Dagur - 26.03.1986, Blaðsíða 1
Mynd: KGA.
69. árgangur Akureyri, miðvikudagur 26. mars 1986 59. tölublað
Fermingargjafir / mjög mikiu úrvati.
Steinhringar -
gullfestar og armbönd
Fermingarrammar.
Odýrir silfurhringar og skartgripaskrín.
GULLSMlblR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Verður Pétur
Einarsson ráðinn
leikhússtjóri?
Flest bendir til þess að Pétur
Einarsson Ieikari verði ráðinn
næsti leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar samkvæmt heimild-
um blaðsins.
Forráðamenn Leikfélagsins
voru í Reykjavík á mánudag til
Blönduós:
8 konur
áfundi
Hópur sá sem orðaður hefur
verið við kvennaframboð við
komandi sveitastjórnarkosn-
ingar á Blönduósi boðaði sl.
sunnudag til formlegs stofn-
fundar þess sem þær kjósa að
kalla óháða kvennahópinn.
Þrátt fyrir að vel hafi verið
auglýst mættu 8 konur á
fundinn.
Forráðamenn fundarins neit-
uðu að tekin yrði mynd á fundin-
um. Ekki vildu þær heldur svara
spurningum um framhald starf-
seminnar, nerna því, að unnið
yrði að framtíðarmálum. Þá hef-
ur kvisast út að helstu forvígis-
konur kvennahópsins vilji ekki
taka sæti efst á væntanlegum
framboðslista ef af framboði
verður. Sýnist mönnum þá ótrúlegt
að listinn fengi nema örfá
atkvæði. Ef svo færi, þá væri
sennilega verr af stað farið en
heima setið, þar sem flestar
þessara kvenna hefðu eflaust orð-
ið ofarlega á listum sinna gömlu
flokka og því getað haft þó nokk-
ur áhrif á stjórn sveitafélagsins, í
stað þess að standa áhrifalausar
utan við allt eftir bramboltið.
G.Kr./gej-
viðræðna við þá aðila sem til
greina koma í sambandi við
starfið. Það voru þau Hlín Agn-
arsdóttir og Hafliði Arngrímsson
annars vegar og Pétur Einarsson
hins vegar. Leikhúsráð hélt síðan
fund um málið í gær en tók ekki
endanlega afstöðu, því ákveðið
var að ræða við starfsmenn leik-
hússins í gærkvöld og fá álit
þeirra á þeim aðilum sem líklegir
eru til starfsins. Fundur leikhúss-
ráðs verður síðan haldinn klukk-
an 11 í dag, þar sem lokaákvörð-
un verður tekin um málið. Þar sem
fund og ekki hægt að fá upplýs-
ingar um endanlega ákvörðun
ráðsins, er rétt að setja spurning-
armerki við fréttina þrátt fyrir að
heimildir blaðsins þyki traustar.
gej-
Akureyri:
Vistgjöld
lækka
um 5%
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
lækka vistgjöld á dagvistum á
Akureyri um 5%. Lækkunin
er afturvirk og gildir því frá 1.
þessa mánaðar.
Eftir lækkunina er leikskóla-
gjald, miðað við 4 tíma á dag
1970 krónur, ntiðað við 5 tíma á
dag er gjaldið 2400 krónur og fyr-
ir börn sem þar dveljast einnig í
hádeginu greiðast 2950 krónur.
Almennt dagheimilisgjald er eftir
lækkun 4590 krónur á mánuði en
einstæðir foreldrar greiða nokkru
lægra gjald eða 3120 krónur.
BB.
Pétur hættir hjá Krossanessverksmiðjunni
-Ástæðan er tengsl hans við laxafóðurverksmiðju á Suðurnesjum
Pétur Antonsson forstjóri Sfld-
arverksmiðjunnar í Krossanesi
mun láta af störfum innan
skamms. Samkomulag mun
hafa náðst um þetta atriði á
milli Péturs og stjórnar
Krossanessverksmiðjunnar. Á
fundi bæjarstjórnar Akureyrar
í gær lagði Sigurður J. Sigurðs-
son bæjarfulltrúi fram fyrir-
spurn til bæjarstjóra Helga M.
Bergs, sem jafnl'ramt er stjórn-
arformaður Krossanessverk-
smiðjunnar, vegna þessa. Fór
Sigurður fram á að bæjarfull-
trúum yrði gerð grein fyrir
þessu máli.
Helgi sagði að stjórn verk-
smiðjunnar myndi skýra bæjar-
stjórn frá málavöxtum eins fljótt
og auðið væri. Að öðru leyti vildi
hann ekkert um málið segja.
Dagur hefur það eftir mjög
áreiðanlegum heimildum að upp-
sögn Péturs hafi verið nauðsynleg
til að stefna ekki framtíð laxafóð-
urverksmiðjunnar ístess h.f.,
sem verið er að setja upp í
Krossanesi, í voða. Svo sem
kunnugt er á Akureyrarbær
Krossanessverksmiðjuna og tek-
ur ásamt KEA og norsku fyrir-
tæki þátt í stofnun laxafóður-
verksmiðjunnar. Norðmennirnir
eiga 48% hlutafjár í því fyrirtæki.
Nú hefur komið á daginn að ver-
ið er að setja sams konar verk-
smiðju á laggirnar í Grindavík og
raskar tilkoma þeirrar verk-
smiðju öllum hagkvæmnisfor-
sendum sem gengið var út frá við
stofnun ístess h.f. Eignaraðilar
að Grindavíkurverksmiðjunni er
eiginkona Péturs og fjölskylda
hennar og mun Pétur hafa haft
einhverja milligöngu um að
samningar tókust við þá erlendu
aðila sem þar eru með í spilinu.
Auk þess á Pétur, samkvæmt til-
kynningu í Lögbirtingarblaðinu
þann 21. febrúar s.l., sæti í stjórn
þeirrar verksmiðju.
Þegar þetta var ljóst þótti
stjórn Krossanessverksmiðjunn-
ar sýnt að Pétur hefði misnotað
aðstöðu sína auk þess sem það
væri allsendis ófært að einn aðili
sæti „beggja vegna borðsins",
þegar um væri að ræða alls kyns
upplýsingar tæknilegs- og við-
skiptalegs eðlis sem vægast sagt
væri óæskilegt að bærust til sam-
keppnisaðilans. Það þótti því
ljóst að ef Pétur léti ekki af störf-
um mjög fljótlega væri samstarf-
inu við norska aðilann stofnað í
hættu og eins víst að þeir drægju
sig út úr samstarfinu.
Uppsögn Péturs hefur ekki
verið afgreidd formlega af stjórn
Krossanessverksmiðjunnar en
það mun væntanlega gerast ein-
hvern næstu daga.
Blaðið hafði samband við Pét-
ur vegna þessa, en hann vildi
ekkert um málið segja. BB.