Dagur - 26.05.1986, Qupperneq 9
26. maí 1986 - DAGUR - 9
„Krummaskuð“
íhaldsins
- eftir Gunnar Hilmarsson á Raufarhöfn
Sjaldan hafa viðhorf íhaldsins til
hinna strjálu byggða komið betur
fram en í grein í blaði þess
íslendingi þann 23. apríl sl.
Ódulinn fjandskapur þessara afla
gegn stöðum eins og Ólafsfirði,
Raufarhöfn, Þórshöfn og Kópa-
skeri, svo aðeins fáir staðir séu
nefndir, dylst engum enda ekki
reynt að dylja hann.
Þetta blað fhaldsins reynir af
öllum mætti að útlista það fyrir
íbúum Akureyrar hvers konar
voðalegur vandræðagripur Stefán
Valgeirsson alþingismaður sé.
Hann beri hagsmuni „krumma-
skuða“ um allt kjördæmið fyrir
brjósti í stað þess að „rækta ein-
göngu atkvæðaakra Akureyrar“.
Við sem búum í þessum
„krummaskuðum“ sem íhaldið
kýs að kalla svo höfum litið til
Akureyrar sem höfuðstaðar
Norðurlands, a.m.k. höfuðstaðar
okkar kjördæmis. Höfuðstaðar
landsbyggðarinnar, eins konar
jafnvegi við vald Reykjavíkur.
Þessu virðist ekki vera svo var-
ið með íhaldið þar. Þeir líta á
Akureyri sem eitthvert „útibú“
frá Reykjavík, einhvers konar
fulltrúa Reykjavíkur-valdsins á
landsbyggðinni og þetta á eflaust
við um forkólfa þess flokks þar.
íslendingur ræðir um nýlegar
deilur um raðsmíðaskip sem átti
að seljast til Kópaskers, en sem
íhaldsmenn vissulega komu í veg
fyrir. Hann segir um afskipti
Stefáns af þessu máli, en hann
kallar blaðið Odd sterka frá Auð-
brekku.
„Oddur mun nefnilega hafa
barist fyrir því með öllum ráðum
tiltækum, að blessað skipið yrði
ekki gírugum Akureyringum að
bráð. Hans skoðun var sú að það
væri best komið á einhverju því
„krummaskuða“ hverra hags-
muni Oddur ber mest fyrir
brjósti. En eins dauði er annars
brauð, og okkur Akureyringum
veitir svo sannarlega ekki af
brauðinu. “
Nú þekki ég ekki nákvæmlega
afskipti Stefáns af þessu máli en
óneitanlega gleður það okkur
„krummaskuðsmenn" að meðal 7
þingmanna kjördæmisins skuli
a.m.k. einn sá vera sem ber hag
okkar fyrir brjósti án tillits til
þess hvort aðrir atkvæðaakrar
séu gjöfulli.
Og íslendingur veltir málunum
áfram fyrir sér og segir:
„Til dæmis má kasta fram
þeirri spurningu hvort jarðgöng
gegnum Ólafsfjarðarmúla væru
yfirleitt á Vegaáætlun, hefðu
Ólafsfirðingar ekki verið svo lús-
heppnir að „eiga“þingmann. Svo
má líka spyrja hvort u.þ.b. helm-
ingur togaraflota landsmanna
væri ekki gerður út frá öðrum
stöðum en nú er, hefðu engir
„átt“ þingmenn og engir krafta-
verkamenn verið uppi.“
Og þá vitum við það. Ekki vissi
ég að Stefán væri svona mikill
kall og grunar mig að einhverjir
fleiri þingmenn kjördæmisins
myndu vilja fá slíkt siðferðisvott-
orð frá íhaldinu.
Nú vita Ólafsfirðingar t.d.
hverjum þeir eiga það að þakka
að Ólafsfjarðargöngin eru á
vegaáætlun. Einnig hverjir berj-
ast þar á móti. Og þau „krumma-
skuð“ Norðausturlands sem eru
'svo lánsöm að eiga atvinnutæki
eins og togara geta gert sér grein
fyrir því hverjum beri að þakka
og hverjum ekki.
Og rúsínan í pylsuendanum
hjá íslendingi í þessari grein
hljóðar svo:
„Gullöld ofannefndra krafta-
verkamanna er þó að líkum senn
á enda, því ræður raunsærra mat
á fýsilegum fjárfestingarkostum
og raunhæfar kröfur um arðsemi
fjármagnsins. Hvar þeim Oddi
sem hér hefur verið um fjallað
verður reist brjóstmynd, er ekki
Ijóst á þessari stundu. Halldór E.
