Dagur - 21.10.1986, Side 3
21. október 1986 - DAGUR - 3
Mývatnssveit:
Deilt um haustbeit
þrír bændur kærðir
„Slæmt ástand svæöisins," segir landgræðslustjóri
Oskast ffl leigu
Iðnaðar- og/eða verslunarhúsnæði óskast til leigu,
þarf að vera 80-100 fm undir léttan iðnað.
Nánari upplýsingar í símum 23811 og 24305.
„Við höfum haft talsverðar
áhyggjur af löngum notkunar-
tíma á þessu afréttarlandi og
þegar gengið var frá ítölu fyrir
nokkrum árum var það niður-
staða ítölunefndar að taka fyrir
haustbeit á Austurfjöllum og
síðan taka fyrir vorbeitina.
Þetta er gert til að hlífa þessum
mellöndum sem þarna eru,“
sagði Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri, er hann var
spurður um fjárbeit mý-
vetnskra bænda á svokölluðum
austurafrétti, sem er vestan
Jökulsár á FjöIIum.
Eftir heimildum blaðsins er
nokkur hiti í mönnum út af þessu
máli og sitt sýnist hverjum.
Landgræðsla ríkisins óskaði
eftir því við hreppsnefnd Reykja-
hlíðarhrepps að tekið yrði fyrir
beit á þessu landi, landeigenda-
félagið gaf sitt leyfi fyrir beit,
hreppsnefndin bannaði síðan beit
á svæðinu. Þetta vildu ekki allir
bændur samþykkja og fóru með
fé sitt til beitar þar. Fyrir vikið
hafa þeir verið kærðir.
Sveinn Runólfsson sagði að
það hefði ekki átt að koma nein-
um á óvart þegar Landgræðslan
óskaði eftir því í sumar að þessi
mál yrðu tekin föstum tökum.
„Eftir opinn fund sem haldinn
var í haust tókum við fram að
málið væri í höndum sveitar-
stjórnarinnar. Hins vegar gerum
við okkur grein fyrir því að fyrir
örfáa bændur getur það verið erf-
iðleikum háð að fara ekki með fé
til haustbeitar á Austurfjöllin að
þessu sinni,“ sagði Sveinn.
Eftir þennan fund með bænd-
Hótel Húsavík:
Flug, bíll,
gisting og rjúpa
Hótel Húsavík býður nýjar
pakkaferðir á tímabilinu 15.
okt. til 15. nóv. í þessum
pökkum er innifalið flug, gist-
ing í tvær nætur, bíll og
rjúpnaveiðileyfi.
Samið hefur verið við eiganda
jarðarinnar Sandfellshaga í
Öxarfirði um leyfi til rjúpnaveiði
í landi jarðarinnar á Öxarfjarðar-
heiði. Fjöldi skotmanna verður
takmarkaður þannig að aðeins fá
átta manns leyfi til veiða í einu,
þar af sex á vegum hótelsins.
Rjúpnaveiðimennirnir geta feng-
ið leiðsögn ef þeir óska og ábend-
ingar um hvar helst sé veiðivon.
Pétur Snæbjörnsson hótelstjóri
sagði að fyrst og fremst væri litið
á þetta sem tilraun í haust en
vonir væru bundnar við þessar
ferðir í framtíðinni, sérstaklega
varðandi að fá hingað erlenda
skotveiðimenn. Ferðir þessar
verða kynntar af söluaðilum er-
lendis og á Keflavíkurflugvelli.
Þær kosta frá Reykjavík, miðað
við að fjórir séu saman um bíl,
7.501 kr. á mann og upp í 10.176
fyrir einn. Farkaup á Húsavík
veitir allar nánari upplýsingar um
ferðir þessar t.d. getur fólk feng-
ið hluta pakkans keyptan, sleppt
fluginu og/eða bílnum.
