Dagur - 18.08.1986, Blaðsíða 3
18. ágúst 1986 - DAGUR - 3
Frá tölvukynningu IBM í Ganila-Lundi.
Víóla á Skagaströnd:
Hafa ráðið annan hönnuð
- eftir svik hönnuðar „Doris day and night“
Það er eflaust mörgum í fersku
minni þegar skýrt var frá því í
fréttum síðastliðið vor, að
saumastofan Víóla á Skaga-
strönd væri að koma með nýj-
ungar á markaðinn í prjóna-
vörum og var jafnvel haft á
orði að hinn íslenski tískufatn-
aður gæti orðið samkeppnisfær
í hinum stóra tískuheimi. En
margt fer öðruvísi en ætlað er.
Samstarfið við hönnuð þessa
fatnaðar, sem gekk undir nafninu
„Doris day and night“, var stutt
og fékk heldur leiðinlegan endi.
Eftir ágæta byrjun samstarfsins
og eftir að hönnuðurinn hafði
sjálfur tekið nokkuð af fram-
leiðslunni til sölu í sinni eigin
verslun í Reykjavík, vildu Víólu-
„Það er ekki mikið byggt á
vegum hreppsins í sumar,“
sagði Ofeigur Gestsson sveit-
arstjóri á Hofsósi. „Þó er verið
að vinna við nokkrar bygging-
ar.“
Hofsóshreppur festi kaup á
húsi á staðnum og er verið að
breyta því þannig að það þjóni
sínu hlutverki sem leikskóli.
Einn verkamannabústaður er í
smíðum á vegum hreppsins og
menn fara að ganga betur frá
samstarfssamningnum. En þá
kom babb í bátinn.
Hönnuðurinn var nefnilega
kominn í samstarf við annan
framleiðanda, mun stærri og eftir
því sem næst varð komist, var
þarna um sama tískufatnað úr ull
að ræða. Nú var úr vöndu að
ráða, en þeir gáfust ekki upp,
Skagstrendingarnir, heldur réðu
þeir þegar annan hönnuð og mun
þess ekki vera langt að bíða að ný
framleiðsla líti dagsins ljós frá
saumastofunni Víólu. En eftir
stendur að fyrrverandi hönnuður
fyrirtækisins skapaði því mikil
vandræði með þessari framkomu
sinni og auk þess hefur blaðið
fregnað að enn hafi ekkert verið
greitt af þeim fatnaði sem hönn-
miðar því verki vel. Einnig er
verið að vinna að stækkun
slökkvistöðvar og eru það ýmsir
svo sem björgunarsveit og
fleiri aðilar sem vinna það verk í
sameiningu. í nýja hluta hússins
verður geymsla fyrir sjúkrabíl,
auk þess sem björgunarsveit stað-
arins fær þar aðsetur. „Þetta er
nú það helsta í byggingamálum
hér á staðnum þessa stundina,"
sagði Ófeigur. gej-
uðurinn tók til sölu í verslun
sína, en þar mun vera um að
ræða fatnað upp á 180.000 kr.
G.Kr.
Blönduós:
Tvö tilboð í
uppsteypu
íþróttahússins
Nýlega voru opnuð á Blöndu-
ósi tilboð í áframhaldandi
byggingarframkvæmdir við
íþróttahúsið á staðnum, en á
síðasta ári var lokið við botn-
plötu þess. Áfanginn sem boð-
inn var út núna er uppsteypa
fyrsta og annars áfanga bygg-
ingarinnar. Tvö tilboð bárust í
verkið.
Trésmiðjan Stígandi bauð
7.089.000 og Hjörleifur Júlíusson
og Sigurjón Ólafsson buðu
7.552.000, en áætlaður kostnaður
við verkið var 7.227.000.
Miðað er við að verkinu verði
lokið 1. desember 1987, en
fyrirvari er á að fresta megi verk-
inu fram á 1988 og skal tilkynning
þar um, ef til kemur, hafa borist
fyrir 1. apríl 1987.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um við hvern samið verður,
en tilboðin eru til athugunar.
G.Kr.
Hofsós:
Lítið um nýbyggingar
„Hefurverið furðu gott“
- segir Björn Eiríksson, verkstjóri hjá Vélsmiðju Húnvetninga,
sem veitir þjónustu um helgar
„Ég held að þetta hafl bara
verið furðu gott,“ sagði Björn
Eiríksson, verkstjóri hjá Vél-
smiðju Húnvetninga á Blöndu-
ósi, þegar hann var inntur eftir
hvernig helgarþjónusta sú sem
VH býður upp á í sumar hefði
gengið.
