Dagur - 27.02.1986, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 27. febrúar 1986
Góður skóli,
góður andi
- segja nemendur Hólaskóla
Jón Bjarnason skólastjóri.
Myndir og texti:
Þórhallur Ásmundsson.
Hólar í Hjaltadal. Nafn staðarins kemur víða við í íslandssögunni.
Par var snemma komið áfót biskupsstóli og staðurinn hefur verið
eitt mesta mennta- og menningarsetur á Norðurlandi frá alda öðli.
Pess vegna þótti vel við hœfi að setja þar niður bændaskóla, þegar
slíkt var á döfinni vel fyrir síðustu aldamót. Bœndaskólinn á Hól-
um var stofnaður 14. maí 1882. í fyrstu var skólinn rekinn af
Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum, en síðar af Norðuramtinu. Frá
1907 hefur ríkissjóður haft veg og vanda af rekstri skólans og Hóla-
staðar. Aðsókn að skólanum hefur verið góð ef undan eru skilin
árin fyrir 1980., en skólahald féll niður árin 1979 og 1980 vegna
dræmrar aðsóknar. Héldu þá margir að dagar Bændaskólans á
Hólum vœru taldir, en svo reyndist aldeilis ekki.
Arið 1981 var Jón Bjarnason
ráðinn skólastjóri við skólann.
Síðan hefur nemendum fjölgað á
ný, svo að vegna húsnæðisleysis
hefur ekki verið hægt að veita öll-
um umsækjendum aðgang. Ný-
nemar eru í ár 23 og hafa aldrei
verið fleiri. í sjónmáli er nú
aukning á heimavistarrými fyrir
nemendur, því á næstunni verða
reist tvö parhús, sem í verða fjór-
ar íbúðir og verða þær nýttar af
Bændaskólanum yfir veturinn, en
sem orlofsíbúðir fyrir ýmsa aðila
yfir sumarið.
Nýjar búgreinar hafa sett svip
sinn á búfræðinámið undanfarin
ár og hefur verið reynt að laga
námið að þeim. Má þar nefna
loðdýrarækt, fiskeldi ásamt
fiskirækt og í haust hófst kennsla
í trjárækt við skólann. Loðdýra-
rækt og trjárækt eru ásamt fleiri
greinum valgreinar. Árið 1984
var tekið upp brautaskipt nám í
skólanum og þá boðið upp á nám
á tveim brautum, almennri bú-
fræðibraut og fiskeldisbraut, sem
í daglegu tali er kölluð sporð-
braut.
Það er ekki aðeins að skólinn
hafi vaxið í tíð Jóns Bjarnasonar
á Hólum, heldur hefur verið unn-
ið markvisst að lagfæringum á
húsakostj staðarins, en viðhald á
honum hafði verið ófullnægjandi
alllengi. Hafa iðnaðarmenn verið
þar tíðir gestir á undanförnum
árum, þ.á m. höfundur þessarar
greinar, sem hefur lítillega stund-
að þar vinnu á síðustu mánuðum.
Þegar ég snæddi í mötuneytinu
í fyrsta skipti í haust, veitti ég
strax eftirtekt spjaldi á eldhús-
hurðinni, sem á stóð: „Hér eldar
kokkur sem lært hefur af mis-
tökunum." Maturinn sem borinn
er á borð þar, ber þess reyndar
ekki vott að mistök séu í matar-
gerðinni annað veifið. Hins vegar
er þessi setning sjálfsagt ágætur
samnefnari fyrir þann anda er
virðist ríkja á staðnum, léttleik-
andi en alvaran samt aldrei langt
undan.
Þegar ég var staddur á Hólum
um daginn, nýtti ég tímann eftir
vinnu á kvöldin til að taka viðtal
við nokkra nemendur skólans,
um nám þeirra, félagslíf í skólan-
um o.fl. Ég var að vísu svolítið
kvíðinn að þeir myndu ekki
viðurkenna mig sem blaðamann,
eftir að hafa séð mig rykugan upp
fyrir haus í matar- og kaffihléum,
en krakkarnir voru samvinnu-
þýðir eins og vera ber. Ég gekk
sem sagt upp á vistina í leit að
viðmælanda.
• Af sjónum
á sporðbraut
í dyrunum til vinstri á efstu hæð-
inni mætti ég ljóshærðum pilti,
sem ég hafði séð draghaltan
nokkrum dögum áður. „Þú ert
Jóhanna Pálsdóttir, var í sveit rétt hjá þar sem landbún-
aðarráðherra á heima.
Ingólfur Jóhannsson: Að sjálfsögðu langar mig að
verða bóndi, helst kúabóndi.
orðinn góður í fætinum. Hvað
gerðist eiginlega?" spurði ég.
„Já, ég slasaði mig niðri í
íþróttasal, missteig mig í körfu-
bolta,“ sagði hann.
Ég bar upp erindið og hann
samþykkti viðtal. Við komum
okkur fyrir í setustofunni og síð-
an hófst spjallið.
- Hvað heitirðu, hvaðan og
hve ungur ertu?
„Ég heiti Magnús Þór Haf-
steinsson og er 22ja ára frá Akra-
nesi.“
- Hvað kom til að þú fórst til
náms í Bændaskólann?
„Ja, ég hafði verið töluvert til
sjós og langaði til að læra eitt-
hvað í sambandi við sjávarútveg.
Ég rakst þá á þennan möguleika,
að í boði væri nám í fiskeldi á
sérstakri braut hér við skólann.
Ég ákvað því að slá til.“
- Hvernig hefur námsferillinn
verið hjá ykkur á sporðbrautinni
hér í skólanum?
„Við komum hingað haustið
’84, vorum fram að áramótum í
skólanum og tókum þá próf. Síð-
an fórum við í verknám, en fyrra
árs nemar fara alltaf burtu frá
skólanum í verknám seinni hluta
vetrar. Við á sporðbrautinni för-
um í laxeldisstöðvar, en hinir á
almennu brautinni fara á bú hing-
að og þangað um landið. Ég fór í
verknám í laxeldisstöðina að
Húsatóftum við Grindavík. Svo
komum við hingað í skólann aft-
ur sl. haust, verðum hér í allan
vetur og útskrifumst í vor. Við
sjömenningarnir á sporðbraut-
inni verðum þeir fyrstu sem út-
skrifast úr námi í fiskeldi hér á
landi.“
- Ertu bjartsýnn á atvinnu-
horfur í greininni?
„Já, maður getur ekki annað,
það virðist vera svo mikill vöxtur
í henni. Ég er samt ekkert farinn
að leita mér að vinnu ennþá.“
- Hvernig er skóladagurinn?
„Viö byrjum klukkan átta og
erum í skólanum samfleytt fram