Dagur - 21.10.1986, Page 8
8 - DAGUR - 21. október 1986
I minningu
Brodda Magnússonar
F. 8.12. 1963 -D. 11.10. 1986
In memoriam
Og því varð allt svo hljótt við
helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur
brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi
lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu
hinna,
sem horfðu eftirþér ísárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast
ævinlega,
þitt bjarta voríhugum vina þinna.
Og skín ei Ijúfast ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar
nemur,
og eilíflega, óháðþví, sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Sem sjálfur Drottinn mildum
lófum lyki
um Iífsins perlu í gullnu augnabliki-
Tómas Guðmundsson.
Kveðja frá bekkjarsystkinum úr
Oddeyrarskóla.
„Fjallatindar laða, lokka,
löngun magnast, brennur þrá. “
Þessar Ijóðlínur úr þekktum
skátasöng koma gjarnan í hug
okkar, þegar við minnumst lið-
inna samverustunda með Brodda
Magnússyni. Hann dvaldi ekki
mjög lengi meðal okkar, því að
kallið kom snemma. En sú mynd
sem hann skildi eftir í hugum
okkar er skýr og tær.
Broddi starfaði sem skáti
nálega helming ævi sinnar, því að
hann byrjaði í skátastarfi, þegar
hann var um 10 ára og var mjög
virkur í starfi allt þar til yfir lauk.
Fyrstu árin starfaði hann í skáta-
sveit og síðan í dróttskátasveit í
Skátafélagi Akureyrar. Strax og
aldur leyfði gekk hann síðan í
Hjálparsveit skáta á Akureyri.
Hugur Brodda Ieitaði ætíð mikið
til fjalla og fjallaklifur var honum
mikið áhugamál. Fjallatindarnir
„löðuðu og lokkuðu“ og þeir eru
ekki margir tindarnir hér í ná-
grenni Akureyrar sem hann hafði
ekki klifið. í þessum ferðum úti í
náttúrunni tengdumst við traust-
um vináttuböndum. Þeim tengsl-
um verður vart betur lýst, en með
orðum Kahlil Gibran:
„Pegar vinur þinn talar,
þá andmælir þú honum óttalaust eða
ert honum samþykkur afheilum hug.
Og þegar hann þegir,
skiljið þið hvor annan.
Því að íþögulli vináttu ykkar
verða allar hugsanir, allar langanir og
allar vonirykkar til, og þeirra ernotið
í gleði, sem krefst einskis.
Þú skalt ekki hryggjast, þegar þú
skilur við vin þinn, því að það,
sem þér þykir vænst um í fari hans,
getur orðið þér Ijósara í fjarveru hans,
eins og fjallgöngumaður sér fjallið
best af sléttunni. “
Við viljum gjarnan gera þessi
orð að okkar, þegar við nú kveðj-
um vin okkar, Brodda Magnús-
son.
Við sendum einnig, með þess-
um orðum, innilegar samúðar-
kveðjur til móður, systkina og
annarra ættingja.
Félagar úr
Hjálparsveit skáta á Akureyri.
Pétur Jónsson gítarleikari.
Gítartónleikar
í Gamla Lundi
Pétur Jónasson gítarleikari held-
ur tónleika í Gamla Lundi við
Eiðsvöll á Akureyri, miðviku-
dagskvöldið 22. október og hefj-
ast tónleikarnir kl. 20.30.
Góð frammistaða Péturs hefur
vakið athygli í tónlistarheimin-
um, hann var m.a. valinn í sumar
ásamt 11 öðrum úr stórum hópi
gítarleikara alls staðar úr heimin-
um til þess að taka þátt í nám-
skeiði hjá hinum heimsþekkta
gítarsnillingi André Segovia. í
ágúst fékk Pétur styrk frá
spænska ríkinu til þess að sækja
árlegt námskeið, helgað spænskri
tónlist, í Santiago de Compost-
ela. Á efnisskránni í Gamla
Lundi verða verk eftir Spánverj-
ana Tárrega og Torroba, einnig
mexíkanska tónskáldið Manuel
M. Ponce. Ennfremur tónverk
eftir Hafliða Hallgrímsson, sem
samið er undir áhrifum af sög-
unni um „draum Jakobs“.
Þetta eru fyrstu opinberu tón-
leikarnir, sem haldnir eru í
Gamla Lundi, en þar hafa áður
verið haldnar myndlistasýningar,
fyrirlestrar og námskeið.
í sumar var hafín endurbygg-
ing Karnaskólans í Ólafsfírði.
