Dagur - 16.06.1986, Page 3
16. júní 1986- DAGUR -3
Vitnisburður Vernharðs i Holti
um Hey-Taddana okkar
Ný, hagkvæmari tækni við heyverkun.
Vemharður Sigurgrímsson, Holti II, Stokkseyrarhreppi, segir:
„Ég notaði Hey-Tadda (heyrúllupoka) í fyrrasumar og tel þetta
mjög hagkvæma heyverkunaraðferð. Hún er alls ekki dýrari en
aðrar aðferðir, t.d. súgþurrkun en heyið verkast mun betur. Eitt
sinn hirti ég hólfþurrt hey af sama teig í Hey-Tadda og í súg-
þurrkun. Pokaheyið reyndist lystugra, kýrnar átu það langt-
um betur. Besta verkun næst, fái heyið að þorna einn dag."
Hey-Taddarnir öruggir.
„I fyrra tók ég 200 Hey-Tadda frá Plastprenti. Aðeins einn Taddi
ónýttist, fyrir slysni. Ég reyndi einnig útlenda poka, þynnri gerð,
en það komu myglublettir við saumana. Taddarnir eru alveg
lausir við slíkt. Við lofttæmum alla pokana með ryksugu,
það auðveldar lokun og flýtir fyrir verkun."
Taddi er fornt heiti
á poka. Plastprent
vill nú gæða petta
ágæta orð lífi að nýju.
Sölustaðir:
Kaupfélög um
lana allt.
Stórminnkuð áhrif ótíðar.
„Ég hef ekki pokað mjög blautt gras en tilraun sýndi að ekki sak-
aði þótt grænfóður væri pokað blautt í Hey-Tadda. Pokarnir geta
staðið úti fram eftir vetri, varðir vindi og skepnum. Það sparar
hlöðurými. Hjá mér stóðu úti 20 Taddar með þurrkuðu
byggi fram að jólum. Ég er þess fullviss að pokun er
verkunaraðferð framtíðarinnar. Hey þarf aldrei að
hrekjast. Þurrhey má poka á svipstundu, byrji að
rigna. Ég geri ráð fyrir að pakka í 400 Hey-Tadda í
sumar."
^ Plastprent hf.
Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf.
Höfðabakka 9. Sími 685600.
Bílaleiga Flugleiöa:
Samstarf
17. jum a Akureyri:
Fjölbreytt dagskrá
„Við höfum reynt að vanda til
hátíðahaldanna á 17. júní eins
og frekast er kostur,“ sagði
Skúli Lórenzson í samtali við
Dag, en Skúli er formaður
þjóðhátíðarnefndar íþróttafé-
lagsins Þórs sem sér um hátíða-
höldin á Akureyri að þessu
sinni.
A dagskránni kennir ýmissa
grasa, mörg atriði eru hin
hefðbundnu sem eru eins frá
ári til árs en önnur eru aðflutt
og má í því sambandi nefna
„Icy-flokkinu“ ojg grínarana
Jörund og Örn Arnason sem
skemmta á kvöldskemmtun á
Ráðhústorgi. Annars nær dag-
skráin frá kl. 8 að morgni 17.
júní og fram til kl. 2 eftir mið-
nætti, dagskráin lítur þannig
út:
Kl. 14.50 Ávarp fjallkonu - Gígja
Birgisdóttir.
Kl. 15.00 Dansstúdíó Alice - skemmtó
dagskrá.
Kl. 15.10 Ræöa dagsins - Valur Arn-
þórsson.
Kl. 15.20 Ræða nýstúdents - Eggert
Tryggvason.
Kl. 15.35 Fallhlífarstökk.
Barnaskemmtun á
Eiðsvelli
Kl. 16.00 Knattspyrnudeild Fórs sér
um leiktæki, Bjössi bolla
verður á svæðinu og kara-
mellum verður dreift yfir
svæðið úr flugvél. Skemmt-
unin stendur til kl. 18.00.
„Innflytjendur" skemmta -
tónlist flutt af Chilebúum
sem starfa í Sveinbjarnar-
gerði.
Lyftingamenn með aflraun-
ir.
Ráöhústorg
Kl. 20.30 Lúðrasveit Akureyrar leikur.
Kl. 21.00 „Innflytjendur“ skemmta.
Kl. 21.30 Erna Gunnarsdóttir syngur
„Vögguvísu".