Sigurðsson á brúarsporð Borgar-
fjarðarbrúarinnar, en staðsetning
við hæfi mun sjálfsagt finnast, ef
ekki við bryggjusporð þá kannski
við munna á jarðgöngum eða við
polla einhvers „krummaskuðs“-
togarans. “
Hvað segir svo þessi grein
þeim mönnum sem byggja hinar
ýmsu byggðir Norðausturlands
og raunar allrar landsbyggðarinn-
ar?
nefndra kraftaverkamanna er þó
að líkum senn á enda. Því ræður
raunsærra mat á fýsilegum fjár-
festingarkostum og raunhæfar
kröfur um arðsemi fjármagns-
ins.“
Öllu skýrara getur það varla
verið. Og ég spyr ykkur sem eigið
allt ykkar á þessum stöðum, allar
ykkar eignir, ykkar störf og
framtíð. Hvernig getið þið stutt
þá til valda, aukið áhrif þeirra í
ykkar bæjarfélögum, sem þjóna
þeim herrum sem hafa þessi
markmið?
Kjölfesta byggðastefnu er sam-
vinnuhreyfingin. Það er því engin
furða þótt þau öfl sem vilja breyta
byggðaþróun í landinu beini
spjótum sínum að henni.
Það er ekki hægt að lá þeim í
sjálfu sér, sem vilja breyta þjóð-
félaginu á þennan hátt, þótt þeir
beiti sér gegn því að verið sé að
Við sem þekkjum vel til á
höfuðborgarsvæðinu vitum vel
hvernig íhaldsöflin þar tala um
landsbyggðina. Á Norðaustur-
landi er jú sjálfsagt að halda stöð-
um eins og Akureyri, Mývatns-
sveit og jafnvel Húsavík í byggð.
Það er jú nauðsynlegt að fá að
gista. En þar fram yfir eru allir
aðrir staðir einungis baggi á íbú-
um höfuðborgarsvæðisins. Hins
vegar er það nýtt fyrir alla lands-
byggðarmenn að fulltrúar íhalds
hér skuli kasta svona af sér grím-
unni. Að vísu hefur þeim sem
hafa þurft að berjast fyrir mál-
stað þessara „krummaskuða“
íhaldsins verið ljóst að þau áttu
ekki upp á pallborðið hjá því, en
þá hefur hinni raunverulegu
ástæðu ekki verið borið við, held-
ur öðrum erfiðleikum, tak-
mörkuðum fjárveitingum o.s.frv.
Og hver er svo hin raunveru-
lega ástæða? Hún er alveg eðlileg
frá sjónarhóli íhaldsins séð.
„Krummaskuðin“ á að leggja
niður í áföngum.
E.t.v. finnst ýmsum það vera
ljótt að segja þetta um sjálf-
stæðismenn. Þeir hafa nefnilega
reynt að dyljast, svo mörgum er
þetta ekki ljóst.
Ég spyr þá sem þessar línur
lesa, hvernig skiljið þið þessar
yfirlýsingar úr íslendingi?
„Svo má líka spyrja hvort
u.þ.b. helmingur togaraflota
landsmanna væri ekki gerður út
frá æðri stöðum en nú er, hefðu
engir „átt“ þingmenn og engir
kraftaverkamenn verið uppi.“
Og þetta: „Gullöld ofan-
Opnum
stærri og
giæsilegri
verslun
Gunnar Hilmarsson.
ausa fjármagni úr sameiginlegum
sjóðum þjóðarinnar til fram-
kvæmda á þessum stöðum sem á
að leggja niður.
Við sem höfum staðið í því að
reyna að efla atvinnulíf og bæta
félagslega aðstöðu á „krumma-
skuðum“ vitum líka hvar and-
staðan er. Það er sama hvort um
er að ræða, hafnir, skóla, heilsu-
gæslu eða vegi, alltaf er veggur-
inn á sama stað. Hjá íhaldinu.
Og kannski er ekki hægt að verða
illur út í þá. Það sem á að leggja
niður borgar sig ekki að ausa
fjármagni í.
Hitt vil ég hins vegar biðja þá
um, sem ekki eru sammála því að
þessi krummaskuð séu baggi á
þjóðfélaginu, heldur öfugt, að
skoða það vandlega hverja þeir
styðja til áhrifa í sínum byggða-
lögum. Framtíð þeirra er í húfi.
Eitt sinn átti að flytja íslend-
inga til Jótlandsheiða, nú vilja
þeir okkur í Breiðholtið. Þar
ganga raunar stóru blokkirnar, ef
til vill í gríni, undir nöfnum
ýmissa landsbyggðarlaga eftir
stærð þeirra. Við skulum vita að
öllu gríni fylgir nokkur alvara.
Gunnar Hilmarsson,
Raufarhöfn.
örð aiiíglýsir:
morgun fíriðjudag 27.
mai
Síaukið vöruval, svo sem
grill, tjaldhúsgögn
og ýmsar ferðavörur
Mikið úrval af jogginggöttj
stærðir 106^*1
1
5 krónum
Striga- og íþróttasKór
allar stærðir • Verð frá 275 kr.
Veiðivöruúrvalið er slíkt
að ekki verður orðum
að komið og verðið er sem áður
það allra besta.
Cájörið svo vel að líta inn
Það borgar sig
Eyfjörð J
Hjalteyrargotu 4 simi Z2275