Dagur - 18.08.1986, Page 12
ÍM®*
Akureyri, mánudagur 18. ágúst 1986
Nýtt skip til Blönduóss:
Geysilegur fjöldi
umsókna um störf
BBC-tölvur
+ Bókhaldsforrít _llf . , -
+ Kennsluforrit TOlVUtækl SL
^ Leikjaforrít Gránufélagsgötu 4, 2. hæð • Akureyri • Síml 96-26155
„Það eru komnar a.m.k. 50
umsóknir og þær eru enn að
koma,“ sagði Kári Snorrason
hjá Særúnu hf. á Blönduósi
aðspurður hvort það væri rétt
sem heyrst hefur að geysilegur
fjöldi umsókna hafi borist um
störf á nýju skipi sem væntan-
legt er til Blönduóss í haust.
Ef svo heldur fram sem horfir
ættu þeir hjá Særúnu ekki að
verða í vandræðum með mann-
skapinn á skipið því nærri lætur
að umsóknir séu orðnar þrisvar
sinnum fleiri en áhafnarmeðlimir
koma til með að verða. Á skipið
mun verða ráðin ein og hálf
áhöfn eða 20 manns. Skipstjóri
hefur verið ráðinn Hrólfur Ólafs-
son frá ísafirði og er hann fluttur
til Blönduóss og mun fljótlega
fara að fylgjast með gangi mála
við smíði skipsins á Akureyri. Þá
hefur Þorleifur Ragnarsson verið
ráðinn 1. vélstjóri og Páll
Elíasson frá Þingeyri hefur verið
ráðinn sent 1. stýrimaður. Auk
þess hefur verið ákveðið að báts-
maðurinn verði maður sem kem-
ur að vestan, eða frá ísafirði eins
og skipstjórinn. G.Kr.
Norræna fiskimálaráðstefnan:
Haldin á Akureyri
I dag hefst Norræna fískimála-
ráðstefnan og er hún að þessu
sinni haldin á Akureyri. Verð-
ur ráðstefnan haldin á Hótel
KEA og í Alþýðuhúsinu. Um
180 virkir fulltrúar munu sækja
ráðstefnuna, en auk þess verða
80-90 gestir. Allir sjávarút-
vegsráðherrar Norðurland-
anna verða á ráðstefnunni og
munu þeir halda sinn fyrsta
formlega fund í tengslum við
ráðstefnuna.
Ráðstefnan stendur í þrjá daga
og verða nokkur mál tekin fyrir.
Fyrsti dagurinn er að mestu helg-
aður fiskirækt. Síðasta erindi
þess dags verður um hið svokall-
aða togararall. Höfð hefur verið
samvinna við 5 góða togara um
fiskstofnmælingar. Þriðjudagur-
inn fer að mestu í ferðalag í
Mývatnssveit.
A miðvikudag er byrjað á
erindi um menntamál í sjávarút-
vegi á Norðurlöndunum.
Ráðstefnuninni lýkur með
pallborðsumræðum, þar sem
einn frá hverju landi tekur þátt.
Þeir flytja smá erindi og síðan
verður það rætt. Pallborðsum-
ræðunum stvrir Björn Dagbjarts-
son. ' " -HJS
Framsóknarflokkurinn:
Þingflokksfundur
á Sauðárkróki
- dagana 24.-25. ágúst
Dagana 24.-25. ágúst heldur
þingflokkur Framsóknar-
flokksins þingfund á Sauðár-
króki.
Rætt verður um nokkur hita-
mál, eins og t.d. hvalamálið,
Útvegsbankamálið og fjárlögin.
Búast má við einhverri ályktun
um bankamálin og jafnvel að
þingflokkurinn leggi fram tillögur
til úrbóta um málið. Telja sumir
að Framsóknarflokkurinn leggi
til að Útvegsbankinn verði annað
hvort sameinaður Búnaðarbank-
anum og Landsbankanum, eða
að hann verði einfaldlega reistur
við í sinni upprunalegu mynd.
Hvað hvalamálið varðar er lík-
legt að deilt verði hart á fram-
komu Bandaríkjastjórnar gagn-
vart íslendingum. Einnig verður
rætt um komandi fjárlagafrum-
varp. Það verður forvitnilegt að
heyra niðurstöðuna af þessum
fundi. -SÓL
Slökkviliðsmenn þurftu m.a. að rjúfa þakið til að komast að eldinum.
Mynd: gej-
Akureyri:
Eldsvoði
r
i
gærkvöld
Klukkan 11:45 í gærkvöld var
slökkviliðið kvatt að húsinu
númer 2 við Fjólugötu á Akur-
eyri. Var það vegfarandi sem
hafði orðið var við mikinn reyk
frá húsinu og tilkynnti um það.
Er slökkviliðið kom á vetvang
var geysilegur hiti og reykur í
húsinu. Reykkafarar fóru þegar
inn og fundu þar konu sem býr í
húsinu, en hún var ein heima.
Var hún strax flutt á Sjúkrahúsið.
Um 20 .slökkviliðismenn voru
komnir á staðinn eftir skamma
stund og gekk greiðlega að
slökkva eldinn. Húsið sem er
gamalt einlyft timburhús klætt
bárujárni, stendur á steyptum
kjallara og er talið að eldurinn
hafi komið upp í kjallaranum.
Húsið er mjög mikið skemmt.
