Dagur - 26.05.1986, Qupperneq 1
69. árgangur
Akureyri, mánudagur 26. maí 1986
95. tölublað
OPUS - Bókhaldshugbúnaður
BOS - Bókhaldshugbúnaður
LA UN - Launaforrít
AGNES - Sjávarútvegshugbúnaður
Tölvutæki sf.
Gránufélagsgötu 4, 2. hæð ■ Akureyri ■ Sími 96-26155
Skoðanakönnun Dags um fylgi stjórnmálaflokkanna á Akureyri:
Framsóknarflokkur og Alþýðu-
flokkur bæta við sig fylgi
- Báðir bæta við sig einum manni. Alþýðubandalag stendur í stað, en Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi
fi ■■lijélWnrtiir Fnunsókiuuflokksins á Akureyri virftast eiga auknu fyigi aft fagna, samkvæmt skoftanakönnun Dags
sem unnin var frá miðvikudegi til föstudags í síðustu viku. Á þessari mynd eru sex efstu menn B-listans, t.f.v.:
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Kolbrún Þormóðsdóttir, Ásgeir Arngrímsson, Unnur Pétursdóttir, Sigurður Jóhannes-
son og Þórarinn Sveinsson. Mynd: gej-
Framhaldsskólanemar:
Mismunun á aðstöðu
til náms hefur aukist
- með lækkandi dreifbýlisstyrk
Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur fá fjóra bæjar-
fulltrúa hvor í komandi bæjar-
stjórnarkosningum á Akur-
eyri, Alþýðuflokkur tvo,
Alþýðubandalag einn og
Flokkur mannsins engan.
Þetta eru niðurstöður skoð-
anakönnunar Dags sem unnin
var fyrir helgi. Samkvæmt
þessu liggur straumurinn til
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks, sem báðir bæta við sig
manni miðað við síðustu
bæjarstjórnarkosningar,
Alþýðubandalag stcndur í stað
en Sjálfstæðisflokkur tapar
fy'gi-
Reiknistofnun Háskóla íslands
vann 700 manna úrtak úr íbúa-
skrá Akureyrar vegna könnunar-
innar. Alls náðist í 508 manns
eða 72,6% af úrtakinu. Fram-
kvæmd könnunarinnar var með
Konurnar
óákveðnari
Hverjir eru óákveðnir um það
hvað þeir ætla að kjósa í
bæjarstjórnarkosningunum á
laugardag og hverjir neituðu
að svara spurningunni? Tölvu-
keyrsla á niðurstöðunum gefur
svör við því og helst virðast
það vera konur á aldrinum 30-
50 ára sem eru óákveðnar.
27,3% þeirra sem sögðust vera
óákveðnir eru á aldrinum 18-30
ára, 46,4% á aldrinum 30-50 ára
og 26,1% yfir fimmtugt. 38,9%
þeirra sem voru óákveðnir voru
karlar og 61,1% voru konur. Þá
voru 14% þeirra sem neituðu að
svara á aldrinum 18-30 ára, 30%
voru á aldrinum 30-50 ára og
56% voru eldri en 50 ára. Karlar
voru 47% þeirra sem neituðu að
svara og konur 53%. HS
þeim hætti að hringt var íil þeirra
sem í úrtakinu lentu og þeir
spurðir um hvaða stjórnmála-
flokk þeir ætluðu að kjósa í
bæjarstjórnarkosningunum. Af
þeim 508 sem náðist í sögðust 164
vera óákveðnir eða 32,3%, 51
neitaði að svara eða 10% og 57
sögðust ekki ætla að kjósa eða
11,2%. í síðustu skoðanakönnun
Dags sem unnin var um miðjan
apríl var hlutfall óákveðinna mun
hærra eða 40,32% og þá neituðu
16,7% að svara en 10,59% sögð-
ust ekki ætla að kjósa.
Af þeim sem afstöðu tóku nú,
sögðust 40 ætla að kjósa Alþýðu-
flokkinn eða 16,9%, 79 sögðust
kjósa Framsóknarflokkinn eða
33,5%, 79 sögðust kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn eða 33,5%, 34
sögðust ætla að kjósa Alþýðu-
bandalagið eða 14,4% og 4 sögð-
ust kjósa Flokk mannsins eða
1,7%.
Miðað við síðustu skoðana-
könnun Dags, bætir A-listi við sig
2,5%, B-listi bætir við sig 1,5%,
G-listi stendur í stað en D-listi
tapar 5,5%.
Miðað við síðustu bæjarstjóm-
arkosningar bætir A-listi við sig
7,1% og einum manni, B-listi
bætir við sig 8,4% og einum
manni, D-listi tapar 1,1% en
heldur sínum bæjarfulltrúum og
G-listi bætir við sig 1,3%.
Þeir sem afstöðu tóku eru um
2,6% kjósenda á Akureyri.
