Dagur - 21.10.1986, Page 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 21. október 1986 197. tölublað
FILMUHUSIÐ
Hafnarstræti 106 Sfmi 22771 Pósthólf 198
gæðaframköllun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tilbúnar
kl. 16.30.
Opiö á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Bæjarráð Akureyrar:
Trúnaðar-
brestur og
brottrekstur
„Bcsta afmælisgjöfín sem ég gat fcngiö,“ sagði Ingimar Eydal þegar fyrrverandi og núverandi hljómsveitarmeðlimir
hans komu saman og spiluðu gamla slagara honum til heiðurs á fímmtugs afmælinu á Hótel KEA í gærdag.
Mynd: RÞB
„Finn engin rök“
- segir hitaveitustjóri um uppsögnina
Eftir Iöng og ströng fundahöld
í gærdag og gærkvöldi ákvað
bæjarráð Akureyrar sam-
hljóða að leggja til við bæjar-
stjórn að Wilhelm V. Stein-
dórssyni, hitaveitustjóra, verði
sagt upp starfí frá og með
morgundeginum, 22. október.
Ingólfur Árnason:
Brottrekstur
ónauðsynlegur
Bæjarráð og veitustjórn
funduðu saman í gærkvöldi
og þegar bókun bæjarráðs lá
fyrir samþykkti meirihluti
veitustjórnar þá ráðstöfun
sem í henni felst, þ.e. að hita-
veitustjóra verði sagt upp.
Ingólfur Árnason sem sæti á í
veitustjórn skilaði séráliti.
í bókun Ingólfs vegna máls-
ins segist hann vera andvígur
þessari málsmeðferð og að þessi
skoðanaágreiningur hafi ekki
þurft að leiða til brottreksturs ef
meiri sáttfýsi hefði verið sýnd.
Wilhelm hafi reynst Hitaveitu
Akureyrar góður og gegn fram-
kvæmdastjóri og segist Ingólfur
harma að hann skuli nú hverfa
úr starfi.
Samkvæmt áreiðanlegum
hcimiidum Dags mun verða far-
ið fram á það við Tómas
Hansson, tæknifulltrúa H.A.,
og Úlfar Hauksson, hagsýslu-
stjóra bæjarins, að þeir annist
daglega stjórn veitunnar þar til
annað verður ákveðið. HS
Páll Pétursson fékk flestar til-
nefningar og Stefán Guð-
mundsson næstflestar í skoð-
anakönnun sem fram fór hjá
framsóknarfélögunum í
Norðurlandskjördæmi vestra
um helgina. Skoðanakönnun
þessi var undanfari prófkjörs
um uppstillingu framboðslista
flokksins fyrir næstu alþingis-
kosningar sem fram fer um
miðjan næsta mánuð.
Sverrir Sveinsson á Siglufirði
varð í fjórða sæti í skoðanakönn-
uninni, en hann ásamt Páli og Stef-
áni skipuðu þrjú efstu sæti fram-
boðslista flokksins í kjördæminu
við síðustu alþingiskosningar. Að
sögn Ástvaldar Guðmundssonar
formannns kjördæmisstjórnar
tóku liðlega þúsund manns þátt í
skoðanakönnuninni. í kvöld verð-
Eftir um fimm klukkustunda
fundahöld, sem lauk um kl. hálf
ellefu í gærkvöldi var samþykkt
bókun bæjarráðs varðandi málið
sem hljóðar svo: „Málefni Hita-
veitu Ákureyrar eru og hafa ver-
ið eitt stærsta úrlausnarefni sem
bæjaryfirvöld hafa haft til með-
ferðar. í meginatriðum hefur ver-
ið samstaða í núverandi og fyrr-
verandi bæjarstjórn um þessi mál
og þess freistað að aðgerðir mið-
uðust við hagsmuni allra bæjar-
búa.
Á undanförnum árum hefur
þróast skoðanaágreiningur milli
hitaveitustjóra og bæjaryfirvalda
um veigamikil mál er varða hita-
veituna. Þessi ágreiningur hefur
skaðað Hitaveitu Akureyrar og
leitt af sér slíkan trúnaðarbrest
að ekki verður við unað.
Bæjarráð telur að fyrst svo sé
komið málum liggi leiðir hita-
veitustjóra og bæjaryfirvalda
ekki lengur saman. Fram hafa
farið ítarlegar viðræður við hita-
veitustjóra sem ekki hafa leitt til
neinnar lausnar, að mati bæjar-
ráðs. Því leggur bæjarráð til að
hitaveitustjóra verði sagt upp
starfi frá og með 22. október.
Bæjarráð vill af þessu tilefni
taka fram að hitaveitustjóra er
ekki á neinn hátt gefið að sök að
hafa gert mistök, tæknilegs eða
fjármálalegs eðlis. Þvert á móti
er lýst fullu trausti á störf hans á
því sviði.“ Tekin verður afstaða
til málsins á bæjarstjórnarfundi í
dag, væntanlega fyrir lokuðum
dyrum, og má reikna með að þar
verði þetta endanlega samþykkt.
