Dagur - 18.08.1986, Síða 11
18. ágúst 1986 - DAGUR - 11
Gatnagerðarframkvæmdir í Árskógshreppi:
Minni skerðing á lánum
- vegna þess að við erum að byrja, sagði Sveinn Jónsson
„Við erum í miklum gatna-
gerðarframkvæmdum. Um
helgina á að leggja olíuklæðn-
ingu á 5-6 kOómetra á göturn-
ar í þorpunum,“ sagði Sveinn
Aflahrotan
búin í bili?
Miðunum á Strandagrunni,
þar sem togararnir voru að
mokveiða á dögunum, hefur
nú verið lokað. Skipin hafa því
dreift sér í leit að fiski og ekki
gengið allt of vel. Von er á
Sigluvík til Siglufjarðar seinni-
part vikunnar og varla gert ráð
fyrir að hún verði með nema
hátt í 100 tonn, að því undan-
skildu að betur gangi síðustu
dagana.
Sigluvíkinni gekk mun betur í
síðustu veiðiferð, en þá fékk hún
140 tonn. Von var á Skildi til
Siglufjarðar um miðja viku með
55 tonn, en í síðustu viku kom
skipið með 60 tonna afla. Á
þriðjudag var verið að landa úr
Ólafi bekk á Ólafsfirði 170 tonn-
um og von var á Sólberginu með
svipað magn. Hegranesið kom
inn til Sauðárkróks fyrir helgi
með 180 tonn og Kolbeinsey kom
með fullfermi. Hún landaði af
því 60 tonnum, tók ís á Króknum
og hélt síðan á miðin á ný.
Ástæða þess að Kolbeinsey kom
til Sauðárkróks var frí hjá starfs-
fólki Fiskiðjusamlags Húsavíkur
í síðustu viku. Skipstjórinn á
Kolbeinsey sagði að þeir hefðu
verið að fá allt upp í 20 tonna holl
á Skagagrunninu. Fiskurinn sem
togararnir hafa fergið undanfarið
hefur aðallega verið þorskur. -þá
Jónsson á Kálfsskinni í samtáli
við Dag.
Leggja á klæðningu frá þjóð-
veginum og niður að Hauganesi
annars vegar og að Árskógssandi
hins vegar. Klætt verður alveg
niður að höfnum beggja staða.
Auk þess er unnið við undirbygg-
ingu á fleiri götum.
„Petta er byrjunin á okkar var-
anlegu gatnagerð í þorpunum,"
sagði Sveinn.
Sveinn sagði að hreppurinn
væri betur settur hvað lán til
gatnagerðarframkvæmda snerti
en margir aðrir hreppar, vegna
þess að þeir væru að byrja. „Það
átti að lána okkur 80% af kostn-
aði við þessar framkvæmdir, en
að líkindum skerðist það eitt-
hvað, gæti farið niður í 60%. En
ég hef fengið þær upplýsingar hjá
Byggðastofnun að við getum
treyst á meginpartinn af þeim
lánum sem okkur var lofað.“
Sveinn sagði að atvinnulíf væri
gróskumikið í hreppnum. All-
mörg hús eru í byggingu, 6 íbúða
raðhús hefur verið í byggingu og
verður flutt í þrjár íbúðanna um
næstu mánaðamót. Þá eru þrjú
íbúðarhús í byggingu í hreppnum
og nýlega hefur verið flutt í eitt.
„Það hefur verið ansi líflegt
hérna að undanförnu,“ sagði
Sveinn. -mþþ
„Það byggir
enginn í dag,“
- segir Sigmundur Ófeigsson
hjá Möl og sandi hf.
„Þessa stundina erum við að
senda eitt einingahús út í
Grímsey. Að öðru leyti er lítið
að gera á þeim vetvangi,“
sagði Sigmundur Ófeigsson hjá
Möl og sandi er hann var
spurður um verkefni hjá fyrir-
tækinu.
Möl og sandur á vélar til fram-
leiðslu á steyptum húseiningum
og hefur framleiðslan líkað vel.
Nú er svo komið að vélar og tæki
upp á milljónir króna standa
ónotuð. „Það byggir enginn í
dag og nú er búið að stoppa
bændur með kvótaskerðingu, svo
þetta er allt búið,“ sagði Sig-
mundur.
í öðrum framleiðslugreinum
fyrirtækisins hefur verið fremur
lítið að gera og steypusala er
sáralítil. Þó hefur ekki þurft að
grípa til þess ráðs að segja upp
starfsmönnum, „enda réðum við
færri í vor en venjulega. Það er
nokkuð að gera í rörasteypu og
steypu á hleðslusteinum sem hafa
reynst vel og verið vinsælir,"
sagði Sigmundur Ófeigsson. gej-
Umferðin:
Ognvekjandi niöurstöö-
ur úr skoðanakönnun
- Aðeins 32% ökumanna nota bílbelti
í júlí var gerð umferðarkönn-
un á vegum Bifreiðaeftirlits
ríkisins, lögreglu og Umferðar-
ráðs. Kom þar fram margt
athyglisvert um ástand bfla,
bflbeltanotkun og fleira.