Samanborið við skoðanakannan-
ir DV, sem notar 600 manna úr-
tak á landsvísu og skoðanakann-
anir Hagvangs sem notar 1000
manna úrtak á landsvísu er úrtak
það sem Dagur notaði 15 sinnum
stærra hlutfallslega en úrtakið
sem DV notar og 9 sinnum stærra
en úrtak Hagvangs.
Margrét Þóra Þórsdóttir blaða-
maður hafði yfirumsjón með
framkvæmd könnunarinnar en
tölvumeistari var Grétar Ingvars-
son. BB.
Svo nefndur dreifbýlisstyrkur,
sem ætlað er að jafna aðstöðu
nemenda sem verða að sækja
framhaldsskóla utan heima-
byggðar, hefur dregist veru-
lega aftur úr í verðlagsþróun
síðustu ára.
Þessi styrkur, sem greiddur er
úr ríkissjóði, m.a. til að mæta
fargjalda- og uppihaldskostnaði
nemenda utan af landi, hefur
hvergi nærri náð að halda í við
verðlagsþróunina og er nú ein-
ungis 13 þúsund krónur á
nemanda fyrir árið.
Fjárveitingin á fjárlögum 1986
er jafnhá fjárveitingu síðasta árs
eða 20 milljónir króna, en hefði
þurft að vera tvöfalt til þrefalt
hærri til þess að ná því markmiði
sem ætlað var með lögum.
Þetta kom fram í máli Guð-
mundar Heiðars Frímannssonar
formanns dreifbýlisstyrkjanefnd-
ar á stjórnarfundi hjá Fjórðungs-
sambandi Norðlendinga fyrir
skömmu. Á fundinum var sam-
þykkt að beina þeim tilmælum til
menntamálaráðherra að tvö- eða
þrefalda styrkupphæðina á
fjárlögum næsta árs. Bent var á
að með auknum framlögum til
jöfnunar námskostnaðar megi
spara í framhaldsskólarekstrin-
um og koma í veg fyrir óeðlilega
þenslu í framhaldsnámi, þar sem
ekki eru skilyrði til að halda úti
samkeppnisfæru námi. Jafnframt
var bent á að með þessum styrkj-
Nokkur ölvun var á Akureyri
um helgina og þurftu nokkrir
að sofa úr sér vímuna í fanga-
geymslum lögreglunnar.
Um tvöleytið á sunnudagsnótt
var maður fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri eftir að
hafa lent í slagsmálum við næt-
ursöluna í Geislagötu. Þegar lög-
reglan kom þar að lá maðurinn á
gangstéttinni, blóðugur og með
áverka á höfði. Málsatvik eru
ekki fyllilega ljós en unnið er að
rannsókn málsins.
um megi sporna við búsetu-
röskun í byggðum landsins, þar
sem algengt er að aðstandendur
unglinga sem sækja fram á lengri
menntabraut, sjái sér ekki annað
fært en að flytja með þeim í þétt-
býlið, því á annan hátt geti þeir
ekki ráðið við uppihaldskostnað-
inn. BB.
Rúða var brotin í Vörusölunni
í Hafnarstræti og ölvaður maður
olli smávægilegum skemmdum á
leigubifreið er hann sparkaði í
frambretti hennar.
Þá voru þrír ökumenn teknir
fyrir meintan ölvunarakstur og 7
ökumenn voru stöðvaðir þar sem
þeir virtu ekki reglur um há-
markshraða. Tveir smávægilegir.
árekstrar urðu á Akureyri um
helgina. Annars staðar á
Norðurlandi átti lögreglan náð-
uga daga. BB.
Barátta milli Kol-
brúnar og Heimis
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar Dags má reikna
með að baráttan standi milli
fjórða manns Framsóknar-
flokksins og annars manns
Alþýðubandalagsins, þ.e. milli
Kolbrúnar Þormóðsdóttur á
B-Iistanum og Heimis Ingi-
marssonar á G-Iistanum.
B-listi og D-listi fá 1. og 2.
mann, A fær 3. mann, B og D fá
4.-5. mann, G fær 6. mann, B og
D fá 7.-8. mann, A fær 9. mann
og B og D fá 10. og 11. mann.
Næst því að fá mann í bæjar-
stjórn er svo G-listinn. Hann þarf
hins vegar að bæta við sig um
17% atkvæða til að skáka fjórða
manni á annað hvort B-lista eða
D-lista.
Miðað við fylgi flokkanna í
undanförnum kosningum er tæp-
lega raunhæft að ætla það að
Framsókn fái jafn mörg atkvæði
og Sjálfstæðisflokkur. Þess vegna
sýnist baráttan vera á milli 4.
manns á B-lista og 2. manns á G-
lista, eins og áður sagði. Björn
Jósef Arnviðarson 4. maður á D-
lista er í öruggu sæti en útilokað
virðist að Sjálfstæðisflokkurinn
fái 5 menn kjörna. Þá virðist
nokkuð augljóst að Alþýðuflokk-
urinn fái tvo menn kjörna. -HS.
Slagsmál við nætursölu
- Talsvert var um ölvun