Dagur - 26.05.1986, Side 3
26. mai 1986 - DAGUR - 3
Sex tonn af
súpu á mánuði
Hátt í sex tonn af Vilko súp-
um voru seld frá Vilko verk-
smiðjunni á Blönduósi í síð-
asta mánuði, það eru 33.300
pakkar af súpu sem þýðir að
nálægt 166 þúsund íslending-
ar hafi fengið sér einn disk af
Vilkó súpu í mánuðinum.
„Þetta hefur bara gengið
ljómandi vel frá því verksmiðj-
an var flutt hingað norður,"
sagði Sigurður Sigurðsson hjá
Vilko þegar Dagur hafði sam-
band við hann til að frétta af
gangi mála. Verksmiðjan var
ekki stopp nema í rúmar fjórar
vikur í kringum flutningana og
það held ég að verði að teljast
góður gangur, þar sem þetta
voru um 25 tonn í það heila sem
flutt voru á milli landshluta,
sagði Sigurður. Salan á fram-
leiðslu fyrirtækisins er því að
verða komin á svipað stig og var
fyrir eigendaskiptin og virðist
fara vaxandi. Þá er verið að
taka í notkun tölvu til að annast
birgðabókhald og sagði Sigurö-
ur að það hefði mikla hagræð-
ingu í för með sér ekki hvað síst
varðandi hráefnisinnkaup.
Fljótlega mun svo hafin fram-
leiðsla á Mastro súpum en stór
hluti hráefnis í þær er mjólkur-
duft sem framleitt er hjá mjólk-
urstöð S.A.H. á Blönduósi. Sjö
manneskjur eru í fullu starfi hjá
fyrirtækinu og taldi Sigurður
það síst of margt. G.Kr.
Námskeið
í gæslu
bama
í þessari viku verður haldið
námskeið fyrir stelpur og
stráka sem passa börn eða hafa
hugsað sér að passa börn. Það
er Rauði krossinn sem heldur
þetta námskeið og er það nú
haldið í annað skipti. Nám-
skeiðið fer fram í Félagsmið-
stöðinni Lundarskóla kl. 20-22
öll kvöldin.
Námskeiðið verður 4 kvöld.
Fyrsta kvöldið verða 2 hjúkrun-
arfræðingar af barnadeild sjúkra-
hússins. Þær munu tala um þrif
og mataræði barna. Þær verða
með dúkkur og sýna hvernig á að
skipta á börnum og klæða þau,
einnig ræða þær um svefnvenjur
barna. Annað kvöldið verður
fóstra, hún tekur fyrir leiki og
hvernig hægt er að hafa ofan af
fyrir krökkunum, hún dreifir
einnig söngtextum. Þriðja kvöld-
ið er hjálp í viðlögum og fjórða
kvöldið verður stúlka sem hefur
farið til Reykjavíkur á námskeið
og tekur hún fyrir slys á börnum í
heimahúsum. María Pétursdóttir
mun síðan ljúka námskeiðinu
með spjalli og afhenda skírteini.
-HJS
SPENNUM
BELTIN
sjálfra
okkar
vegna!
Siglufjörður:
Mikill afli
í síðustu viku landaði Stálvíkin
á Siglufirði tvisvar sinnum,
samtals 210 tonnum. Á hvíta-
sunnudag fór hún aftur á veið-
ar og var komin með 50 tonn á
tveimur dögum.
A laugardag fyrir hvítasunnu
var landað 200 tonnum af þorski
og 10 tonnum af rækju. Hofsjök-
ull lestaði einnig 8 þúsund kassa
af freðfiski. Mjög mikil atvinna
er nú á Siglufirði og eru allir að
vinna sem vettlingi geta valdið,
allir skólakrakkar eru nú farnir
að vinna og er fyrirsjáanlegt að
þegar líður á sumarið muni vanta
fólk í vinnu. -HJS
Stuðningsfjölskylda
Félagsmálastofnun Akureyrar óskar eftir aö kom-
ast í kynni viö fjölskyldu á Akureyri sem hefur
möguleika á aö annast þrjú lítil systkini, gegn
greiðslu, í samvinnu við foreldri. Þeir sem hafa
áhuga vinsamlega hafiö samband í síma 25880.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
fFrá Bændaskólanum
á Hvanneyri
Auglysing um innritun nemenda:
Bændadeild: Tveggja ára námsbraut (4 annir) aö
búfræðiprófi.
Helstu inntökuskilyröi:
- Umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi og fullnægi
lágmarkskröfum um einkunn til inngöngu í framhalds-
skóla.
- Umsækjandi hafi öðlast nokkra reynslu við land-
búnaöarstörf og að jafnaði stundað þau eigi skemur
en eitt ár, bæði sumar og vetur.
Skrifleg beiðni um inngöngu ásamt prófskírteinum sendist
skólanum fyrir 10. júní nk.
Búvísindadeild: Þriggja ára námsbraut að kandidats-
prófi (BS-90).
Helstu inntökuskilyröi:
- Umsækjandi hafi lokið búfræðiprófi með 1. einkunn.
- Umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi á raungreinasviði
eða öðru framhaldsnámi sem deildarstjórn telur jafn-
gilt og mælir með.
Umsóknir ásamt prófskírteinum skulu hafa borist fyrir 10.
júní nk.
Nánari upplýsingar eru veittar á Hvanneyri í síma 93-7500.
Skólastjóri.
Kvold- Sálfræöistöóin ^
Námskeiö
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Vitað er að andleg líðan og sjálfsöryggi er mikilvægt fyrir
einstaklinginn í starfi og einkalífi. Tilgangur námskeiðs-
ins er að leiðbeina einstaklingum að meta stöðu sína og
kenna árangursríkar aðferðir í samskiptum.
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stil þeir hafa í samskipum
• Hvernig sérstæð reynsla einstaklingsins mótar hann
• Hverjir eru helstu áhrifaþættir í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja fjölskyldutengsl
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Akureyri 9.-12. júní
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Innritun og nánari upplýsingar í síma
Sálf ræðistöð varinnar:
91-687075 milli kl. 10 og 12.
(1,0 pionœœr
Bíltæki og
hátalarar.
Útboð
Framkvæmdanefnd um byggingu Dvalarheimilis
á Siglufirði óskar eftir tilboðum í frágang Dvalar-
heimilisins aö innan þ.e. pípulagnir, raflagnir,
málun, dúkalögn og innréttingar. Útboðsgögn
veröa afhent hjá formanni framkvæmdanefndar
Hauki Jónassyni, Túngötu 16, Siglufirði eöa
Helga Hafliöasyni arkitekt, Þingholtsstræti 27,
Reykjavík gegn 8000 kr. skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuö þriðjudaginn 10.6 kl. 14 á
bæjarskrifstofunum á Siglufirði.
Hinir geysivinsælu
DAIHAT
bílar til afgreiðslu strax.
Allar almennar
bílaviðgerðir.
□AIHATSU
A
Umboð
Viðgerðir
BILVIRKI sf.
Fjölnisgötu 6 • Sími 23213