Dagur - 22.09.1986, Blaðsíða 5
22. september 1986 - DAGUR - 5
„Dilkamir jafnari en áður“
- segir Hörður Frímannsson verkstjóri í Sláturhúsi KEA
Þá er byrjað að reka blessuð
litlu fjallalömbin til slátrunar.
Hversu sorglegt sem það kann
að þykja verður ekki hjá því
komist, ja, nema allir gerist
grænmetisætur og það er nú
tæplega útlit fyrir það alveg í
bráðina. Slátrun hófst í Slátur-
húsi KEA 16. september og
mun standa til 21. október.
Áætlað er að slátra 36.000 fjár
í haust, það er sú tala sem
bændur hafa gefið upp, en
þegar upp er staðið verður tal-
an yfirleitt lægri en áætlað
hafði verið. Bændur heimta
aldrei allt fé af fjalli, selja líf-
lömb og fleira getur komið til.
Hörður Frímannsson er verk-
stjóri í sláturhúsinu. Hann byrj-
aði fyrst að vinna þar 1937, en
hefur verið samfleytt síðan 1964
og verkstjóri síðan 1965. Hörður
var spurður hvort það væri mun-
ur á fé nú og hér áður fyrr. „Já,
mér finnst fé mikið hafa batnað.
Áður fyrr var meiri mismunur á
fé, það er miklu jafnara núna.
Það er ræktunin sem þannig hef-
ur skilað sér.“
- Nú er alltaf verið að tala um
kjötfjöll, er sífellt slátrað fleira fé
frá ári til árs?
„Nei. Það er um 10% fækkun
frá því í fyrra. Þá var áætlað að
slátra 39.000 dilkum, en það skil-
aði sér reyndar ekki allt. Það sem
veldur þessum kjötfjöllum er að
hér áður fyrr var flutt út mikið af
kjöti, aðallega á Bretlandsmark-
að.“
- Fer kjöt héðan út um allt
land?
„Nei. Við gætum selt allt kjöt
af því sem hér er slátrað á svæð-
inu, en vegna plássleysis getum
við ekki geymt allt kjötið og því
fer hluti af því til útflutnings. í
fyrra fóru um 100 tonn til útflutn-
ings og síðan urðum við að fá
svipað magn frá öðrum sláturhús-
um.“
Sláturhús KEA var byggt árið
1929 og er því orðið 57 ára
Séð yfir salinn. Skepnan er aflífuð, þá tekur við blóðbandið sem er lengst til hægri, síðan er fláningsbandið. Lengst inni í salnum er skrokkurinn hífður
upp og innyflin tekin innan úr honum. Þá er hann kominn nokkurn veginn í það horf sem neytandinn fær hann í.
gamalt og er víða orðið þröngt.
Að sögn Harðar er húsið fremur
lítið, svipað að stærð og slátur-
húsið á Hvammstanga, á báðum
stöðum er slátrað um 1500 dilk-
um á dag. „í rauninni gætum við
slátrað meira, en höfum ekki
aðstöðu til að frysta meira á
dag.“ Miklar framfarir hafa átt sér
stað í slátrun undanfarin ár. Sama
aðferðin var notuð til 1978.
Nýja aðferðin miðar að því að
gera vinnuna léttari og auka
hraðann í vinnslunni. í haust var
tekin í notkun ný tegund af fóta-
klippum og sagðist Hörður ekki
vita til að þær væru til í öðrum
sláturhúsum í landinu.
Eftir stutt spjall við Hörð sýndi
hann blaðamanni það ferli sem
fjallalambið fer í sláturhúsinu.
Hörður Frímannsson, verkstjóri.
Reyndar ekki alveg frá upphafi,
heldur hófst ferðin við blóðband-
ið, þar sem dilkarnir tóku síðustu
dauðateygjurnar, heldur
óskemmtileg sjón, en þetta venst
víst. Á blóðbandinu eru hausarn-
ir skornir af. Af blóðbandinu fer
skrokkurinn yfir á fláningsband-
ið, þar eru fæturnir klipptir af
með klippunum góðu, rist fyrir
og fláð. Þá er skrokkurinn
hengdur upp, þveginn og innyflin
tekin innan úr. Aftur þvegið,
snyrt og bógbundið. Næstur er
dýralæknir sem metur hvort
skepnan hefur verið heilbrigð og
ef svo er taka matsmenn við og
meta skrokkana í gæðaflokka,
sem nánar verður skýrt frá síðar.
Eftir þetta er kjötið kælt niður í
6-8 tíma, klætt í plast og grisju og
síðan fryst og þar bíður það eftir
að verða ljúffengar steikur á
borðum landsmanna.
Eftir rölt um efri hæðina förum
við niður á þá neðri. Þar eru
vambirnar losaðar og þvegnar,
blóðið sett í tank og kælt, haus-
arnir snyrtir og hjörtu, nýru og
lifur hreinsað og flokkað. Þar fer
einnig fram slátursala.
Er blaðamaður Dags var á ferð
í sláturhúsinu var Hansína María
Haraldsdóttir að meta skrokk-
ana, en vanalega er hún að vigta.
„Ég var að fitumæla. Við höfum
til þess sérstakan mæli sem mælir
fituþykktina á síðu. Ef fitan fer
yfir ákveðið mark fellur dilkurinn
um flokk. Ef fitan fer yfir 12 mm
fer hann í svokallaðan O flokk,
sem er sérstakur fituflokkur. í
haust voru fitumörkin hert og ég
get nefnt sem dæmi að í gær fór
4. hver skrokkur í O flokk hjá
einum bónda. En bændurnir
koma oft með vænstu lömbin
fyrst og þetta gæti því átt eftir að
lækka,“ sagði Hansína. Auk O
flokksins er stjörnuflokkur, sem
er bestur og 1., 2., 3. og4. flokkur.
Bændur fá greitt fyrir kjötið eftir
því í hvaða flokkum það lendir.
„í rauninni er besta kjötið af
feitu lömbunum. Það er ódýrara
og þú hefur þá í rauninni efni á
að henda fitunni og færð úrvals
kjöt. En neytendur vilja magurt
kjöt og þá verður að gera eitt-
hvað, fólk virðist ekki hafa áttað
sig á að það er hægt að henda fit-
unni,“ sagði Hansína og þá vitum
viö það. ^ -HJS
Dýralæknir metur heilbrigði skepnunnar og síðan eru skrokkarnir gæöa-
flokkaðir. Nú vilja neytendur heldur magurt kjöt og því eru mögrustu
skrokkarnir bestir. Matsmenn hafa þar til gerðan fltumæli og ef fltan er
þykkri en 12 mm fellur skrokkurinn um gæðaflokk. Hansína María er fyrir
miðri mynd, líklega að fitumæla. Myndír: hjs
Framsóknarfélag
Akureyrar
Bæjarmálafundur veröur mánudaginn 22. sept. kl.
20.30 í Eiðsvallagötu 6.
Fulltrúar flokksins í nefndum eru sérstaklega
hvattir til að mæta.
Herragallabuxur
stærðir 30-36 verð kr. 850,00
Handklæði
margar gerðir og stærðir. Verð frá kr. 198,00
Hinir margeftirspurðu lappar eru komnir
stærðir 26-33 verð kr. 330,00 og stærðir
36-45 verð kr. 368
Stígvél
í stærðum 20-48
Gúmmískór
stærðir frá 26-46 verð frá kr. 415,00
Vinsamlegast athugið að lokað er í hádeginu en opið
á laugardögum frá kl. 10-12
Eyfjorö
Hjalteyrargötu 4 ■ simi 22275
VISA