Dagur - 24.03.1986, Síða 7
6 - DAGUR - 24. mars 1986
24. mars 1986 - DAGUR - 7
Spilar
Gústaf
meðKA?
Miklar vangavcltur eru nú um það hvort
Gústaf Baldvinsson ætli að leika með KA-
liðinu í knattspyrnu í sumar jafnframt því að
þjálfa liðið. Samkvæmt heimildum Dags hef-
ur Gústaf æft vel að undanförnu og tekið
þátt í þeim æfingaleikjum sem liðið hefur
spilað nú í vetur.
Gústaf lék með KA-liðinu fyrsta árið sem
hann þjálfaði það fyrir tveimur árum en
meiddist síðan alvarlega. Gústaf virðist því
hafa náð sér að fullu og það verður mikill
styrkur fyrir KA ef hann leikur með í sumar.
Gústaf hefur fengið sér til aðstoðar lið-
stjóra og er það Þorvaldur Þorvaldsson. Þor-
valdur lék með KA-liðinu í fyrrasumar við
góðan orðstír en hefur orðið að leggja
skóna á hilluna að læknisráði. Það ætti því
að verða í lagi fyrir Gústaf að spila með lið-
inu og láta Þorvaldi liðstjórnina eftir.
Þorvaldur hefur einnig verið ráðinn þjálf-
ari kvennaliðs KA í knattspymu. Hefur lið-
inu gengið mjög vel í innanhússmótum þeim
sem liðið hefur tekið þátt í undir hans stjórn
í vetur, eins og Laugamótinu og Islandsmót-
inu.
Gústaf Baldvinsson þjálfari KA.
Bikarkeppni HSÍ:
KA stein-
lá gegn Tý
„Ég skil þetta ekki. KA-liðið lék hörmulega
í þessum leik. Ég, Jóhann Karl formaður,
Sigurður gjaldkeri og Hermann liðstjóri
hefðum unnið þetta lið,“ sagði Ljubo Laciz
þjálfari KA eftir tap gegn Tý í bikarkeppn-
inni í handbolta á fímmtudaginn.
Það em orð að sönnu, KA-liðið lék
hörmuiega í þessum leik og hafa leikmenn
liðsins ekki búist við mikilli mótspymu en
annað kom á daginn. í hálfleik höfðu Týrar-
ar 6 marka forystu 11:5 og má segja að það
hafí verið í fyrri hálfleik sem úrslitin réðust í
leiknum.
KA-menn náðu aldrei að rífa sig upp úr
þeim öldudal sem liðið var í og því fór sem
fór. Úrslit leiksins 20:17 fyrir Tý og KA er úr
leik í bikarnum.
Ekki er hægt að hæla einum einasta leik-
manni KA. Ég hef aldrei séð liðið spila jafn
illa og það var fyrst og fremst vanmat KA-
manna sem varð þeim að falli.
Flest mörk KA skoraði Pétur Bjarnason 5
en hjá Tý skoraði Sverrir Sverrisson mest
eða 4 mörk.
íþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Eikin Islandsmeistari
í 1. flokki ií blaki
- sigraði HK 3:1 og Víking 3:0 í úrslitakeppninni
Ur leik KA og Víkings a laugardag.
Mynd: AE.
Tvö töp KA
fyrir sunnan
- í kvennafiokki í blaki
Þær fóru aldeilis ekki erindis-
leysu til Reykjavíkur um helg-
ina stúlkurnar úr Eikinni, þar
sem þær tóku þátt í úrslita-
keppninni í 1. flokki á Islands-
mótinu í blaki kvenna. í úr-
slitunum voru þrjú lið, Eikin,
HK og Vfldngur.
Á föstudagskvöld spilaði Eikin
við HK og eitthvað virtust
norðanstúlkumar vera seinar í
gang því þær töpuðu fyrstu hrin-
unni 15:17 eftir mikinn barning.
Það er óhætt að segja að þær hafi
tekið sig á í annarri hrinunni en
hún vannst 15:1. Eftir það var
aldrei spurning hvoru megin
sigurinn lenti og tvær síðustu
hrinurnar fóru 15:9 og 15:12 og
örujggur 3:1 sigur var í höfn.
A laugardag átti Eikin svo í
höggi við Víking og sigraði 3:0 í
stórskemmtilegum leik. Það sem
öðru fremur skóp sigurinn í þess-
um leik var gífurleg barátta
ásamt stórgóðum leik þeirra Erlu
Adolfsdóttur, Þorbjargar Vil-
hjálmsdóttur og Höllu Sigurðar-
dóttur.
