Dagur - 24.03.1986, Qupperneq 11
24. mars 1986 - DAGUR - 11
Minning:
•f Margrét Bjamadóttir
Fædd 31. ágúst 1901 - Dáin 13. mars 1986
FRAMSÓKN
TIL FRAMFARA
Fyrir fáeinum dögum var hringt í
mig og sagt að hún Margrét
amma mín væri veik. Rúmum
sólarhring síðar var hún öll.
Andlát hennar bar brátt að. Hún
hafði verið heilsuhraust og mig
grunaði ekki að svo stutt væri eft-
ir af ævi hennar.
Amma mín fæddist að Sval-
barði á Svalbarðsströnd þann 31.
ágúst árið 1901, sú fjórða í röð-
inni af fimm systkinum. Yngsti
bróðirinn, Jón, er sá eini sem eft-
ir lifir. Foreldrar ömmu voru þau
Bjarni Arason og Snjólaug Júlí-
ana Sigfúsdóttir. Amma var rétt
tæplega tveggja ára þegar fjöl-
skyldan fluttist að Grýtubakka í
Höfðahverfi og þar ólst hún upp.
Hún var í unglingaskóla á Greni-
vík og lauk síðan námi við
Kvennaskólann á Blönduósi. Á
25. afmælisdegi sínum giftist hún
afa mínum, Hólmgrími Sigurðs-
syni frá Hrauni í Aðaldal, sem
lifir konu sína. Um átján ára
skeið bjuggu þau að Dæli í
Fnjóskadal, en fluttust þá að
Ystu-Vík í Grýtubakkahreppi.
Þegar amma var rúmlega sjötug
fluttist hún í Sniðgötu á Ákur-
eyri, en afi kaus að búa í sveitinni
áfram. Börn þeirra hjóna eru
fjögur, þau Sigurður, Kristín,
Bjarni og Snjólaug Bergljót.
Pegar ég hugsa til baka hlaðast
upp Ijúfar minningar frá þeim
tíma sem ég hef í gegnum árin
eytt með ömmu. Hún var yndis-
leg kona sem ekki mátti vamm
sitt vita. Hún var mér alltaf góð
og ég man ekki eftir að hún ávít-
aði mig nokkurn tíma fyrir
barnabrek mín, stór eða smá.
Hún kenndi mér að læra af
reynslunni. Ég man mjög lítið
eftir því er hún bjó í Ystu-Vík,
en ég heimsótti hana oft í Snið-
götuna og hlakkaði alltaf jafn
mikið til. Alltaf beið borðstofu-
borðið hlaðið kökum og ýmsu
góðgæti og aldrei varð amma
ánægð fyrr en ég gat engan veg-
inn látið meira ofan í mig.
Annað slagið fékk ég að sofa
nokkrar nætur hjá henni og það
var hátindur sælunnar. Hún fór
þá yfirleitt með mig í gönguferðir
um bæinn og stundum líka niður
í fjöru. Einstaka sinnum fór ég.
og verslaði fyrir hana og ekki
stóð á kossunum og brosinu
hennar þegar ég kom til baka.
Það var sama hversu lítið var gert
fyrir hana, hún ljómaði alltaf af
þakklæti. Amma var líka afar
þolinmóð. Ég man til dæmis eftir
einu skipti sem ég fékk að sofa
hjá henni að hún var að horfa á
sjónvarpið. Hún hafði útbúið
handa mér trommur úr tómum
dollum og baukum og ég sat við
hliðina á henni allt kvöldið og
barði trommurnar með spýtu.
Mörgum hefði sjálfsagt þótt nóg
um, en amma bara brosti og bað
mig endilega að halda áfram þeg-
ar ég bauðst til að hætta.
Amma mín kunni ótal sögur
sem ég bað hana oft að segja mér
og alltaf brást hún vel við þeirri
Framsóknarmenn
Akureyri
Framsóknarfélag Akureyrar
Bæjarmálafundur mánudaginn 24. mars kl.
20.30 í Eiðsvallagötu 6.
Áríðandi að sem flestir mæti.
Björn Sigurösson, Baldursbrekku 7. Símar 41534 & 41666. Sérleyfisferðir. Hópferðir. Sætaferðir. Vöruflutningar
Húsavík - Akureyri - Húsavík
24. mars til 2. apríl.
Frá Húsavík Frá Akureyri
Mánudag 24. mars kl. 13.30 kl. 16.00
Þriðjudag 25. mars kl. 9.00 kl. 16.00
Miðvikudag 26. mars kl. 9.00 kl. 17.00
Laugardag 29. mars kl. 13.30 kl. 16.00
Mánudag 31. mars kl. 18.00 kl. 21.00
Þriðjudag 1. apríl kl. 18.00 kl.21.00
Miðvikudag 2. apríl kl. 9.00 kl. 16.00
Mývatn - Laugar - Akureyri.
