Dagur - 07.04.1986, Page 1

Dagur - 07.04.1986, Page 1
| m jr m m ■ Kari bestur Kári Elíson varð meistari meistarana á Meistaramóti íslands í kraftlyftingum sem haldið var í íþróttahöllinni á Akureyri á laugardag. Mótið var það öflugasta sem haidið hefur verið fyrr og síðar og tókst í alla staði mjög vel. Guðrún H. Kristjánsdóttir skíðakona var urn helgina útnefnd íþróttamaður Akureyr- ar 1985 á aðalfundi ÍBA. Liverpool og Everton munu leika til úrslita í ensku bikar- keppninni en iiðin sigruðu bæði sína leiki í undanúrslitunum á laugardag. Nánar um fþróttir helgarinn- ar á bls. 6 og 7. 69. árgangur Akureyri, mánudagur 7. apríl 1986 64. tölublað Hverjir fá raðsmíðaskipin?: Akvörðunar að vænta í þessari viku Ekki tókst að ganga frá sölu raðsmíðaskipanna svonefndu á fundi sem haldinn var á föstu- daginn með þeim aðilum sem sjá um söluna, en að sögn Gunnars Ragnars, forstjóra Slippstöðvarinnar, er búist við að gengið verði frá því í þessari viku hverjir fá skipin. Raðsmíðaskipin eru fjögur og eru tvö þeirra í smíðum hjá Slippstöðinni á Akureyri en hin eru smíðuð hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi og í Stálvík í Hafnarfirði. Dalvík: Atta árekstrar frá áramótum Á Dalvík hafa orðið 8 árekstr- ar í umferðinni frá áramótum sem er heldur mikið, að mati lögreglunnar þar. í þessum árekstrum hafa þrír til fjórir bílar skemmst mikið og þar af hafa einn eða tveir verið dæmdir ónýtir af tryggingarfélög- um. „Það virðist vera að menn séu heldur kærulausir og breyti ekki aksturslagi sínu þó veður breytist og akstursskilyrði versni,“ sagði dalvískur lögreglumaður í sam- tali við Dag. -yk. Að undanförnu hefur nefnd, skipuð fulltrúum frá skipasmíða- stöðvunum, fjármálaráðuneyt- inu, sjávarútvegsráðuneytinu, iðnaðarráðuneytinu og ríkis- ábyrgðarsjóði, unnið að því að fara yfir tilboðin sem bárust og ræða við hæstbjóðendur. Meðal þeirra sem hæst buðu í skip Slippstöðvarinnar eru Sæblik hf. á Blönduósi, K. Jónsson og fleiri á Akureyri og Útgerðarfél.ag Kópaskers. Mjög mörg tilboð bárust þegar skipin voru boðin út og buðu sumir í fleiri en eitt skip. Því hef- ur það verið erfitt að vinna úr til- boðunum og bera þau saman en eins og áður segir er vonast til að botn fáist. fmálið-í þessari viku.- yk. Kraftajötunn gekk berserksgang: Braut rúður og hurðir! Nokkur ölvun var á Akureyri um helgina, að sögn lögreglu og þurfti að hýsa nokkra menn í fangageymslum vegna slags- * íwBMmM v Éf11' JiÍiéii Jkii i 'i gardaginn var stórsiysaæfing á vegum almannavarna ■ Slippstöðinni á Akureyri. Nánar er sagt frá æfíngunni í máii og myndum á bis. 9. Mynd: KGA. Verkalýðsfélög og neytendasamtök: Meira eftirlit með verðlagi Verkalýðsfélögin á Akureyri og Neytendasamtökin á Akur- eyri hafa ákveðið að ráða starfsmann í hálft starf til að fylgjast með þróun verðlags á Akureyri og hafa umsjón með verðkönnunum. Markmiðið er að auka á verðskyn almcnn- ings. Ráðið verður í starfið til áramóta. „Nú liggur fyrir tillaga frá verkalýðsfélögunum og neyt- endasamtökunum um ráðning- una, til að fylgja eftir því ákvæði í kjarasamningunum, sem fjall- aði um aukið verðlagseftirlit," sagði Hákon Hákonarson, for- maður Félags málmiðnaðar- manna. „Ég tel augljóst að af ráðningunni verði innan tíðar og að starfsmaðurinn komi til með að hafa aðsetur á skrifstofu neyt- endasamtakanna. Það er nýtt að menn treysti sér til þess að vekja athygli á þróun vöruverðs. Þetta er merkilegt því það bendir til þess að ríkisstjórn- in og aðilar vinnumarkaðarins hafi gert alvöru kjarasamning sem byggir upp á stöðugu og lækkandi verðlagi. Miðað við þessar aðstæður er afar nauðsyn- legt að verðskyn hins almenna borgara sé virkt. Slíkt var ekki liægt þegar menn bjuggu við 40 til 120% verðbólgu." Sjá bls. 3 mála. Fílefldur maður missti stjórn á skapi sínu og kröftum sínum í ölæði inni á Hótel Varðborg aðfaranótt sunnu- dagsins og braut þar og braml- aði hurðir og glugga. Gestir í tveimur herbergjum hótelsins hrukku upp úr fasta- svefni við það að hurðir að her- bergjum þeirra voru mölbrotnar. Sá sem það gerði gekk svo út og braut rúðu í hótelinu. Síðan hélt hann áfram suður götuna og þeg- ar hann kom að Búnaðarbankan- um reif hann upp gangstéttar- hellu og grýtti henni inn um einn gluggann og þar fór önnur rúða. Þegar hér var komið sögu skarst lögreglan í leikinn, handtók manninn og flutti hann í fanga- geymslu þar sem hann fékk að sofa úr sér æðið og vímuna. Að sögn lögreglunnar má búast við að skemmdir þær sem maðurinn olli í æðiskastinu jafn- gildi allt að 100 þúsund krónum. Það getur verið dýrt fyrir sterka menn að kunna ekki að hemja skap sitt. -yk. Þrjú lömb í mars Ragnari Guðmundssyni bónda á Skíðastöðum í Skefilsstaða- hreppi í Skagafirði brá þeg- ar hann kom í fjárhús sín að morgni 25. mars því ein af kindum hans hafði borið þá um nóttina. „Jú, ég varð ansi hissa því ég átti ekki von á neinu svona lög- uðu fyrr en um mánaðamótin apríl-maí,“ sagði Ragnar er Dag- ur spjallaði við hann. „Hún hafði borið mórauðri gimbur og morg- uninn eftir var önnur borin og þá bættust við svört gimbur og hvít- ur hrútur.“ Ragnar sagðist hafa búið á Skíðastöðum síðan 1980 og svona atvik hefðu ekki komið upp hjá sér áður.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.