Dagur - 24.06.1986, Page 11
24. júní 1986 - DAGUR - 11
Minning
Þorgerður Siggeirsdóttir
U F. 21.11. 1890 -D. 11. 5. 1986
„Að vera þér á vegi nær
æ vakti gleði og traust.
Og lífsbók þín er lofi skráð,
þú Ijúfrar hylli naust. “
(Jórunn Ólafsd.)
Þessi orð þingeysku skáldkon-
unnar koma mér í huga er ég
minnist tengdamóður minnar
Þorgerðar Siggeirsdóttur á Öng-
ulsstöðum. Þau eiga sannarlega
við hana.
Þegar ég skyggnist til baka yfir
líf hennar, lunderni og auðuga
lífsreynslu skynja ég enn betur en
fyrr, að lífsbók hennar er vissu-
lega lofi skráð. Hún naut á langri
ævi ljúfrar hylli þeirra er hún
umgekkst og lifði með.
Þorgerður Siggeirsdóttir var
fædd að Krónustöðum í Eyjafirði
21. nóv. 1890 og því á 96. aldurs-
ári er hún lést á Kristnesspítala
11. maí s.l. Foreldrar hennar
voru hjónin Siggeir Sigurpálsson
og Aðalbjörg Jónsdóttir. Siggeir
var Þingeyingur að ætt fæddur í
Reykjahlíð við Mývatn. Foreldr-
ar hans voru hjónin Sigurpáll
Guðmundsson frá Ytrafjalli í
Aðaldal Jónssonar b. á Syðra-
fjalli. Voru þeir báðir hagmæltir
vel og greindir menn. Hefir það
haldist í ættinni og leiklistaráhugi
mikill. Móðir Siggeirs var Þor-
gerður Guðmundsdóttir frá
Skógum í Fnjóskadal. Foreldrar
hennar voru Guðmundur
Jónsson, sem oft var nefndur
Skógalín, ætt hans var af Flat-
eyjardal, og Halldóra Árnadóttir
Dínussonar b. í Tungu Fnjóska-
dal og Hjaltadal. Frá þeim
Skógahjónum eru niðjar margir
dreifðir vítt um land.
Móðir Þorgerðar var Aðal-
björg Jónsdóttir frá Helgastöðum
í Eyjafirði Pálssonar b. Helga-
stöðum Gunnarssonar b. í
Hólum, og Kristín Tómasdóttir
af hinni kunnu Hvassafellsætt.
Var Aðalbjörg systir Páls Árdal
skálds og Guðrúnar móður Krist-
ínar Sigfúsdóttur skáldkonu og
fleiri systra. Þau hjón Siggeir
og Aðalbjörg voru hagmælt vel.
Svo sagði Aðalbjörg mér eitt
sinn, að suma daga hefðu þau
hjónin lítt talast við nema í
bundnu máli. Var þeim þetta
leikur einn. Bæði voru þau vel
greind og margt til lista lagt. Þau
tóku þátt í leiklist sem þá var
nokkuð stunduð í Eyjafirði.
Siggeir og Aðalbjörg bjuggu
víða en ekki lengi á hverjum
stað. Lengst voru þau á Stekkjar-
flötum í Saurbæjarhreppi. Átti
Þorgerður þaðan margar
minningar og góðar. Siggeir virð-
ist ekki hafa haft eirð í sér að búa
lengi á sama stað, en naut þess að
snyrta og byggja allt upp sem
best á hverjum stað er hann
dvaldi.
Auk Þorgerðar áttu Aðalbjörg
og Siggeir einn son Jón bónda í
Hólum í Eyjafirði sem látinn er
fyrir nokkrum árum. Hann var
hagmæltur og tónskáld, organisti
við Hólakirkju í áratugi. Vel
metinn sæmdarmaður. Synir
hans búa nú í Hólum.
Af öllu því er sagt hefur verið
hér sést að um Þorgerði stóðu
sterkir ættstofnar eyfirskir og
þingeyskir.
Hún ólst upp með foreldrum
sínum og þótti snemma vel gerð
andlega og líkamlega.
Árið 1914 giftist hún Halldóri
Sigurgeirssyni á Öngulsstöðum.
Hann var sonur Sigurgeirs b.
Öngulsstöðum Sigurðssonar
hreppstjóra á Öngulsstöðum
Sveinssonar b. Breiðabóli Hall-
grímssonar b. Efri Bægisá. Móðir
Halldórs og seinni kona Sigur-
geirs var Helga Halldórsdóttir b.
