Dagur - 24.03.1986, Qupperneq 12
T o- é T
★ Nýtt oSTRAUMRÁS *é
fynrtæki J ÞJÓNUSTA MEÐ LOF- HÁÞRÝSTI- 0G RAFMAGNSVÖRUR ) | f Furuvöllum 1 ■ 600 Akureyri • Sími 96-26988 y |
Siglufjörður:
Rafmagn,
vatn og
útsvar
lækka
Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur
ákveðið að lækka álagningar-
prósentu útsvars úr 11% í
10,4%.
Þá hefur verið ákveðið að
lækka taxta hitaveitu um 7% og
taxta rafveitu um 10%. Þessar
lækkanir gilda frá 1. mars.
Bæjarstjóra var falið á fundi
bæjarráðs 3. mars að koma mót-
mælum ráðsins á framfæri við
ríkisstjórnina varðandi skerðingu
á tekjum Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga.
VMA:
Fær að
kenna hár-
snyrtingu
„Ráðuneytið er búið að heim-
ila okkur að hefja kennslu í
hársnyrtigreinum við skól-
ann,“ sagði Bernharð Har-
aldsson skólameistari Verk-
menntaskólans á Akureyri. En
hér um lögbundið iðnnám að
ræða.
Samkvæmt bréfi frá 27. febrú-
ar s.l. heimilar menntamálaráðu-
neytið, að fengnum meðmælum
iðnfræðsluráðs, að hársnyrti-
kennsla hefjist við skólann.
Skólanefnd hefur falið Hauki
Jónssyni, kennslustjóra á tækni-
sviði, að leggja fram tillögur um
búnað, kennsluáætlun og
kostnað, miðað við að kennsla í
hársnyrtigreinum hefjist næsta
haust.
„Það þarf meira til en þetta,
því það þarf að þjálfa fagfólk til
kennslunnar og verður leitað til
hárgreiðslu- og hárskerameistara
bæjarins varðandi þann þátt. En
þetta er miðað við að það fáist
kennarar og viðunandi búnaður
til kennslunnar," sagði Bernharð
Haraldsson. gej-
,Ekki taka mynd af okkur!“ En myndin var nú samt tekin,
Mynd: KGA
Hótel KEA:
Akureyri:
Ovissa um leigu
veitingarekstrar
„Það er ekki útilokað að við-
ræður hefjist aftur um
leiguna,“ sagði Þórhallur
Arnórsson framreiðslumaður,
sem ásamt Sigmundi Einars-
syni matreiðsiumeistara hafa
verið í viðræðum við forráða-
menn KEA vegna væntanlegr-
ar ieigu á veitingarekstri
Hótels KEA. Þeir félagar Þór-
hallur og Sigmundur féllu frá
viðræðum um leiguna fyrir síð-
ustu helgi.
Ef um leigu yrði að ræða, næði
hún yfir allan veitingarekstur
hótelsins og Súlnabergs. Fyrir-
hugaðar eru breytingar á Súlna-
bergi sem yrðu ekki tilbúnar þeg-
ar leigusamningur gengi í gildi,
eða 1. maí. Þórhallur sagði að
þeir félagar vildu fara fram á
ýmsar breytingar á húsnæðinu.
Til dæmis væri eldhúsið ekki
nógu vel skipulagt ef þyrfti að
hafa stærri samkvæmi og veislu-
höld í húsinu. Það er meðal ann-
ars það sem strandar á í við-
ræðunum. Einnig er vitað að
ráðamenn KEA vilji að fyrirtæk-
ið sjálft sjái alfarið um veitinga-
reksturinn í stað þess að leigja
hann út.
Þegar viðræður hófust um
leiguna var öllu starfsfólki sagt
upp störfum, en ekkert hefur ver-
ið talað við fólkið eftir að viðræð-
um lauk. Þórgnýr Þórhallsson
fulltrúi hjá KEA, sem hefur með
þetta mál að gera, sagðist reikna
með því að starfsfólk yrði endur-
ráðið ef samningar tækjust ekki
um leiguna. Hann sagðist ekki
hafa tiltæka ástæðu fyrir því að
samningar tókust ekki, að
minnsta kosti ekki sem ástæða
væri til að fara með í blöðin. Þeg-
ar Þórgnýr var spurður hvort fleiri
aðilar væru inni í myndinni sagði
hann að svo væri ekki. Hins veg-
ar hefðu fleiri sýnt þessu áhuga í
byrjun. gej-
38 íbúðir
fullgerðar
á sl. ári
í ársbyrjun 1985 voru 119
íbúðir í byggingu á Akureyri,
57 í einbýlishúsum, 52 í rað-
húsum og 10 í fjölbýlishúsum.
