Dagur - 19.03.1986, Blaðsíða 12
Ritstjóm • Auglýsingar • Afgreiðsla
Síminn er 24222
Árekstrar og umferðaróhöpp í
febrúarmánuði urðu 462
talsins. Þar af urðu 182 í
Reykjavík en Akureyri kom
næst í röðinni með 30.
í 426 tilvikum varð einungis
um eignatjón að ræða, 32 sinnum
var um slys með meiðslum að
ræða, dauðaslys urðu 4 talsins en
alls slösuðust 50 manns í þessum
óhöppum og hlaut helmingur
þeirra meiriháttar meiðsli.
Sem fyrr sagði urðu 30 umferð-
aróhöpp á Akureyri og var í
tveimur tilfellum um slys á fólki
að ræða. í Skagafjarðarsýslu
urðu 11 umferðaróhöpp. í 8 til-
fellum varð einungis eignatjón,
slys með meiðslum urðu tvívegis
og í einu tilfellinu varð banaslys.
Á Húsavík og Ólafsfirði varð
ekkert umferðaróhapp í febrúar.
Hins vegar urðu þau tvö á
Dalvík, eitt á Siglufirði, fjögur í
Þingeyjarsýslu og eitt í Eyja-
fjarðarsýslu. gk-.
Bjart yfir atvinnulífinu á Raufarhöfn:
Rekstrarkostnaður
Jökuls 9 milliónir
„Atvinnuástandið hér á Rauf-
arhöfn er mjög gott og okkur
vantar fólk til starfa,“ sagði
Ætlaði að
endur
- Framleiðsluverðmæt: útflutningsafurða frá Raufarhöfn
nam 535 milljónum króna
Gunnar Hilmarsson sveitar- og vona menn að það sé liðin tíð
stjóri á Raufarhöfn
á s.l. ári
skjóta
Lögreglan á Akureyri hafði í
gærmorgun afskipti af manni
sem var á ferð í fjörunni
skammt frá Krossanesi.
Maðurinn var vopnaður byssu
og var í þeim hugleiðingum að
skjóta stokkendur. Það er að
sjálfsögðu óheimilt í bæjarland-
inu þótt stokköndin sé ekki
alfriðuð. Var maðurinn fluttur á
lögreglustöðina og mun hafa
fengið áminningu en málið síðan
látið niður falla.
í stuttu
spjalli við Dag.
Mikil umskipti hafa orðið í
atvinnulífi á Raufarhöfn hin síð-
ustu ár. Munar þar miklu að
rekstur Jökuls hf. hefur gengið
mjög vel og næg atvinna verið við
fiskverkun og eins við uppbygg-
ingu frystihússins á staðnum.
Samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri var rekstrarhagnaður Jökuls
hf. á síðasta ári um 9 milljónir
króna. Jökull gat staðið í skilum
með öll sín gjöld til sveitarsjóðs
sem námu 1,4 milljónum króna
að stórfyrirtæki staðarins geti
ekki staðið í skilum með gjöld
sín.
Afli Rauðanúps á s.l. ári var
2.560 tonn sem var 600 tonna
aukning frá árinu áður og það
sem af er þessu ári hefur togarinn
veitt mjög vel. Nú er í athugun
að breyta Rauðanúpi á þessu ári
þannig að hægt verði að heil-
frysta um borð t.d. karfa og grá-
lúðu og jafnvel rækju. Ákvörð-
unar í því máli er að vænta fljót-
lega.
Byggingaframkvæmdir við
nýja frystihúsið standa yfir af
miklum krafti, og er stefnt að því
að hægt verði að hefja vinnu í
húsinu um næstu áramót.
Þess má að lokum geta að á
síðasta ári nam framleiðsluverð-
mæti útflutningsafurða á Raufar-
höfn urrt 535 mitljónum króna
eða 1.235 þúsund krónum á
hvern íbúa sveitarfélagsins. íbúar
Raufarhafnar eru 0,18% íslend-
inga og á síðasta ári framleiddu
þeir 2,41% af heildarútflutningi
sjávarafla landsmanna. gk-.
eyn.
Þessi biðlisti er síðan um mán-
aðamót febrúar og mars, en hef-
ur aukist að nýju og er um hundr-
að manns á þessari stundu. „Það
er mjög venjulegur biðlisti þegar
hundrað manns eru á honum,“
sagði Svandís. Lengstur varð bið-
listinn á Bjargi á árinu 1984 en þá
voru á honum tæplega hundrað
Febrúar:
Fjögur
bana
Grímsey:
Vindmyllan
hitar tvö hús
„Það er ekki þörf að kvarta
þegar blessuð sólin skín og
jiað hefur hún gert hér í
Grímsey alltaf af og til,“ sagði
Stcinunn Sigurbjörnsdóttir og
lét vel af lífinu þar.
„Þetta er hreint ævintýri hjá
okkur núna, því tíðin hefur verið
Vindmyllan í Grímsey.
svo góð og aflinn eftir því,“ sagði
Steinunn. Bátarnir í Grímsey eru
að verða búnir með kvóta sína,
verða líklega búnir um páska.
Þegar Steinunn var spurð hvað
tæki þá við sagði hún: „Ætli við
förum ekki að leika okkur. í
alvöru talað þá hafa þeir eitthvað
til að veiða svo sem grásleppu,
ufsa, kola og eitthvað fleira sem
ekki er háð kvótanum. Þetta er
nefnilega gullkista hér í kringum
okkur og er slæmt að ekki megi
veiða úr henni, en svona er
þetta.“
Góð vinna hefur verið í fisk-
vinnslunni í Grímsey í vetu’-
og margt af aðkomufólki að
störfum. „Ætli það séu ekki
kringum tuttugu manns, sem
þykir margt í ekki stærra byggða-
Jagi,“ sagði Steinunn.
Vindmylla þeirra Grímseyinga,
„gengur fínt“, hún er farin að
hita upp 2 hús núna. Seinna húsið
var tengt nýlega og nóg af heitu
vatni. Hún gengur eins og við
vorum búin aÁ spá hér í Gríms-
ey. Það vantaði stundum vind í
vetur til að hita vatnið, því hún
þarf minnst 4 vindstig til að
ganga,“ sagði Steinunn. Mikið af
fugli er komið í Grímsey. „Við
erum farin að kvaka með honum,
því fuglinn boðar vorið. Þó finnst
okkur hann vera heldur snemma
á ferðinni, því það má reikna
með einhverju hreti, því við vilj-
um heldur fá slíkt fyrr á vet-
urna,“ sagði Steinunn og bað um
kveðjur í land. gej-
Á fömum vegi.
Mynd: - KGA.
Endurhæfingarstöðin á Bjargi:
100 manns á biðlista
„Við vorum mjög upp með
okkur fyrir skömmu, því þá
var biðlistinn kominn niður
fyrir hundrað manns og það
hefur ekki verlð svo fámennur
biðlisti síðan endurhæfingar-
stöðin hóf starfsemi sína,“
sagði Svandís Hauksdóttir
sjúkraþjálfari á Bjargi á Akur-
og fimmtíu.
Ýmsir sjúkdómar eru með-
höndlaðir á Bjargi. Svandís sagði
að mest væru það atvinnusjúk-
dómar, svo sem vöðvabólga,
bakmein og fleira sem kallað er
álagssjúkdómar. „Okkar skjól-
stæðingar eru á aldrinum frá
nokkurra mánaða upp í nírætt,“
sagði hún. gej-