Jódísarstöðum Guðmundssonar.
Móðir Helgu var Sæunn Sigríöur
Sigurðardóttir b. í Gröf og Leyn-
ingi Randverssonar.
Þorgerður og Halldór bjuggu
allan sinn búskap á ÖnguLsíöð-
um við mikla rausn. Halldór tók
mikinn þátt í félagslífi sveitar'nn-
ar sinnti mjög sveitarmálum.
Þótti dugandi maður hvar sem
hann lét til sín taka og vin ’æll
vel. Halldór dó 25.2. 1967.
Börn þeirra Öngulsstaðahjóna
eru: Þórhallur smiður á Örguls-
stöðum, ókvæntur, Aðalbjörg gift
Sigurði Guðmundssyni vígslu-
biskupi á Grenjaðarstað, Helga
matráðskona hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa, Sigurgeir bóndi
Öngulsstöðum kvæntur Guðnýju
Magnúsdóttur frá Litladal, Jó-
hanna gift Gísla Ólafssyni bónda
Brúum Aðaldal.
Auk þess ólu þau upp að mestu
Ieyti Valdimar Pétursson dóttur-
son sinn. Hann er kvæntur Alice
Zackrissen, danskri konu.
Þorgerður á Öngulsstöðum var
fyrst og fremst húsmóðir og ann-
aðist heimili sitt af mikilli prýði.
Þangað var ætíð gott að koma og
þar að vera. Skynja öryggi og
festu í stjórn húsráðenda en um
leið mildina, birtuna - elskusemi
þeirra beggja. Þangað lögðu líka
margir leið sína. Gestrisni þeirra
hjóna var annáluð. Gleði og sam-
heldni var ráðandi. Margir
vandalausir dvöldu á heimili
þeirra. Þeir eru margir ungl-
ingarnir sem voru þar sumarlangt
við starf og leik og sumir þeirra
mörg sumur. Þeir eiga margar
minningar þaðan og góðar. Ungl-
ingarnir löðuðust að húsmóður-
inni. Sú umhyggja sem hún sýndi
þeim var þeim mikils virði. Þeir
þroskuðust í því góða og fagra í
návist Þorgerðar og Halldórs.
Á Öngulsstöðum er margbýlt
og svo hefur verið löngu. Systkini
Halldórs bjuggu þar og fjölskyld-
ur þeirra. Jörðin stór og kosta-
mikil. En dugnað þurfti til að
framfleyta stórum fjölskyldum
ekki síst á kreppuárunum milli
stríða. Samvinna var ætíð góð
milli fjölskyldnanna og sam-
komulag undurgott. Hópur
barna óx upp saman. Frænd-.
systkinin mörgu á Öngulsstöðum
öllum voru samrýmd og frænd-
semi með þeim góð.
Eiga þau öll margs að minnast
frá æskudögum og eru þakklát
húsráðendum öllum.
Þorgerður tók og þátt í starfi
utan heimilis. Hún hafði ágæta
söngrödd og var með afbrigðum
lagviss. Það var henni ætíð gleði
að taka þátt í söng og hlýða á
góða tónlist. Hún söng í kirkju
sinni frá unglingsaldri fram á efri
ár.
í kvenfélagi sveitar sinnar var
hún lengi virkur félagi og er hún
hætti að starfa þar var hún gerð
að heiðursfélaga í þakklætisskyni
fyrir góð störf og þann góða fé-
lagsanda er hún bar æ með sér.
Þorgerður var minnug og skýr í
hugsun allt til efsta dags.
Eftir hún hætti búskapar- og
heimilisstörfum tók hún að safna
úrklippum úr blöðum og líma inn
í bækur. Er þetta merkilegt safn.
Kennir þar margra grasa. Lausa-
vísur eru margar bækur. Kirkjur
og kirkjulegar athafnir þekja síð-
ur margra bókanna. í öðrum eru
leikarar, merk hús, hestar og fl.
og fl. Allt er þetta gert af smekk-
vísi og er þarna margan fróðleik
að finna. Gaman er að blaða í
gegnum bækurnar. Þær munu
vera á annað hundrað. Sumum
fannst fátt um þetta, er hún byrj-
aði á því en brátt sáu allir að
þarna var um menningarstarf-
semi að ræða. Og eru þakklátir,
að hún kom þessu í verk. Hún
vann að þessu uns sjón hennar
tók að bila og líkamskraftar að
fjara.
