Dagur - 18.08.1986, Síða 2
2 - DAGUR - 18. ágúst 1986
DHEl
ÚTGEFANDI. ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SIMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavik vs. 41585 hs. 41529), RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
^JeiðarL
Reykjavík 200 ára
Höfuðborgin okkar á 200 ára afmæli í dag
og eins og nærri má geta verður mikið um
dýrðir. í dag er þess minnst að 200 ár eru
liðin frá því að Reykjavík voru veitt kaup-
staðarréttindi. Með konungsauglýsingu
hinn 18. ágúst 1786 var verslun á íslandi
gefin frjáls og jafnframt fengu 6 verslunar-
staðir á íslandi kaupstaðarréttindi, þar á
meðal Reykjavík.
200 ár er ekki hár aldur þegar um borg er
að ræða og með sanni má segja að Reykja-
vík sé ung borg í örum vexti. Reyndar hef-
ur vöxturinn verið mjög hraður á okkar
mælikvarða. Fyrir hundrað árum bjuggu
einungis um tvö þúsund manns í Reykja-
vík, tæp 3% þjóðarinnar en í dag búa þar
rúmlega 90 þúsund manns, tæp 40% þjóð-
arinnar. Frá kaupstaðarstofnun í Reykjavík
hefur stöðugt verið unnið að eflingu bæjar-
ins, sem frá árinu 1962 hefur borið borgar-
heitið. Reykjavík er höfuðborg allra
landsmanna og þjóðin öll hefur tekið þátt í
að skapa hana og móta. Það er nauðsyn-
legt að hafa styrka höfuðborg og vissulega
eru náttúruskilyrði á höfuðborgarsvæðinu
hagstæð til þéttbýlismyndunar. Þess verð-
ur þó að gæta að jafnvæginu í byggð lands-
ins verði ekki raskað.
Undanfarin ár hefur það færst í aukana
að fólk flytjist úr dreifbýlinu á höfuðborgar-
svæðið. Það er að mörgu leyti skiljanlegt
þegar tekið er tillit til þess að í Reykjavík er
mesta þenslan, þar eru peningarnir. En ís-
lendingar mega ekki gleyma uppruna sín-
um, gleyma því á hverju tilvist okkar sem
sjálfstæð þjóð byggist. Peningaseðlar eru
ekki raunveruleg verðmæti, þeir eru ávísun
á verðmæti. Hin raunverulega verðmæta-
sköpun fer að miklu leyti fram úti á landi,
þar sem undirstöðuatvinnuvegirnir eru
stundaðir. Við verðum því að stemma stigu
við byggðaröskuninni.
Allir landsmenn hafa ástæðu til að gleðj-
ast á þessum tímamótum. Reykjavík er
höfuðborgin okkar allra og öll viljum við
veg hennar sem mestan. Dagur sendir
landsmönnum öllum hugheilar árnaðar-
óskir á þessum tímamótum í íslandssög-
unni. BB.
_viðtal dagsins.
„Höfum sterkar rætur
á landsbyggðinni “
segir Páll Pétursson frá Höllustöðum
Þingflokksfundur Framsókn-
arflokksins verður haldinn á
Sauðárkróki dagana 24.-25.
þ.m. Þar verður meðal annars
rætt um stjórnmálaviðhorfið í
dag, fjárlögin og bankamál.
Það var því ekki úr vegi að
spjalla við formann þingflokks
Framsóknarflokksins; Pál Pét-
ursson, þegar hann var staddur
á Akureyri á dögunum.
- Nú munuð þið mjög líklega
fjalla um fjárlögin. Hvað viltu
segja um þau?
„Við búum við halla á fjárlög-
um og hann verður að minnka.
Það er illmögulegt að eyða hon-
um í einu, en það verður að gera
eitthvað. Það hefur alltaf verið
lenska á íslandi að vilja ekki
borga skatta. Innan Sjálfstæðis-
flokksins eru uppi raddir um
niðurskurð í opinbera geiranum.
Þeir vilja minnka samneysluna.
Hún er ekki af hinu illa. Fram-
sóknarflokkurinn hefur alltaf
staðið vörð um félagslegt öryggi.
Það er hlutverk flokksins að sjá
til þess að svo verði. Það vekur
líka athygli að samneysla er mun
meiri hjá öðrum Norðurlanda-
iþjóðum. Einkaneysla íslend-
inga er yfirgnæfandi meiri en
annars staðar á Norðurlöndum.
Svo er talað um skattpíningu.
Hvernig er þá ástandið annars
staðar? Skattpeningum á íslandi
er vel varið. Framsóknarflokkur-
inn hefur t.d. alltaf séð til þess að
jafnrétti til náms sé mögulegt,
t.d. með stuðningi við Lánasjóð
íslenskra námsmanna. Nám á
ekki að vera forréttindi ríkra.