Skólinn, sem var fyrst tekinn í
notkun árið 1949, þurfti endur-
bóta við og er langt síðan farið
var fram á fjárveitingu vegna
þessa. Þá hafa skólamenn farið
fram á samnýtingu skólahús-
næðisins í bænum. Framhalds-
deildir gagnfræðaskólans
verða starfræktar með öðru
sniði nú í ár en áður vegna
umtalsverðrar fækkunar
nemenda.
Skólastarf í Ólafsfirði skiptist í'
forskóla, barnaskóla með 1. til 6.
bekk og gagnfræðaskóla með 7.,
8. og 9. bekk auk framhalds-
deilda. Fram að þessu hafa um 30
ner.iendur stundað nám í fram-
haldsdeildunum, en nú hafa
árgangar minnkað þannig að nú
eru ekki nema 12 til 15 nemendur
í framhaldsnámi í Ólafsfirði.
Gagnfræðaskóli Ólafsfjarðar. Myndir: EHB
Bamaskólinn endurnýjaður
- Gagnfræðaskólinn tekur upp vélstjórnar- og skipstjórnarnám
Óskar
Þór Sigurbjörnsson, skólastjóri.
Óskar Pór Sigurbjörnsson,
skólastjóri Gagnfræðaskóla
Ólafsfjarðar, sagði að undanfarin
ár hefði verið boðið upp á fjór-
þætt nám við framhaldsdeildir
skólans: Viðskiptabraut, heilsu-
gæslubraut, uppeldisbraut og
bóknámsbraut sem hefði sam-
svarað fyrsta árs námi mennta-
skóla. Fækkun árganganna hefði
haft í för með sér að nauðsynlegt
hefði reynst að færa nám fram-
haldsdeilda í nýtt horf. I vetur
yrði boðið upp á vélstjórnar- og
skipstjórnarnám í stað fram-
haldsdeildanna. í þessum mánuði
verður byrjað að kenna nám-
skeið sem veitir svonefnd 80
tonna réttindi fyrir skipstjóra. Þá
verður farið út í vélstjórnar-
kennslu og kennslu fyrir véla-
verði.
Hugmyndir um samnýtingu
skólahúsnæðis ganga út frá því að
vissir hlutar kennsluhúsnæðis,
t.d. handavinnustofur, sér-
kennslustofur, leikfimiaðstaða,
verði nýtt af báðum skólunum
sameiginlega. Þannig skapast
betri aðstaða og meiri hag-
kvæmni verður í rekstrinum.
Óskar sagði, að ekki stæði til að
skólarnir yrðu sameinaðir stjórn-
unarlega þó samnýting húsnæðis
yrði tekin upp. Það væri ljóst að
sameining skólanna yrði ríkis-
sjóði dýrari en núverandi fyrir-
komulag. EHB
Námsflokkar Akureyrar:
Aðsókn
mikil
- þrátt fyrir hærri
kennslugjöld
Bárður Halldórsson, forstöðu-
maður Námsflokka Akureyr-
ar, segir að aðsókn að Náms-
flokkunum sé mög góð. Hækk-
un námsgjalda hefur ekki
dregið úr aðsókninni. Orsök
þess að námsgjöld hækka nú er
að laun kennara voru hækkuð,
einnig má nefna að Akureyrar-
bær styrkir rekstur Námsflokk-
anna ekki lengur. Eina nám-
skeiðið sem Akureyrarbær
styrkir er námskeið fyrir ófag-
lært starfsfólk í ýmsum
störfum, en þeir sem taka þátt
í því eiga rétt á ákveðinni
launahækkun.
Námsflokkar Akureyrar verða
starfræktir í húsi tæknisviðs
VMA í vetur að mestu leyti en
undanfarin ár hafa þeir verið til
húsa í Gagnfræðaskóla Akureyr-
ar. Orsök þess að hætt var að
kenna á vegum námsflokkanna í
Gagnfræðaskólanum var, að
sögn Bárðar, að bæjarráð úthlut-
aði húsnæðinu í skólanum án
þess að hafa samband við skóla-
stjórann. Viss ágreiningur hefði
komið upp um þetta þannig að
nú væru aðeins kennd tvö nám-
skeið Námsflokkanna í Gagn-
fræðaskólanum.
Boðið var upp á fjölbreyttari
námskeið á vegum Námsflokk-
anna nú í haust en oft áður.
Aðsókn var nægileg að öllum
námskeiðunum nema fjórum, og
einu verður að fresta til vorann-
ar. EHB