Dagur - 27.02.1986, Blaðsíða 16
Akureyri, fímmtudagur 27. febrúar 1986
Skipagötu 12 ■ Sími 21464
Kjúkfavjar
eru gccðafceða
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Saksóknari
óskar eftir
nánari rannsókn
á Sjallamálinu
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur sent gögn varðandi rann-
sókn á hugsanlegu fjármálamis-
ferli í Sjallanum til ríkissaksókn-
ara. Þar hafa skjölin verið yfirfar-
in, en í gær voru þau send aftur
til rannsóknarlögreglunnar á
Akureyri, með beiðni um frekari
'rannsókn á málinu. Þegar Dagur
ræddi við rannsóknarlögreglu-
mann í gærkvöld höfðu gögnin
ekki borist norður. Hann átti
hins vegar von á því, að umbeðin
framhaldsrannsókn fælist í frek-
ari yfirheyrslum í málinu og að
þeim verður unnið strax og máls-
gögn hafa borist norður.
Síðuhverfi Akureyri:
500 foreldrar
senda mótmæli
til stjómvalda
Rúmlega 500 foreldrar í Síðu-
hverfi hafa skrifað undir bréf sem
sent verður til fjármálaráðherra,
menntamálaráðherra og allra
þingmanna Norðurlandskjördæm-
is eystra.
Með undirskrift sinni eru foreldrar
að mótmæla því að enn eru ófrá-
gengnir samningar milli mennta-
málaráðuneytisins og Akreyrarbæjar
varðandi byggingu Síðuskóla á Ak-
ureyri. í bréfinu segir orðrétt:
„Skuld ríkisins vegna byggingar
Síðuskóla nemur nú að talið er um
20-30 miiljónum króna. Við foreldr-
ar í Síðuhverfi mótmælum því að
börn okkar verði enn á ný flutt í aðra
skóla og við sættum okkur ekki við
annað en að vandi skólans verði
leystur."
Fyrirsjánlega þarf að flytja einn til
tvo árganga úr Síðuskóla yfir í aðra
skóla strax í haust ef ekki verður ráð-
ist í að fullklára fleiri kennslustofur í
nýbyggingunni. Yrði þá að grípa til
þess ráðs sem nemendur í Síðuhverfi
þekkja allt of vel, að keyra börnin á
milli skólahverfa. Foreldrarnir vilja
með bréfi þessu þrýsta á að málin
verði leyst á farsælli hátt. BB.
Saumakonur hjá Heklu:
Allar endurráðnar
hjá Iðnaðardeildinni
Saumafólk hjá Sambands-
verksmiðjunum á Akureyri
þarf ekki að standa uppi at-
vinnulaust, þótt fataverk-
smiðjunni Heklu verði lokað,
en það hefur nú endanlega
verið ákveðið.
Að sögn Jóns Sigurðarsonar
framkvæmdastjóra Iðnaðar-
deildar hefur verið ákveðið að
hefja framleiðslu á ullarjökkum
til útflutnings, en eftirspurn eft-
ir slíkum fatnaði hefur aukist
mjög að undanförnu. Þá mun
Iðnaðardeildin taka að sér að
sauma vinnufatnað fyrir inn-
lenda söluaðila.
„Þetta tvennt og svo það að
þörf er fyrir fleira starfsfólk í
ýmsum iðnaði hjá okkur, gerir
það að verkum að við höfum
boðið öllum saumakonunum
ráðningu hjá Iðnaðardeildinni.
Með öðrum orðum ætlum við
að auka framleiðsluna en ekki
yfirbygginguna," sagði Jón.
Það verða því innan við 10
manns af þeim 63 sem sagt var
upp störfum, sem ekki geta
fengið endurráðningu í kjölfar
þessarar ákvörðunar. BB.
WB8llB5BWIIgBBÍWSGaiglliMBWI^IIWITIlWH8HMlBBBB8BÍBBBB88BWM
„Ég vona að
unglingamir
kunni að
meta þetta
framtak"
-segiróli B. Kristdórsson
„Ég á húsnæði úti í Sunnuhlíð
og datt í hug að nýta það á
þennan hátt, svo það standi
ekki autt,“ sagði Óli Berg
Kristdórsson, sem sótt hefur
um leyfí til að setja upp leik-
tækja- og knattborðsstofu í
verslunarmiðstöðinni Sunnu-
hlíð á Akureyri.
Það er bæjarfógetans á Akur-
eyri að veita slíkt leyfi. Hann leit-
aði eftir umsögn bæjarstjórnar
um málið og hefur hún fyrir sitt
leyti samþykkt að leyfið verði
veitt.
Óli hefur í hyggju að setja
hurð út á svalirnar, þannig að
leiktækjastofan geti verið opin
utan verslunartíma. Byggingar-
nefnd hefur samþykkt þá breyt-
ingu.
„Ég er ekki alveg búinn að
gera upp við mig hvort ég rek
stofuna sjálfur ellegar leigi hana
öðrum. Ég hef trú á því að þetta
geti borið sig. Það búa margir í
Þorpinu og unglingarnir kunna
vonandi að meta þetta framtak,
þótt fullorðna fólkið virðist ekki
kunna að meta verslanirnar
þarna.“ BB.
