Dagur - 26.05.1986, Page 11
26. maí 1986 - DAGUR - 11
Hússtjórnarskólinn
að Laugum:
Námstíma-
bilinu lokið
Síöara námstímabili Hússtjórn-
arskóla Pingeyinga að Laugum í
Suður-Þingeyjarsýslu lauk 10.
maí sl.
Eins og kunnugt er af fréttum
stóð fyrra námstímabilið frá 15.
september til 20. desember, en
því var skipt í mörg mislöng
námskeið, s.s. fatasaum, mynd-
vefnað, tauþrykk með nýrri
aðferð, gerbakstur, smárétti og
frjálsan útsaum. Námskeiðin
sóttu aðallega konur, en karlar
sóttu bæði myndvefnaðarnám-
skeið og smáréttanámskeið. Auk
námskeiðanna, sem eru liður í
fullorðinsfræðslu í héraðinu, hafa
yfir 20 nemendur úr 9. bekk
Laugaskóla notið kennslu í
heimilisfræði. Þá hafa einnig allir
nemendur Litlulaugaskóla notið
kennslu í heimilisfræði.
Þeir nemendur sem stunda
nám í skólanum allan veturinn
eru á matvælatæknibraut, sem er
tveggja ára framhaldsbraut.
Nemendur á 1. ári voru 13 en
alls hafa um 160 nemendur notið
kennslu í skólanum síðastliðinn
vetur.
Hinn 9. maí sl. heimsóttu skól-
ann 10, 11 og 20 ára nemendur
hans og færðu honum góðar
gjafir. Hefur sá skemmtilegi sið-
ur haldist í áratugi. Einnig gáfu
nemendur, er kvöddu skólann að
þessu sinni, peningaupphæð til
kaupa á nýrri eldhúsklukku.
Þann 10. maí var sýning á
handavinnu nemenda á hús-
stjórnarbraut, og sóttu hana yfir
100 gestir sem luku lofsorði á
vinnu og dugnað nemendanna.
Hæstu einkunn við brottfar-
arpróf á hússtjórnarbraut hlaut
Erla Runólfsdóttir, Tröð,
Reykjadal, 8.30. Einnig hlaut
Erla árlega viðurkenningu Lions-
klúbbsins Náttfara fyrir góðan
árangur í námi.
Næsta skólaár mun skólinn
starfa á sama grundvelli og sl.
vetur.
Námsefni haustsins verður
auglýst eins og venjulega heima í
héraði þegar líða fer að hausti.
Umsóknir um matvælatækni-
braut skulu berast Hússtjórnar-
skólanum eða Laugaskóla fyrir
10. júní nk.
Umsóknir um hússtjórnar-
brautina, sem hefst í byrjun
janúar 1987, skulu berast fyrir
20. júlí nk.
í vetur var námskostnaður fyr-
ir allt námstímabilið jan.-maí um
35 þús. kr. Innifalið var fæði, efn-
iskostnaður vegna verklegrar
kennslu, bækur og annað náms-
efni og skólagjöld.
Nánari upplýsingar varðandi
næsta vetur gefur Hjördís Stef-
ánsdóttir, skólastjóri, í síma (96)
43135.
Bifreiðaverkstæðið
Þórshamar hf.
v/Tryggvabraut sími 22700.
Seljum ogþjónum
Volkswagen ★
Audi ★ Honda
Árgerðir 1986 komnar.
Tryggingafélag
óskar að ráða
ungan starfsmann
Um fullt starf er að ræða.
Reynsla eða menntun í skrifstofustörfum æskileg.
Söhnnaður
Við leitum að ungum áhugasömum sölumanni
fyrir traust heildsölufyrirtæki. Góð laun í boði.
Uppl. á skrifstofunni.
RÁÐNIN6ARÞJÓNUSTA
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri - simi 25455
x-B Dalvík x-B
Jóhann Bjarnason 5. sæti B-listans.
Við teljum að ekki eigi að dreifa um of kröftum og
fjármagni til framkvæmda við íþróttamannvirki og
leggjum því áherslu á að áframhaldandi upp-
bygging í fjallinu og bygging grasvallar hafi
forgang.
Jörð til sölu
Jörðin Lyngás í Kelduhverfi ertil sölu. Selst með allri
áhöfn. Á jörðinni er meðal annars refabú.
Upplýsingar á Eignamiðstöðinni,
Akureyri sími 96-24606.
Eignamiðstöðin
Skipagötu 14 • Akureyri.
Tónlistarkennarar
Tónlistardeild Stórutjarnaskóla, S.-Þing. auglýsir
eftir kennara. Umsóknum sé skilað til skólastjóra
fyrir 1. júní. Upplýsingar í síma 96-43225.
Atvinna
Starfsmaður óskast til afgreiðslustarfa og léttra
iðnaðarstarfa. Um framtíðarstarf er að ræða.
Umsækjendur hafi samband við verslunarstjóra,
ekki í síma.
Norðurfell hf. Kaupangi.
Karlmann vantar
til afgreiðslustarfa
nú þegar. Umsækjendur eru beðnir að skila bréfi
með nafni og helstu upplýsingum á afgreiðslu
Dags merkt: „Afgreiðslustarf11.
Framtíðarstarf.
Enirn fluttir aftur norður
Eflum
ís-
lenskan
iðnað
1
©
OFNASMIOJA
NORÐURLANDS
FROSTAGÖTU3
Sími (96) 21860 • AKUREYRI
veitir ylinn
tuktuottkium
i. iiii’i uwwnMtuin *