Dagur


Dagur - 26.05.1986, Qupperneq 12

Dagur - 26.05.1986, Qupperneq 12
Akureyri, mánudagur 26. maí 1986 ★ Nýtt fyrirtæki SF STRAUMRAS ÞJÓNUSTA MEÐ LOFT- HÁÞRÝSTI- OG RAFMAGNSVÖRUR Furuvöllum 1 • 600 Akureyri • Sími 96-26988 Hvað segja frambjóðendur? „Fylgi okkar er traust og vaxandi“ - segir Sigurður Jóhannesson Framsóknarflokki „Ég er nokkuð ánægður með þessa niðurstöðu. Hún er stað- festing á fyrri skoðanakönnun Dags og því sýnilegt að fylgi okkar framsóknarmanna cr traust og vaxandi,“ sagði Sigurður Jóhannesson efsti maður á lista Framsóknar- flokksins. Sigurður sagði að þó væri ekki hægt að líta fram hjá því að enn væri fjöldi kjósenda óákveðinn og gætu þeir jafnvel breytt þess- um úrslitum. „Ég vil því hvetja alla kjósend- ur okkar til að vinna markvisst að því þessa síðustu daga, með við- tölum og skoðanaskiptum við þá sem óákveðnir eru, að gera niðurstöður skoðanakönnunar- innar að staðreynd á kjördag.“ BB. „Marktækari en sú fyrif - segir Freyr Ófeigsson Alþýðuflokki „Ég tel að þessi skoðanakönn- un sé marktækari en sú fyrri, vegna meiri þátttöku. Hins vegar er ennþá það stór hluti kjósenda óákveðinn að ekki er hægt að treysta því hver endanleg útkoma verður,“ sagði Freyr Ófeigsson efsti maður á lista Alþýðuflokks. „Ég vil benda á það að þegar pólitískt blað vinnur svona skoð- anakönnun má alltaf búast við því að útkoman verði þeim flokki meira í hag sem að blaðinu stendur. Ég fagna því hins vegar að skoðanakönnunin skuli sýna að við Alþýðuflokksmenn séum í sókn en það kemur mér ekkert á óvart og er í samræfni við það sem ég hef sjálfur fundið. Ég held hins vegar að hlutföllin milli Framsóknarflokks og Alþýðu- bandalags eigi eftir að breytast,“ sagði Freyr. BB. „Nánast siðlaust“ - segir Sigríður Stefánsdóttir Alþýðubandalagi „Dagur hefur undanfarna daga og vikur sýnt að hann er ekki óháð landsbyggðarblað. Blað- ið hefur gagnrýnislaust beitt sér mjög harkalega í kosninga- baráttu fyrir Framsóknar- flokkinn og ég tel þetta ekki aðeins ómarktækt, heldur nán- ast siðlaust,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir fyrsti maður á lista Alþýðubandalagsins. „Enda kemur í ljós að margir gefa ekki upp hvaða flokk þeir ætla að kjósa. Þannig að ég tel þessa könnun algjörlega ómark- tæka alveg án tillits til þess hvaða útkomu við fáum. En sú útkoma er mjög ólík þeim anda sem við finnum. Ég ítreka að mér finnst það siðleysi að Framsóknarflokk- urinn skuli framkvæma skoðana- könnun viku fyrir kjördag og ætl- ast til þess að aðrir taki mark á henni,“ sagði Sigríður. -mþþ Flokkur mannsins Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst blaðamanni ekki að ná sambandi við forvígismenn Flokks mannsins áður en blað- ið fór í prentun. Því er engin athugasemd frá þeim flokki um niðurstöður skoðana- könnunarinnar í þessu blaði. BB. Hhl U in gamla Gígja Birgisdóttir frá Akureyri var kosin „Fegurðardrottn- ing íslands 1986“ í veitingahúsinu Broadway á föstudagskvöldið. í öðru sæti varð Þóra Þrastardóttir Reykjavík og hlaut hún titilinn „Fegurðardrottning Reykjavíkur“, þriðja varð Rut Róbertsdóttir Reykjavík, í fjórða sæti varð Kolbrún Jenný Gunnarsdóttir Keflavík og flmmta varð Margrét Svava Jörg- ens úr Hafnarfirði. Þessi mynd var tekin að krýningu lokinni og í baksýn sjást keppinautarnir klappa Gígju lof í iófa. Mynd: Bjarni. Ekki í samræmi við aðrar skoðana- kannanir - Sigurður J. Sigurðsson Sjálfstæðisflokki „Þær niðurstöður sem Dagur fær úr þessari skoðanakönnun styðja það álit að slíkar kann- anir séu afar hæpnar,“ sagði Sigurður J. Sigurðsson annar maður á lista Sjálfstæðis- flokksins. „Aðeins Vz