Dagur - 02.09.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 2. september 1986 162. tölublað
FILMUHUSIÐ
Hafnarstræti 106 Simi 22771 Pósthólf 198
gæðaframköllun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tilbúnar
kl. 16.30.
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Fjárdráttarmálið hjá Pósti og síma:
Upphæöin er
7,2 milljónir
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá ríkissaksóknara-
embættinu í gær hefur verið
gefin út ákæra í fjárdráttarmál-
inu sem kom upp á pósthúsinu
á Akureyri fyrr í sumar. Málið
hefur verið sent til dómsmeð-
ferðar hjá sýslumanninum í
Eyj afjarðarsýslu.
Maðurinn mun vera ákærður
fyrir fjárdrátt í opinberu starfi og
hljóðar upphæðin, sem hann er
ákærður fyrir að hafa dregið sér,
upp á liðlega 7,2 milljónir.
Dagur hafði í gær samband við
Ólaf Ólafsson hjá sýslum'anns-
embættinu en hann neitaði alfar-
ið að tjá sig nánar um innihald
ákæruskjalsins. JHB
Brennuvargur
gengur laus
„Ég held að ég verði að svara
því játandi að okkur grunar að
brennuvargur gangi laus í
bænum,“ sagði Tómas Búi
Böðvarsson slökkviliðsstjóri á
Akureyri er Dagur ræddi við
hann í gær.
tækifærið og biðja fólk um að
vera á verði, safna ekki eldfimum
hlutum og rusli við hús sín, og
læsa bæði bifreiðum og híbýlum á
nóttunni. gk-.
I gær urðu forstjóraskipti hjá Sambandinu, þegar Erlendur Einarsson lét af starfi og Guðjón B. Olafsson tók við.
Með þeim á myndinni er stjórnarformaður Sambandsins, Valur Arnþórsson. Mynd: Róben Ágústsson.
Steinullarverksmiöjan:
hefur aukist
Eins og Dagur skýrði frá í gær
er talið mjög líklegt að um
íkveikiu hafi verið að ræða er
eldur kom upp í húsi við Eyrar-
veg og í bíl við Fjólugötu fyrir
helgina.
í framhaldi af þessu hafa vakn-
að spurningar um hvort um
íkveikju geti hafa verið að ræða
ef litið er til fleiri bruna sem orð-
ið hafa í bænum á þessu ári.
Tómas Búi sagði að menn hefðu
ekkert í höndunum sem benti til
þess. Hann vildi hins vegar nota
Ingvar
hættir
á þingi
Ingvar Gíslason, þingmaður
Framsóknarllokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra,
hefur ákveðið að gefa ekki
kost á sér til þingmennsku í
komandi alþingiskosningum.
Ingvar tilkynnti þessa ákvörð-
un í lok ræðu sinnar á þingi
SUF á föstudaginn.
„Norðurlandskjördæmi eystra
hefur verið og er enn höfuðvígi
Framsóknarflokksins. Ég hef
tekið þátt í að verja það vígi 9
sinnum, en hyggst nú gera hlé á,“
sagði Ingvar meðal annars.
Ingvar á langan og gifturíkan
feril að baki. Hann hefur setið á
aiþingi í 25 ár og var m.a.
menntamálaráðherra í síðustu
ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar. BB
Salan
„Þetta eru samningar sem
voru í rauninni gerðir í fyrra en
það var ekki gengið formlega
frá þeim fyrr en í vor,“ sagði
Þórður Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Steinullarverk-
smiðjunnar á Sauðárkróki,
þegar hann var spurður um
samninga sem SteinuIIarverk-
smiðjan gerði við Ríkisskip
fyrir nokkru. Samningarnir
kveða á um að allir flutningar á
sjó fyrir Steinullarverksmiðj-
una verði í höndum Ríkis-
skipa.
