Dagur - 18.08.1986, Blaðsíða 7
18. ágúst 1986 - DAGUR - 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Islandsmótið 3. deild:
Leiftur með annan
fótinn í 2. deild
- eftir 2:0 á Tindastól
;ardag. . Mynd: RI>B
kki nóg
A
eins og Þórsarar gæfu eftir en þó
áttu þeir ágæt tækifæri.
Skagamenn áttu góöan samleik
upp völlinn og gáfu góðan bolta
fyrir, en enginn náði honum fyrr
en út við endalínu. Paðan var
honum spyrnt fyrir og varð úr
mikil þvaga og barst boltinn út í
vítateig til Árna Sveinssonar sem
nýkominn var inná og afgreiddi
hann með þrumuskoti í netið.
Staðan 3-1 fyrir Skagamenn.
Síðan fengu liðin ágæt tækifæri
á víxl til að bæta við mörkum en
ekkert gekk. Skömmu fyrir leiks-
lok var Ólafi Þórðarsyni vísað af
leikvelli fyrir slá Árna Stefáns-
son.
í heildina var leikurinn oft
skemmtilegur á að horfa. Þórsar-
ar voru óheppnir.
Eftir sigur Leifturs á Tindastóli
á Króknum á laugardaginn eru
líkur á að Ólafsfirðingar leiki í
annarri deild að ári yfirgnæf-
andi. Af frammistöðu þeirra í
Ieiknum má álykta að þeir
verði vel að sigri í riðlinum
komnir. Fjölmargir áhorfend-
ur voru á Sauðárkróksvelli á
laugardaginn og um það bil
helmingur þeirra kom með
Ólafsfirðingum og fylgdi lið-
inu, studdi þá í leiknum.
Ólafsfirðingar mættu mjög
ákveðnir til leiks og pressuðu til
að byrja með. Þeir voru mun
ákveðnari á boltann og náðu oft
hættulegum sóknum með löngum
sendingum fram á fljóta fram-
herja, þá Óskar og Helga. í þrjú
skipti í fyrri hálfleik skall hurð
nærri hælum við mark Tinda-
stóls, sérstaklega í eitt skipti er
Helgi komst einn innfyrir, en
Gísli náði að verja. Aðeins einu
sinni skapaðist hætta upp við hitt
markið og voru heimamenn
heppnir að hanga á núllinu í hálf-
leik. Fljótlega í seinni hálfleik
náðu svo Leiftursmenn foryst-
unni. Hafsteinn Jakobsson fékk
boltann upp í hægra hornið, gaf
fyrir markið á Friðgeir Sigurðs-
son sem var dauðafrír við fjær-
stöngina og skoraði af öryggi.
Skömmu síðar bætti Leiftur við
öðru marki, Helgi Jóhannsson
komst þá á auðan sjó í annað
skipti í leiknum og renndi boltan-
um í markið. Fannst mönnum
þetta mark lykta af rangstöðu.
Ólafsfirðingar drógu sig nú til
baka og Tindastólsmenn fóru að
sækja meira. Sóknaraðgerðir
þeirra vOru hálf ruglingslegar og
máttlausar, og á köflum var leik-
ið á hraða sem liðið réði ekki við.
Leiftursmenn náðu líka að sækja
annað slagið, en leiktfminn leið
án þess að fleiri mörk væru
skoruð. Liðsheildin var mjöggóð
hjá Leiftri í þessum leik, menn
börðust allan tímann og upp-
skáru laun erfiðisins. En það
sama verður ekki sagt um Tinda-
stólsliðið. Þetta var örugglega
lélegasti leikur liðsins í sumar og
Gísli Sigurðsson markvörður sá
eini sem var líkur sjálfum sér.
Jafnt
Magni missti unninn leik niður
í jafntefli gegn Val á laugar-
daginn á Grenivík. í hálfleik
var 3:1 fyrir heimamenn.
Þeir Reimar Helgason, Hring-
ur Hreinsson og Heimir Ásgeirs-
son skoruðu fyrir Magna í fyrri
hálfleik en Valsmenn minnkuðu
muninn fyrir hlé.
í síðari hálfleik fengu Vals-
menn dæmdar tvær vítaspyrnur
og skoruðu úr þeim báðum og
jöfnuðu leikinn. Þrátt fyrir ágæt
færi tókst heimamönnum ekki að
knýja fram sigur.
Þróttur
vann Reyni
Þróttur sigraði Reyni, 2:1 í
jöfnum leik á Neskaupstað á
laugardaginn.
Þróttur náði forystu í fyrri hálf-
leik en í þeim síðari skoruðu liðin
sitt hvort markið og dugði það
Þrótti til sigurs.
Þróttarar fengu umdeilda víta-
spyrnu í fyrri hálfleik sem þeir
misnotuðu.
- Sjá einnig
íþróttir á bls. 8
íslandsmótið 2. deild:
Sanngjam sigur
KS á toppliðinu
Það var aldeilis fjör í kringum
fóninn á Siglufiröi á föstudags-
kvöld þegar KS og Selfoss átt-
ust við í 2. deildinni í knatt-
spyrnu. KS-ingarnir börðust
eins og ljón frá upphafi til enda
og uppskáru sanngjarnan sigur
á toppliði deildarinnar. Var
engu líkara en Siglfírðingar
væru nær 1. deildarsæti, svo
vel spiluðu þeir, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Dyggir áhorf-
endur þeirra voru vel með á
nótunum allan tíniann og
hvöttu sína menn vel.
