Dagur - 24.03.1986, Side 3
24. mars 1986 - DAGUR - 3
Mikil
aukning
kúa-
slátrun
„Þegar litið er á tímabilið frá
1. september í fyrra til 1. mars
í ár er Ijóst að mikil aukning
hefur verið í beljuslátrun mið-
að við sama tímabil á fyrra
verðlagsári. Við erum búnir að
Ióga 240 kúm fleiri nú en þá,“
sagði Þórarinn Halldórsson
sláturhússtjóri hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga í samtali við Dag.
í framhaldi af nýjum lögum um
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
þar sem gert er ráð fyrir umtals-
verðum samdrætti í mjólkur-
framleiðslu, hefur orðið umtals-
verð aukning á beljuslátrun. Svo
virðist sem margir bændur hafi
gert ráð fyrir samdrættinum strax
í haust, þótt útreikningur á leyfi-
‘legu framleiðslumagni hvers og
eins lægi ekki fyrir fyrr en í lok
janúar. Eyfirskir bændur byrjuðu
að leiða mjólkurkýr til slátrunar
áður en þeir vissu nákvæmlega
hversu mikil skerðingin yrði.
„Það varð umtalsverð fjölgun á
slátrunum strax í haust og síðan
hefur komið kippur í þetta aftur í
febrúar og mars, miðað við sömu
mánuði í fyrra og þó slátruðum
við mörgum gripum þá. En þar
sem mesta aukningin er í febrúar
og mars fæst mun raunhæfari
mynd af ástandinu eftir næstu
mánaðamót,“ sagði Pórarinn
Halldórsson að lokum. BB.
Útvarp-Sjónvarp:
Starfsmenn
hvetja til
samninga
Stjórnir starfsmannafélaga út-
varps og sjónvarps hvetja Fjár-
málaráðuneytið til að ganga
þcgar í stað til samninga við
tæknimenn Ríkisútvarpsins og
Pósts og síma sem gengið hafa í
Sveinafélag rafeindavirkja. Það
hljóta að teljast sjálfsögð réttindi
launamana að velja sér stéttarfé-
lag að eigin vild. Fréttatilkynning.
Aðalfundur Félags aldraðra á Akureyri:
Það er oft líflegt og skemmtilegt á fundum í Félagi aldraðra. Myndin er tekin á vetrarfagnaði í nóvember.
Mynd: KK
Félagar yfir
Aðalfundur Félags aldraðra á
Akureyri var haldinn 8. mars
sl. og stjórnarfundur 19. mars.
Aðalfundurinn var mjög vel
sóttur og sat hann á annað
hundrað manns. Auk aðal-
fundarstarfa og samdrykkju
skemmti Gunnfríður Hreiðars-
dóttir með einsöng við undir-
leik Kristjönu Jónsdóttur.
Félagsmenn eru nú yfir 500
talsins, félagið skuldlaust og á
heimili sitt þar sem áður hét
Alþýðuhús en nú Hús aldraðra,
gjöf frá verkalýðsfélögunum á
Akureyri með öllum búnaði. Þá
hefur félagið notið stórgjafa frá
fyrirtækjum og einstaklingum.
Aðalstarfsemi Félags aldraðra
felst í hinu vikulega „opna húsi“,
sem ætíð er vel sótt og „spila-
kvöldum“ tvisvar í mánuði. Þá
má minna á ýmsar skemmttéam-
komur og ráðstefnur. Þá stendur
félagið fyrir skipulögðum sumar-
skemmtiferðum og hefur þátt-
taka verið mikil.
Undirbúnar eru íbúðabygging-
ar fyrir aldraða. Á vegum bæjar-
ins og Félags aldraðra starfar
nefnd að undirbúningi málsins.
Rætt er um byggingu 70-80
íbúða, auk þjónustukjarna á
sama stað, við Víðilund.
Kosningar í stjórn og nefndir á
aðalfundinum og síðar á stjórn-
arfundinum voru eftirfarandi:
í aðalstjórn félagsins voru
kosin: Jón G. Sólnes formaður,
Erlingur Davíðsson ritari og
varaformaður, Ragnar Ólason
gjaldkeri, Stefán Reykjalín og
Jónína Steinþórsdóttir spjald-
skrárritari meðstjórnendur.
Varastjórnina skipa: Gestur
„Mát í
þriðja leik“
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum í skákkeppni „MÁT í
ÞRIÐJA LEIK“ sem Sam-
band íslenskra samvinnufélaga
gekkst fyrir á 12. Reykjavíkur-
skákmótinu.
Á myndinni sést þegar hinir
ungu skáksnillingar Þröstur
Árnason og Hannes Hlífar Stef-
ánsson draga úr réttum lausnum.
Vinningshafi er Rögnvaldur
Örn Jónsscn, Ljósheimum 22
Reykjavík. Hlýtur hann að laun-
um veglegt taflborð og vandaða
taflmenn.
500 talsins
Ólafsson, Ingibjörg Halldórs-
dóttir, Anna Ólafsdóttir, Guðrún
Árnadóttir og Anna Björnsdótt-
ir.
Skemmtinefnd skipa: Anna
Ólafsdóttir, Páll Friðfinnsson og
Guðrún Þorsteinsdóttir.
Spilanefnd: Gyða Jóhannes-
dóttir, Ingibjörg Halldórsdóttir
og Anna Björnsdóttir.
Leiknefnd: Lára Halldórsdótt-
ir, Ester Lárusdóttir og Jónína
Steinþórsdóttir.
Ferðanefnd: Erlingur Davíðs-
son, Hrefna Svanlaugsdóttir og
Kristín Þórðardóttir.
Allsherjarnefnd: Aðalsteinn
Óskarsson, Ólafur Halldórsson
og Arnþór Jensen.
Basarnefnd: Einhildur Sveins-
dóttir, Kristín Róbertsdóttir og
Jóna Friðbjarnardóttir.
Schiesser^l
er merkið sem tryggir gæðin
Litadýrð sumarsins verður
alveg einstök, bjartir og skærir
litir er gefa lífinu aukið gildi
r'ClÆgSlgíÆgCfl)