Fyrstu hrinuna vann Eikin
15:9 og þurfti að hafa töluvert
fyrir þeim sigri. í annarri hrinunni
komst Víkingur yfir 10:3 en þá
náði Eikin upp mikilli stemmn-
ingu og snéri leiknum sér í hag og
vann hrinuna 15:13. Síðastahrin-
an fór svo 15:12.
Að þessum spennandi leik
loknum var svo Eikarstúlkunum
afhent verðlaunin fyrir sigurinn á
íslandsmótinu. ÁE/Reykjavík
Það voru miklar sveiflur í leik
KA-stelpnanna gegn Víkingi í
1. deildinni í blaki á laugardag.
Víkingsstelpurnar unnu fyrstu
tvær hrinurnar 15:7 og 15:0.
Þá tóku KA stúlkurnar sig
loksins saman í andlitinu og unnu
þriðju hrinuna 15:4. En í fjórðu
hrinunni hrundi leikur þeirra aftur
og töpuðu þær þeirri hrinu 15:0.
Aðalhöfuðverkur liðsins virð-
ist vera óstöðugleiki, það er ekk-
ert samræmi í því að tapa tveim-
ur hrinum 15:0 og vinna svo
næstu á eftir 15:4 í einum og
sama leiknum. Það sem stúlkurn-
ar þurfa helst að laga er móttaka
og uppspil en smassið gengur
yfirleitt vel ef uppspilið er gott.
ÍS-stúlkurnar tryggðu sér
íslandsmeistaratitilinn í blaki er
þær sigruðu lið KA í gær 3:1 í
miklum baráttuleik.
ÍS-liðið vann fyrstu hrinuna
örugglega 15:1. í annarri hrinunni
tókst KA-stelpunum að vinna
sigur 15:11. ÍS-stelpurnar unnu
síðan tvær síðustu hrinurnar og
tryggðu sér þar með 3:1 sigur í
leiknum og íslandsmeistaratitilinn
að auki. Þriðja hrinan fór 15:6 og
sú fjórða 15:13. AE/Reykjavík.
Körfuboltalið Tindastóls stendur best að vígi í úrslitakeppninni í 2. deild.
Úrslifakeppni 2. deildar í körfubolta:
Sigur og tap
hjá íindastóli
- gegn Snæfelli um helgina
Eikin Islandsmeistari í 1. flokki kvenna í blaki 1986.
Mynd: AE.
KA Akureyrar-
meistari í handbolta
- sigraði Þór örugglega 30:24
Hópurinn sigursæli sem fór suður og keppti í sveitakeppninni í júdó.
Mynd: KK.
Þrefaldur KA sigur
Þjálfari þeirra er Jón Óðinn
Óðinsson og á hann stærstan þátt
- í sveitakeppni drengja í júdó
Ungir júdómenn úr KA gerðu
góða ferð til Reykjavíkur í gær
en þar fór fram Islandsmót í
sveitakcppni drengja í júdó.
KA-strákarnir sýndu mikla
yfírburði og urðu sveitirnar
þrjár sem fóru héðan í fyrsta,
öðru og þriðja sæti.
í hinni miklu velgengni júdó-
manna frá Akureyri.
Skautar í 2. sæti
Til leiks mættu þrjár sveitir frá
Ármanni og þrjár sveitir frá KA.
KA-strákarnir sýndu mikla yfir-
burði eins og sést á úrslitunum. A
sveit KA sigraði, b sveitin hafn-
aði í öðru sæti og c sveitin varð í
þriðja sæti.
Glæsilegur árangur strákanna
en þetta er ekki í fyrsta skipti
sem ungir júdómenn á Akureyri
velgja jafnöldrum sínum úr
höfuðborginni undir uggum.
Skautafélaginu tókst ekki að
leika eftir afrek stúlknanna úr
Eikinni um helgina en þeir
stóðu sig engu að síður með
sóma og náðu öðru sæti. Eins
og hjá stúlkunum voru þrjú lið
í úrslitum og auk Skautafélags-
ins voru það HK og Þróttur.
Á föstudag spilaði Skautafé-
lagið við HK og sigraði næsta
auðveldlega 3:0. 15:5, 15:5 og
15:9.
Á laugardag öttu þeir svo
kappi við Þróttara og hittu þar
fyrir ofjarla sína. Aldrei var
spurning hvoru megin sigurinn
mundi lenda en Þróttur vann
leikinn 3:0. 15:7, 15:8 og 15:5.
