Dagur - 20.02.1986, Síða 12
Akureyri, fímmtudagur 20. febrúar 1986
K túkUrajai^^^ujuinfií
Skipagötu 12 • Sími 21464
Kjúkfíngar
em cjceðcifceða
Skipagötu 12 ■ Sími 21464
íþróttahúsið
að Hrafnagili:
Hefur verið
tíu ár í
byggingu
• En samt er ekki ann-
að komið en grunnurinn
• Ekkert íþróttahús
framan Akureyrar
„Staðan í inálum okkar
íþróttahúss er sú að búið er að
steypa grunninn og stefnt er að
því að steypa upp kjallarann í
sumar, en hvenær húsið verður
tilbúið er ómögulegt að vita,“
sagði Sigurður Aðalgeirsson
skólastjóri Hrafnagilsskóla í
Eyjafírði. Að Hrafnagili hefur
ekki verið aðstaða til íþrótta-
kennslu sem neinu nemur.
íþróttakennsla fer fram í sam-
komusal félagsheimilisins að
Laugaborg.
Ekkert íþróttahús er í Eyja-
firði sunnan Akureyrar svo
íþróttakennsla samkvæmt náms-
skrá er ckki fyrir hendi. Að
Hrafnagili er búið að byggja
sundlaug og búningsherbergi sem
einnig ciga að þjóna íþróttahús-
inu.
Framkvæmdir við íþrótta-
ntannvirki hófust árið 1976 og
grunnurinn að íþróttahúsinu var
steyptur í fyrrasumar. Ef kjallari
hússins verður steyptur í sumar
er hugmyndin að nýta hann fyrir
verknámskennslu fyrir skólann,
en húsnæði undir þá kennslu hef-
ur vantað. Sigurður sagði að það
lægi mikið á því að fá íþróttahús
við skólann og sótt hafi verið um
fé til verksins á hverju ári síðan
1976. Fjárveitingar verið naumar
og haft lítið að segja. Áætlanir
um kostnað við íþróttahúsið fok-
helt eru síðan í október 1983, en
þá var áætlunin upp á 10 milljónir
króna. Sigurður sagði að ómögu-
legt væri að segja til um það hve-
nær húsið vrði tilbúið til notkun-
ar, því allt færi eftir fjárveiting-
um frá ríkinu. gej-
Sigurður beitir vírnum góða með góðum árangri. Mynd: KGA.
Með verkfærin
í húfunni
- Lögreglan opnar læstan bíl
Hefur það komið fyrir þig að
læsa bíllykilinn inni í bílnum?
Varstu ekki óhress? Hvað
gerðir þú? Hringdir þú í lögg-
una og baðst hana að hjálpa
þér? Þeir eru liprir hjá lög-
reglunni ef eitthvað þessu líkt
kemur upp á og ekkert virðist
vera hægt að gera.
Við komum að Valgeiri
Axelssyni og Sigurði Sigurðs-
syni þar sem þeir voru að að-
stoða mann sem hafði læst lykil-
inn inni í bílnum sínum. Valgeir
sagði að mikið væri um það að
fólk læsti lyklana í bílum. „Þá
reynum við að aðstoða eftir
föngum," sagði Valgeir.
- Hafið þið einhver sérstök
tæki til þess að “brjótast inn í
bflá?
„Jú, við höfum góð tæki,“
sagði Valgeir og sýndi okkur vír
sem er í húfum lögreglumanna.
Þessi vír er til þess að húfan
haldi formi sínu. „Þetta er nán-
ast það eina sem við höfum til
að opna bíla og hefur reynst
mjög vel. Ekki bar á öðru því
Sigurður var ekki lengi að opna
græna Toyotu sem stóð við
sundlaugina. Eigandinn varð
feginn og Sigurður setti vírinn
aftur í húfuna eftir að hann var
búinn að laga hann til eftir átök-
in.
- Er ekki misjafnlega erfitt
að opna bíla?
Þeir félagar sögðu að svo
væri. „Það kemur fyrir að við
þurfum fleiri verkfæri en vírinn
og jafnvel að opna bílstjór-
ahurðina í gegnum hurðina
farþegameginn. Þá er eins gott
að vera ekki skjálfhentur,"
sögðu þeir liðlegu lögreglu-
menn Valgeir og Sigurður. gej-
Hitaveitan og Öngulsstaðahreppur:
Full samstaöa um
leiðréttingu
hitaveitureikninga hálft ár aftur í tímann
„Þaö er enginn ágreiningur um
afturvirkni samkomulagsins
milli okkar og hreppsnefndar
Öngulsstaðahrepps. Málið er
bara ekki komið það vel á veg
að einstakir notendur séu bún-
ir að fá útreikningana í
hendur,“ sagði Wilhelm V.
Steindórsson hitaveitustjóri er
blaðamaður spurði hann frétta
af Iciðréttingum á hitaveitu-
reikningum íbúa í Önguls-
staðahreppi.
Stjórn hitaveitunnar hélt fund
með hreppsnefnd Öngulsstaða-
hrepps þann 14. febrúar s.l. Á
þeim fundi náðist samkomulag
um uppgjör hituveitureikninga í
Öngulsstaðahreppi fyrir tímabil-
ið 1. júlí - 31. desember 1985.
