Dagur - 24.03.1986, Síða 1
69. árgangur
Akureyri, mánudagur 24. mars 1986
57 tölublað
Verðlækkun á mörkuðum Kísiliðjunnar:
„Enginn uppgjafar-
tónn í okkur“
- segir Róbert Agnarsson framkvæmdastjóri
„Við höfum ekki dregið neitt
úr framleiðslunni enn sem
komið er, hvað sem síðar
verður,“ sagði Róbert Agnars-
son framkvæmdastjóri Kísil-
iðjunnar í samtali við Dag, en
„Eg skrifa
ekki undir“
„Eg stend við það að skrifa
ekki undir, því ég get ekki sætt
mig við tilraun af þessu tagi,
enda hafa dýralæknar sagt að
þetta sé ekki til annars en
draga úr veikinni, en ekki eyða
henni,“ sagði Þorgeir Þórar-
insson bóndi á Grásíðu í
Kelduhverfi, um undirskrifta-
söfnun meðal bænda á þeim
slóðum, þar sem þeir skuld-
binda sig til að skera niður fé
sitt, ef riðuveiki er í fjárstofni
þeirra nú, eða finnist síðar.
Riða hefur fundist í fé Þorgeirs
og sonar hans, en þeir reka fé-
lagsbú á Grásíðu.
„Það er í 5 tilfellum af 330
kinda stofni sem riða hefur fund-
ist hjá okkur á síðustu 2 árum,“
sagði Þorgeir. Hann taldi að
bændur sem ættu svipaðan fjölda
fjár misstu meira en hann, þrátt
fyrir að riða væri ekki í stofni
þeirra. Hann sagði einnig að
nokkuð hefði verið farið um
sveitina og þrýst á menn um að
samþykkja niðurskurð og allir
samþykkt á endanum „en ég hef
ekki látið undan þeim þrýstingi
og þykist hafa það góðan málstað
að verja, að ég tel enga ástæðu til
þess,“ sagði Þorgeir Þórarinsson.
„Málið er hjá fjármálaráðu-
neytinu þessa stundina og verið
að athuga hvort peningar fáist til
að gera þetta,“ sagði Bárður
Guðmundsson dýralæknir á Húsa-
vík um væntanlegan niðurskurð
riðufjár á Norðausturlandi. Eins
og komið hefur fram í fjölmiðl-
um er áætlað að það þurfi að
Lögreglan:
„Steindautt"
„Það hefur ekkert borið til tíð-
inda hér. Allt steindautt. Það
hringdi varla sími hjá okkur í
nótt,“ sagði varðstjóri lögregl-
unnar á Akureyri í samtali við
Dag í gær.
í sama streng tóku þeir lög-
reglumenn á Norðurlandi sem
Dagur hafði samband við í gær.
Talsvert snjóaði á Akureyri,
Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði
um helgina, en að sögn lögreglu-
manna varð snjórinn ökumönn-
um ekki til vandræða. -mþþ
slátra um 6 þúsund fjár á svæð-
inu.
„Kostnaðurinn fer eftir því
hvað þarf að gera við fjárhús og
fleira sem tengist því að koma í
veg fyrir riðuna," sagði Bárður.
Það sem talið er að þurfi að gera
er að bændur verði fjárlausir í 2
ár eftir að fé er slátrað,
hreinsa þarf allan skít burtu úr
húsunum, fjarlægja timburverk
sem er slitið og ekki hægt að sótt-
hreinsa, fjarlægja þarf heyfyrn-
ingar og nota fyrir hesta eða
nautgripi, skipta um efsta lag í
jarðvegi kringum fjárhús, loka
túnum meðan á þessum aðgerð-
um stendur og sótthreinsa allt
hátt og lágt. gej-.
frá því var skýrt í útvarpi að
framleiðsla fyrirtækisins hefði
dregist saman að undanförnu.
„Ég neita því ekki að það eru
erfiðleikar í sambandi við sölu á
þeirri vöru sem við framleiðum,"
sagði Róbert. „Það hefur orðið
verðlækkun á okkar mörkuðum
sem eru að langmestu leyti í Evr-
ópu. Það sem því veldur er að
dollarinn hefur lækkað í verði og
samkeppnisaðilar í Bandaríkjun-
um hafa sterkari samkeppnisað-
stöðu.“
- Róbert sagði að framleiðsla
Kísiliðjunnar væri 70-100 tonn á
sólarhring, það færi eftir því m.a.
hvernig hráefnið væri sem unnið
væri úr hverju sinni. Ákveðið
væri að stöðva framleiðslu vegna
viðgerða 1 .-11. apríl og sams konar
ar stöðvun yrði í maí. Hins vegar
væri hann ekki hlynntur því að
reka verksmiðjuna ef ekki væri
um full afköst að ræða, sér fynd-
ist skynsamlegra að stöðva frek-
ari framleiðslu í einhvern tíma,
það kæmi betur út fjárhagslega.
„En þótt málin standi svona í
dag er enginn uppgjafartónn í
okkur, við búum að góðu gengi
s.l. ár sem var metár hjá okkur
og staða fyrirtækisins er traust,“
sagði Róbert. gk-.
Ofboðslega gaman að leika Tarsan. Þessi er að vísu betur búinn en apa-
bróðirinn var. Mynd KGA
Kvennaframboðið
býður ekki fram
Kvennaframboðið á Akureyri
hefur ákveðið að bjóða ekki
fram til bæjarstjórnar næsta
kjörtímabil. Kvennaframboðið
mun þó starfa áfram sem sam-
tök og vinna að markmiðum
sínum á öðrum vettvangi.
„Við höfum ákveðið að snúa
okkur að öðru í bili,“ sagði Sig-
fríður Þorsteinsdóttir annar
bæjarfulltrúi Kvennaframboðsins
í samtali við Dag.
Hin nýja flugstöð í Aðaldal er hin glæsilegasta.
Mynd: IM.
„Nei, við teljum að við séum
ekki búnar að ná fram okkar
markmiðum og við munum vinna
að þeim áfram, en á öðrum vett-
vangi. Ástæðan fyrir því að við
bjóðum ekki fram núna, er sú að
margar þær konur sem starfa
með Kvennaframboðinu eru
farnar að vinna að mjög krefj-
andi verkefnum. Við höfum unn-
ið mjög mikið síðustu árin og það
voru ekki nógu margar konur
sem treystu sér í svo mikla vinnu
áfram,“ sagði Sigfríður. -mþþ
Farþegar
í vöru-
afgreiðslu
Nýja flugstöðin á Aðaldals-
flugvelli við Húsavík var vígð
með pompi og prakt sl. föstu-
dag og var þar mikið um
dýrðir.
Ekki nutu þó allir dýrðarinnar
og þeirra veitinga sem boðið var
upp á í tilefni dagsins. Eftir að
flugvél hafði rennt í hlað með
prúðbúna veislugesti (að sunnan)
var vélin afgreidd á venjulegan
hátt og fór síðan suður á ný full-
skipuð farþegum. Þungt var í
þeim mörgum því að til þess að
trufla ekki veisluhöld „fína
fólksins" voru þessir farþegar
látnir fara um vöruafgreiðslu
nýju flugstöðvarinnar, það var
þeirra „lúxus“ loksins þegar hægt
hefði verið að bjóða þeim upp á
sómasamlega aðstöðu fyrir flug.
Fátt var um munað eins og sæti,
og skipti ekki máli hver átti í
hlut, allir máttu standa upp á
endann í vöruafgreiðslunni fyrir
flug, ófrískar konur jafnt sem
aðrir. IM-Húsavík/gk-.