Þegar Þórður var spurður
hvernig salan gengi þessa dagana
sagði hann að hún væri að aukast
mikið. Sagðist hann einnig eiga
von á að það ætti eftir að koma
kippur í hana samfara breyting-
um á húsnæðislánakerfinu. Gerð
var áætlun sem hljóðaði upp á
sölu á 90 þúsund rúmmetrum af
steinull á þessu ári og sagðist
Þórður telja að sú áætlun yrði
ekki fjarri lagi.
Fjórðungsþing Norðlendinga
sem haldið var á Siglufirði um
helgina var hið fjölmennasta
sem haldið hefur verið, en
þingið var hið 28. í röðinni.
Þingið sátu 85 fulltrúar auk
gesta og samtals komu hátt á
annað hundrað manns til Siglu-
fjarðar til þinghaldsins.
Pórður sagði að reiknað hefði
verið með að það tæki 2-3 ár fyrir
verksmiðjuna að vinna sér fulln-
aðarsess á markaðnum og hann
sæi ekkert sem ætti að geta kom-
ið í veg fyrir að það stæðist. „En
við erum alltaf með töluverða
vöruþróun í gangi og það tekur
tíma að vinna nýjum vörutegund-
um sess. Nú eru 2-3 nýjar vöru-
Tvö ungmenni voru tekin á
Akureyri um helgina með hass
í fórum sínum, alls 8 grömm
sem þau höfðu ætlað til eigin
neyslu.
Að sögn Daníels Snorrasonar
rannsóknarlögreglumanns á
Á þinginu var Valtýr Sigur-
bjarnarson bæjarstjóri á Ólafs-
firði kosinn formaður Fjórðungs-
sambandsins og Jón Guðmunds-
son, Óslandi, varaformaður.
Aðrir í stjórn eru Gunnar Ragn-
ars Akureyri, Adolf Berndsen
Höfðahreppi og Jón Dýrfjörð á
Siglufirði
Umræður um þær tillögur sem
tegundir á teikniborðinu hjá okk-
ur sem koma væntanlega á mark-
að með haustinu og ég á von á að
það taki a.m.k. eitt ár fyrir okkur
að vinna þeim sess, ef það tekst á
annað borð. Það verður að koma
í ljós hvað hér er um að ræða en
þetta eru allt vörutegundir sem
eru nýjar á einangrunarmarkaðn-
um. Én það eru erfið uppvaxtar-
Akureyri hefur ekki orðið vart
við að hass væri í umferð í bæn-
um að undanförnu. Þó sagði
Daníel að alltaf lægu vissir aðilar
undir grun um að hafa fíkniefni
undir höndum en erfitt væri að
sanna slíkt. gk-.
fram voru lagðar á þinginu fóru
að mestu fram í nefndum, en til-
tölulega litlar umræður urðu um
þær við afgreiðslu mála, þannig
að óhætt er að fullyrða að góð
samstaða hafi verið um málefni
Fjórðungssambandsins. I opnu
blaðsins í dag er nánar gerð grein
fyrir störfum þingsins. G.Kr.
mikiö
ár í svona rekstri, hann er dýr
peningalega, þannig að það er
ekki óeðlilegt að reikna með
tveimur til þremur árum í upp-
byggingarstarfsemi," sagði Þórð-
ur Hilmarsson. JHB
Á mánudag í síðustu viku
landaði Hrúnbakur rúmlega
138 tonnum hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa. Sléttbakur land-
aði þann 28. júlí 184 tonnum.
Kaldbakur landaði þann 22.
júlí rúmlega 131 tonni og Harð-
bakur kom að landi þann 20. júlí
með rúmlega 267 tonn. Harðbak-
ur landaði í gær um 230 tonnum.
Starfsmaður útgerðarfélagsins
sagðist ekki hafa nákvæmar tölur
yfir hversu mikið væri eftir af
kvóta togara félagsins, „en það
gengur svo sannarlega á hann,"
eins og hann orðaði það. -mþþ
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Valtýr kjörinn formaður
Ungmenni
tekin með hass