Dagur - 16.06.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 16. júní 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari____________________
Akureyrskt
menningarlíf
Mikil lista- og menningarhátíð, svo kölluð
M-hátíð var haldin á Akureyri um helgina.
Hátíð þessi var haldin á vegum
menntamálaráðuneytisins og Akureyrar-
bæjar og fór í alla staði mjög vel fram. Dag-
skráin var fjölbreytt og samanstóð af tón-
listarflutningi, ljóðalestri, erindum og
myndlistarsýningum. Það er vel til fundið
að halda slíka menningarhátíð á Akureyri
en því er stundum haldið fram að menn-
ingarlíf á Akureyri sé ekki nægilega fjöl-
skrúðugt.
Það hefur lengi staðið lista- og menning-
arlífi á Akureyri nokkuð fyrir þrifum að þar
er ekkert húsnæði til sem staðið getur und-
ir nafni sem menningarmiðstöð. Reyndar
eru fjölmargir staðir notaðir til tónleika-
halds og má þar nefna íþróttahöllina, sal
Tónlistarskólans, Dynheima, Samkomu-
húsið, Borgarbíó, Lón og Sjallann en ekkert
þessara húsa fullnægir þeim kröfum sem
gerðar eru til tónleikahúsa á stað á borð
við Akureyri. Það sama má segja um
myndlistina. Helstu sýningarstaðir eru
Gamli Lundur, Iðnskólinn, Laxdalshús og
Möðruvellir en veruleg þörf er á hentugra
húsnæði, sérstaklega undir stærri og viða-
meiri myndverk. Úr þessu þarf nauðsyn-
lega að bæta. Hins vegar hafa talsverðar
endurbætur verið gerðar á Samkomuhús-
inu á undanförnum árum þannig að að-
staða leikara hefur talsvert batnað. Leik-
listinni eru þó talsverðar skorður settar
vegna smæðar hússins.
Þegar hafist var handa við að undirbúa
M-hátíðina var valinn sá kostur að taka
íþróttaskemmuna á Akureyri undir hátíð-
ina og innrétta hana sérstaklega til þeirra
þarfa. Fullyrða má að vel hafi til tekist.
Þarna fékk almenningur tækifæri til að
kynnast mörgu því besta sem gert hefur
verið og verið er að gera á listasviðinu á
Akureyri og vonandi verður hátíð sem
þessi árviss viðburður eftirleiðis. Fátt er
eins vel fallið til að efla lista- og menning-
arlífið á Akureyri og veita því þann sess í
hugum bæjarbúa og annarra sem það
vissulega á skilið. BB.
_w'ðfa/ dagsins.
Hörður Júlíusson.
Við höfum fólkið með
okkur hérna
- segir Hörður Júlíusson formaður KS
Eins og öilum hlýtur að vera
Ijóst er þátttaka knattspyrnu-
liða utan af landi í íslandsmót-
um gífurlega kostnaðarsöm.
Er t.d. ferðakostnaður liða í
annarri deildinni gífurlegur,
sérstaklega á stöðum sem eru
mjög afskekktir eins og Siglu-
fjörður er. Núverandi formað-
ur KS er Hörður Júlíusson.
Hörður hefur verið einn litrík-
asti knattspyrnumaður félags-
ins um áraraðir og að auki lék
hann eitt keppnistímabil með
stórveldinu Val í Reykjavík.
SI. haust ætlaði Hörður að
hætta keppni og tók að sér for-
mennsku í féiagi sínu. En nii í
vor lét hann tilleiðast að vera
með eitt árið enn.
Dagur hitti Hörð að máli til að
forvitnast um starfsemi KS. Fyrst
var hann spurður hvernig gengi
að fjármagna starfsemina.
„Tiltölulega auðveldlega mið-
að við aðra staði. Eins og þú
veist, höfum við fólkið með okk-
ur hérna. Að vísu lentum við í
smá vitleysu í sambandi við fjár-
málin. Staðan var slæm eftir sfð-
asta keppnistímabil. Við vorum
komnir fimm til tíu hundruð þús-
und í mínus. En það hefur verið
unnið þrekvirki í fjáröflun í vetur
og mér sýnist þetta ætla að bless-
ast allt í sumar með þau mál.
Sem eru auðvitað númer 1, 2 og
3. Ef þau eru ekki í lagi þá geng-
ur þetta einfaldlega ekki.“
- En fáið þið styrk frá
bænum?
„Engan. Þeir borga íþróttafull-
trúa hálf laun, en beina peninga-
styrki fáum við ekki. Við eigum
félagsheimili sem við fáum fellt
niður rekstrargjöld af.“
- En fyrirtækin í bænum,
styrkja þau ykkur?
„Þau styrkja okkur með aug-
lýsingum á búninga, á vellinum, í
leikskrár o.fl. og auðvitað lifum
við á því. En uppistaðan í fjár-
öfluninni hefur verið í beinni
vinnu og við höfum tekið að okk-
ur ýmiss verkefni. T.d. einangr-
uðum við allt loftið í nýja frysti-
húsinu hjá Þormóði ramma, 1200
fermetra. Við tókum gólfið ofan
af sundlauginni á þrem tímum
sem venjulega tekur sjö daga.
Þetta er auðvitað ekki hægt nema
með 20-30 mönnum. Og svo höf-
um við tekið að okkur að rífa
hús.“
- Hverjir eru svona duglegir
að vinna fyrir félagið?
„Bæði leikmenn og stuðnings-
menn. Það er svona tuttugu
manna kjarni utan við liðið sem
alltaf er hægt að leita til og myndi
gera allt fyrir okkur. Þar fyrir
utan eru margir sem vinna drjúgt
fyrir félagið."
- Og þið fáið margt fólk á
völlinn?
„Aðsókn að leikjum er mjög
góð allt upp í 500, en venjulega
svona 350-450. Sem dæmi um
stuðning fólksins við félagið þá
erum við með ársmiða sem fólk
kaupir þó nokkuð yfir verði sem
stakir miðar kosta á alla heima-
leikina. Og sumt af fólkinu kem-
ur ekki á alla leikina og aðrir
örsjaldan."
- Hvernig er búið að yngri
flokkum félagsins?
„Þau mál standa mjög til bóta.
Við vorum með mjög góðan
þjálfara í fyrra Jón Kr. Gíslason
og hann verður hér áfram í sumar
og auk hans mun Sigurjón
Erlendsson þjálfa einn flokk."
- Fer ekki að styttast í að gras-
völlurinn á Hóli verði til?
„Það er stefnt að því að vígja
hann á þessu ári, gera hann klár-
ann þannig að hægc verði að leika
á honum næsta sumar. Er gert
ráð fyrir töluverðri sjálfboða-
vinnu við völlinn í sumar til að
það megi takast.“
- En gamli malarvöllurinn við
Túngötuna verður hann á sínum
stað áfram?
„Já hann verður á sínum stað
og má ekki missa sig. Hann er
svo vel staðsettur, krakkarnir
komast ekkert hjá því að komast
í snertingu við boltann þar sem
þau ganga alltaf yfir völlinn."
- En að lokum Hörður, er
stefnan hjá KS upp í fyrstu deild
í ár?
„Nei það held ég ekki, að
minnsta kosti ekki hjá mér. Mitt
mottó er að gera betur en síðast.
í fyrra lentum við í fjórða sæti og
ég yrði mjög ánægður með þriðja
sætið í ár. Jafnvel fjórða, eftir því
hvað hin liðin verða sterk,“ sagði
Hörður Júlíusson formaður KS
og hægri vængtengiliður liðsins
að lokum. -þá