Fólk á íslandi getur líka leyft sér
að vera veikt og leitað sér lækn-
inga. Það er þetta félagslega
öryggi sem flokkurinn stendur
vörð um. En bankamál verða
einnig til umræðu á fundinum.
Þar verður meðal annars rætt um
hvernig ráða eigi fram úr vanda
Útvegsbankans. Nokkrar leiðir
eru til og verður engum leiðum
lokað í umræðum þingmann-
anna.“
- En hvaða leiðir eru færar í
Útvegsbankamálinu?
„Þó íhaldið í Útvegsbankanum
hafi lánað sínum svokölluðu
frjálsu athafnamönnum mikið fé,
þá þarf almenningur ekki að ótt-
ast að missa peningana sína.
Framsóknarmenn vilja að bank-
inn gegni áfram sínu hlutverki.
Ég er ekki trúaður á að einka-
banki, sem eingöngu er gróðafyr-
irtæki, og allra síst með erlendum
eigendum, geti starfrækt sitt hlut-
verk að þjóna almenningi í land-
inu. Slíkur banki mymdi ekki fylla
það tóm sem Útvegsbankinn
myndi skilja eftir sig. Mögu-
leikarnir í bankamálinu eru aðal-
lega þrír. Sá fyrsti felst í því að
stofnað yrði hlutafélag, þar sem
Iðnaðarbankinn ætti fjórðung,
yerslunarbankinn fjórðung,
Útvegsbankinn hefði fjórðung og
erlendur banki ætti síðasta fjórð-
unginn. Þetta tel ég ekki vera
fýsilegan kost. Annar kosturinn
væri sá að sameina Búnaðar-
bankann og Útvegsbankann.
Búnaðarbankinn hefur tekið
þeim kosti frekar fálega. Þá væri
einnig möguleiki á að skipta
Útvegsbankanum milli Lands-
bankans og Búnaðarbankans. 2
öflugir ríkisbankar eru að mínu
mati óskalausn, en vafalaust
væru þar mörg tæknileg vanda-
^mál, sem þó ætti að vera hægt að
leysa.
Þriðja lausnin væri sú að rétta
Útvegsbankann einfaldlega við
og reka hann á sama hátt og hann
hefur verið rekinn undanfarin ár.
Þetta getur verið eina leiðin sem
er fær. Málið er bara það að
ríkissjóður er ekki mjög aflögu-
fær til þess.“ Páll var spurður um
ástæðu þess að fundurinn væri
haldin á Sauðárkróki: „Það var
ákveðið seint í vetur að hafa
hann þar. Við höfum sterkar ræt-
ur á landsbyggðinni og því er
þetta að vissu leyti gott tækifæri
til að hafa samband við fólkið í
landinu. Þingflokkurinn reynir
líka að kynnast atvinnulífinu á
Sauðárkróki, þvívissúlega er það
uppgangsbæjarfélag. Þetta er
skemmtilegur bær og mikið að
sjá.“
Þingflokkurinn mun einnig líta
á nokkur frumvörp, t.d. frum-
varp um breytingar á iðnaðarlög-
um, sem iðnaðarráðherra hefur
lagt fram. „Þetta er næstum því
sama frumvarp og sjálfstæðis-
menn lögðu fram í fyrra, það
kom ekki til greina þá og ég efast
um að það geri það núna.“ Þá
mun einnig verða komið eitthvað
inn á hvalamálið og framkomu
Bandaríkjamanna gagnvart
íslendingum. Páll sagði um það
mál:
„Þetta er ekki búið. Halldór
vann áfangasigur, en Bandaríkja-
menn hafa aðrar leiðir, t.d. að
hræða Japani. Það er augljóst að
núverandi Bandaríkjastjórn hef-
ur ekki verið íslenskum hags-
munum þægileg. Má þar benda á
lagasetningu þeirra um flutninga
til varnarliðsins, kjötinnflutning
•þeirra, sem í raun stofnar öll-
um landbúnaðinum í hættu vegna
sjúkdóma- og sótthættu. Og svo
hvalamálið."
- En hverjir eru möguleikarn-
ir á haustkosningum?
„Ja, ef sjálfstæðismenn koma
ekki með almennileg fjárlög, þá
er sá möguleiki fyrir hendi. En
það verður ekki Framsóknar-
flokkurinn sem rýfur stjórnar-
samstarfið út af öðrum málum og
Sjálfstæðisflokkurinn rýfur það
ekki út af fjárlagafrumvarpinu
því Þorsteinn Pálsson verður að
koma frá sér almennilegum fjár-
lögum, því annars er stjórn-
málaferill hans í alvarlegri hættu.
En ég ber fullt traust til Þor-
steins, því hann lítur ávallt raun-
hæft á málin og skilur að það þarf
að afla á móti eyðsiu. Þorsteinn
er skynsamur maður. Það er á
hreinu.“ -SÓL