Dagur - 26.03.1986, Page 5
26. mars 1986 - DAGUR - 5
„Nei, ég fer bara einu sinni á
ári í kirkju og það er á jólunum.“
- Ætlarðu að baka mikið fyrir
páskana?
„Nei, ég er óttalegur klaufi við
að baka, þetta er svo mikil þolin-
mæðisvinna. Svo þykja mér kök-
ur ekkert sérstaklega góðar, þær
eru bæði óhollar og fitandi. Ég er
alltaf að telja sjálfri mér trú um
að það sé algjör óþarfi að standa
í bakstri. Hins vegar er ég meira
fyrir að búa til góðan mat og er
með þessa fínu gæs sem ég ætla
að matreiða um páskana.
En ég vona bara að það verði
gott veður um páskana svo hægt
verði að stunda útiveru og hafa
það huggulegt. -mþþ
Verð heima um
þessa páska
segir Tómas Búi
Böðvarsson slökkviliðs-
stjóri.
„Ég ætla að vera heima um pásk-
ana. Er á bakvakt og svo er líka
ferming hjá mér á skírdag, þann-
ig að ég reikna ekki með að fara
neitt á fjöll um þessa páska,“
sagði Tómas Búi Böðvarsson
slökkviliðsstjóri.
„Reyndar á ég frí á annan í
páskum og það fer eftir veðri
hvort ég bregð undir mig betri
fætinum þá.
Jú, ég hef oft farið í ferðalög
um páskana, þegar ég hef átt frí.
Mér er sérstaklega minnisstæð
ferð sem við fórum í fyrir 4-5
árum inn á Langjökul og Hofs-
jökul í alveg óskaplega góðu
veðri. Pað var 4 stiga hiti á
Hveravöllum, kannski heldur
heitt, því við þurftum að ferðast
á nóttinni vegna bleytu. Einn
okkar lenti niður um vök á einni
ánni sem við fórum yfir. En við
erum alltaf vel útbúnir þannig að
það gekk vel. Ferðunum mega
gjarnan fylgja einhver ævintýri.
En ég vona að páskarnir í ár
verði rólegir af því að ég er í
bænum. Það er ýmislegt sem ég á
eftir að gera. Ég er í stjórn
Landssambands vélsleðamanna
og þarf að fara að huga að reikn-
ingum félagsins. Einnig sé ég um
blað vélsleðamanna, sem koma á
út á næstunni. Panníg að það er í
nógu að snúast.“ -mþþ
Gott að nota
páskana í mann-
legu samskiptin
sagði Valgerður
Sverrisdóttir á
Lómatjörn.
„Ég ætla að hafa það ofsalega
rólegt um páskana. Pað er yfir-
leitt þannig hjá mér að það er
ansi mikið að gera,“ sagði Val-
gerður Sverrisdóttir á Lóma-
tjörn.
„Ég ætla að vera heima með
börnunum mínum og eigin-
manninum og hafa það gott. Nei,
ég hef ákaflega lítinn tíma til að
lesa bækur, það er næstum því
ókristilegt!
Ég ætla að reyna að vera mikið
úti um páskana. Það hefur verið
þannig með mig að ég ætla mér
alltaf að byrja að vera á skíðum
næsta vetur. Svo hefur aldrei orð-
ið neitt úr þeim fyrirætlunum.
Kannski ég byrji núna, þegar vet-
urinn er kominn aftur. Maðurinn
minn á ægilega fín norsk göngu-
skíði, það getur meir en vel verið
að ég prófi þau um páskana.
Það verður afmælisveisla hjá
okkur á skírdag og ég ætla að
fara til kirkju að Laufási. Svo fer
ég í heimsóknir og fæ gesti. Mér
finnst gott að nota páskana til að
rækta mannlegu samskiptin.“
-mþþ
Framsóknarfélag Húsavíkur heldur
almennan
félagsfund
miðvikudaginn 26. mars nk. kl. 20.30 í Garðari.
Dagskrá:
Tekin ákvörðun um framboðslista.
Stjórnin.
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (%) 24222^^
Verslið
páskakjúklinginn
hjá okkur
Opið alla páskana frá kl. 11.00—22.30.
Fjölskyldupakkar fram yfir páska.
6 bitar af kjúklingum. 8 bitar af kjúklingum. 10 bitar kjúklingar,
3 sk. franskar. 4 sk. franskar. 5 sk. franskar,
3 sk. sósa, 4 sk. sósa, 5 sk. sósa,
3 sk. salaí. 4 sk. salat. 5 sk. salat.
Verð kr. 595,— Verð kr. 795,— Verð kr- 995,—
Gleðilega páska.
Lítið inn, það borgar sig!
Lumum á
einhverju
fyrir
smáfólkið.
1
: CROWN , *
CHICKEN ‘
AKUREYRI
Skipagötu 12, Akurevri.
Sími 21464.
Auglýsing um innlausn
happdrættísskuldabréfa
rödssjóðs
H flokkur 1976
Hinn 1. apríl nk. hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs
í H flokki 1976, (litur: grænn).
Hvert skuldabréf, sem upphaflega var að nafnverði gkr. 2.000, nú kr. 20,00,
verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á
vísitölu framfærslukostnaðar frá útgáfudegi á árinu 1976 til gjalddaga í ár.
Innlausnarverð hvers skuldabréfs í greindum flokki er kr. 851,90
Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á,
að bréfin eru eingöngu innlevst í afgreiðslu Seðlabanka íslands.
Hafnarstræti 10, Revkjavík.
F»eir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu
Seðlabankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða
hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans.
Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar vísitölu
framfærslukostnaðar.
Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 30. mars 1986.
Reykjavík, mars 1986