi í Kennarasambandi íslands
eða Hinu íslenska kennarafélagi.
Megn óánægja ríkir meðal
félagsmanna KI með þennan
launamun og sjá þeir sig nauð-
beygða til að grípa til aðgerða nái
þessi sjálfsagða leiðrétting ekki
fram að ganga nú þegar.
II. Fulltrúaráð Kennarasam-
bands íslands vekur athygli fjár-
málaráðherra á því að í Kennara-
sambandi íslands er um fjórð-
ungur allra ríkisstarfsmanna. Það
er ljóst að svo stórt stéttarfélag
sættir sig ekki við að vera án
þeirra sjálfsögðu mannréttinda
að geta samið um kaup og kjör fé-
iagsmanna sinna.
Fulltrúaráð KÍ skorar því á
fjármálaráðherra að beita sér fyr-
ir lagasetningu á þessu þingi sem
tryggi félögum í Kennarasam-
bandi íslands fullan samnings- og
verkfallsrétt.
III. Fundur fulltrúaráðs Kenn-
arasambands íslands haldinn á
Flúðum 10. janúar 1986 harmar
þann seinagang sem orðið hefur á
að frumvarp til laga um lögvernd-
un kennarastarfsins sjái dagsins
ljós og hljóti afgreiðslu Alþingis.
Jafnframt lýsir fulltrúaráðið
áhyggjum sínum yfir þeirri þróun
að hlutfall þeirra sem kenna án
réttinda í skólum landsins fer
stöðugt vaxandi.
Ljóst er að þetta á eftir að hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir
menntun í landinu verði þessari
þróun ekki snúið við.
Nefnd á vegum menntamála-
ráðuneytisins hefur unnið að því
að semja frumvarp til laga um
lögvemdun á starfsheiti og starfs-
réttindum kennara og er störfum
hennar að mestu lokið. Fundur-
inn skorar því á menntamálaráð-
herra að leggja frumvarp þetta
fram nú þegar.
IV. Fulltrúaráð KÍ samþykkir
eftirfarandi ályktun um kjara-
mál:
Undanfarnar vikur hafa dunið
á launafólki í landinu stanslausar
hækkanir á vöruverði, þjónustu
og óbeinum sköttum. Sem dæmi
má nefna hækkun á lyfjum og
læknisþjónustu um allt að 33%,
17% hækkun á gjaldskrá Pósts og
síma, 20% hækkun dagvistar-
gjalda, hækkun á flugvallarskatti
og svo mætti lengi telja.
Laun hafa verið óverðtryggð
frá árinu 1983 sem hefur haft í för
með sér gífurlega kaupmáttar-
skerðingu. Benda má á að kaup-
máttur kauptaxta minnkaði um
18,9% á árinu 1983 og um 7,7% á
árinu 1984. Á sama tíma hefur
lánskjaravísitala verið I fullu
gildi.
Frá því í maí 1983 hafa laun
hækkað um 83,9% en á sama
tíma hefur lánskjaravísitala
hækkað um 120,6% og fram-
færsluvísitala um 112,4%.
Launafólk þolir ekki frekari
kjaraskerðingu. Samningar eru
lausir og ekkert skrið komið á
samningaviðræður. Það er sjálf-
sögð krafa launafólks að samið
verði strax.
Fulltrúaráð Kennarasambands
íslands skorar á allt launafólk að
standa saman í komandi baráttu.
- Við krefjumst beinna launa-
hækkana.
- Við krefjumst þess að laun
verði verðtryggð að fullu.
- Við krefjumst samninga strax.
Alyktun
í ályktun sem samþykkt var
samhljóða á fjölmennum fundi
félagsmanna í Kennarasam-
bandi Islands á Hótel Sögu
miðvikudaginn 29. janúar sl.
segir m.a.:
„Fundur félagsmanna Kennara-
sambands íslands úr skólum á
Suðvesturlandi haldinn á Hótel
Sögu 29. janúar 1986 krefst þess
að stjórnvöld standi tafarlaust við
loforð um leiðréttingu á launum
félagsmanna KÍ.
Fundurinn lýsir stjórnvöld
ábyrg fyrir alvarlegum kennara-
skorti í landinu. Petta ástand sem
stafar af slæmum kjörum
kennara hefur þegar komið veru-
lega niður á starfi margra skóla
og enn magna stjórnvöld óá-
nægju kennara með mismunun í
launum.
Fundurinn skorar á stjórnvöld
að veita KÍ nú þegar sjálfstæðan
samnings- og verkfallsrétt. í
Kennarasambandi íslands er um
fjórðungur allra ríkisstarfsmanna
og sætta þeir sig ekki við að vera
án þeir mannréttinda að geta
samið um kaup sín og kjör . . .“