Kl. 21.35 lCY-tríóið skemmtir.
Kl. 22.00 Jörundur, Örn Árnason og
fleiri flytja grín.
Kl. 22.15 Dansleikur hefst á Ráðhús-
torgi. Miðaldamenn frá
Siglufirði leika fyrir dansi til
kl. 02.00.
íþróttafélagið Þór.
Kl. 08.00 Fánar dregnir að húni.
Kl. 09.00 Hópakstur Bílaklúbbs
Akureyrar frá Oddeyrar-
skóla. Blómabíll og gamlir
bílar.
Ráðhústorg
Kl. 13.30 Lúðrasveit Akureyrar leikur.
Kl. 14.00 Skrúðganga að íþróttavelli
bæjarins.
/
Iþróttavöllur
Kl. 14.20 Fánahylling.
Kl. 14.30 Hátíðin sett - Benedikt
Guðmundsson formaður
Þórs.
Kl. 14.35 Hátíðarstund, séra Pálmi
Matthíasson og kirkjukór
Lögmannshlíðar.
við bíla-
leigur um
allt land
Bílaleiga Flugleiða hefur gert
samkomulag við bflaleigur víðs
vegar um landið um samvinnu
hvað varðar útleigu á bflum og
aðra þjónustu við viðskipta-
vini fyrirtækjanna. Ennfremur
munu bflaleigurnar samræma
reglur og leiguskilmála, sem og
miðla upplýsingum og vinna að
markaðsmálum á erlendum
vettvangi. Þeir sem taka bfl á
leigu hjá Bflaleigu Flugleiða í
Reykjavík geta skilið bflinn
eftir hjá hvaða bflaleigu sem er
aðili að samkomulaginu án
aukagjalds og öfugt.
Bílaleiga Flugleiða hefur þegar
undirritað samkomulag við eftir-
taldar bílaleigur: Bílaieigan Örn,
Akureyri, Bílaleiga Sauðár-
króks, Bíláleiga Húsavíkur, Bíla-
leiga Þráins Jónssonar, Egilsstöð-
um, Bílaleiga Hornafjarðar,
Höfn, Bílaleiga Siglufjarðar,
Bílaleigan Hvolsvelli og Bílaleig-
an Nes, Borgarnesi. Viðræður
standa yfir við bílaleigur á ísa-
firði og Vestmannaeyjum.
Með þessu móti vill Bílaleiga
Flugleiða gera sitt til að auðvelda
jafnt innlendum sem erlendum
ferðamönnum að fara sem víðast
um landið á sem auðveldastan
hátt og styrkja þar með ferða-
þjónustu á landsbyggðinni.
í sumar hefur Bílaleiga Flug-
leiða yfir að ráða samtals 145 bíl-
um af ýmsum gerðum, flestum
nýjum eða nýlegum.
Teiknisamkeppni Mjólkurdagsnefndar:
38 vinningshafar - þar
af 5 úr Laugabakkaskóla!
Tæplega 1100 myndir bárust í
teiknisamkeppni Mjólkurdags-
nefndar um teikningar sem
prýða eiga umbúðir utan um
skólamjólk næsta vetur. Ur
þessum 1100 teikningum voru
38 valdar úr og munu höfundar
þeirra hljóta viðurkenningu frá
Mjólkurdagsnefnd.
Úrslitin verða tilkynnt í hófi
sem haldið verður á Hótel Sögu í
Reykjavík á morgun klukkan
þrjú. Grunnskólanemendur alls
staðar að af landinu tóku þátt í
samkeppninni. Höfundar teikn-
inganna 38 sem valdar voru úr
geta valið á milli vöruúttektar í
sportvöruverslun að upphæð 5
þúsund krónur, ellegar vikudval-
ar á sveitaheimili.
Norðlendingar eiga 9 fulltrúa
rneðal vinningshafa. Þeir koma
úr þremur skólum, einn frá
Grunnskóla Siglufjarðar, þrír úr
Oddeyrarskóla á Akureyri og
hvorki fleiri né færri en fimm úr
Laugabakkaskóla í Vestur-
Húnavatnssýslu. Sannarlega góð-
ur árangur hjá Húnvetningunum!
Sem fyrr segir verður tilkynnt
um nöfn vinningshafa á ntorgun.
BB.