Dagur - 08.05.1986, Page 13
8. maí 1986 - ÐAGUR - 17
Jhvað er að gerastZ
Karlakór Akureyrar:
Vortónleikar
í Skemmunni
Dagana 9. og 10. maí nk.
heldur Karlakór Akureyrar
árlega vortónleika sína fyrir
styrktarfélaga og aðra gesti.
Að þessu sinni verða tón-
leikarnir í íþróttaskemm-
unni á Oddeyri. Söngskráin
er fjölbreytt og prýða hana
bæði innlend og erlend lög,
m.a. verða frumfiutt 2 lög.
Þau eru: „Ákall", eftir
söngstjórann Atla Guðlaugs-
son, einsöngur Bryngeirs
Kristinssonar, og „Sá brúni"
eftir Garðar Karlsson, við
texta Braga Sigurjónssonar.
Að þessu sinni er undir-
leikur með fjölbreyttara
móti og má þar nefna að í
nokkrum laganna mun
Lúðrasveit Akureyrar leika
undir og mun auk þess leika
nokkur iög ein. Einnig koma
fram í hlutverki undirleikara
fólk frá Tónlistarskóla Akur-
eyrar sem munu m.a. leika á:
Balalaiku, harmonikur,
þverflautu o.fl. sem of langt
yrði hér upp að telja. Einnig
mun Antonia Ogonovsky
leika undir á píanó í 3 lögum
sem Bryngeir Kristinsson
syngur, strax að loknu hléi.
Auk Bryngeirs syngja
Baldvin Kr. Baldvinsson og
Óskar Pétursson einsöng
með kórnum, stjórnandi er
Atli Guðlaugsson.
Tónleikarnir hefjast kl.
21.00, föstudaginn 9. maí og
kl. 21.00, laugardaginn 10.
Börn og
unglingar
LETTIH
b
Kolbrún Kristjánsdóttir reiökennari í Rauðuvík, verður
með reiðnámskeið á Akureyri sem hefst þriðjudag-
inn 13. maí nk. Skráning og uppl. hjá Valgeir í
Hestasport sími 21872 og Kolbrúnu í síma 61610.
Fræðslunefnd Léttis.
Sýningfimm
myndlistarmama
Föstudaginn 9. maí opna
fimm ungir myndiistarmenn
sýningu á verkum sínum í
Bjargi. Þeir sem sýna eru:
Gústaf Geir Bollason, Sig-
tryggur Baldvinsson, Pétur
Friðriksson, Róbert Ró-
bertsson og Þorsteinn Sig-
laugsson.
Sýningin hefst á föstudag
kl. 16 og stendur til 19. maí.
Opin virka daga kl. 8-19 og
um helgar kl. 15-19.
Flokkur
mannsins
á Sigló
Flokkur mannsins hefur til-
kynnt framboð til bæjarstjórn-
arkosninga á Siglufírði í sveit-
arstjórnarkosningunum 31.
maí n.k. Níu menn eru í fram-
boði og eru þeir þessir:
1. Einar Karlsson sjómaður,
2. Þórir Jóhann Stefánsson iðnnemi,
3. Magnús Traustason vélvirki,
4. Ólafur Þór Haraldsson vélstjóri,
5. Vilborg Traustadóttir húsmóðir,
6. Birgitta Pálsdóttir húsmóðir,
7. Þórður Andersen rennismiður,
8. Gísli H. Elíasson verksmiðjustjóri,
9. Trausti Magnússon vitavörður. gej-
H-100 Akureyri
Funi • Léttir • Þráinn
Úrtökumót
fyrir Landsmót hestamanna 1986 verður
á Melgerðismelum sunnudaginn 1. júní.
Keppt verður í:
A og B flokki gæðinga,
unglingaflokkum, eldri og yngri.
Keppt verður eftir lögum og reglum LH.
Skráning í Hestasporti Helgamagrastræti 30, sími
21872 til 20. maí.
Tilhögun og tímasetning auglýst síðar.
Undirbúningsnefnd.
Skemmtistaöurinn H-100, Akureyri er til sölu.
Upplysingar á Eignamiðstöðinni,
Akureyri sími 96-24606.
JrL
Eignamiðstöðin
Skipagötu 14 • Akureyri.
öiö PIONEER'
Bíltæki og
hátalarar.
Stofnfundur
Knattspyrnudómarafélags Eyjafjarðar
(utan Akureyrar) verður haldinn miðvikudaginn 14.
maí nk. kl. 20.30 í húsnæði UMSE að Óseyri 2 á
Akureyri.
Knattspyrnudómarar á félagssvæðinu eru hvattir til
að fjölmenna.
Undirbúningsnefnd.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sæbóli, Dalvík, þinglesin eign Hauks
Tryggvasonar, fer fram eftir kröfu Róberts Á. Hreiðarssonar
hdl., Sigríðar Thorlacíus hdl., Ólafs B. Árnasonar hdl. og
Gunnars Sólnes hrl'. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. maí
1986, kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
Fyrstí framboðsfundurinn
Sameiginlegur framboðsfundur flokkanna verður
haldinn í Svartfugli í Alþýðuhúsinu í Skipagötu
sunnudaginn 11. maí nk. kl. 20.30.
Fulltrúar Framsóknarflokksins verða 5 efstu á listanum.
Sigurður
Jóhannesson.
Þórarinn E.
Sveinsson.
J.C.
Við hvetjum alla til að koma
og kynnast hressu fólki
með frískar hugmyndir um
framtíð Akureyrar.
Framsóknarflokkurinn Akureyri
Akureyri hefur átt frumkvæðið að þessum fundi og scr um framkvæmd hans og fundarstjórn.
Úlfhiidur
Rögnvaldsdóttir.
Ásgeir
Arngrímsson.
Kolbrún
Þormóðsdóttir.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var ( 105., 107. og 108 tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Skíðabraut 11, Dalvík, þinglesinni eign
Svavars Marinóssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar
hdl., Gústafs Þór Tryggvasonar hdl. og Tryggingastofnunar
ríkisins á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. maí 1986, kl.
14.30.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
AKUREYRARBÆR |R|
Iðngarðar
til leigu
Bæjarstjórn Akureyrar býður leiguhúsnæði fyrír
nýiðnað í iðngörðum frá 10. júní nk.
Um 3 húsrými er að ræða, eitt með u.þ.b. 70 m2
grunnfleti og tvö með u.þ.b. 140 m2 grunnfleti
með efri hæð að hluta.
Umsóknum skal skilað til Framkvæmdasjóðs
Akureyrarbæjar c/o Helgi M. Bergs, bæjarstjóri,
Geislagötu 9, fyrir 20. maí nk. Umsóknum skulu
fylgja gögn um fyrirhugaða starfssemi, rekstrar-
áætlun til a.m.k. eins árs ásamt uþþlýsingum um
fjárhag og framtíðaráform fyrirtækisins.
Atvinnumálanefnd Akureyrarbæjar.