Dagur - 26.03.1986, Side 6
6 - DAGUR - 26. mars 1986
tMinning
Guðmundur Blöndal
fyrrverandi fulltrúi
Á öldum ljó^vakans bárust mér
þær fregnir að vinur minn, Guð-
mundur Blöndal hefði látist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri þann 17. þ.m., en þar hafði
hann verið sjúklingur samfleytt sl.
þrjú ár og tveimur og hálfum
mánuði betur.
Guðmundur Blöndal var fædd-
ur að Hlaðhamri í Hrútafirði
þann 10. desember 1902, sonur
hjónanna Ágústar Lárussonar
Blöndal hreppstjóra síðar sýslu-
skrifara á Seyðisfirði og konu
hans Ólafíu Sigríðar Theodórs-
dóttur verslunarstjóra á Borð-
eyri. Hann ólst upp hjá móður-
bróður sínum Guðmundi Theo-
dórs bónda og hreppstjóra í Stór-
holti í Dalasýslu.
Kona Guðmundar Blöndal var
Anna Ólafsdóttir Indriðasonar
frá Hvoli í Saurbæ Dalasýslu
skagfirskrar ættar. Hún lifir
mann sinn. Börn þeirra voru:
Guðborg, Friðrik Theodór og
Ólafía Guðrún. ÖIl eru þau á lífi.
Kynni okkar Guðmundar
Blöndal voru á árum þeim sem
við vorum samtímis bændur í
Dalasýslu, Guðmundur bjó í
Litlaholti í Saurbæ. Jafnhliða
búskapnum var Guðmundur
landpóstur á leiðinni frá Stórholti
til Búðardals um Strandir, það er
leiðin fyrir Klofning.
Bréfhirðing var á Staðarfelli
svo póstferð Guðmundar Blön-
dal lá þar um með viðkomu í
báðum leiðum. Kynni okkar
urðu því náin fljótlega. Guð-
SKIPADEILD
SAMBAMDSINS
Sölu- og markaðsdeild Akurevri
Símar 21400 og 22397
LESTUNARÁÆTLUN
REYKJAVÍK
ALLA MIÐVIKUDAGA
AARHUS SVENDBORG KÖBENHAVN
ALLA ÞRIÐJUDAGA ALLA MIÐVIKUDAGA ALLA FIMMTUDAGA
GÖTEBORG I MOSS I LARVIK
ALLA FÖSTUDAGA 11 ALLA LAUGARDAGA | j ALLA LAUGARDAGA
HULL ANTWERPEN ROTTERDAM HAMBURG
ALLA MÁNUDAGA ALLA ÞRIÐJUDAGA ALLA ÞRIÐJUDAGA ALLA MIÐVIKUDAGA
HELSINKI
MÁNAÐARLEGA
GLOUCESTER NEWYORK PORTSMOUTH
MÁNAÐARLEGA MÁNAÐARLEGA MÁNAÐARLEGA
Akureyri Simi 96-21400
mundur Blöndal var afskaplega
háttvís í allri framkomu, kátur,
hress og fljótur til svars, ef það
átti við og þá mjög orðheppinn.
Svo vinsæll var hann á heimili
okkar Margrétar á Staðarfelli að
það þótti góð tíðindi þegar vitað
var að Blöndal ætlaði að gista hjá
okkur á Staðarfelli í vetrarferð-
um sínum sem hann gerði oftast á
heimleið. Svo mikil glaðværð og
léttleiki fylgdi honum að jafnaði,
að dvöl hans á heimilinu okkar
boðaði gleðistemmningu.
Ég átti einnig því láni að fagna
að vinna með Guðmundi Blöndal
í stjórn Ungmennasambands
Dalamanna þar gegndi hann
gjaldkerastarfi. Ég var formaður
þeirrar stjórnar og Friðjón
alþingismaður Þórðarson ritari.
Gjaldkerastörfin fórust Blöndal
sérstaklega vel úr hendi sem önn-
ur störf.