Öngulsstaðahreppur hefur
nokkra sérstöðu hvað varðar
hitaveituna, aðallega vegna þess
hversu notendur eru fáir og lagn-
ir langar. Þess vegna var ekki
hægt að notast við þær afsláttar-
reglur sem í gildi eru á Akureyri
og þurfti því að móta nýjar. Þær
reglur voru tilbúnar í lok des-
ember. Samkomulag náðist um
að þær reglur giltu aftur fyrir sig
til 1. júlí. Því þurfti að endur-
skoða og leiðrétta alla hitaveitu-
reikninga í hreppnum með hlið-
sjón af nýju reglunum.
Stjórn Hitaveitu Akureyrar og
hreppsnefnd Öngulsstaðahrepps
gerðu með sér samkomulag í
janúar s.l. Þar skuldbindur hita-
veitan sig til að halda uppi 65°
vatnshita á endum dreifikerfisins
í hreppnum. Til þess að ná þess-
um hita er nauðsynlegt að láta
talsvert vatnsmagn renna út úr
kerfinu á þremur stöðum. „Þessi
aðferð er auðvitað kostnaðarsöm
fyrir hitaveituna en við munum
skoða hvernig þetta kemur út
þegar líða fer á árið,“ sagði
Wilhelm.
En notendur í Öngulsstaða-
hreppi eiga sem sagt von á bréfi
frá Hitaveitu Akureyrar einhvern
næstu daga þar sem hin aftur-
virka leiðrétting verður útskýrð.
Þar með ætti allur ágreiningur að
vera úr sögunni. BB.
Lionsbingó:
60 þúsund
króna tap
Það vantaði fleira fólk og þá
sérstaklega fullorðið,“ sagði
Þóroddur Þóroddsson formað-
ur Lionsklúbbs Akureyrar. En
Lionsmenn héldu glæsilegt
bingó í íþróttahöllinni fyrir
stuttu, þar sem 14 ára drengur
fékk aðalvinning bingósins, sem
var Skódabifreið. Tap var á
bingóinu sem nam 60 þúsund
krónum.
Það komu 400 börn á skemmt-
unina og 200 fullorðnir. „Við
reiknuðum með fleirum, en ég
held að þessi dræma þátttaka
fullorðins fólks sé endurspeglun
af ástandinu í dag. Það virðist
sem fólk sé almennt í meiri pen-
ingavandræðum en oft áður og
það tengist skemmtanahaldi sem
þessu.
Á síðasta ári gekk bingóið mjög
vel og skilaði góðum hagnaði sem
rann til góðgerðarmála. „Okkur
langar að halda áfram á næsta
ári, en við munum skoða tíma-
setningu og fleira til að komast
hjá tapi sem þessu.“ Þegar hann
var spurður hvernig Lionsmenn
færu með 60 þúsund króna tap,
sagði hann: „Við þurfum að taka
peninga af auglýsingablaði sem
við gáfum út fyrir stuttu og skil-
aði nokkrum hagnaði.“ gej-
Sony-menn til við-
ræðna við Samver
- um hugsanleg kaup á tækjabúnaði til
útvarps- og sjónvarpsrekstrar
Nú eru staddir á Akureyri tveir
yfírmenn frá Sony-Danmark til
viðræðna við forsvarsmenn
myndbandafyrirtækisins Sam-
vers hf. um hugsanleg kaup á
tækjabúnaði til útvarps- og
sjónvarpssendinga.
Þetta eru Steen Vestrup, for-
stjóri þeirrar deildar Sony-Dan-
mark sem annast sölu á búnaði til
faglegra nota, m.a. útsendinga,
og Jens Ingevall, framkvæmda-
stjóri fyrir þeirri deild sem annast
hönnun og uppsetningu mynd-
banda- og útsendingakerfa af
þessu tagi. Einnig hefur Birgir
Skaftason, framkvæmdastjóri
Japis, sem hefur umboð fyrir
Sony-vörur á íslandi, tekið þátt í
fundum með þeim Þórarni
Ágústssyni, framkvæmdastjóra
Samvers, og Hermanni Svein-
björnssyni, ritstjóra Dags og
stjórnarformanni í Samveri hf.
Endanleg ákvörðun hefur enn
ekki verið tekin um uppsetningu
og rekstur útvarps- og sjónvarps-
stöðvar, en línur ættu að fara að
skýrast hvað það varðar. Rætt
hefur .verið um það að Samver
kaupi tækjabúnað til dagskrár-
gerðar, en fyrirtækið á þegar tölu-
vert af tækjum sem nýtasl í þess-
um tilgangi. Þá hefur það verið rætt
sem hugsanlegur möguleiki að sú
starfsemi sem rekin er í tengslum
við Dag verði útvíkkuð og aukin
og geti þar með tekið að sér dag-
legan rekstur við efnisöflun, þ.e.
annað en tæknilegu hliðina sem
Samver myndi annast. - GS.
‘Jm'
V 4P§
Þórarinn Ágústsson og Hermann Sveinbjörnsson ræða hér við Steen Vestrup, Birgi Skaftason og Jens Ingevall í
húsakynnum Samvers hf. á Akureyri. Mynd: KGA.