Á síðustu árum rifjaði hún
gjarnan upp margt sem skeð
hafði fyrr á ævi allt frá æskudög-
um. Hún talaði margt af því inn á
band og mun sá fróðleikur geym-
ast næstu kynslóðum til mikils
fróðleiks. Eftir að hún hafði
misst sjónina að mestu lýsti hún
fjallahringnum í Fram-Eyjafirði
og þá ekki aðeins helstu tindum,
heldur nákvæmlega mörgum
hnjúkum og dölum. Búendur í
Möðruvallasókn fram, er hún var
að alast upp mundi hún og lýsti
þeim og húsakynnum að nokkru.
Geysimikill fróðleikur er til eftir
hana frá gömlum tíma og er sumt
þegar komið á þjóðháttasafn.
Hún unni sögu þjóðar sinnar
og þjóðlegum fróðleik öllum.
Margur ungur nam við fótskör
hennar margt það er veitti þroska
og lífssýn fagra. Þorgerður var
vandlátlega sönn í hugsun og
hegðun allri. í henni bjó það sál-
arlega og siðræna atgervi er gerði
hana frjálslynda konu, víðsýna
og tillitssama. í persónulegum
viðhorfum daglega lífsins var hún
ekki aðeins góðgjörn heldur og
glöggskyggn.
Þeir sem blönduðu geði við
hana allt til loka lífs hennar
fundu alltaf sömu hlýjuna og
reisnina á hverju sem gekk. Bros-
ið hennar var alltaf hlýtt. Það var
aldrei frost eða kuldi í svip henn-
ar eða viðmóti.
Þorgerður á Öngulsstöðum átti
þá Iífsstefnu að gefa næman
gaum að ástæðum annarra og
veita lið þar sem þörf var. Sýna
trúmennsku í hverju atriði
lífsins. Rétta óbeðin hjálparhönd
og gera það helst þannig, að þeir
einir vissu er nutu. Það er eitt af
markmiðum lífslistar. Kristinn
kærleikur í verki.
Hún kom ætíð fram sem hinn
sáttfúsi maður sem veit, að lífið
krefst mikils og skoðanir og
athafnir eru misjafnar. Hún var
kona friðarins. Hún skynjaði svo
undurvel, að kærleikur og
umburðarlyndi eru þær eigindir
sem bestar eru til heilbrigðs lífs.
Þess vegna var svo undurgott að
vera með henni. Hún starfaði í
reynd alla ævi, þó að líkamskraft-
ar væru þrotnir. Hún var alltaf að
gefa öðrum af auðlegð hjarta
síns. Alla ævi sótti hún mátt og
frið í lifandi Guðstrú. Á vörum
hennar voru bænir til Guðs fyrir
öllum sem lnin unni. Hún átti
langan lista í huga sér þeirra er
hún daglega bað fyrir. Það var
gott að lifa undir bænarorðum
hennar.
Það var birta trúarinnar yfir
henni allar stundir. Það var bjart
yfir Munkaþverárstað þegar hún
var kvödd þann 17. maí sl. og
lögð við lilið manns síns sem
hafði veitt henni styrk og unað í
lífinu og hún ætíð minntist með
miklu þakklæti.
Við vorum að kveðja og þakka
henni og þeim báðum sem höfðu
gefið okkur svo mikið, veitt
okkur svo mörgum gleði, þroska
af góðvild sinni og miklum mann-
dómi.
Við skildum, að yfir öllu sveif
andi elskunnar og ljúfleikans og
því eru orð skáldkonunnar rétt-
mæt hér:
„Og lífsbók þín er lofi skráð, þú
Ijúfrar hylli naust.“
Guð blessi minningu Þorgerð-
ar á Öngulsstöðum.
Sigurður Guðmundsson.
Markmið okkar
er einfalt!
„Ánægðir viðskiptavinir“
Nú hefur Skipadeild Sam-
bandsins stórbætt þjón-
ustu sína við Norðlend-
inga og ráðið markaðs-
fulltrúa á Akureyri.
Skipadeild Sambandsins
hvetur viðskiptamenn
sína og aðra sem áhuga
hafa, að kynnast kostum
þeim og kjörum sem nú
bjóðast í flutningum.
Skipadeild Sambandsins
Helgi Sigfússon markaðsfulltrúi
sími 21400 og 22397 ■ Telex: 2195