Dagur - 18.08.1986, Blaðsíða 5
18. ágúst 1986 - DAGUR - 5
Vísitala
framfærslukostnaðar:
1,13%
hækkun
/ ■ / if
i juli
- samsvarar 9,3% verð-
bólgu á heilu ári
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í ágústbyrj-
un 1986. Reyndist hún vera
172,82 stig (febrúar 1984 =
100), eða 1,13% hærri en í júlí-
byrjun 1986.
Af þessari 1,13% hækkun stafa
0,3% af hækkun á verði matvöru,
sem rekja má til 71,5% verð-
hækkunar á kartöflum. 0,1%
stafa af hækkun á verði fatnaðar,
0,2% af hækkun húsnæðisliðs,
0,2% af hækkun á verði nýrra
bifreiða, nær 0,4% vegna verð-
hækkunar orlofsferða til útlanda
frá því í fyrra og um 0,6% vegna
hækkunar á verði ýmissa vöru- og
þjónustuliða. Þessu til frádráttar
kemur verðlækkun á kindakjöti
og smjöri vegna aukinnar niður-
greiðslu ríkissjóðs, sem olli um
0,5% lækkun vísitölunnar, og
verðlækkun á bensíni um 3,9%,
sem olli 0,14% lækkun vísitöl-
unnar.
Hækkun vísitölunnar um
2,24% frá maí-ágúst er 0,38%
meiri en lagt var til grundvallar
við gerð kjarasamninga í febrúar
í vetur.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 19,3%. Hækkun vísi-
tölunnar um 1,13% á einum
mánuði frá júlí til ágúst svarar til
14,4% árshækkunar. Undan-
farna þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 2,2% og jafngildir sú
hækkun 9,3% verðbólgu á heilu
ári.
Húsavík:
108
gáfu blóð
„Við vorum ákaflega ánægð
með viðbrögðin, fólk brást
flljótt og vel við,“ sagði Sigurð-
ur Þórarinsson formaður
Rauða kross deildarinnar á
Húsavík. Á mánudag fór fram
hin árlega blóðsöfnun á vegum
Blóðbankans og Rauða kross-
ins í barnaskóla Húsavíkur.
Auglýst var eftir blóðgjöfum í
útvarpi, hengdar voru upp aug-
lýsingar á vinnustöðum og í versl-
unum. Einnig ók bifreið Rauða
krossins með hátalarakerfi um
bæinn og var fólk hvatt til að
koma og gefa blóð. Það urðu alls
108 manns sem urðu við þessari
beiðni og gáfu blóð á mánudag,
en á Húsavík mæta venjulega um
eða yfir 100 manns til blóðgjafar
og þykir það góð þátttaka. Þess
má geta á í fyrra mættu 98 manns
til blóðgjafar, 49 karlar og 49
konur. IM
Árlega deyja
hundruö
íslendinga
af völdum
reykinga.
LANDLÆKNIR
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Hússtjórnarsvið
Akureyringar óg nágrannar.
Stutt námskeiö í matreiöslu, fatasaumi og vefnaði
veröa haldin af og til nk. vetur.
Sér matreiðslunámskeið fyrir aldraða verður einnig á
dagskrá.
Vinsamlegast látið innrita ykkur sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar gefnar í síma 26809.
Kennslustjóri.
FVSA FVSA
Fjölskylduferð
Fyrirhuguð er dagsferð á vegum félagsins laugard.
23. ágúst. Farið verður til Húsavíkur og snæddur
hádegisverður. Síðan ekið í Ásbyrgi og Hljóðakletta,
eftir miðdagskaffi drukkið í Skúlagarði.
Áætluð heimkoma um 7 leytið.
Verð kr. 600.- fyrir fullorðna.
Verð kr. 300.- fyrir börn innan 12 ára.
Ókeypis fyrir félaga 67 ára og eldri.
Þátttaka tilkynnist á skrifstofu félagsins eigi síðar en
miðvikudaginn 20. ágúst í síma 21635.
Félag verslunar- og skrifstofufólks
á Akureyri og nágrenni.
——
í
.
Landsbanki íslands hefur slarfaö i 100 ár.
Hann er bæói elsta og stærsta
bankastofnun þjóöarinnar. Meó fjölþættri starfsemi sinni viósvegar
um landiö leggur hann grunn aö uppbyggingu atvinnulifsins, - og raunar
mannlifsins alls. Þess vegna óskum við þjóóinni til hamingju meó
100 ára afmæli
Landsbankans. I
■