Dagur - 24.03.1986, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 24. mars 1986
Burdarrúm Burðarrúm.
Óska eftir að kaupa burðarrúm.
Uppl. í síma 22081.
Til sölu nýlegt og vel með farið
trommusett ásamt fylgihlutum.
Uppl. í síma 21825 á kvöldin.
Til sölu góður mótor úr Volks-
wagen 1302. Uppl. í síma 21737
eftir kl. 19.00.
Heilsuvörur.
Hressið ykkur fyrir páskana. Ger-
ikomplexið komið. Full búð af nýj-
um vörum. Sendum í póstkröfu.
Heilsuhornið,
Skipagötu 6, sími 21889.
Takið eftir.
Listaverkabækur, orðabækur,
afmælisdagabækur með stjörnu-
spá og vísum, Gulleyjan, Möskvar
morgundagsins, Laxness og
fleira. Úrval eldri bóka og tfmarita.
Fróði,
Kaupvangsstræti 19.
Opið 2-6, sími 26345.
Ökukennsla
Ökukennsla.
Vilt þú læra á bíl eða bifhjól?
Lærið á hagkvæman og öruggan
hátt á nýja GM Opel Ascona 1600.
Útvega öll prófgögn og vottorð.
Egill H. Bragason, ökukennari,
símar 23347 * 22813
Fermingar
Prentum á fermingarservíettur.
Meðal annars með myndum af Ak-
ureyrarkirkju, Lögmannshlíðar-
kirkju, Húsavíkurkirkju, Grenivík-
urkirkju, Hríseyjarkirkju, Hvamms-
tangakirkju, Ólafsfjarðarkirkju eða
Dalvíkurkirkju. Servíettur fyrirliggj-
andi. Sendum í póstkröfu.
Alprent, sfmi 22844.
Prentum á fermingarservíettur.
Ýmsar gerðir fyrirliggjandi.
Hlíðaprent.
Höfðahlíð 8, sími 21456
Grjótgrindur
Bifreiðaeigendur.
Smíða grjótgrindur á allartegundir
bifreiða með stuttum fyrirvara.
Ýmsar gerðir fyrirliggjandi. Verð
frá kr. 2.000.- Ásetning á
staðnum. Sendi í póstkröfu.
Uppl. gefur Bjarni, Lyngholti 12,
sími 96-25550 eftir kl. 19.00. Um
helgar eftir samkomulagi.
Þórshamar hf.
v/Tryggvabraut sími 22700.
Honda
’86 árgerðin.
Fáeinir bílar
koma í
apríl
Vil taka á leigu litla ibúð, strax.
Uppl. í síma 26710 á kvöldin og
24440 á daginn.
Vil taka á leigu bílskúr. Uppl. í
síma 21798.
Óska eftir að taka á leigu 4-5
herb. íbúð á Akureyri. Leigu-
skipti á einbýlishúsi á Húsavík
koma til greina. Uppl. í síma 96-
41690 eftir kl. 18.00.
íbúð óskast.
2-3ja herb. íbúð óskast frá 1. júní
næstkomandi. Tvennt í heimili.
Góð umgengni og öruggargreiðsl-
ur. Uppl. í síma 21179.
Hjálp Hjálp
Bráðvantar 2-3ja herb. íbúð til
leigu strax. Góð fyrirframgreiðsla
ef óskað er. Upplýsingar í síma
91-50980 og 91-54336.
3-4ra herb. íbúð óskast til leigu
frá 1. júlí. Helst á Eyrinni.
Uppl. í síma 26678.
Óska eftir að taka á leigu 3ja
herb. íbúð. Tvennt í heimili.
Uppl. í síma 61363.
Tveggja ára stúlku vantar pöss-
un frá kl. 16.30-19.00 (í Þorpinu).
Uppl. í síma 26108
Lcikféíag
Akureyrar
BLÓÐ-
BRÆÐUR
3. sýning miðvikudag 26. mars
kl. 20.30.
4. sýning fimmtudag 27. mars
kl. 17.00.
5. sýning annan í páskum
kl. 20.30.
Miöasalan er opin alla daga frá
kl. 14-18 nema föstudaginn langa og
páskadag. Einnig opin sýningardagana
fram aö sýningu.
Simi í miðasölu:
(96) 24073.
Mann vantar til landbúnaðar-
starfa. Uppl. í síma 24947.
ATH! Sport - Sport garnið er að
koma.
Bómullarhespugarnið kemur í vik-
unni. Nýjar tegundir af garni.
Hjarta Sóló nýjustu tískulitirnir. Ný
blöð. Fallegar sængurgjafir. Nær-
föt úr soðinni ull og góðu sokka-
buxurnar. Sendum í póstkröfu.
Verslun Kristbjargar,
Norðurbyggð 18, sími 23799.
Opið 13-18 og 10-12 á laugardög-
Sumarhús-Veiðihús.
Höfum hús til afgreiðslu í vor. Get-
um útvegað skógivaxnar lóðir. Yfir
áratugs reynsla tryggir gæðin.
Trésmiðjan Mógil sf.
Svalbarðsströnd.
Sími (96)21570.
Hreingerningar-Teppahreinsun.
