Dagur - 21.10.1986, Blaðsíða 5
21. október 1986 - DAGUR - 5
ur að Gamla skóla og mynduðu
hring í portinu vestan hússins.
íklæddir skrautlegustu búningum
hófu þeir trylltan stríðsdans með
Blandaðir skyrréttir - nei takk.
tilheyrandi öskrum og óhljóðum
þar sem þeir kröfðust þess að fá
að handfjatla busagreyin. Þessi
vígalegi hópur var meðal annars
vopnaður sérhönnuðum toller-
inganetum og meðan engir busar
sýndu sig æfðu böðlarnir sig á
þartilgerðri brúðu. Sú fékk að
fljúga.
Smám saman fóru nemendur í
öðrum og þriðja bekk að tínast á
svæðið og lokuðu portinu að
vestan. Nokkrir þeirra gengu í
það verk að henda lafhræddum
busagreyjum út úr skólanum,
beint í fangið á virðulegum
fjórðubekkingum sem buðu upp
á blandaða skyrrétti með soð-
kjarnasósu. Það þýddi ekki að
neita. Rúsínan í pylsuendanum
var svo sjálf tolleringin og að
henni lokinni töldust nýnemar til
manna.
Eftir þennan ægilega gaura-
gang þar sem margir slettu skyri
hélt öll hersingin niður í Miðbæ.
Fyrrverandi busar ráku lestina
missnyrtilegir og voru þeim sýnd-
ir helstu skemmtistaðir bæjarins
og ein útsala eða svo.
Nýja línan frá Loreal.
Aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélags Húsavíkur verður
haldinn föstudaginn 24. okt. kl. 20.30. á Hótel
Húsavík (kaffiteríu).
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Venjuleg aðalfundarstörf.
4. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og flokksþing.
5. Ávarp Guðmundar Bjarnasonar alþingismanns.
6. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Mætið vel og takið með ykkur gesti. Stjórnin.
Yfirlýsing hitaveitustjóra:
,Aðeins málefnaleg rök
hagga mínum skoðunum‘
Svo sem fram kemur í fréttum
á forsíðu, samþykkti bæjarráð
einróma að vísa Wilhelm V.
Steindórssyni hitaveitustjóra
úr starfi frá og með morgun-
deginum. Hann var áður búinn
að lýsa því yfir að hann segði
ekki upp sjálfur, enda fyndi
hann engar forsendur fyrir
uppsögn sinni.
í bréfi sem Wilhelm ritaði
bæjarstjóra á sunnudag gerir
hann grein fyrir afstöðu sinni í
máli þessu. Þar segir hann:
„í framhaldi af símtali okkar
síðastliðið fimmtudagskvöld,
fundi okkar seinnipart síðastlið-
ins föstudags og fundi okkar í
gær, sendi ég yður hér með þá
skriflegu yfirlýsingu sem ég á
framangreindum laugardagsfundi
kvaðst myndi gera.
í lok árs 1980 er ég ráðinn sem
framkvæmdastjóri Hitaveitu
Akureyrar. Ég er ráðinn á grund-
velli minnar þekkingar og reynslu
í orkufræðum og stjórnsýslu.
Hið fyrsta, annað og þriðja
boðorð, sem mér ber að fylgja í
því starfi, sem mér var treyst
fyrir, var að láta aldrei af sann-
færingu minni um hvað er rekstri
Hitaveitu Akureyrar og þar af
leiðandi Akureyringum öllum
fyrir bestu til lengri tíma er litið.
Jafnframt er ég skuldbundinn
eigendum veitunnar, þ.e. Akur-
eyringum öllum, að láta aldrei af
samvisku minni í viðskiptafræði-
legum sem pólitískum samskipt-
um mínum fyrir hönd Hitaveitu
Akureyrar.
Hið eiginlega hlutverk stjórnar
Hitaveitunnar ætti að vera að
fylgjast með því að framkvæmda-
stjóri brygðist ekki þessari skyldu
og hvetja hann til starfa á þessum
grundvelli.
Það er þessi skylda mín í starfi,
sem ég hef eftir bestu samvisku
fylgt, er bæjarráð Akureyrar nú
gangrýnir.