Á síðari hluta fimmta ára-
tugarins fluttist Guðmundur
Blöndal til Akureyrar og gerðist
starfsmaður hjá KÉA. Þar starf-
aði hann í 12 ár, í framhaldi af
því gerðist hann fulltrúi hjá skatt-
stjóranum á Akureyri. Þar starf-
aði hann svipaðan tíma eða þar
til hann lét af störfum vegna
aldurstakmarks f opinberum
störfum.
Það kom í ljós á Akureyri,
ekki síður en í Dölum hvað sam-
ferðafólk hans treysti honum vel
til starfa, þó menntun hans væri
aðeins eins vetrar nám við Ungl-
ingaskólann í Hjarðarholti í
Dölum. Samt reyndist hann góð-
ur starfsmaður hjá KEA. Og sem
fulltrúi skattstjórans á Akureyri.
En til fleiri starfa var hann einnig
valinn; gjaldkeri Framsóknarfé-
lags Akureyrar var hann um ára-
tug og formaður Fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna á Akureyri
var hann lengi. Hann var auk
þess gjaldkeri Rauða kross
íslands á Akureyri og fram-
kvæmdastjóri hans. í fyrsta bindi
í bókarflokki Erlings Davíðsson-
ar ritstjóra „Aldnir hafa orðið“
segir Guðmundur Blöndal frá
nokkrum samtíðarmönnum í
Dalasýslu. í formála ritstjórans
Erlings er hann kynnir Guðmund
Blöndal og störf hans á Akureyri
segir svo: „Mikil reglusemi og
árvekni einkenna öll þau störf, er
hann tekur að sér, og ekki slævir
hann vinnuþrek sitt með nautna-
lyfjum.“
Á lífsleiðinni hefi ég kynnst og
unnið með mörgum mikilhæfum
ágætis mönnum. í þeim hópi var
Guðmundur Blöndal, sem nú
hefur farið yfir landamerki lífs og
dauða. Með sérstöku þakklæti
kveð ég þennan gamla vin minn.
Blessuð sé minning hans.
Konu hans frú Onnu, börnum
þeirra og afkomendum öllum og
venslafólki færum við Margrét
innilegar samúðarkveðjur.
Halldór E. Sigurðsson.
Myndlistarsýning í Bjargi:
Ljóð, gerningur,
söngur, hljóðfærasláttur
Haraldur Ingi Haraldsson, Jón
Laxdal Halldórsson og Kristján
Pétur Sigurðsson opna mynd-
listasýningu í Bjargi, húsi Sjálfs-
bjargar á Akureyri, fimmtudag-
inn 27. mars, skírdag kl. 15. Sýn-
ingin stendur til 6. apríl og verð-
ur opin helgidaga frá kl. 14 til 19,
en aðra daga á opnunartíma
Bjargs.
KI. 14 á skírdag verður opnun-
arathöfn í kjallara hússins. Þar
mun Jón Laxdal lesa ljóð, Har-
aldur Ingi flytja gerning og
Kristján Pétur syngja nokkur lög.
Sjálf sýningin verður svo opnuð
kl. 15.
Kristján Pétur Sigurðsson hef-
ur lengstum lagt stund á rokk og
ról. Hann söng með Kamarorg-
hestunum sælu og hefur lagt
stund á grafík og málverk um
skeið og sýnir nú þannig verk.
Blóðflokkur A+.
Jón Laxdal hefur undanfarið
fengist við skáldskap og myndlist
jöfnum höndum. Hann var einn
stofnenþa Rauða hússins á Akur-
eyri sem hýsti listviðburði af
ýmsu tagi. Jón sýnir í þetta sinn
smámyndir mitt á milli klippi-
mynda og málverks.
Haraldur Ingi útskrifaðist úr
MHÍ 1981 og stundaði fram-
haldsnám í Hollandi á árunum
1982-85. Hann starfaði með
Rauða húss-hópnum og hefur
haldið einka- og samsýningar á
íslandi og í Hollandi. Haraldur
sýnir málverk og litlar högg-
myndir úr tré og leir.
ATH. Engin boðskort send út,
en allir hjartanlega velkomnir.