Mesta athygli í þessum leik vakti
Þróttarinn Skúli Sveinsson sem
einnig er íþróttablaðamaður á
Morgunblaðinu fyrir geysigott
uppspil. AE/Reykjavík
KA og Þór léku seinni leikinn á
Akureyrarmótinu i handbolta
á föstudagskvöld. KA sigraði
örugglega 30:24 eftir að hafa
verið yfir 16:13 í hálfleik. KA
vann einnig fyrri leikinn og er
því Akureyrarmeistari í meist-
araflokki í handbolta. Má
segja að það sé öriítil sárabót
eftir tapið gegn Tý daginn
áður.
Þórsarar náðu forystunni f
byrjun en eftir 7 mín. leik náðu
KA-menn forystunni og höfðu
þeir 3 marka forystu í hálfleik
16:13.
Þórsarar reyndu að halda í við
KA-menn og þeim tókst það
nokkurn veginn fram á 10. mín.
síðari hálfleiks en þá var staðan
19:18 fyrir KA. Þá var eins og
Þórsarar væru sprungnir og næstu
mín. skoruðu KA-menn 5 mörk í
röð og breyttu stöðunni í 24:18.
Eftir það skoruðu liðin á víxl og
lokastaðan eins og áður sagði
30:24 fyrir KA.
KA-liðið lék mun betur en
daginn áður, bestir voru þeir Erl-
ingur, Logi og Pétur. í liði Þórs
var Hermann markvörður lang-
bestur en einnig voru þeir Sigur-
páll og Aðalbjörn nokkuð góðir.
Mörk KA: Erlingur 9 (4), Pét-
ur 4, Anton 4, Logi 4, Jón 3:(1),
Þorleifur 3, Axel 2 og Hafþór 1.
Mörk Þórs: Sigurpáll 5,!Ámi 5
(1), Kristinn 3, Jóhann 3/ Aðal-
björn 3, Ólafur 2, Gunnar 2
Sverrir 1.
Leikinn dæmdu þeir Stefán
Ólafur og gerðu það vel.
°g
og
Lið Tindastóls lék um helgina
tvo leiki í úrslitakeppni 2.
deildar í körfubolta báða gegn
Snæfelli. Á föstudagskvöld
sigraði Tindastóll með 87 stig-
um gegn 78.
Tindastóll náði strax forystu í
leiknum og var munurinn þetta 8-
15 stig. I hálfleik var staðan
51:37.
Tindastólsmenn héldu síðan
forystunni f síðari hálfleik og
unnu öruggan sigur 87:78. Liðið
lék mjög vel í þessum leik og þá
sérstaklega Eiríkur Sverrisson
sem skoraði 37 stig í leiknum,
Eyjólfur Sverrisson skoraði 16.
Hjá Snæfelli bar mest á þjálf-
ara þeirra Ríkharði Hrafnkels-
syni og skoraði hann 32 stig.
Á laugardag léku svo liðin að
nýju og þá náðu Snæfellingar
fram hefndum og sigruðu 69:61.
Tindastóll var yfir mestallan leik-
inn og hafði 8 stiga forystu í hálf-
leik 37:29.
í síðari hálfleik slökuðu þeir
svo á og Snæfellingar náðu að
komast yfir fyrir leikslok og sigra
eins og áður sagði með 69 stigum
gegn 61. Virtust Tindastólsmenn
nokkuð sigurvissir og er hætt við
að það hafi komið þeim í koll í
þessum leik. Er þetta fyrsta tap
þeirra í vetur.
Ríkharður þjálfari Snæfellinga
lék á als oddi í leiknum og skor-
aði 35 stig, Sigurður Páll skoraði
18.
Flest stig Tindastóls skoruðu
Eiríkur Sverrisson 24 og Kári
Marísson 16.
Á miðvikudag fengu Sauð-
krækingar HSK í heimsókn í
úrslitakeppninni. Tindastóll sigr-
aði í þeim leik með 90 stigum
gegn 73. Það leit ekki vel út fyrir
Tindastól lengi vel. HSK hafði
yfir í hálfleik 42:35.
í lok síðari hálfleiks náðu þeir
þó að sýna hvað í þeim bjó og á
síðustu 7 mín. leiksins skoruðu
þeir 28 stig gegn aðeins 4 stigum
HSK-manna og dugði það þeim
til sigurs. Lokatölur 90:73 eins og
áður sagði.
Þrátt fyrir tap í öðrum leiknum
gegn Snæfelli stendur lið Tinda-
stóls best að vígi í úrslitakeppni
2. deildar. ÞÁ/KK
Úr leik KA og Þórs.