Vatnsveitustjórn ávítar meirihiuta sjálfstæöismanna og Kvennaframboðs í vatnsveitumálinu:
Skammsýni í stað fyrirhyggju
Pétur Yaldimarsson hefur ver-
ið kosinn formaður Vatnsveitu-
stjórnar Akureyrar, í stað
Freys Ófeigssonar, sem sagt
hefur af sér, eins og fram hefur
komið í fréttum. Astæðan fyrir
afsögn Freys var sú ákvörðun
bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins og Kvennaframboðs-
ins, að taka af framkvæmdafé
vatnsveitunnar, til annarra
framkvæmda bæjarins.
Vatnsveitustjórnin hefur fjall-
að um þetta mál, gerði það á sín-
um fyrsta fundi eftir að Freyr
sagði af sér. Niðurstaða þeirra
umræðna var eftirfarandi bókun:
Fóstrunám á Akureyri:
„Við viljum fjölga
námsbrautunum"
„Með þessu erum við að reyna
að auka gildi okkar skóla og
bjóða nemendum upp á fjöl-
breyttara nám,“ sagði Bern-
harð Haraldsson skólameistari
Verkmenntaskólans á Akur-
eyri um þær hugmyndir sem
eru uppi um að flytja frekara
nám á uppeldisbraut út í hinn
almenna framhaldsskóla og
þar með bjóða upp á aukna
námsmöguleika.
Samvinna er meðal Verk-
menntaskólans á Akureyri og
Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
þessum efnum. Er mikill vilji
meðal ráðamanna þessara skóla
að gefa fólki kost á auknu námi í
uppeldisfræðum. „Við erum ekki
að varpa rýrð á Fósturskóla ís-
lands með þessum óskum okkar,
heldur viljum við gefa fólki sem
ekki býr í Reykjavík kost á að
njóta menntunar í sinni heima-
byggð,“ sagði Bernharð.
Þessar hugmyndir um aukna
menntun á uppeldisbraut annars
staðar en í Reykjavík, hafa mætt
nokkurri andspyrnu meðal
ráðamanna Fósturskólans. „Það
eru ekki allir sem eiga þess kost
að stunda nám í Reykjavík, jafn-
vel þó þeir búi á Suðurnesjum,"
sagði Bernharð. Hann sagði jafn-
framt að fósturstörf yrðu stunduð
í okkar þjóðfélagi í framtíðinni
og mikil þörf væri á menntuðu
fólki í þau störf. Einnig sagði
hann að menntunarkröfur til
starfsins yrðu ekki minnkaðar,
svo ekki væri verið að tjalda til
einnar nætur með þessum
óskum. gej-
„Á yfirstandandi kjörtímabili
hafa stjórn og starfsmenn Vatns-
veitu Ákureyrar staðið fyrir upp-
byggingu veitukerfa fyrir aukið
vatnsmagn og minnkandi orku-
kostnað. Þá hefur þess verið gætt
að framkvæmdir væru í samræmi
við tekjur vatnsveitunnar á
hverju ári. Með þessari fyrir-
hyggju var hægt að fella niður
álag á vatnsskatt á yfirstandandi
ári.
Stjórnin telur það eðlilegast að
viðskiptavinir Vatnsveitu Akur-
eyrar njóti þess í lækkuðum
gjöldum þegar uppbygging veit-
unnar er það langt komin að hægt
er að dreifa framkvæmdum sem
eftir eru á lengri tíma og nýta
þannig eingöngu eigið fé veitunn-
ar.
Með ákvörðun bæjarstjómar á
fundi sínum 11. febrúar 1986 var
komið í veg fyrir að þessi áætlun
nái fram að ganga. Stjórnin
harmar þá skammsýni sem í sam-
þykkt tillögunnar felst. Þá bendir
stjórnin á að bæjarstjórn sam-
þykkti á fundi sínum þann 19.
nóvember 1985 bókun stjórnar
Vatnsveitu Akureyrar athuga-
semdalaust, þar sem vatnsveitu-
stjóra er falið að láta hanna
4000 m' vatnsgeymi. En á fundi
sínum 11. febrúar 1986 fellir hún
það út úr framkvæmdaáætlun
vatnsveitunnar að verkið verði
hafið. Á það skal jafnframt bent
að reglugerð Vatnsveitu Akur-
eyrar heimilar ekki sköttun
umfram þörf vatnsveitunnar til
að standa undir útgjöldum.“
Hjólhýsaleiga:
Vísað
aftur til
bæjarráðs
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í fyrradag var samþykkt
samhljóða að vísa til bæjar-
ráðs erindi Matthíasar P.
Matthíassonar um að fá að
reka hjólhýsa- og tjaldvagna-
leigu á Akureyri.
Öskað var eftir svæði sunnan
Eikarlundar undir Smáhólum
og var ekki gert ráð fyrir að fólk
tæki þar hjólhýsi og tjaldvagna
og færi með, heldur hefði afnot
af þessum tækjum á staðnum.
Það kom fram á fundi bæjar-
stjórnar að bæjarfulltrúar töldu
þennan stað óheppilegan til
slíks reksturs og var því erind-
inu vísað til bæjarráðs með 11
samhljóða atkvæðum.