Dagur - 27.02.1986, Síða 15
27. febrúar 1986 - DAGUR - 15
Forsendur
kjarasamninga
Áætlaður kostnaður
vegna aðgerða
Eftirfarandi tafla sýnir áætlaðan kostnað ríkissjóðs vegna aðgerðanna
til lækkunar verðlags:
Aðgerð: Kostnaður:
Lækkun á grænmetistollum 50 millj. kr.
Niðurfelling tolla af hjólbörðum 60 millj. kr.
Lækkun á bifreiðatollum 400 millj. kr.
Lækkun á tollum á heimilistækjum 180 millj. kr.
Afnám verðjöfnunargjalda af rafmagni 440 millj. kr.
Niðurfelling launaskatts 330 millj. kr.
Samtals kostnaður á heilu ári 1460 millj. kr.
Áætlaður kostnaður á árinu 1986 1250 millj. kr.
Ekki er reiknað með kostnaði vegna lækkunar á búvöruverði í þessum
útreikningum enda gert ráð fyrir því að aðilar sjálfir standi að mestu
undir þeim lækkunum innan þess fjárhagsramma sem heildarfjárveit-
ingar ríkissjóðs til landbúnaðarins leyfa.
Forsendur kjarasamninga
ASÍ, VSÍ og VMS eru m.a.
þær að gert verði ráð fyrir
föstu gengi og afgerandi
hjöðnun verðbóigu og hefur
verið nefnd talan 7% í Iok
þessa árs í því sambandi.
Árangur í þessum efnum er
háður því að ríkisstjórnin beiti
sér fyrir veigamiklum aðgerð-
um til niðurfærslu verðlags,
aðhalds í verðlagsmálum og
eflingar samkeppnisaðstöðu
útflutnings- og samkeppnisiðn-
aðar. Samningsaðilar beindu
því til stjórnvalda að þau
tryggðu framgang ýmissa mála
og voru tillögur þess efnis
sendar ríkisstjórninni. Hér fer
á eftir það sem aðilar vinnu-
markaðarins telja að ríkis-
stjórnin þurfi að gera - for-
sendur kjarasamninganna.
Auk þess var samkomulag um
það milli aðUa að launakerfið
yrði endurskoðað, þ.e. að færa
kauptaxta að greiddu kaupi,
auka hlut fastra launa í heild-
artekjum og stuðla að auknu
jafnvægi á vinnumarkaði og
leiðréttingu milli starfshópa
m.a. vegna launaskriðs sem
valdið hefur misgengi. Hús-
næðismálin voru ennfremur
ákaflega stór þáttur í sam-
komulaginu, þ.á m. endur-
skipulagning lífeyrissjóðakerf-
isins, eins og greint hefur verið
frá í Degi.
Lækkun tekjuskatts
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir lækk-
un tekjuskatts um allt að 150
milljónir króna á þessu ári til
samræmis við breyttar verðlags-
horfur frá því sem fjárlög gerðu
ráð fyrir. Bent er á hækkun pers-
ónuafslátts sem æskilega leið til
þess að ná þessu markmiði.
Fyrirframgreiðsla tekjuskatts
lækki til samræmis við þetta.
Lækkun útsvars
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að
sveitarfélög lækki útsvar í ljósi
lægri verðbólgu en forsendur
fjárhagsáætlana þeirra byggðu á.
Fyrirframgreiðsla útsvars lækki
að sarna skapi.
Lækkun vaxta
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að
vaxtaákvarðanir styðji og fylgi
verðlagshjöðnun. Vextir lækki
strax 1. mars og síðan mánaðar-
lega í samræmi við lækkun verð-
bólgu.
Lækkun á verði opinberrar
þjónustu (0,5% vísitöluáhrií)
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir lækk-
un á verði opinberrar þjónustu
eins og fram kemur í bréfi til að-
ila vinnumarkaðarins dags. 11.
febrúar 1986 en þar er m.a. gert
ráð fyrir:
10% lækkun rafmagnsverðs.
7% lækkun á töxtum Hita-
veitu Reykjavíkur.
