Dagur - 24.03.1986, Page 8
8 - DAGUR - 24. mars 1986
Árshátíð
Héraðsskólans
á Laugum
Þaö var hcilmikið um að vera í
Héraðsskólanum á Laugum síð-
astliðinn laugardag. Petta var
árshátíðardagur skólans og byrj-
að var með dagskrá í íþróttahús-
inu um miðjan dag, síðan var
haldin veisla, skemmtidagskrá og
að Iokum dansleikur. Blaða-
klúbburinn gaf út stórt skólablað
sem nefnjst Járnsíða, meðal efnis
er viðtal við íþróttamann
skóláns, úrslit í íþróttakeppnum,
sögur. Ijóð og ýmis skot á
kennara og nemendur.
í íþróttahúsinu fór m.a. fram
keppni nemenda og kennara í
„bandy“, það er hokký og voru
þátttakendur í hinum furðu-
lcgasta fatnaði. Á ýmsu gekk í
leiknum sem vakti mikla kátínu
áhorfenda, lcikinenn og dómarar
sluppu lifandi og ómeiddir frá
leiknum þó oft virtist tvísýnt um
afdrif þcirra.
Skemmtidagskráin um kvöldið
heppnaðist mjög vel, þar var
meðal annars stjörnumessa
nemendum voru afhent grínverð-
laun fyrir ýmis afrek í vetur.
Leikritið „Rjúkandi ráð“ eftir
Jónas og Jón Múla Árnasyni var
sýnt, heppnaðist sýningin mjög
vel enda höfðu nemendur æft síð-
an um áramót.
Á dansleiknum voru tilkynnt
úrslit fegurðarsamkeppninnar
það voru Aðalbjörg Arnórsdóttir
og Birgir Magnússon sem
hrepptu titlana að þessu sinni.
Helena Valtýsdóttir kennari
sagði að mjög vel hefði verið
staðið að undirbúningi árshátíð-
arinnar og nemendur hefðu lagt
nótt við dag síðasta tímann. Um
160 mann hefðu sótt dansleikinn,
hann hefði farið mjög vel fram og
ekki séð vín á nokkrum manni.
Dansað hefði verið af miklu fjöri
til kl. 3.30 um nóttina. - IM.
Nemendur og kennarar búa sig undir keppni í bandy, það er innanhússhokký í furðufötum.
Gunnlaugur Sigursveinsson.
Gunnlaugur Sigursveinsson:
„Aðstaða til íþrótta
er mjög góð“
Gunnlaugur Sigursveinsson er frá
Ólafsfirði og stundar nám á
íþróttabraut við Héraðsskólann á
Laugum.
Á árshátíðinni var hann heiðr-
aður sem íþróttamaður Lauga-
skóla veturinn 1985-86.
- Gunnlaugur, hvernig tilfinn-
ing er að fá þennan heiður?
»Ég er mjög ánægður með
það, átti ekki von á þessu.“
- Þú hefur verið virkur í
íþróttum, oft unnið til verð-
launa?
„Já, ég hef verið virkur í öllum
íþróttum. Ég er á fyrsta ári á
íþróttabraut og er að hugsa um
að gerast kennari."
- Þú ert valinn íþróttamaður
ársins úr svona stórum hópi, ert
þú ekkert óvanur því að vera á
verðlaunapalli?
„Nei, ég er svo sem ekkert
óvanur því, þetta er ágætis til-
finning."
- Hvernig líkar þér í skólan-
um á Laugum?
„Bara ágætlega, aðstaðan til
íþrótta er mjög góð.“
- Hvað er þér efst í huga í
dag?
„Þakklæti til þeirra sem kusu
mig, það er valin nefnd sem síðan
velur íþróttamanninn." IM.
Marína Sigurgeirsdóttir:
„Gaman að vinna
með þeim“
Ef halda á veglega veislu þarf að
gera nokkur handtök í eldhúsi og
borðsal. Yfirmaður eldhússins í
Laugaskóla er Marína Sigurgeirs-
dóttir, en alls er þar starfsfólk í
fimm og hálfri stöðu.
Á laugardag var búið að útbúa
kalt borð fyrir árshátíðina og
nemendur höfðu lagt á borð og
skreytt borðsalinn á hinn
skemmtilegasta hátt.
- Hvað eru margir í fæði hjá
ykkur Marína?
„Svona milli 110 og 120 manns,
það er svolítið breytilegt."
- Þið eruð að útbúa heilmikla
veislu, hvað er á borðum í kvöld?
„Það er kait borð, á því eru
þessir hefðbundnu köldu réttir,
æti það sé ekki fimmtán rétta
borð.“
- Og glæsilegt.
„Að vissu marki má segja það,
það er einfalt. Minn stíll er að
hafa hlutina einfalda en leggja
meira upp úr bragðinu. Nemend-
urnir skipuðu sérstaka skreyt-
inganefnd. Á matvælatæknibraut
eru þrettán nemendur og ég
kenni þeim tíu tíma í viku og þau
vinna alltaf mikiö með mér þegar
hátíðir eru við skólann. Þau sjá
um að leggja á borð í salnum og
skreyta borðin. Þau hjálpa okkur
líka mikið við undirbúning í eld-
húsinu, það er liður í þeirra
námi.“
- Hvernig gengur að hafa allt
þetta unga fólk í fæði? Er það
ánægt með matinn hjá ykkur?
„Ég verð aldrei vör við annað
en að þau séu sæmilega ánægð.
Ég segi oft við þau að ég ætlist
ekki til að allir séu alltaf ánægðir
því ég viti til að oft gangi illa á
finim manna heimilum að gera
öllum til hæfis við matarborðið.
Hvernig á það þá að vera hægt á
hundrað og fimmtán manna
heimili. En þau eru í rauninni
ákaflega samvinnuþýð og gaman
að vinna með þeim. Ef til vill
ánægðari einn daginn og óánægð-
ari hinn, eftir því hvernig liggur á
þeim.“ v IM.
Marína Sigurgeirsdóttir.