Dagur - 16.06.1986, Page 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
16. júní 1986- DAGUR -9
Völsungar unnu góðan sigur á Þrótti um helgina. Hér sjást þeir í baráttu við KA-menn.
íslandsmótið 2. deild:
Stórsigur Völsungs
á gervigrasinu
- unnu Þrótt 4:0 á laugardag
Völsungar létu grenjandi rign-
ingu og rok lítið á sig fá er þeir
öttu kappi við Þróttara á gervi-
grasinu í Laugardal á laugar-
dag. Þeir unnu sannfærandi
4:0 og hefði sá sigur getað orð-
ið enn stærri með smá heppni.
Leikurinn var annars hund-
leiðinlegur á að horfa og var
fátt um fína drætti. Það spil
sem sást áttu þó Völsungar og
það er alveg ótrúlegt hversu
slakir Þróttarar eru orðnir.
Samspil sést varla, heldur eru
mismunandi lélegir leikmenn
að reyna að gera hluti upp á
eigin spýtur.
Það eina markverða sem gerð-
ist í fyrri hálfleik voru mörkin tvö
sem Völsungar gerðu. Á 14. mín.
komst Kristján Olgeirsson inn í
sendingu varnarmanns og skor-
aði örugglega framhjá Guðmundi
markverði Þróttar. Og á 43. mín
komust Völsungar í 2:0 þegar
varnarmaður Þróttar handlék
knöttinn inn í vítateig og dæmt
var víti. Jónas Hallgrímsson
skoraði úr vítinu af öryggi.
í síðari hálfleik færðist svo
mun meira fjör í leikinn. Þróttar-
ar sóttu stíft en náðu ekki að
skapa sér nein afgerandi færi.
Hins vegar voru Völsungar mjög
skæðir í hraðaupphlaupum og
hefðu átt að geta skorað ein þrjú
fjögur mörk.
Það var hins vegar ekki fyrr en
á 86. mín. að þeim tókst að skora
þriðja markið og það kom eftir
hornspyrnu. Boltinn barst út í
teiginn eftir hornspyrnuna og
Vilhelm Fredriksen vippaði hon-
um yfir Guðmund markvörð sem
hafði farið í skógarferð. Á síð-
ustu mín. skoruðu Völsungar
fjórða markið og var mjög vel að
því staðið. Völsungar áttu góða
sókn upp hægri kantinn og bolt-
inn gefinn fyrir markið. Þar voru
tveir Völsungar fríir á markteig
en það var Björn Olgeirsson sem
skallaði glæsilega í markið. (Var
hann ekki búinn með kvótann?)
Lokatölur því eins og fyrr segir
4:0.
Völsungsliðið lék ágætlega í
þessum leik og ekki hægt að tína
einn einstakan leikmann úr sem
besta mann.
Þróttarar eru eins og fram kom
mjög slakir og eiga erfitt sumar
fyrir höndum. AE/Reykjavík
KS tapaði
á Selfossi
Siglfirðingar náðu ekki að
fylgja eftir góðum árangri að
undanförnu. Liðið lék á Sel-
fossi í 2. deildinni á laugardag
og fóru heimamenn með sigur
af hólmi 1:0.
Hífandi rok var á meðan
leikurinn fór fram. Selfyssingar
léku undan vindi í fyrri hálfleik
og áttu þá nokkur góð færi. KS-
menn áttu einnig sín færi sem
ekki tókst að nýta.
Sigurmarkið kom um miðjan
fyrri hálfleikinn og það var
Sigurður Halldórsson þjálfari
liðsins sem skoraði sigurmarkið.
Siglfirðingar réðu lögum og
lofum á vellinum í síðari hálfleik
og náðu að skapa sér fullt af fær-
um en inn vildi boltinn ekki og
úrslitin því 1:0 eins og áður sagði.
Eru KS-menn orðnir uggandi
yfir því hversu illa gengur að nýta
öll þau færi sem skapast í leikjum
liðsins.