Þegar blaðið fór í prentun í
nótt var ekki vitað um líðan kon-
unnar.
gej-
Dvalarheimili aldraðra á Siglufirði:
Lokafrágangi síðasta
áfanga úthlutað
„Fyrsta skóflustungan var tek-
in í júlí 1983, það var lítið
meira gert það ár en aðalfram-
kvæmdirnar byrjuðu vorið
1984 og í lok mars á næsta ári
verður fyrri áfanga lokið,“
sagði Haukur Jónasson, sem
sæti á í byggingarnefnd dvalar-
heimilis aldraðra á Siglufirði.
Búið er að bjóða út og úthluta
lokafrágangi á fyrri hluta þess.
Það var Berg h.f. sem fékk
verkið.
Dvalarheimilið verður full-
byggt 2616 fermetrar og það er
um helmingur þess sem nú er ver-
ið að ljúka við. í húsinu verða 10
tveggja herbergja íbúðir og 12
eins manns herbergi. í þeim
áfanga sem nú er verið að ljúka
við er stigahús, lyftuhús, matsal-
ur, setustofa, tengigangurinn á
milli sjúkrahússins og dvalar-
heimilisins, aðstaða fyrir sjúkra-
þjálfara og 4 tveggja herbergja
íbúðir.
Sagði Haukur að strax hefði
verið ákveðið að reyna að fá lóðir
undir dvalarheimilið sem næst
sjúkrahúsinu. Komu þá tvær lóð-
ir til greina, báðar í eigu Síldar-
verksmiðja ríkisins og gáfu þær
þessar lóðir, sem standa við
Hlíðarveg og Hólaveg. Áætlað er
að steypa upp suðurhlutann
næsta vor og þar verða 6 tveggja
herbergja íbúðir og 12 eins
manns herbergi.
„Það hefði aldrei verið hægt að
koma þessari byggingu upp ef
bæjarbúar hefðu ekki stutt okkur
eins vel og þeir hafa gert og ber
að þakka þeim það. Um síðustu
áramót var ríkið búið að leggja til
5,3 millj. kr., Siglufjarðarbær 4,3
millj. kr. og bæjarbúar, félaga-
samtök og stofnanir í bænum
tæpar 5 millj. kr. Stjórn fram-
kvæmdasjóðs aldraðra hefur
einnig verið okkur ákaflega
hliðholl, á þessu ári fáum við 5
millj. kr. frá þeim og rúmar 5
millj. frá bænum,“ sagði Haukur.
Á árinu 1987 er meiningin að
steypa upp allan suðurhlutann,
1988 á að ljúka við allar innrétt-
ingar og áætlað er að húsið verði
tilbúið 1989. -HJS
Póstur og sími:
Er óréttlæti í skrefatalningu?
íbúar í Eyjafirði, framan
Akureyrar, hafa verið óá-
nægðir með gjaldskrá Pósts og
síma og ekki þótt þeir sitja við
sama borð og aðrir hvað
skrefatalningu varðar. Dagur
hafði samband við Arsæl
Magnússon, umdæmisstjóra
Pósts og síma á Norðurlandi
og spurði hann hvort íbúar
ákveðinna svæða þyrftu að
borga meira fyrir skrefin en
aðrir.
Sagði Ársæll að svörin við
þessu væru á bls. 4 í símaskránni.
Það eru 4 gjaldflokkar fyrir
símtöl. Það er svo kallaður 0
flokkur, síðan eru flokkar 1, 2 og
3. I 0 flokknum er hvert skref í
dagtaxta 6 mín. og þá kostar hver
mín. 28 aura. í næturtaxta er hins
vegar bara eitt skref, sama hve
lengi er talað. Síðan smá styttist
tíminn í hverju skrefi og hver
mínúta kostar meira í flokkunum
og dýrastur er 3. flokkur.
Innan Akureyrar er 0 flokkur
og sömuleiðis í Eyjafirði, framan
Akureyrar, en það er Hrafnagils-
stöð. Bóndi sem hringir úr Eyja-
firði til Akureyrar hringir í flokki
1 og er þá hvert skref 60 sek. Allt
höfuðborgarsvæðið er á 0 taxta
og einnig Suðurnesin.
Ársæll var spurður hvort það
væri ódýrara fyrir íbúa höfuð-
borgarsvæðisins en landsbyggð-
arinnar að vera með síma. „Það
er líklega heldur ódýrara. En það
verður að athuga það að á svæð-
um þar sem eru 20.000 símnot-
endur eða fleiri eru 300 skref inni
í fastagjaldinu en annars 600.
Það er til að jafna símakostnað á
landinu." Ársæll var einnig
spurður hvort til stæði að stækka
0 svæðið í kringum Akureyri.
„Ég get ekkert sagt um það,
þetta er pólitísk ákvörðun. Þetta
er spurning um hvenær stjórn-
völd taka ákvörðun um það.“
-HJS
hjá
Akureyrinni
- aflaverðmætið um 30
milijónir
Aðfaranótt sunnudags kom
Akureyrin að landi með verð-
mætastan aflu sem íslenskt
skip hefur skilað í land úr einni
ferð. Ferð þessi tók þrjár vikur
og fékkst aflinn á svæðinu frá
Strandagrunni vestur um að
Patreksfírði. Skipstjóri var Jón
ívar Halldórsson.
Aflaverðmætið ntun vera um
30 milljónir, allt þorskur utan eitt
og hálft tonn karfi. Hásetahlutur-
inn í þessu ævintýri var rúmlega
300 þúsund.
Á sunnudag var aflanunt skip
að út en fiskurinn verður seldur á
Bretlandsmarkað.