Dagur - 27.02.1986, Page 5
27. febrúar 1986 - DAGUR - 5
Pað eru rétt um tvö ár síðan
þau giftu sig Karólína og Stef-
ano, nánar tiltekið þann 29. des-
ember 1983 og Andrea litli kom
frekar með fyrra fallinu í heiminn
eða 8. júní 1984.
Ást við fyrstu sýn
Þau hittust á skemmtisiglingu á
Miðjarðarhafinu sumarið 1983 og
það var ást við fyrstu sýn. Allir
héldu að þetta myndi ganga yfir
og að Karólína snéri sér aftur að
Robertino Rossellini. En það
gerðist ekki og á haustdögum
varð ljóst að það væri fjölgunar-
von hjá Karólínu og Stefáni.
Brúðkaup var undirbúið í hasti,
frekar fábrotið þar sem hún var
að gifta sig öðru sinni.
Karólína hefur þroskast mikið
síðan hún eignaðist Andrea og
nú er það hún sem reynir að siða
Stefaníu systur sína til, en sem
kunnugt er hefur sú „stutta“
mjög gaman af að sækja nætur-
klúbba og baðstrendur. Karólína
og Rainier fursti sjá um að mæta
við allar opinberar athafnir en nú
vonar Karólína að Albert bróðir
hennar fari að ná sér í konu sem
gæti sinnt þessum opinberu
skyldum, því eftir því sem fjöl-
skyldan stækkar verður þetta
erfiðara fyrir Karólínu. Stefanía
er ekki til mikillar aðstoðar, það
eina sem hún er dugleg við er að
fjölga hinum gráu hárum föður
síns. Mesta ánægja hans er að
eyða tímanum með dóttursynin-
um og brátt einnig með Iítilli
Grace?
Það var enginn i vafa um að
annað barn væri á leiðinni eftir
að Karólína hafði sýnt sig í
þessum jakka í búðarleiðangri.
Og nú bíða allir og vona að
þetta verði stúlka.
Hæ pabbi! Andrea litli eitt sælubros -
en þau mættu nú gefa drengnum betri
útbúnað ef hann á að ná virkilega
góðum árangri.
m
St.
fr voríð komið?
Nýkomnir sportskór
með frönskum lás
St. 20-26. Verð kr. 495.-
St. 28-34. Verð kr. 570.-
St. 40-46. Verð kr. 615.-
Sportskór, reimaðir
St. 35-39. Verð k>. 545.-
Strigaskór ★ Strigaskór
20-28. Verð kr. 150,- St. 35-41. Verð k>. 150.-
Kínaskór ★ Kínaskór ★
St. 34-40. Verð kr. 185,-
Eyfjörð l|
Hjalteyrargötu 4 - simi 22Z75
WS/t
Gamlar myndir
úr starfsemi KEA
Um þessar mundir er verið að undirbúa bók, sem
fjallar um sögu KEA síðustu 100 árin. í bókinni verða
að sjálfsögðu gamlar myndir úr starfsemi KEA. Til að
hafa bókina enn eigulegri leitum við eftir gömlum
myndum, teknum fyrir 1950, sem ekki hafa birst áður
á prenti. Átt þú í þínum fórum gamlar myndir sem
snerta starfsemi KEA á einn eða annan hátt? Mætt-
um við fá að taka eftir þeim?
Ef þú telur þig geta aðstoðað okkur viltu þá vinsam-
lega hafa samband við Áskel Þórisson í síma 21400.
Heimasími hans er 25524.
Kaupfélag Eyfirðinga
Stórkostiegt
tækífæn
Þar sem verslunin er að hætta, veitum við
50-70% afslátt
af öllum vörum frá og með föstud. 28. febrúar.
Allt á að seljast.
„Vinnuréttur“
ný útgáfa
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Vinnuréttur - ný út-
gáfa, eftir Arnmund Backman og
Gunnar Eydal. Er þetta önnur
útgáfa verksins, mjög aukin og
endurbætt, en það kom fyrst út
1978.
Tilgangur bókarinnar er, eins
og höfundar segja í formálsorð-
um, „að gefa almennt yfirlit yfir
meginefni vinnuréttar á íslandi."
í sérstökum köflum er fjallað um
stéttarfélög, kjarasamninga,
vinnudeilur og verkföll, réttindi
og skyldur atvinnurekenda og
starfsmanna og bætur og trygg-
ingar. Með atriðisorðaskrá og
spássíugreinum er reynt að gera
Vinnurétt að sem aðgengilegastri
handbók fyrir launþega og at-
vinnurekendur, en heimildaskrá
og skrá yfir dóma og lög auð-
velda notkun hennar þeim sem
fást við málefni vinnuréttar að
staðaldri. Auk nýrrar lagasetn-
ingar voru það ekki síst þeir fjöl-
mörgu dómar, sem fallið hafa á
síðustu 7 árum, sem gert höfðu
endurskoðun fyrri útgáfunnar
tímabæra.
ViftityUHEi s Uft
Ný útgáfa
Vinnuréttur - ný útgáfa er 216
blaðsíður að stærð og unnin í
Prentsmiðjunni Hólum hf.
Ný sending af
góifteppuin
dreglum og stökum teppum
★ ADt á frábæru verði ★
Leigjum út teppahreinsivél