Ég er ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri Hitaveitu Akur-
eyrar m.a. á grundvelli menntun-
ar minnar, sem er meistaragráða
í orkufræðum. Með undirskrift
skólameistara viðurkenndrar vís-
indastofnunar í Danmörku er
mér gefin viðurkenning á því að
vera hæfur til að standa vísinda-
og tæknilega undir þeirri mennta-
gráðu sem hér um ræðir. Skóla-
meistari með handtaki tók hins
vegár af mér loforð fyrir hönd
viðkomandi vísindastofnunar og
allra handhafa hér um ræddrar
menntagráðu, að ég í mínu verð-
andi lífsstarfi léti freistingar dæg-
uramstursins aldrei ræna mig
innstu sannfæringu minni um það
hvað þekking mín teldi vera rétt-
ast á hverjum tíma - og forðast
hvers kyns pólitísk kaup í því
sambandi.
Það er þessi skuldbinding mín
sem bæjarráð Akureyrar nú
gagnrýnir og vill mig ræna.
Ég er ráðinn sem fram-
kvæmdastjóri Hitaveitu Akur-
eyrar með samhljóða samþykki
bæjarstjórnar Akureyrar þar sem
mér er gefið óbundið málfrelsi og
tillöguréttur. Ég er engum póli-
tfskum hagsmunasamtökum
bundinn og hef engin slík trúnað-
arsambönd.
Þetta frjálsræði mitt og póli-
tíska hlutleysi gagnrýnir bæjar-
ráð nú.
í máli yðar hefur komið fram
að ég er hvorki grunaður um fjár-
málalegt misferli né tæknileg
mistök varðandi rekstur Hita-
veitu Akureyrar. Það hefur hins
vegar komið fram í mali yðar, að
ég hafi skoðanir á málefnum
Hitaveitu Akureyrar sem ekki
alltaf samræmast skoðunum full-
trúa innan stjórnsýslu Akureyr-
arbæjar. Það tel ég ekki vera af
öðru en því góða.
Fullyrðingar þess efnis að ég
vinni ekki eftir þeim stefnu-
mótunum sem bæjarstjórn Akur-
eyrar setur eru byggðar á ímynd-
un og getgátum bæjarfulltrúa,
þar sem aldrei hefur á það reynt,
vegna þess að mér hefur fram til
þessa ekki verið boðin þátttaka í
viðræðum um umrædd mál.
í frainhaldi af framansögðu til-
kynnist yður það hér með að ég
finn engin rök fyrir því að ég segi
starfi mínu lausu hjá Hitaveitu
Akureyrar og tilkynni því jafn-
framt að ég get ekki orðið við
hinni munnlegu ósk bæjarráðs
Akureyrar.
Yfirlýsing
Ég er reiðubúinn að starfa áfram
að því verkefni sem mér hefur
verið treyst fyrir á undanförnum
árum hjá Hitaveitu Akureyrar, á
sama grundvelli hér eftir sem
hingað til.
Eg áskil mér allan rétt til að
láta skoðanir mínar í ljós um
málefni veitunnar, bæði innan
stjórnsýslu Akureyrarbæjar sem
utan. Eg tel það vera grundvall-
arskyldu mína sem framkvæmda-
stjóra Hitaveitu Akureyrar. Að-
eins málefnaleg rök geta haggað
mínum skoðunum.
Ég áskil mér allan rétt til að
gagnrýna stjórnsýslu Akureyrar-
bæjar hér eftir sem hingað til. Ég
tel það skyldu mína sem borgara
á Akureyri og skattgreiðanda að
láta skoðanir mínar í ljós hvað
varðar það hvernig staðið er að
stjórnsýslu bæjarins. Aðeins
málefnaleg umræða og skýringar
geta breytt sannfæringu minni.
Ég er reiðubúinn til að taka við
uppsögn úr hendi bæjarstjórans á
Akureyri hvenær sem er og yfir-
gefa Hitaveitu Akureyrar án
fyrirvara, enda liggi til grundvall-
ar uppsögninni skýr rök.
Ekki síst á þetta við, ef sú
ráðagerð gæti leyst einhver innri
vandamál bæjarstjórnar Akur-
eyrar.“
19. október 1986,
Wilhelm V. Steindórsson.
7
Fyrsta skipti á Islandi
Fyrir þá sem hafa góðan smekk.
Karlmannaföt frá vestur-þýska
fy r irtækinu Bemhardt.
Frábær framleiðsla á góðu verði.
(Einhneppt, tvíhneppt, yfirstærðir).
☆
Einnig höfum við fengið okkar fyrstu
sendingu frá hinu þekkta fyrirtæki
☆
pQtrOVQ í Belgíu.
Peysur ★ Buxur ★ Skyrtur ★ Treflar
☆
Prentflauelsbuxurnar komnar aftur.
Stærðir 30-40, 4 litir.
☆
ATH!
Föt eftir máli, sem afgreiða á fyrir jól
þarf að panta fyrir 15. nóvember.
Klæðskeraþjónusta.
errabudin
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.
/