STAÐAM
Staðan í 2. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu að loknum
Ieikjum helgarinnar er þessi:
Þróttur-Völsungur 0:4
Selfoss-KS 1:0
ÍBÍ-KA 1:1
Skallagrímur-Einherji 1:3
UMFN-Víkingur 1:5
Selfoss
Víkingur
KA
Völsungur
UMFN
Einherji
KS
ÍBÍ
Þróttur
Skallagrímur
5 3-2-0 7: 2 11
5 3-1-1 19: 5 10
5 2-3-0 11: 5 9
5 2-2-1 9: 3 8
5 2-2-110:10 8
5 2-2-1 7: 8 8
5 1-3-1 6: 6 6
5 0-4-1 9:11 4
5 0-1-4 5:13 1
5 0-0-5 2:22 0
1 1
STAÐAN
Staðan í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu er þessi:
FH-Fram 1:6
ÍBV-Valur 0:1
Víðir-ÍBK 0:1
ÍA-Þór 5:1
KR-UBK 3:1
KR 6 3-3-0 10: 3 12
ÍA 6 3-2-1 10: 3 11
Fram 6 3-2-1 10: 4 11
Valur 6 3-1-2 8: 4 10
ÍBK 6 3-0-3 4: 7 9
Víðir 6 2-2-2 3: 4 8
UBK 6 2-1-3 4: 6 7
Þór 6 2-1-3 8:12 7
FH 6 2-1-3 7:11 7
ÍBV 6 0-1-5 4:14 1
Islandsmótið 3. deild:
Auðveldur sigur
Tindastóls
á Austra
Austri frá Eskifirði var Tinda-
stóli auðveld bráð er liðin
mættust á Sauðárkróki á laug-
ardag í 3. deildinni í knatt-
spyrnu. Tindastóll hafði yfir-
burði allan leiktímann og vann
2:0. Hefði sá sigur getað orðið
enn stærri miðað við færi.
Fyrri hálfleikur var einstefna
að marki Austra og fyrra mark
ieiksins kom snemma í hálfleikn-
um er Tindastólsmenn fengu
dæmda vítaspyrnu. Það var
Björn Sverrisson sem skoraði af
öryggi úrspyrnunni. Heimamenn
fengu mun fleiri færi í hálfleikn-
um til að bæta við mörkum en
tókst ekki.
í byrjun síðari hálfleiks skor-
uðu Tindastólsmenn sitt annað
mark er Eyjólfur Sverrisson skor-
aði eftir góða fyrirgjöf frá Guð-
brandi Guðbrandssyni. Það var
sama sagan í seinni hálfleik,
Tindastólsmenn sköpuðu sér
mörg ágæt færi en þeim tókst
ekki að bæta við mörkum.
Austramenn fengu ekki eitt ein-
asta færi í leiknum.
Næsti leikur Tindastóls er á
miðvikudag er þeir fara á Greni-
vík og mæta Magna. Er það leik-
ur sem var frestað fyrr í vor.
Eyjólfur Sverrisson skoraöi annað
mark Tindastóls.
Leiftur tapaði stigi
á Neskaupstað
Leiftur frá Ólafsfirði gerði
jafntefli á laugardag er liðið
sótti Þrótt frá Neskaupstað
heim í 3. deildinni í knatt-
spyrnu. Hvort lið skoraði eitt
mark.
Leiftursmenn voru betri í
leiknum en þeim tókst ekki að
knýja fram sigur. í hálfleik var
staðan 0:0.
Snemma í síðari hálfleik fengu
Þróttarar dæmda vítaspyrnu sem
þeir skoruðu úr. Þótti vítaspyrn-
an frekar vafasamur dómur.
Leiftursmenn héldu áfram að
sækja og um miðjan hálfleikinn
náði Óskar þjálfari að jafna með
góðu marki og það urðu úrslit
leiksins.
Ólafsfirðingar eru farnir að
venjast því að fá á sig dæmd víti
en það hefur gerst í öllum leikj-
um liðsins í deildinni til þessa.
Magni vann
Reyni í
jofnum leik
- í 3. deildinni á laugardag
Það var fátt um fina drætti í
leik Magna og Reynis á laugar-
dag. Leikið var í miklu roki og
setti það stóran svip á leikinn.
Það voru Reynismenn sem
sóttu undan rokinu í fyrri hálfleik
en þrátt fyrir það þá skoraði
Magni fyrsta markið í leiknum.
Dæmd var vafasöm vítaspyrna á
hindrun utarlega í teignum. Jón
Ingólfsson skoraði örugglega úr
vítinu. Það sem eftir var hálf-
leiksins sótti Reynir látlaust en
uppskar þó einungis eitt mark.
Það var um miðjan hálfleikinn að
Reynismenn fengu víti og skor-
aði Kristján Ásmundsson örugg-
lega úr spyrnunni.
í seinni hálfleik var jafnræði
með liðunum. Þeim tókst báðum
að skapa sér færi en það voru ein-
ungis Magnamenn sem vissu
hvernig átti að nota þau. Á 55.
mín. komst Magni í 2-1 er einn
sóknarmaður liðsins, Sverrir
Heimisson splundraði vörn
Reynis og skoraði með fallegu
skoti. Þriðja markið kom er um
tíu mínútur voru til leiksloka.
Eiríkur markvörður Reynis
missti þá boltann frá sér og nýtti
Þorsteinn Jónsson sér það og
gerði út um leikinn 3-1.