KS-ingar komu mjög ákveðnir
til leiks og pressuðu stíft fyrsta
hálftímann og fór þá leikurinn að
mestu fram á vallarhelmingi Sel-
fyssinga. Vasabókin var lítið í
notkun til að byrja með en á 20.
mín komst Hafþór Kolbeinsson í
gott færi á markteig en Hartmann
markvörður var snöggur niður og
varði.
Á 27. mín. ná Siglfirðingar for-
ystu. Langur bolti kom frá vinstri
út í vítateiginn þar sem Björn
Ingimarsson skallaði fyrir markið
og Óli Agnarsson var ekkert að
spá í lendinguna er hann skoraði
með því að fleygja sér flötum og
skalla í markið. Skemmtilegur
aðdragandi og gott mark.
Selfyssingar náðu ekki að svara
þessu og 5 mín. síðar ná Siglfirð-
ingar 2 marka forystu. Hafþór
fékk boltann á vítateig, snéri lag-
lega af sér varnarmann og skor-
aði með góðu skoti í stöngina og
inn.
Selfyssingar fóru nú að koma
örlítið meira inn í leikinn en fyrri
hálfleikur var samt alveg eign
Siglfirðinga.
Seinni hálfleikur hófst ineð
sóknum heimamanna og á 53.
mín. var mark sem Óli Agnars-
son skoraði dæmt af Siglfirðing-
um. Ekki er vitað urn ástæðuna
fyrir því og markið virtist löglegt.
Selfyssingar ná síðan að
minnka muninn á 62. mín. er
Tómas Pálsson var réttur maður
á réttum stað og skoraði af stuttu
færi. Liðin skiptust á að sækja
það sem eftir lifði leiksins en
heimamenn héldu fengnum hlut
án teljandi vandræða og sigurinn
í höfn.
Ólíkt var að sjá til KS-liðsins í
þessum leik miðað við fyrr í sum-
ar og greinilegt að liðið er ekkert
á leiðinni úr deildinni og á örugg-
lega eftir að hala inn fleiri stig í
síðustu leikjunum. Að sögn
kunnugra var þetta í fyrsta skipti
sem Gústaf þjálfari var með allan
sinn leikmannahóp.
Sigur KS var fyrst og fremst
sigur liðsheildarinnar og ósann-
gjarnt að fara að tína einhvern
einn einstakan úr sem besta
mann. Allt liðið lék vel.
Landsliðsmaðurinn Páll
Guðmundsson áberandi framan
af en bestir voru jaxlarnir Sigurð-
ur Halldórsson og Tómas
Pálsson. Þá var Hartmann örygg-
ið uppmálað í markinu.
Kristján yngsti
sigurvegarinn
- sem sigrar í karlaflokki á mótinu
Sigurvegarar ■ karlaflokki án forgjafar. F.v. Axel Reynisson, Kristján Hjálmarsson og
Kristján Gylfason.
Jaðarsmótið í golfi:
Mjög þáttaka var í Jaðarsmótinu í
golfí sem fram fór að Jaðri um helg-
ina. Alls voru keppendur 106 og var
keppt í þremur flokkum, karla-,
kvenna- og unglingaflokki. Leiknar
voru 36 holur með og án forgjafar.
Keppnin í karlaflokknum var sér-
lega spennandi og réðust úrlsitin á
síðasta puttinu á síðustu holunni hjá
Kristjáni Gylfasyni en hann sigraði
nafna sinn Hjálmarsson frá Húsavík
á einu höggi. Þessi árangur Krist-
jáns er mjög góður en hann er aðe-
ins 15 ára og þykir geysilega efnileg-
ur kylfíngur.
Úrslitin á mótinu urðu annars þessi:
Karlar án forgjafar:
1. Kristján Gylfason GA 151
2. Kristján Hjálmarsson GH 152
3. Axel Reynisson GH 155
Karlar með forgjöf:
l.Guðmundur Sigurjónsson GA 132
2. Kristján Gylfason GA 152
3. Guðni Jónsson GA 135
Konur án forgjafar:
1. Jónína Pálsdóttir GA 179
2. Katrín Frímannsdóttir GA 180
3.1nga Magnúsdóttir GA 188
Konur með forgjöf:
1. Katrín Frímannsdóttir GA 148
2. Jónína Pálsdóttir GA 151
3. Rósa Pálsdótir GA 151
Unglingar með forgjöf:
l.Eggert Eggertsson GA 159
2.SturIa Ómarsson GR 173
3.ÞórIeifur Karlsson GA 176
Unglingar með forgjöf:
l.Eggert Eggertsson GA 125
2.SturIa Ómarsson GR 127
3.Auðunn S. Guðmundsson GA 127
Þar sem keppendur voru jafnir, sigr-
aði sá er fór þrjár síðustu holurnar á
færri höggum.
Sigurvegarar í unglingaflokki án forgjafar. Þórlcifur Karlsson, Sturla Ómarsson og
Kristján Gylfason. Myndír: rþb
Sigurvegarar í kvennaflokki án forgjafar. F.v. Jónína Pálsdóttir, Katrín Frímannsdóttir
og Inga Magnúsdóttir.