hluti kjósenda sem í könnuninni voru tóku afstöðu til spurninganna. Niðurstöðurnar eru ekki í samræmi við aðrar kannanir né þá almennu skoðun sem uppi er nú, viku fyrir kosn- ingar. Einhverjar skýringar kunna að liggja í því að það er fjölmiðill Framsóknar sem fram- kvæmir þessa könnun. Án þess að taka afstöðu til fylgis einstakra flokka í þessari könnun er ljóst að þessi niðurstaða er engan veg- inn í samræmi við þær vísbend- ingar sem við sjálfstæðismenn höfum. Ef kjósendur vilja öflugri stjórnun bæjarmála, þá er stuðn- ingur við lista sjálfstæðismanna eina vonin til slíks. Þessum niðurstöðum ber því að taka með miklum fyrirvara,“ sagði Sigurð- ur. BB. Fyrsta fullbúna geðdeildin utan Reykjavíkur opnuð: Mikilvægum áfanga hefur verið náð „Við fögnum í dag merkum tímamótum í íslenskri sjúkra- hússögu, þegar formlega er 2000 manns f „Afríkuhlaupi“ á Akureyrí. Hið svokallaða „Afríkuhlaup“ fór fram um miðjan dag í gær og var þátttaka víðast hvar góð. Á Akureyri voru um 2300 manns samankomnir í göngugötunni þar sem „Rokkbandið“ lék frá 13.30 til 15 við góðar undirtektir. Þá hófst hlaupið sjálft og sá Helgi M. Bergs bæjarstjórí um að ræsa keppendur. Þeir gátu valið um hvort þeir hlypu einn eða tvo kílómetra. Um 2000 manns tóku þátt í hlaupinu og völdu heldur fleirí að hlaupa lengrí leiðina. Kúmlega 260 þús- und krónur söfnuðust á Akureyri en eins og mönnum er kunnugt var hlaup þetta liður í fjársöfnun til handa bág- stöddum íbúm Afríku. Mynd KK. opnuð fyrsta fullbúna geð- deildin utan Reykjavíkur. Þetta er einnig merkur áfangi í sjúkrahússsögu Akureyrar því sýnt hefur verið fram á hversu mikilvægt er að sinna öllum sviðum læknisþjónustunnar,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra, en síðast- liðinn föstudag var formlega tekin í notkun ný og glæsileg geðdeild við Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri. Hin nýja geðdeild við FSA er í tengiálmu og hefur til ráðstöfun- ar 590 fermetra fyrir legu og göngudeild. Á deildinni geta dvalið allt að 10 sjúklingar í sól- arhringsvistun og einnig er að- staða fyrir einn sjúkling í dagvist- un. Sigmundur Sigfússon hefur verið ráðinn yfirlæknir að deild- inni, deildarstjóri er Hafdís Rún- arsdóttir, en stöðugildi við deild- ina eru 14. Sagði Sigmundur að bæði hönnun og mönnun deildar- innar væri miðuð við að hægt yrði að sinna öllum sem þyrftu á bráðri sjúkrahúsvist að halda vegna geðrænna eða félagslegra vandamála. Frá því í desember á síðasta ári og fram í febrúar, er deildin tók til starfa í núverandi húsnæði fór starfsemin fram á handlækninga- deild. Á þessum tíma voru út- skrifaðir 53 sjúklingar af deild- inni og voru konur í meirihluta. í janúar árið 1984 var hafist handa um hönnun deildarinnar. Teiknistofa Gunnars og Gauta sá um byggingarnefndarteikningar, en vinnuteikningar voru gerðar af embætti Húsameistara ríkisins og Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thoroddsen á Akureyri og Verk- fræðiskrifstofu Jóhanns Indriða- sonar í Reykjavík. Hönnun var lokið í nóvember sama ár og verkið þá boðið út. Mánuði síðar var gengið til samninga við lægst- bjóðanda, en aðalverktaki við framkvæmdirnar var bygginga- fyrirtækið Híbýli á Akureyri. Gunnar Ragnars formaður stjórnar FSA sagði að enn einu sinni hefði mikilvægum áfanga verið náð í þeirri viðleitni að veita hér á Ákureyri sem fjöl- breyttasta þjónustu, er verið væri að stórefla þjónustu við geðsjúka með opnun deildarinnar. „Enn einum áfanga í framþró- un FSA er náð og því fögnum við að sjálfsögðu heilshugar," sagði Gunnar Ragnars. -mþþ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.