Dagur - 24.06.1986, Qupperneq 12
Skógræktarfélag Eyfírðinga • Gróðrarstöðin í Kjarna:
Hý/'M
Akureyri, þriðjudagur 24. júní 1986
Skagafjörður:
Siimir langt komn-
ir með kvótann
Leitið upplýsinga í
síma 24047.
Póstsendum
um allt land.
Plöntusala ífullum gangi
Barrtré * Lauftré ★ Skrautrunnar ★ Berjarunnar ,
Limgerðisplöntur ★ Klifurplöntur ★Skógarplöntur ★ Rósir.
Að sögn Snorra Evertssonar
samlagsstjóra í Mjólkursam-
lagi Skagafjarðar þarf mjólk-
Bílastæði við VMA:
Samið við
Möl og sand
„Menn litu svo á að ekki væri
ástæða til að semja við aðra
verktaka ttm vinnu, þar sem
við erum með verksamning við
Norðurverk. Enda munaði
ákaflega litlu á tilboðunum,“
sagði Torfi Sigtryggsson, en
þrjú tilboð bárust í jarðvegs-
skipti vegna bflastæða við
bóknámsálmu Verkmennta-
skólans.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp
á 587.500 krónur og eins og áður
sagði bárust þrjú tilboð í verkið,
hið lægsta frá Möl og sandi upp á
473.500, það næstlægsta frá
Norðurverki upp á 477.500 og frá
Stefni 562.200.
Bygginganefnd Verkmennta-
skólans samþykkti að mæla með
tilboði frá Norðurverki, en á
fundi bæjarráðs var aftur á móti
samþykkt að ganga til samninga
við lægstbjóðendur, Möl og sand.
-mþþ
urframleiðslan í héraðinu að
dragast saman um 9% í júní-
ágúst til að unnt verði að
greiða bændum fullt verð fyrir
framleiðslu þessa verðlagsárs.
Nokkrir bændur eru langt
komnir með mjólkurkvótann
og er reiknað með að margir
verði búnir um miðjan ágúst.
Það eru bændur í Hegranesinu
sem virðast fara einna verst út
úr framleiðsluskerðingunni af
bænduitt í Skagafirði.
Blaðið hafði samband við einn
bóndann í Hegranesinu, Leif
Þórarinsson bónda í Keldudal.
Kvaðst hann, vera mjög óánægð-
ur með hlut bænda í Nesinu og þá
sér í lagi með 5 prósentin sem
skilin voru eftir og skipt milli
bænda nú í vor. Þeir Hegranes-
bændur hefðu þar ekki fengið
einn einasta lítra.
Við þetta er að bæta að stjórn
Búnaðarsambands Skagafjarðar
var falið að skipta þessum 5 pró-
senturn. Að sögn Þórarins Sól-
mundarsonar hjá Búnaðarsam-
bandi Skagafjarðar var þessu
skipt eftir ákveðnum reglum og
þá miðað við framleiðslu. Ekki
fengu líkt því allir úthlutun af
þeim 80 sem um sóttu. Þórarinn
kvað þessa 5% reglu aðejns vera
gildandi í ár, og ekki væri þar
með sagt að þeir sem nú fengju
úthlutað fengju úthlutað aftur
næsta ár. -þá
Líf og fjör í sundlauginni.
—___________________________________- .A.~ *'_________________________________
MyndiKGA.
Atvinnukönnun í byggingariðnaði:
Búist við verkefna-
skorti í sumar
Nýlokið er atvinnukönnun
Landssambands iðnaðar-
manna í byggingariðnaði.
Spurt var um starfsmanna-
fjölda, verkefnastöðu, helstu
verkefni nú í upphafí sumars
og á sama tíma í fyrra. Enn-
Samnorræn málefni rædd að Hrafnagili í gær.
Mynd:KGA.
Vinabæjamót að Hrafnagili
Á Hrafnagili í Eyjafírði stend-
ur nú yfír vinabæjamót. Það
eru 53 fulltrúar frá Akureyri
og vinabæjum Akureyrar á
hinum Norðurlöndunum sem
þar þinga. Bæirnir eru Vester-
ás í Svíþjóð, Randes ■ Dan-
mörku, Lathi í Finnlandi og
Alasund í Noregi, auk Akur-
eyrar.
Þetta er í 5. skipti sem Akur-
eyringar halda vinabæjamót af
þessu tagi, en þau eru árlegur
viðburður í vinabæjunum til
skiptis. Það var árið 1963 sem
Akureyri kom inn í þetta vina-
bæjasamstarf og það var 1966
sem vinabæjamót var fyrst haldið
á Akureyri.
