Dagur - 13.02.1986, Síða 12
Akureyri, fimmtudagur 13. febrúar 1986
K\úkíi
*
ar - KiúhCirif
AKUREYRI
Skipagðtu 12 ■ Sími 21464
Kjiííiíingar
eru gceðafctða
\t CROWN j.
CHICKEN '
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Sigríður Árnadóttir, einn umsjónarmanna murgumitvarpsins var á Akureyri í gærmorgun. Hér má sjá Sigríði ásamt
Birni Sigmundssyni tæknimanni í góðum félagsskap í göngugötunni. Söngur þessa fríða krakkahóps hljómaði í út-
varpinu - beint úr Hafnarstrætinu. Mynd: KGA.
Orlofsbúðir á Akureyri:
„Mér lístvel
a þessar
hugmyndir"
- segir Gísli Jónsson hjá F.A.
Mér líst vel á þessar hugmynd-
ir um stofnun orlofsbúða á Ak-
ureyri. Ég tel að það sé gott að
fá fólk til bæjarins, hvort sem
það er til dvalar á hótelum,
orlofsbúðum eða í tjöldum,“
sagði Gísli Jónsson forstjóri
Feröaskrifstofu Akureyrar.
Eins og komið hefur fram eru
uppi hugmyndir að stofnun
orlofsbúða á Akureyri.
Valdimar Kristinsson lagði fyr-
ir Atvinnumálanefnd Akureyrar
tillögu um orlofsbúðir í bænum.
Á fundi sem atvinnumálanefnd
efndi til með fulltrúum Ferða-
málaráðs kom fram að þeir teldu
hugmyndir þessar fýsilegar og til
framdráttar annarri ferðamanna-
þjónustu á Akureyri.
Haft hefur verið samband við
verkalýðsfélög og stærri laun-
þegasamtök í landinu og lýsa þau
áhuga sínum á að taka þátt í upp-
byggingu orlofsbúða á Akureyri.
Bærinn hefur gefið vilyrði sitt fyr-
ir því að greiða úr þessu máli
með því að útvega lóðir undir
búðirnar. Er áætlað að staðsetja
þær við Kjarna sunnan Akureyr-
ar. Gísli sagði að það fólk sem
kæmi til dvalar í orlofsbúðum,
væri fólk sem ekki kæmi annars
til dvalar á Akureyri. „Pað verð-
ur alltaf eithvað að gera fyrir
bæjarbúa að veita dvalargestum
þjónustu og engin hætta er á að
þeir einangri sig þarna sunnan við
bæinn,“ sagði Gísli Jónsson. gej-
Geysileg veiði
Örvars og Arnars
Berst kartöflusjúkdómurinn „hringrot“ norður?
Hættan felst í flutn-
ingum að sunnan
- segir formaður kartöflubænda við Eyjafjörð
„Mesta hættan á því að þessi
sjúkdómur bcrist hingað norð-
ur er fólgin í því að það sé ver-
ið að flytja kartöflur að sunnan
í verslanir hér á Norðurlandi,“
sagði Guöniundur Þórisson
formaður kartöflubænda við
AKVA:
Beðið eftir
þeim þýsku
Enn verður einhver bið á að
vatnspökkun hefjist hjá
AKVA, fyrirtækinu á Akur-
eyri sem mun selja vatn í neyt-
endaumbúðum til Danmerkur,
Bandaríkjanna og fleiri landa.
Öll tæki til pökkunarinnar eru
fyrir löngu tilbúin og lengi vel var
beðið eftir umbúðunum fyrir
vatnið. Þær eru nú komnar, en
þá vantar þýska sérfræðinga sem
ætla að hjálpa til þegar pökkunin
hefst. Þeir voru væntanlegir til
landsins í fyrradag en komu ekki
einhverra hluta vegna, þannig að
flest bendir til þess að pökkunin
hefjist ekki fyrr en í næstu viku.
Eyjafjörð er við ræddum við
hann vegna kartöflusjúkdóms-
ins „hringrots“ sem komið hef-
ur upp á Suðurlandi.
Að sögn Guðmundar felst
hættan í því að umbúðir undan
kartöflum sem hugsanlega yrðu
fluttar að sunnan kæmust í um-
ferð hér, en talið er að sjúkdóm-
urinn breiðist einkum út með
umbúðum og útsæðiskartöflum.
Guðmundur sagði einnig að
nokkur dæmi væru þess að fólk
keypti sér matarkartöflur í versl-
unum en notaði þær síðan sem
útsæði. Hann sagði að sér væri
ekki kunnugt um að kartöflur að
sunnan hefðu verið fluttar í versl-
anir við Eyjafjörð, en sér væri
kunnugt um að þetta hcfði átt sér
stað á Sauðárkróki.