Þetta er mun minna en árin þar
á undan og má geta þess að í árs-
byrjun 1984 voru 188 íbúðir í
byggingu, 296 árið 1983, 299 árið
1982 og 374 í ársbyrjun 1981.
Á sl. ári var hafin smíði 17
íbúða á Akureyri, tvær þeirra
voru í einbýlishúsum, 15 í rað-
húsum en engin íbúð í fjölbýlis-
húsi.
Fullgerðar á árinu voru 38
íbúðir, fokheldar voru þá 68,
skemmra á veg komnar 30 íbúðir
og í byggingu í árslok voru 98
íbúðir.
Frétt sjónvarpsins um söluferð Kolbeinseyjar til Þýskalands:
Bæjarráði neitað um
A fundi bæjarráðs Húsavíkur
sl. fimmtudag var rætt um
fréttailutning sjónvarpsins
kvöldið áður varðandi söluferð
togarans Kolbeinseyjar til
Þýskalands og samin athuga-
semd við fréttina.
Ríkisútvarpið neitaði að lát'a
lesa athugasemdina á þeim for-
sendum að það birti ekki athuga-
semdir við fréttaflutning sjónvarps-
ins og sjónvarpið neitaði að birta
athugasemdina á þeim forsend-
um að hún væri of löng en ekki
var talið útilokað að taka stutta
athugasemd. Sjónvarpið taldi að
ekki væri farið rangt með stað-
reyndir í fréttinni og benti
bæjarstjóra Húsavíkur á að snúa
sér til Siðanefndar Blaðamanna-
félags íslands.
Bjarni Aðalgeirsson bæjar-
stjóri sagði í samtali við Dag að
erfitt væri að sætta sig við þessa
málsmeðferð og geta ekki komið
athugasemdum á framfæri þegar
um slíkt mál væri að ræða og ekki
hefði verið haft samband við
neinn aðila á Húsavík varðandi
þessa frétt. í athugasemd bæjar-
ráðs sagði:
„í fréttatíma sjónvarpsins mið-
vikudag 19. mars fjallaði Ólafur
Sigurðsson fréttamaður á mjög
óviðeigandi hátt um sölu á afla
togarans Kolbeinseyjar í Þýska-
landi 18. mars. Bæjarráð Húsa-
víkur lýsir furðu sinni á þessum
fréttaflutningi og einkennilegum
hvötum þessa fréttamanns um að
gera kaup Húsvíkinga á skipinu
og rekstur þess torti yggilegan í
augum alþjóðar.
Þegar skipið var keypt til
Húsavíkur í byrjun þessa árs var
ráð fyrir því gert að það seldi á
erlendum mörkuðum hluta af
afla sínum, einkum hinar ódýrari
athugasemd
tegundir s.s. karfa og grálúðu. í
umræddri söluferð seldi skipið
127 tonn af þessum tegundum
fyrir 7,5 milljónir króna. Hefði
skipið landað þessum afla til
vinnslu á Húsavík hefðu fengist
tæpar 2 milljónir króna fyrir
aflann. Tekið skal fram að í
febrúarmánuði landaði skipið
tæplega 500 tonnum af fiski til
vinnslu á Húsavík enda er megin-
markmiðið að landa sem mestu
af afla þess hér heima.
Að mati bæjarráðs Húsavíkur
getur það ekki talist óeðlileg
krafa að fréttaflutningur sjón-
varpsins og annarra ríkisfjöl-
miðla sé hlutlaus og gefi rétta
mynd af því sem verið er að fjalla
um. í umræddri frétt sá frétta-
maður sjónvarpsins t.d. ekki
ástæðu til að geta um söluverð-
mæti aflans og þar af leiðandi
aukna arðsemi fyrir skipið en í
fyrri fréttum hefur sami frétta-
maður hvað eftir annað reynt að
gera kaup Húsvíkinga á skipinu
tortryggileg. Að lokum vill
bæjarráð taka fram að togarinn
Kolbeinsey hefur verið gerður út
frá Húsavík frá því í maí 1981
eða í 5 ár og er þessi söluferð er-
lendis nú hin fjórða frá upp-
hafi.“ IM-Húsavík.