Frá Reynihlíð
Miðvikud. 26. mars kl. 8.00
Þriðjud. 1. apríl kl. 17.00
Síðan venjuleg vetraráætlun.
Frá Laugurr. Frá Akureyri
kl. 9.00 kl. 17.00
kl. 18.00
Sérleyfishafar.
be^iðni. Á kvöldin áður en ég
sofnaði fór hún með bænirnar
mínar með mér og á morgnana
læddist hún um til að vekja mig
ekki, á meðan hún hitaði handa
mér kakóið. Amma var hugul-
söm og greiðvikin við alla og mér
þótti gott að geta leitað til hennar
með vandamál mín, sem mér
fannst oft á tíðum þau heimsins
stærstu. Hún var sannur vinur í
raun og gaf sér ætíð tíma til að
deila bæði sorg og gleði með
barnabörnunum sínum.
Það var mjög gestkvæmt hjá
ömmu í Sniðgötunni og hún
gladdist líka yfir hverri heim-
sókn.
Síðustu árin bjó hún til skiptis
hjá Kristínu dóttur sinni og
Bjarna syni sínum, pabba
mínum. Hún var farin að tapa
minni en þó líkamlega hraust og
alltaf grunnt á góða skapinu og
þakklætinu. Það kom fyrir að ég
settist niður hjá henni á kvöldin
og rifjaði upp með henni gömlu,
góðu dagana þegar ég heimsótti
hana í Sniðgötuna. Ég minnti
hana á hversu hjálpleg og blíð
hún hefði alltaf verið mér, en
amma bara hló og reyndi að
draga úr því sem mest hún mátti.
Þar sýndi gamla hæverskan sig
best, en hún var ömmu töm.
Nú er amma horfin yfir móð-
una miklu. Ég á minninguna eftir
og hana ætla ég að geyma vel.
Afa mínum og Jóni, ömmubróð-
ur mínum, sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur og bið
algóðan Guð að blessa þá og
styrkja á erfiðum tímum.
Ég þakka ömmu minni, sem
alltaf var mér svo góð, fyrir allt
og allt. Blessuð sé minning
hennar.
Kristín S. Bjarnadóttir.
Kolbrún Þormóðsdóttir húsmóðir og kennari er fjórða á
lista framsóknarmanna til bæjarstjórnarkosninga í vor.
Hún verður til viðtals á skrifstofunni, Eiðsvallagötu 6,
í dag frá kl. 17-18.
Heitt á könnurmi. Hittumst hress.
Framsóknarfélögin á Akureyri
Heimaslóð
Árbók hreppanna í Möðruvallaklausturs-
prestakalli er komin út fyrir árið 1984.
Fróðleikur • Fréttir • Skemmtiefni.
Bókin verður boðin til sölu á hverjum bæ í prestakall-
inu, en aðrir sem vilja kaupa bókina hafi samband
við einhvern eftirtalinna:
Prentverk Odds Björnssonar, Akureyri, Bjarna Guð-
leifsson, sími 96-24477 (fyrir hádegi alla virka daga).
Jón A. Jónsson húsvörð, sími 96-26850 eða 96-25888.
Einnig fást þar fyrri hefti árbókarinnar.
Ritnefnd.
FRAMLEIÐENDUR UTFLUTNINGSVÖRU
BÓTAGREIDSLUR GENGISTAPS
AF AFURDALÁNUM
1. JÚNÍ TIL 31. DESEMBER1985
Seölabanki fslands hefur ákveðiö að greiða alls 70 m.kr. vegna gengistaps af afurða-
lánum í SDR, sem orsakaðist af misgengi SDR-einingaog Bandaríkjadollars átímabilinu
1. júní til 31. desember 1985.
Þeir framleiðendur útflutningsvöru, sem telja sig hafa orðið fyrir gengistapi vegna af-
urðalána í SDR, en selt afurðir í dollurum og óska eftirað komatil greina við greiðslu ofan-
greindra bóta, skulu snúa sér til viðskiptabanka síns, sparisjóðs, sölusamtaka eða
söluaðila.
Þeir aðilar eiga rétt á endurgreiðslu, sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Fengu greitt andvirði útflutnings í Bandaríkjadollurum á tímabilinu 1. júní til 31.
desember1985.
2. Tekið höfðu afurðalán í viðskiptabanka eða sparisjóði í SDR-einingum út á þær
afurðir, sem greiðslan kom fyrir.
3. Framvísa við Seðlabankann skýrslu um ofangreindan útflutning á tilskilið umsókn-
areyðublað ásamt staðfestu vottorði viðskiptabanka, sparisjóðs eða sölusamtaka.
Umsóknareyðublöð og dreifibréf til framleiðenda/útflytjenda munu liggja frammi í
bönkum og sparisjóðum, svo og hjá sölusamtökum og söluaðilum.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki
teknartilmeðferðar.
Reykjavík, 12. mars 1986
SEÐLABANKI ISLANDS