„Auðvitað vona ég að þessi
sjúkdómur berist ekki hingað
norður, en fyrstu áhrif þess að
hann hefur skotið rótum fyrir
sunnan verða þau að við fáum
meiri markað fyrir útsæðið,“
sagði Guðmundur. „Annars geta
þeir sem hafa lent í þessu fyrir
sunnan sjálfum sér um kennt,
það varð vart við sjúkdóminn fyr-
ir sunnan 1984, bændum þar var
þá bent á að henda útsæðinu og
kaupa nýtt en þeir gerðu það
ekki og seldu jafnvel öðrum út-
sæði. Það er að mínu mati ekki
rétt sem fram hefur komið að
sjúkdómurinn hafi borist hingað
með þessum frægu finnsku kart-
öflum, hann var kominn hingað
áður,“ sagði Guðmundur. gk-.
Skagastrandartogararnir tveir,
Arnar og Örvar, hafa veitt
mjög vel frá áramótum. Örvar
er þegar búinn með um þriðj-
ung af þorskkvóta sínum og
hefur komið með um 315 tonn
af frystum flökum að landi,
auk 20-30 tonna af heilfrystum
fiski.
Þessi afli Örvars mun jafngilda
um 700 tonnum upp úr sjó. Arn-
ar er kominn með um 500 tonn,
en hann hóf ekki veiðar fyrr
en 16. janúar vegna þess að verið
var að vinna að ýmsum lagfæring-
um um borð. Tvívegis hefur Arn-
ar verið aðeins fjóra daga í túrn-
um og kom með um 100 tonn í
annað skiptið en nærri 130 tonn í
hitt.
Heyrst hefur að reynt hafi ver-
ið að fá því framgengt að þeir að-
komumenn sem eru á togurunum
flytji lögheimili sín til Skaga-
strandar eða hætti annars. Sveinn
Ingólfsson hjá Skagstrendingi
sagði að viðkomandi mönnum
hefði verið bent á þetta og hefðu
verið þrjár íbúðir í boði fyrir
þessa menn fyrir áramót en þær
væru nú komnar í leigu.
Sveinn sagði að 15 heimamenn
biðu nú eftir plássi á togurunum,
og þeir hjá fyrirtækinu myndu að
sjálfsögðu fara að óskum verka-
lýðsfélagsins í þessu máli.
Sveinn var rétt nýstiginn á land
eftir að hafa farið í veiðiferð með
Arnari og sagði hann að það væri
nauðsynlegt að skreppa svona
annað slagið því með því fengist
betri yfirsýn og betra samband
skapaðist á milli manna. „En ég
fékk ekkert að reyna hvernig
þetta er í vetrarveðrum hjá þeim,
því það var blíðuveður allan
tímann." gk-.
Iðnsýning á Norðurlandi?
- Fjórðungssamband Norðlendinga kannar hvort áhugi sé fyrir
norðlenskri kaupstefnu
Á vegum Fjórðungssambands
Norðlendinga hafa farið fram
umræður um nauðsyn þess að
á Norðurlandi verði komið á
kynningarsýningu fyrir norð-
lenska framleiðslu og þjón-
ustu.
Fjórðungsþing Norðlendinga
1985 ákvað að leita eftir samstarfi
við norðlenska aðila í framleiðslu
og þjónustu um að koma á norð-
lenskri kynningarsýningu. Leitað
verði eftir því við þessa aðila, að
mynduð verði samtök norð-
lenskra framleiðenda og
þjónustuaðila um sameiginlega
kynningarstarfsemi með vörusýn-
ingum og kaupstefnum eða með
öðrum hætti.
Með tilliti til þessarar sam-
þykktar síðasta fjórðungsþings
ákvað stjórn Fjórðungssambands
Norðlendinga að gangast fyrir
könnun meðal framleiðslu- og
þjónustuaðila á Norðurlandi, um
hvort efnt skyldi til kynningar-
sýningar á norðlenskri fram-
leiðslu og þjónustu, sem jafn-
framt væri kaupstefna. í þessu til-
efni hafa verið sendir spurninga-
listar til yfir 200 fyrirtækja og ein-
staklinga og til allra sveitar-
stjórna á Norðurlandi.
í könnun þessari er leitað svara
við því hvort áhugi sé að halda
kynningarsýningu framleiðslu og
þjónustu á Norðurlandi. Þá er
spurt um hvort sýningin eigi jafn-
framt að vera kaupstefna og
einnig spurt hvort hér eigi ein-
göngu að vera iðnsýning eða
hvort sýningin eigi að vera víð-
tæk íramleiðslu- og þjónustusýn-
ing.