Á vinabæjamótunum er ákveð-
ið þema sem fjallað er um og að
þessu sinni er það náttúruvernd
og útivist. Mótið stendur yfir í
tæpa viku, var sett á sunnudags-
kvöld og verður slitið á föstu-
dagskvöld næst komandi. Mótið
var sett með því að hver fulltrúi
gróðursetti eitt tré og skrifaði
síðan nafn sitt á laufblað sem
hengd voru á tré. Haldnir verða
fyrirlestrar og unnið í hópvinnu á
mánudag og þriðjudag, en síðan
verður ferðast um Norðaustur-
land á miðvikudag og fimmtu-
dag, en á fimmtudagskvöld og
föstudag dveljast þátttakendar í
heimahúsum.
Mót þetta er einnig norrænt
æskulýðsleiðtogamót, skamm-
stafað NUL, Nordisk ungdoms-
leder uke. Fulltrúarnir eru því
sérstaklega valdir úr röðum for-
ingja í æskulýðsfélögum. -HJS
fremur var spurt um uppsagnir
fastra starfsmanna.
Svör bárust frá 87 fyrirtækjum
og iðnmeisturum, sem hafa í
þjónustu sinni um 1600 starfs-
menn og lætur nærri að það séu
um 20% þeirra sem starfa við
byggingariðnað á vegum einka-
aðila. Fjöldi þátttakenda í
könnuninni skiptist jafnt á milli
höfuðborgarsvæðisins og lands-
byggðarinnar.
Niðurstöður könnunarinnar
sýna, að starfsmenn í byggingar-
iðnaði á landinu öllu hafi verið
tæplega 7% færri í byrjun apríl
s.l. en á sama tíma í fyrra. Mest-
ur samdráttur virðist hafa orðið í
múrun. Áætlun fyrirtækjanna um
starfsmannafjölda um mitt þetta
ár bendir til um 14% fjölgunar
starfsmanna í byggingariðnaði á
tímabilinu apríl 1986 til júlí 1986.
Um 8% þeirra sem svöruðu töldu
sig hafa skort verkefni á tímabil-
inu apríl til júní en um 19% fyrir-
tækjanna búast við verkefna-
skorti á tímabilinu júlí til sept-
ember.
Spurt var um verkefnaskipt-
ingu árið 1985 og áætlaða verk-
efnaskiptingu 1986. í ljós kom að
miðað við 1985 verður hlutfalls-
legur samdráttur í byggingu
íbúðarhúsnæðis á árinu 1986,
einkum á kostnað atvinnuhús-
næðis. Það kom fram að á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs
höfðu fyrirtækin þegar sagt upp
46 starfsmönnum, þar af 36 á
höfuðborgarsvæðinu. Uppsagnir
á tímabilinu apríl til júní voru
hins vegar óverulegar. -HJS
Akureyrarbær:
Stjómkerfisbreytingar
gengnar í gildi
Breytingar þær sem ákveðið
var að gera á stjórnskipulagi
Akureyrarbæjar og kynntar
hafa verið í Degi, hafa flestar
tekið gildi nú þegar, þ.e. um
leið og ný bæjarstjórn tók við
völdum þann 15. júní s.l. Á
fundi bæjarráðs um síðustu
mánaðamót voru þær endan-
lega samþykktar, þó með
nokkrum frávikum.
Svo sem kunnugt er fela þessar
breytingar m.a. í sér fækkun
nefnda og jafnframt fækkun
nefndarmanna úr 7 í 5 í flestum
tilfellum. Sumar nefndir verða
lagðar niður og í nokkrum tilfell-
um eru margar nefndir sameinað-
ar í eina.
Ákveðið var að fresta því að
öldrunarráð yfirtaki stjórn heim-
ilisþjónustu og félagsstarf aldr-
aðra, en félagsmálaráði falin
umsjón þessara mála þar til ráð-
inn hefur verið forstöðumaður
öldrunarþjónustu, sem jafnframt
verði forstöðumaður dvalarheim-
ilanna. Félagsmálaráði og öldr-
unarráði er falið að gera tillögur
til bæjarráðs um tengsl þessara
nefnda.
Þá er umhverfismálanefnd fal-
ið að gera tillögur til bæjarráðs
um framtíðarskipan mála Lysti-
garðs og Náttúrugripasafns í
samræmi við þá samþykkt að
þessar stofnanir verði ein stofnun
með einum forstöðumanni.
Þangað til verður rekstur þessara
stofnana með óbreyttum hætti.
BB.