IM
Skoðanakönnun framsóknarmanna:
Segir ekki
til um röð
„Vegna þess misskilnings, sem
komið hefur upp um niður-
stöður skoðanakönnunar Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra, finnst mér
ástæða til að árétta það að
framsóknarmenn voru ekki að
ákveða röðina á framboðslista
flokksins með þessari skoðana-
könnun,“ sagði Árni V. Friðr-
iksson sem sæti á í kjörnefnd
flokksins.
Árni sagði að tilgangurinn
hefði einungis verið sá að fá fram
þau nöfn sem flokksbundnir fram-
sóknarmenn vildu helst sjá á
framboðslistanum fyrir komandi
alþingiskosningar.
„í skoðanakönnuninni áttu
um fór landgræðslustjóri ásamt
fleirum og skoðaði umrætt beit-
arsvæði. Kom þá í ljós að „ástand
mellanda þarna er slæmt,“ eins
og Sveinn sagði. Hann vonaði að
málið fengi farsæla lausn og ekki
yrði farið með fé á þennan stað
næsta vor, fyrr en gróður væri
kominn vel af stað og að haust-
beit yrði engin.
Helga Valborg Pétursdóttir
oddviti í Mývatnssveit sagðist
ekki vilja tala um þetta mál, en
það hefði verið niðurstaða
hreppsnefndar að banna haust-
beit á þessum afrétti.
Landeigendafélag Reykjahlíð-
ar á þetta umrædda land og gaf
félagið leyfi til beitar á afréttin-
um. Ekki var full samstaða meðal
eigenda í félaginu. Jón Illugason
formaður landeigendafélagsins
ságði að meirihluti landeigenda
hefði gefið samþykki sitt fyrir
„takmarkaðri beit,“ eins og Jón
orðaði það.
Bændur eru ekki á eitt sáttir
með úrskurð sveitarstjórnarinnar
og fóru bændur af 3 búum með fé
sitt til haustbeitar á afréttinn.
Fyrir vikið hafa þeir verið kærðir.
Vitað er um fé af 1 búi til viðbót-
ar sem komið er til haustbeitar á
Austurfjöllum. „Landeigendur
munu ekki koma inn í þetta mál
að svo stöddu. Ég tel að flestir
séu óhressir með það hvernig
málin hafa þróast. Einnig er ég
þeirrar skoðunar að það hefði
verið hægt að leysa þetta mál
með góðu, því það er enginn
ágreiningur með stefnuna í þessu
og allir gerðu sér grein fyrir því
að í haust yrði fé rekið á austur-
afrétt í síðasta sinn,“ sagði Jón.
gej-
m EIGNAMIÐSTÖÐIN
Skipagötu 14
3. hæð (Alþýðuhúsinu)
Síminn er 2460Ö.
Bændur athugið!
Hef kaupanda að góðri bújörð á Norðurlandi.
Þarf að vera kúabú eða blandað bú.
Nánari upplýsingar á Eignamiðstöðinni. Sími: 2-46-06.
Sölustjóri: Björn Kristjánsson, heimasimi 21776.
Éi^RARIK UtbOð
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK: 86016. Innlend stálsmíði. Háspennulín-
ur.
Opnunardagur: Föstudagur 7. nóvember 1986,
kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir
opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað
að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavíkfrá
og með mánudegi 20. október 1986 og kosta kr.
300.- hvert eintak.
Reykjavík 16. október 1986
Rafmagnsveitur ríkisins.
menn að nefna 8 nöfn mest, en
ekki var farið fram á röðun og
því skipti engu máli í hvaða röð
menn voru skrifaðir á seðilinn,“
sagði Árni ennfremur.
Hið eiginlega prófkjör fer fram
á aukakjördæmisþingi Fram-
sóknarflokksins, sem haldið
verður á Húsavík 2. nóvember
nk. Þar munu um 300 fulltrúar
frá öllum framsóknarfélögum í
kjördæminu kjósa um röð 7 efstu
manna á framboðslistanum.
Minnst 10 þeirra sem efstir voru í
skoðanakönnuninni verða þá í
kjöri. Fyrst verður kosið um 1.
sætið og þegar úrslit úr þeirri
kosningu liggja fyrir verður kosið
í 2. sæti og svo koll af kolli. B B.