Dagur - 16.06.1986, Síða 15
16. júní 1986 - DAGUR - 15
Samkeppni um gerð merkis Lundarskóla:
Ama Einarsdóttir
varð hlutskörpust
Álagsrofar 30-2000 A
-o-
-ð-
SF
STRAUMRAS
ÞJÓNUSTA MEÐ LOFT- HÁÞRÝSTI- OG RAFMAGNSVÖRUR
Furuvöllum 1 • 600 Akureyri • Sími 96-26988
Síðastliðinn vetur ákvað stjórn
Foreldrafélags Lundarskóla að
athuga möguleika á samstarfi
við Myndlistaskólann á Akur-
eyri og hönnuði Lundarskóla
um að efna til samkeppni um
gerð merkis fyrir Lundarskóla.
Ollum nemendum Myndlista-
skólans, 15 ára og eldri, var
heimil þátttaka. Hver nemandi
mátti koma ineð fleiri en eina
tillögu.
Akveðið var að veita ein verð-
laun að upphæð 25.000 krónur.
Hugmyndir um notkun merkis-
ins eru margar en þátttakendum
var bent á að hafa eftirfarandi
notkun til hliðsjónar: Að merkið
yrði notað í bréfhaus og á umslög
Lundarskóla, á blöð fyrir náms-
mat skólans, í stimpil fyrir skól-
ann t.d. til merkinga á bókum, á
límmiða sem merkja mætti með
ýmis gögn skóla og nemenda, að
þrykkja mætti merkinu á boli og
nota það í barmmerki ýmiss
konar. f>á hefur einnig komið
fram sú hugmynd að merkinu
yrði komið fyrir á skólabygging-
unni.
Þátttakendum var einnig bent
á að merkið þyrfti að geta verið í
einum lit þótt til greina kæmi ein-
föld litanotkun. Frjálst val var
gefið um hvort nafn skólans
kæmi fram í merkinu.
Skipuð var fimm manna dóm-
nefnd til að meta tillögurnar:
Ágúst Berg fulltrúi hönnuða
Lundarskóla, Guðmundur Ár-
mann Sigurjónsson fulltrúi
Myndlistaskólans, Magnús Magn-
ússon fulltrúi Foreldrafélags
Lundarskóla, Rósa Kristín Júl-
íusdóttir fulltrúi Lundarskóla,
Soffía Árnadóttir auglýsinga-
teiknari.
Alls bárust 65 tillögur frá 20
aðilum.
LUNDARSKOLI
Tvær ólíkar tillögur komu helst
til greina. Dómnefndin varð sam-
mála um að tillaga Örnu Einars-
dóttur uppfyllti allar áðurnefndar
kröfur og voru henni veitt verð-
launin. Hinni tillögunni var einn-
ig veitt viðurkenning en að mati
dómnefndarinnar var sú tillaga
mjög áhugaverð. Höfundur
hennar reyndist vera Aðalsteinn
Leifsson. Pað er von foreldrafé-
lagsins að þessi samkeppni og
viðurkenningarnar megi verða
höfundunum hvatning á þessari
braut.
Foreldrafélagið vill færa öllum
þátttakendum og dómnefndinni
bestu þakkir fyrir sín störf.
Myndlistaskólanum og hönnuði
Lundarskóla skal sérstaklega
þakkað fyrir gott samstarf við að
koma hugmyndinni í
framkvæmd.
Það er von foreldrafélagsins
að allir verði ánægðir með merk-
ið og að brosandi börn verði
ávallt einkenni Lundarskóla.
(Fréttatilkynning).
Erum fluttir
í Frostagötu 3b
Kæliskápa- og frystikistu viðgerðir.
Uppsetning á kæli- og frystikerfum.
Viðgerðir * Nýsmiði * Efnissala
Kæliverk sf.
Frostagötu 3B ■ Akureyri ■ Simi 96-24036
Nýsmíði -
Vélsmíði
Öll almenn
viðgerðarvinna
og efnissala.
Járntækni hf.
Frostagötu 1a.
1984
1986
Mjólk á heildsöluverði
í tilefni af 2ja ára afmæli Matvörumarkaðarins
verða eftirtaldar mjólkurvörur seldar á heildsöluverði
frá og með 16. júní til 27. júní:
Mjólk, léttmjólk, undannenna,
súrmjólk og rjómi
Bleikblesótt hryssa 6 vetra ætt-
bókarnúmer 6237 frá Hvassafelli í
Eyjafirði er til sölu. Blesa hefur all-
an gang, harðviljug, falleg og góð í
umgengni, gæf. Nánari upplýsing-
ar gefur Svanberg Þórðarson,
sími 96-22443 eftir kl. 8 á kvöldin
og í hádeginu.
★
Einnig verður öllum viðskiptavinum okkar boðið
upp á kaffi og rjómatertu milli kl. 15-17 í dag 16. júní.