5% lækkun á afnotagjöldum
ríkisútvarpsins.
5% lækkun á dagvistargjöld-
um.
Auk þess sem vænst er að
önnur fyrirtæki ríkis og sveit-
arfélaga fylgi sömu stefnu.
Bein áhrif þessarra lækkana
eru metin á 0,5% í vísitölu fram-
færslukostnaðar en með óbeinum
áhrifum af því að opinber fyrir-
tæki falla frá hækkunum síðar á
árinu eru áhrifin í heild metin á
0,7%.
Nú þegar verði gengið eftir
skýrum svörum frá sveitarfélög-
um og orkufyrirtækjum um fyrir-
ætlanir þeirra í ljósi nýrra verð-
lagsforsenda.
Staðfest verði að ekki komi til
frekari hækkana síðar á árinu.
Miðað er við að lækkun þjón-
ustu komi fram eigi síðar en 1.
mars 1986.
Lækkun á verði á bensíni og
olíum (0,65% áhrif í vísit.)
Lækkun á verði á bensíni og olí-
um á heimsmarkaði skili sér í
verðlagningu á þessum vörum
hérlendis. Miðað er við að bensín
lækki a.m.k. um 4% fyrir 1. mars
og aftur fyrir 1. apríl þannig að
lækkun alls verði a.m.k. 10%,
sem lækkar framfærsluvísitöluna
beint um 0,5%. Auk þess er gert
ráð fyrir því að óbein áhrif af
þessarri lækkun og almennri
lækkun á vörum unnum úr olíu
verði 0,15% til viðbótar.
Lækkun á verði búvöru
(0,5% vísitöluáhrif)
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því í
samráði við bændur og aðra aðila
sem vinna og versla með búvörur
að búvöruverð hækki ekki fram
til 1. júní og ekki umfram 2% í
hvert sinn sem nýtt búvöruverð
er ákveðið á árinu 1986.
M.a. er bent á þá leið að hluti
útflutningsuppbóta á búvörur
verði notaður til þess að fjár-
magna sérstaka verðlækkun á
kindakjöti nú á útmánuðum.
Jafnframt verði gert ráð fyrir
sérstakri verðlækkun á kinda-
kjöti eftir sláturtíð næsta haust.
Afnám verðjöfnunargjalds
af rafmagni
(0,35% í vísitölu)
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir af-
námi verðjöfnunargjalds af raf-
magni. Þessarri aðgerð er ætlað
að lækka orkuverð hérlendis til
almennra nota til samræmis við
lækkandi orkuverð erlendis.
Áhrifin af þessarri aðgerð sem
gengið er útfrá að komi til fram-
kvæmda fyrir 1. mars eru metin á
0,35% í vísitölu framfærslu-
kostnaðar.
Lækkun á tollum á grænmeti
(0,15% vísitöluáhrif)
Ríkisstjórnin ábyrgist lækkun á
tollum á innfluttu nýju grænmeti,
aðallega tómötum og agúrkum (á
þeim tímum sem slíkur innflutn-
ingur er á annað borð heimilað-
ur), þannig að ýmsar tegundir
innflutts nýs grænmetis lækki í
verði um a.m.k. 30%. Slík lækk-
un vegur um 0,15% í vísitölu
framfærslukostnaðar.
Lækkun á tollum af
fólksbifreiðum
(1,5% vísitöluáhrif)
Ríkisstjórnin standi fyrir lækkun
á tollum eða öðrum aðflutnings-
gjöldum af bifreiðum sem tryggi
að bifreiðar með 2000 rúm-
sentim. vél eða minni lækki í
verði um a.m.k. 30%. Stærri bif-
reiðar lækki hlutfallslega minna.
Slík lækkun vegur 1,5% í vísi-
tölu framfærslukostnaðar.
Lækkun á tollum
af hjólbörðum
(0,15% vísitöluáhrif)
Tollar af hjólbörðum fyrir fólks-
bifreiðir verði felldir niður. Áætl-
uð vísitöluáhrif eru um 0,15%.
