Dagur - 19.03.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 19.03.1986, Blaðsíða 5
Jesendahorniá % Hetlis) rHesth'rqj^r C // Londsflri®\ * ' i«öf'inJ®6hi samýj Smáhólar‘ ' Naustaflói - \ Hundatjörn Naustaborgir Syöri-borg ' Yfri-borg' Harmonikuunnendur við Eyjafjörð Árshátíð félagsins verður haldin í Lóni við Hrísalund laugardaginn 22. mars og hefst með borðhaldi kl. 20.00. Forsala aðgöngumiða á sama stað , föstudaginn 21. mars kl. 17-19. Nánari upplýsingar í símum 24305 og 23469. Sambyggð ferðatæki Hitachi m Panasonic í fjöl- TRK 6830 kr. 7.960,00. m WNAbúðin aBMi„ S 96-22111 Ingiríður Óskarsdóttir er mjög skemmtilegt leikrit Okkur langaði að koma því á framfæri í Degi, að við fórum og sáum leikritið Ingiríði Óskars- dóttur sem sýnt er á Melum í Hörgárdal og okkur þótti það mjög gaman. Þetta er létt og skemmtilegt leikrit, leikgleðin geislaði af leikurunum. Þetta var ákaflega skemmtileg stund sem við áttum á Melum og við viljum hvetja alla sem færi hafa á að bregða sér að Melum og sjá Ingi-A ríði Óskarsdóttur. Bergþóra, Lena, Alda, Svandís, Rúna og Systa. - Eigum við ef til vill að kalla Vaðlaheiði Leirdrulluheiði? breyttum stærðum Lítið inn í næstu kjörbúð félagsins og veljið meðan úrvalið er. Á þcssu korti má sjá ýmis gömul örnefni á Akureyri. Þar má m.a. sjá „Vaðlahorn“. Leiruvegur eða Vaðlavegur? Mönnum er greinilega ekki sama um hvað væntanlegur vegur yfir ósa Eyjafjarðarár verður látinn heita. Margir hafa haft samband við blaðið vegna þessa máls og má segja að þeir skiptist í tvo hópa, þá sem vilja að vegurinn heiti Leiruvegur og þá sem vilja kalla hann Vaðlaveg. Þeir sem styðja hugmyndina um „Vaðlaveg“ færa ýmis rök að þeirri nafngift. Þeir segja það í réttu samhengi við Vaðlaheiði, Vaðlareit og Vaðlaþing, svo eitthvað sé nefnt. Þeim sömu finnst óvirðing að kenna veginn við leir, sem merki ekki annað en drullusvað. „Á ef til vill að kalla Vaðlaheiði Leirdrulluheiði,“ spurði einn. Þeir sem mæla með því að veg- urinn heiti LeirUvegur hafa einn- ig margvjsleg rök fyrir þeirri nafngift. Þeir benda á, að fyrrum hafi þessi leið verið farin þegar lágsjávað var. Þá hafi aldrei verið talað um annað en að fara leir- urnar. „Vaðlavað" hafi hins veg- ar verið mun sunnar, meira að segja sunnar heldur en núverandi vegur liggur yfir hólmana. Stuðn- ingsmenn Vaðlavegar segja hins vegar að það hafi verið slys, að kalla þessa gömlu leið „Vaðla- veg“ eða „Vaðlavað“, því vaðlar geti ekki verið langt inn í landi. Orðabók Menningarsjóðs styður þessa kenningu, því þar stendur um vaðla; „grunnt vatn; leirur við sjó, sem fellur yfir á flóði, grunnur áll.“ Það er því ljóst, að rökin eru sterk á báða bóga. Sterkustu rök- in eru ef til vill þau, að Leiru- vegsnafnið virðist vera í þann veginn að festast í máli fólks á Eyjafjarðarsvæðinu. Enda er yngra fólki að líkindum tamara að tala um leirurnar heldur en vaðlana. Skiptir þá engu hvort vaðall er á mönnum eða ekki. Leiruvegur eða Vaðlavegur. Bæði nöfnin tákna nánast það sama, en það er smekksatriði hvort heldur er valið. PÁSKA- EGG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.