„Þetta gengur þannig fyrir sig
að við erum með símsvara og
hann gefur upp hverjir eru á vakt
og símanúmer hjá þeim. Þannig
að ef enginn er hérna er bara að
hringja í þá sem eru á vaktinni og
þeir koma strax á staðinn,“ sagði
Björn. Þá sagði hann að þessi
þjónusta væri fyrir hendi frá því
seinnipartinn á föstudögum og
fram á mánudagsmorgun.
Ferðamenn hafa notfært sér
þessa þjónustu nokkuð mikið í
sumar og sagði Björn að það
væru alls konar viðgerðir sem
menn þyrftu að fá, allt frá
sprungnu dekki upp í eitthvað
miklu stærra. Þá taldi hann lík-
Iegt að að fenginni þessari
reynslu, yrði þessari þjónustu
Vélsmiðjunnar haldið áfram
næsta sumar. Hann sagði að það
færi sjálfsagt eftir umferðinni
hvenær þeir hættu þessu í haust,
en eins og er er mjög mikil
umferð ferðamanna um Blöndu-
ós og því má búast við að hægt
verði enn um nokkurn tíma að fá
gert við í Vélsmiðju Húnvetn-
inga, ef menn eru í einhverjum
vandræðum með bíla sína.
G.Kr.
Nú fer hver
að verða síðastur
Hættið vangaveltum. Drífið ykkur.
Haustlokun nálgast
Góð skemmtun fyrír fólk á öllum aldrí.
TÍVOLÍBÁTAR LEIRUTJÖRN.
Konur — Konur
Eldfjörug 5 daga krúttmagaferð til Glasgow
(jólainnkaup) 19.-23. nóv. nk.
Ferðatilhögun: Brottför frá Akureyri að kvöldi 18.
nóvember gist á Hótel Loftleiðum. Haldið til Glasgow kl.
08.00 að morgni 19. nóvember. Gisting og morgunverð-
ur í hinu rómaða Hospitality-Inn 4ra stjömu hóteli.
Sameiginlegur Gala kvöldverður með léttu ívafi á laug-
ardagskvöldið.
Lent á Akureyri beint frá Glasgow sunnudagskvöldið
23. nóvember.
Fararstjóri Ásdís Árnadóttir ásamt krúttmögum.
Allt þetta ásamt flugvallasköttum
fyrir aðeins kr. 19.900.-
Samvinnuferdir - Landsýn
Skipagötu 14, símar 21400 og 23727.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Skrifstofumaður
Auglýsum laust til umsóknar starf skrifstofumanns.
Starfið felst að mestu leyti f sendiferðum auk
almennra skrifstofustarfa. Þarf að hafa bílpróf. Laun
eru samkvæmt kjarasamningum BSRB og ríkisins.
Upplýsingar um starfið eru veittar hjá deildarstjóra
starfsmannahalds.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegur 118, 105 Reykjavík.
VSd Seitum eftir starfsféiki
í eftSrtalSn störfs
* Skrifstofustarf
Skrifstofumann til almennra skrifstofustarfa og bók-
haldsvinnu. Um heilsdagsstarf er að ræða.
Verslunarmenntun og/eða reynsla í skrifstofustörf-
um nauðsynleg.
Góð laun í boði fyrir réttan starfsmann.
* Lager — Útkeyrsla
Tvö störf á lager og til útkeyrslu hjá heildsölufyrir-
tækjum. Traust og góð fyrirtæki. Um er að ræða
heilsdagsstörf.
* Tölvuskráning
Starfsmann við tölvuskráningu hjá bankastofnun.
Vinnutími frá kl. 13.45-17.00.
Umsækjendur um öll þessu störf þurfa að geta hafið
störf sem allra fyrst.
Umsóknareyðublöð á skrifstofunni.
RAÐNINGARÞJONUSTA
FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri ■ slmi 25455
Framhaldsaðalfundur
FUF á Akureyri og nágrenni
verður haldinn fimmtudaginn 21. ágúst 1986 að
Eiðsvallagötu 6 (Bólu) og hefst kl. 20.00.
Dagskrá: l.Kosning stjórnar.
2. Kosning fulltrúa á SUF-þing.
3. Önnur mál.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
F.U.F.A.N.