2451 bifreið var stöðvuð í
könnuninni, eða 1,96% af bíla-
fjölda landsmanna, sem nú er
áætlaður 125 þúsund. Af þessum
2451 ökumönnum sem stöðvaðir
voru, höfðu 2027 ökumenn öku-
skírteinið sitt með sér, eða
83,6%. 774 ökumenn höfðu bíl-
belti, en það er 32,1%. í sam-
bærilegri könnun á sama tíma
fyrir ári var notkunin 30,5%. 732
ökumenn höfðu ljós bifreiðarinn-
ar kveikt, eða 33,3% og er
ástæða til að hvetia fólk til að
spara þau nú ekki. í aðeins 216
bílum voru slökkvitæki, eða 8,9%,
Kópasker:
Hráefnisskortur
í rækjuvinnslunni
í 431 bifreið var sjúkrataska, eða
17,7% og í 240 bifreiðum voru
viðvörunarþríhyrningar, eða
10%. í 2102 bifreiðum voru aftur
á móti útvarpstæki í bílnum, eða
86,6%. Þetta eru alvarlegar
niðurstöður. Fólk virðist leggja
mun meiri áherslu á að hafa
útvarpstæki í bílunum, en
slökkvitæki, sjúkratösku eða við-
vörunarþríhyrninga. Nytsemi
þessara tækja verður seint ofmet-
in og er fólk hvatt til að gera
bragarbót á þessum málum, því
hættur gera ekki boð á undan sér.
-SÓL
Undanfarnar 3 vikur hefur
rækjuvinnslan Sæblik á Kópa-
skeri verið starfrækt, en
vinnslu hráefnis lauk á flmmtu-
dag og ekki er útlit fyrir að
hráefni berist fyrr en í lok þess-
arar viku.
Það var togarinn Rauðinúpur
sem fór 3 ferðir fyrir rækjuvinnsl-
una, og nú mun Stakfellið taka
við og fara í 2 veiðiferðir. Einnig
er vonast til að bátur frá Bakka-
firði veiði eitthvað, „en svo veit
maður ekkert um framhaldið"
sagði Skúli Jónsson hjá rækju-
cvinnslunni. Atvinnuástand á
Kópaskeri er mjög slæmt. 15
manns starfa við rækjuvinnsluna,
þá sjaldan að þar er vinnu að fá.
Heimamenn hafa lengi reynt að
festa kaup á skipi til hráefnis-
öflunar, en ekkert rætist úr þeim
málum enn. Nokkrir Kópa-
skersbúar hafa sótt vinnu til
Raufarhafnar í sumar, ekið dag-
lega milli staðanna, 55 km hvora
leið. IM
Starfsfólk óskast
í verslun frá 1. september.
Um er aö ræöa heilsdags eöa hálfsdags vinnu og
hlutastarf. Þ.e.a.s. fimmtudaga, föstudaga og
laugardaga.
Umsóknir leggist inn á afgreiöslu Dags merkt:
„N-62“ fyrir 25. ágúst.
Vélstjóra vantar
á 60 tonna bát og vélavörð á 90 tonna bát.
Báöir gerðir út frá Dalvík. Upplýsingar í símum
61614 og 61408.
Vantar nokkrar konur
til starfa nú þegar eða seinna.
Mikil vinna, bónus.
Upplýsingar hjá verkstjórum, á staönum.
K.Jónsson & Co hf.,
Niðursuðuverksmiðja.
Verslunarstjóri -
Mývatnssveit
Starf útibússtjóra viö verslun okkar í Reykjahlíö,
Mývatnssveit er laust til umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 31. ágúst nk. og skulu umsóknum
fylgja upplýsingar um aldur, menntun og fyrri
störf.
Upplýsingar um starfið gefa Hreiöar Karlsson eöa
Haukur Logason í síma 96-41444.
Kaupfélag Þingeyinga.
Laus staða
Verðlagsstofnun á Akureyri óskar eftir að
ráða starfsmann í 50% hlutastarf eftirlits-
manns. Æskilegt er að umsækjandinn hafi
verslunarpróf eða sambærilega þekkingu.
Umsækjandi þarf aö hafa bifreiö til umráöa.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist Verðlagsstofnun, Glerárgötu
20, 600 Akureyri fyrir 20. ágúst nk.
Upplýsingar um starfiö eru veittar í síma 91-
27422.
Verðlagsstofnun.
Kjötiðnaðarstöð KEA
óskar eftir að ráða
starfsfólk til ýmissa starfa.
Upplýsingar gefur Leifur Ægisson
í síma 21400.
K.IÖTIÐNAÐARST()n
Kjötiðnaðarstöð
KEA.
SJ