Knatt-
spymu
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2 . deild
ensku knattspyrnunnar um helgina uröu þessi:
1. deild
Arsenal-Coventry 3:0
Aston Villa-Birmingham 0:3 2
Ipswich-W.B.A. 1:0 1
Liverpool-Oxford 6:0
Luton-Everton 2:1 1
Man.United-Man.City 2:2 x
Newcastle-Tottenham 2:2 x
Nottm.Forest-Leicester 4:3
Q.P.R.-Watford 2:1 1
Southampton-Chelsea 0:1 2
West Ham-Sheff.Wed. 1:0 1
2. deild
Barnsley-Carlisle 1:2
Bradford-Huddersf. 3:0
Brighton-MiUwall 1:0
Charlton-Oldham 1:1
Fulham-C.Palace 2:3 2
Grimsby-Sunderland 1:1
Leeds-Shrewsbury 1:1
Middlesbro-HuU 1:2
Sheff.U.-Norwich 2:5 2
Stoke-Portsmouth ír. x
Wimbledon-Blackburn 1:1 x
STAÐAN
1. deild
Liverpool 34 19 9 6 71:36 66
Everton 33 20 6 7 73:39 66
Man.Unitcd 33 19 6 8 56:27 63
Chelsea 31 18 8 5 49:31 62
Arscnal 31 17 7 7 42:32 58
Sheff.Wed 33 16 7 10 51:47 55
WestHam 29 16 6 7 44:27 54
Luton 34 15 9 10 51:38 54
Newcastle 32 14 10 8 49:47 52
Nottm.Forest 32 15 5 12 57:47 50
Tottenham 32 13 613 43:38 45
Watford 29 12 611 48:45 42
Man.City 34 11 9 14 38:45 42
Q.P.R. 35 12 5 18 34:46 41
Southampton 33 11 7 15 40:43 40
Leicestcr 33 81015 48:61 34
Coventry 34 8 917 43:60 33
Oxford 33 8 817 48:66 32
Ipswich 32 9 518 26:45 32
Aston Villa 33 61116 35:54 29
Birmingham 34 8 422 28:53 28
W.B.A. 34 3 9 22 27:76 18
STAÐAN
2. deild
■Norwich 32 20 7 5 68:31 67
Portsmouth 32 18 5 9 53:28 59
Wimbledon 32 16 8 8 43:30 56
Charlton 31 16 7 8 56:35 55
Brighton 32 15 7 10 56:45 52
Sheff.U. 33 14 811 55:51 50
Hull 33 13 10 10 54:47 49
C.Palace 33 14 7 12 41:40 49
Oldham 32 13 6 13 52:51 46
Stoke 33 11 12 10 40:42 45
Barnsley 32 11 10 11 35:35 43
Grimsbv 33 11 10 12 48:49 43
Millwali 31 12 5 14 45:46 41
Blackburn 34 10 11 13 42:51 41
Bradford 30 12 4 14 38:45 40
Shrewsbury 33 11 7 15 39:48 40
Huddersf. 33 10 10 14 42:53 40
Leeds 33 11 7 15 43:55 40
Sunderland 33 9 9 15 35:51 36
Carlisle 32 8 6 18 33:59 30
Fulbam 30 8 5 17 32:44 29
Middlesbro 32 7 8 17 30:44 29
Ian Rush leikmaður Liverpool.
Liverpool
á toppinn
- Gunnar kátur
Liverpool hefur nú náö efsta sæt-
inu í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar eftir stórsigur á Oxford 6:0
á Anfield Road í Liverpool.
Kenny Dalglish framkvæmda-
stjóri Liverpool var öðrum fremur
maðurinn á bak við sigurinn en
hann lék nú með að nýju. Erfitt
getur reynst fyrir Everton, Man.
United og Chelsea að komast upp
fyrir Liverpool héðan af. Chelsea
og Everton hafa þó tapað færri stig-
um en Liverpool. Everton er með
jafnmörg stig og Liverpool en
verra markahlutfall þó að ekki muni
miklu.
Er sagt að Gunnar Níelsson bað-
vörður í Höllinni á Akureyri eigi
mjög erfitt með að stíga í lappirnar
eftir nýjustu breytingar á töflunni á
Englandi.
VERÐLAUNAPENINGAR
stærö 42 mm.
Verö 75 kr. stk.
með áletrun.
Einnig mikið úrval af bikurum.
Sendum burðargjaldsfritt.
Pantið timanlega.
GULLSMIOIR
Sigtryggur & Pétur.
Brekkugötu 5 - Akureyri.
Sími: 96-23524.