Lækkun á tollum
af heimilistækjum
(0,35% í vísitölu)
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir eftir-
farandi lækkun á tollum af ýms-
um heimilistækjum:
Tollar á sjónvarpstækjum,
myndbandstækjum, útvarps-
tækjum og hljómtækjasam-
stæðum lækki úr 75% í 40%.
Tollar á ýmsum heimilistækj-
um sem nú bera yfir 40% toll
lækki í 40%.
Tollar á ýmsum tækjum sem
nú bera 40% toll lækki í 15%
Almenn verðlækkun á þessum
vörutegundum vegna þessarra
tollalækkana er nálægt 20% sem
vegur um 0,35% í vísitölu.
Niðurfelling launaskatts
til eflingar samkeppnisstöðu
Ríkisstjórnin gangist fyrir því að
launaskattur verði felldur niður
af fiskvinnslu, útflutnings- og
samkeppnisgreinum til þess að
gera þeim auðveldara að taka á
sig launakostnaðarhækkanir
meðan gengi krónunnar er haldið
stöðugu.
Verðgæsla og verðkannanir
Ríkisstjórnin feli Verðlagsstofn-
un að stórauka verðgæslu og
verðkannanir til þess að sem best
megi fylgjast með þróun verðlags
á sem flestum mörkuðum. Mark-
miðið með slíku er að auka upp-
lýsingar um verðlagsmál, veita
aðhald við verðákvarðanir og
efla verðskyn almennings.
Verðlagsstofnun hafi náið
samráð við aðila vinnumarkaðar-
ins um framkvæmd málsins, sbr.
yfirlýsingar aðila um aðhald í
verðlagsmálum.
Fjármögnun
aðgerða
Aukin kaup lífeyrissjóða
á ríkisskuldabréfum
Sérstakt samkomulag hefur verið
gert um aukin kaup lífeyrissjóða
á ríkisskuldabréfum, þannig að
lífeyrissjóðirnir kaupi a.m.k. fyr-
ir 2650 milljónir króna á þessu ári
af ríkissjóði, byggingarsjóðun-
um, Framkvæmdasjóði og Stofn-
lánadeildinni.
Þessi auknu kaup lífeyrissjóð-
anna á skuldabréfum gefur ríkis-
sjóði svigrúm til þess að lækka
skatta um a.m.k. 625 milljónir
króna á þessu ári.
Gefur 625 milljónir
króna
Sérstakar aðgerðir
ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir
lækkun útgjalda eða hækkun
skatta fyrir jafn háa upphæð og
svarar til þess svigrúms til skatta-
lækkana sem gefst við aukin
skuldabréfakaup lífeyrissjóð-
anna.
Ríkissjóður bætir þannig
krónu við hverja þá krónu sem
hægt er að lækka skattana um
vegna aukinna skuldabréfakaupa
lífeyrissjóðanna.
Bent er á eftirfarandi leiðir fyr-
ir ríkissjóð til að leysa þann
vanda sem skapast við sérstaka
625 millj. króna skattalækkun:
Sérstakur 10% launaskattur á
banka til þess að stuðla að að-
haldi og sparnaði í vinnuafls-
notkun í bankakerfinu. Þetta
gefur 225 millj. kr.
Sérstök lækkun fjárveitinga
til vegagerðar um 200 millj.,
króna vegna sparnaðar í
kjölfar lækkandi olíuverðs.
Sérstakt 40% álag á eigna-
skatt vegna lækkunar tolla á
bifreiðum og heimilistækjum.
Miðað er við að þessi aðgerð
skili um 200 milljónum
króna.
mm
Iár
er ódýrt að
endurnýja skóna
Litir: Fbl. - græ. - futzia
Stærðir: 36-41
Áður: 2.095.- Nú: 1.095.-
finír femÉpskór
og margar fleiri gerðir
Dömu- og herraskór
Litir: Fbl. - græ. - futzia
Stærðir: 36-41
Áður: 2.280.- Nú: 1.295.-
1936
Mokkasia
Litir: Fbl. - græ. - futzia
Stærðir: 36-41
Áður: 2.280.- Nú: 1.295.
1986
SKOGERDIN
AKUREYRI