Tökum að okkur teppahreinsun,
hreingerningar og húsgagna-
hreinsun með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
Tökum að okkur daglegar ræst-
ingar fyrir fyrirtæki og stofnan-
ir. Ennfremur allar hreingerningar,
teppahreinsun og gluggaþvott. Ný
og fullkomin tæki.
Securitas, ræstingadeild, sími
26261.
Hreingerningar, teppahreinsun,
giuggaþvottur.
Tökum að okkur hreingerningar á
íbúðum, stigagöngum og stofnun-
um, einnig teppahreinsun með
nýrri djúphreinsivél sem hreinsar
með góðum árangri. Vanir og
vandvirkir menn. Aron í síma
25650 og Tómas í síma 21012.
Klæði og geri við bólstruð
húsgögn. Áklæði og leðurliki í úr-
vali. Látið fagmann vinna verkið.
Sæki og sendi tilboð í stærri verk.
Bólstrun Björns Sveinssonar,
Geislagötu 1, sími 25322.
Heimasími 21508.
Teppahreinsun - Teppahreins-
un. Hreinsið teppin sjálf. Leigjum
út nýjar hreinsivélar til hreinsunar
á teppum, stigagöngum, bila-
áklæðum og húsgögnum. Teppa-
land Tryggvabraut 22, sími 25055.
Framsóknarfélag Húsavíkur heldur
almennan
félagsfund
miövikudaginn 26. mars nk. kl. 20.30 í Garðari.
Dagskrá:
Tekin ákvörðun um framboðslista.
Stjórnin.
Skákþing Akureyrar:
Gylfi og Sigurjón jafnir
Eins og fram hefur komið áður,
urðu þeir Gylfi Þórhallsson og
Sigurjón Sigurbjörnsson jafnir og
efstir á Skákþingi Akureyrar, og
þurftu þeir að tefla einvígi um
Akureyrarmeistaratitilinn. Leik-
ar fóru á þann veg að Gylfi vann
með 2'A vinningi gegn '/i v. Gylfi
er því skákmeistari Akureyrar
1986, en hann er einnig skák-
meistari Norðlendinga 1986. Það
hefur ekki gerst síðan 1959 að
sami keppandi verði skákmeistari
Akureyrar og Norðlendinga
sama ár.
Úrslit í hraðskákmóti Akur-
eyrar urðu þessi hjá efstu kepp-
endum.
1. Jón Björgvinsson 18Vi v. af 21.
2. Arnar Þorsteinsson 18 v.
3. Gylfi Þórhallsson 17!ó v.
4. Rúnar Sigurpálsson 16!ó v.
5.-6. Sveinn Pálsson og
Þór Valtýsson 15 v.
Keppni milli Skákfélags Akur-
eyrar og Skákfélags Eyjafjarðar
fór fram fyrir skömmu. í flokki
fullorðinna, þar sem umhugsunar
tími var Vh tími á mann var teflt
á 24 borðum, og Skákfélag Akur-
eyrar sigraði með 17Vi v. gegn 6V2
v. í unglingaflokki var teflt á 18
borðum tvöfalda umferð, þar
sem umhugsunartími var Vi tími
á keppanda, og þar snéru Eyfirð-
ingarnir dæminu við og unnu
með 20lh v. gegn 15Ý2 v.
Á föstudagskvöldið fer fram
fjögurra liða sveitakeppni milli
Skákfélags Akureyrar, Skákfé-
lags Eyjafjarðar, Taflfélags Dal-
víkur og Skákklúbbs KEA. Hver
sveit er skipuð átta mönnum og
umhugsunartími er Vi tími á
keppanda, en teflt verður í starfs-
mannasal KEA í Sunnuhlíð, og
hefst keppnin kl. 20.30.
Fjórir til fimm keppendur frá
Skákfélagi Akureyrar taka þátt í
áskorendaflokki á Skákþingi
íslands sem hefst á laugardaginn
í Reykjavík og stendur í tíu
daga. Einnig fara nokkrir kepp-
endur frá Akureyri til Blönduóss
um helgina, og tefla í Minningar-
mótinu um Jónas Halldórsson.
Keppnin hefst kl. 14.00 á Hótel
Blönduósi og verða tefldar 6
umf. eftir monrad kerfi, og
umhugsunartími er 1 klst. á
keppanda.
Ungling æfingar hjá Skákfélagi
Akureyrar fara fram á laugardög-
um í Barnaskóla Akureyrar kl.
13.00-15.00.
Jogginggallar á börn
Stærðir 80, 90 og 100. Verð kr. 450.-
111 Eyfjörð
Hjatteyrargötu 4 simi 22Z75
E
VtSA
Skemmtíferð
Félag aldraðra efnir til fimm daga skemmtiferðar
um sólstöðurnar, að Laugarvatni. Gist í Hús-
mæðraskólanum.
Helga Frímannsdóttir annast skráningu væntanlegra
þátttakenda. Lagt af stað 21. júní.
Ferðanefndin.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓN GUNNLAUGUR SIGURJÓNSSON,
trésmíðameistari,
Holtagötu 2, Akureyri,
lést laugardaginn 22. mars á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri.
Birna Finnsdóttir og börn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR BLÖNDAL,
Oddeyrargötu 38,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjud. 25. mars kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri.
Anna Ólafsdóttir Blöndal
börn, tengdabörn og barnabörn.
v.