HS
ur fundur á Sauðárkróki þar sem
kjörnefndir koma saman og
heildartalning fer fram.
Nokkur hiti er í mönnum í
Mývatnssveit vegna banns um
haustbeit fjár á svokölluðum
austurafrétti, sem er í landi
Reykjahlíðar vestan Jökulsár.
Landgræðslan hefur lýst
áhyggjum vegna mikillar beitar
bæði vor og haust á svæðinu og
fór fram á það að hreppsnefnd
beitti sér fyrir banni á haustbeit í
„Ég gerði bæjarráði grein fyrir
því, að ekkert það hafl komið
fram í þeirra máli, sem réttlæti
eða geti rökstutt mína
uppsögn. Ég lýsti því hins veg-
ar yflr í bréfl til bæjarstjóra að
ég væri tilbúinn til að taka við
uppsögn úr hans hendi hvenær
sem væri og yfírgefa Hitaveitu
Akureyrar án minnsta fyrir-
vara, enda lægju skýr rök til
grundvallar þeirri uppsögn,“
sagði Wilhelm V. Steindórsson
hitaveitustjóri í samtali við
Dag seint í gærkvöldi.
Wilhelm vísaði að öðru leyti til
áðurnefnds bréfs og sagðist ekki
Vilja tjá sig frekar um þetta mál
fyrr en hann fengi uppsögnina
staðfesta, sem væntanlega verður
að loknum fundi bæjarstjórnar
Akureyrar í dag.
í bréfi sínu bendir Wilhelm á
að hann sé hvorki grunaður um
fjármálalegt misferli né tæknileg
mistök varðandi rekstur Hita-
veitu Akureyrar. Hins vegar hafi
skoðanir hans ekki alltaf sam-
ræmst skoðunum fulltrúa innan
stjórnsýslu bæjarins og það telji
hann vera af hinu góða. Wilhelm
vísar þeim fullyrðingum á bug að
hann hafi ekki unnið eftir þeim
stefnumótunum sem yfirboðarar
ár. Einnig lagði ítölunefnd til fyr-
ir nokkrum árum að beit yrði
hætt á svæðinu.
Meirihluti Landeigendafélags
Reykjahlíðar gaf leyfi fyrir haust-
beit að þessu sinni. Eftir það
ákvað hreppsnefnd að banna beit
á svæðinu, en nokkrir bændur
hafa ekki sætt sig við þá ákvörð-
un og telja hreppsnefndina
hans hafa sett honum og segir
þær fullyrðingar byggðar á
ímyndun og getgátum bæjarfull-
trúa.
Jafnframt segist hann hér eftir
sem hingað til áskilja sér allan
„Þessi niðurstaöa gefur á eng-
an hátt til kynna í hvaða sæti
frambjóðendur koma til með
að verða,“ sagði Stefán Val-
geirsson alþingismaður í sam-
tali við Dag, en sem kunnugt
er voru tveir með fleiri tilnefn-
ingar en hann í skoðanakönn-
kontna út fyrir sitt verksvið. Fóru
þrír bændur með fé sitt til haust-
beitar og voru kærðir fyrir athæf-
ið. Þrátt fyrir það hafa fleiri
bændur farið með sitt fé og beitt
því á hið umdeilda afréttarland.
Þrátt fyrir allt eru menn
sammála um að landið sé illa far-
ið og stöðva þurfi beitina.
Nánar um málið á bls. 3.
rétt til að gagnrýna stjórnsýslu
Akureyrarbæjar. Það sé skylda
hans sem skattgreiðanda og borg-
ara.
Sjá yflrlýsingu hitaveitustjóra á
blaðsíðu 5. BB.
un sein efnt var til meðal
flokksbundinna framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra.
„Ég hef ástæðu til að ætla að
þau 58% þeirra sem tóku þátt í
skoðanakönnuninni og tilnefndu
mig, hafi hugsað sér að ég skipaði
1. sæti listans. Á sama hátt geri
ég ráð fyrir að þeir sem tilnefndu
Guðmund Bjarnason hafi hugsað
sér að setja hann í 1. eða 2. sæti
en alls ekki þriðja og að þeir sem
tilnefndu Valgerði Sverrisdóttur,
hugsi sér að setja hana einhvers
staðar ofarlega á listann. Hins
vegar kemur ekkert fram hvar.
Ég stefni því á 1. sætið ein-
vörðungu og hefi enga ástæðu til
að ætla annað en að það takist,“
sagði Stefán.
Endanleg skipan framboðslist-
ans verður ákveðin á aukakjör-
dæmisþingi Framsóknarflokks-
ins, sem haldið verður á Húsavík
2. nóvember nk. BB.
Páll og Stefán með
flestar tilnefningar
Deilt um upprekstrarmál í Mývatnssveit:
Þrír bændur kærðir
Stefán Valgeirsson:
„Ég stefni
einvöröungu
á fyrsta sætið“